Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hegranes SK og Freyja
fara í dag. Latana fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Vit-
jaz kemur í dag, Selfoss
kemur á morgun til
Straumsvíkur.
Mannamót:
Félagsstarfið Norð-
urbrún 1 og Furugerði
1. Þriðjud. 3. apríl verð-
ur farið í Fljótshlíðina.
Skráning á Norðurbrún
í s. 568-6960 og í Furu-
gerði í s. 553-6040.
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10
boccia, kl. 14 félagsvist,
Miðvikud. 4. apríl verður
farin verslunarferð í
Hagkaup, Skeifunni, kl.
10. Kaffi í boði Hag-
kaups. Síðasta versl-
unarferð fyrir páska.
Skráning í Aflagranda í
s. 562-2572.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, penna-
saumur og perlusaumur,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13.30 félags-
vist, kl. 13 opin smíða-
stofan, kl. 13.30 félags-
vist, kl. 16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 og kl. 13
bútasaumur, kl. 10 sam-
verustund.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin á
morgun kl. 16.30–18, s.
554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 9 myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10–13 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 handavinna
og föndur, kl. 13.30
enska, framhald.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun, kl.
9.45 leikfimi, kl. 9 hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Sléttu-
vegi 11–13. Félagsvist á
morgun kl. 14.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Á morgun, mánudag,
verða púttæfingar í
Bæjarútgerðinni kl. 10–
11.30. Tréútskurður í
Flensborg kl. 13, félags-
vist kl. 13.30. Þriðjud.
brids og saumur kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Sunnudagur:
Félagsvist kl. 13.30.
Dansleikur kl. 20, Caprí-
tríó leikur fyrir dansi.
Dagsferð verður farin í
Grindavík–Bláa lónið–
Reykjanes mánudaginn
2. apríl. Brottför kl. 10
frá Ásgarði, Glæsibæ,
nokkur sæti laus. Leið-
sögumaður: Pálína Jóns-
dóttir. Mánudagur:
Brids kl. 13.30. Dans-
kennsla kl. 19 og kl.
20.30 fyrir byrjendur.
Söngvaka kl. 20.30.
Stjórnandi: Anna María
Daníelsen.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 13.30 bankaþjónusta,
kl. 15.30 dans hjá Sig-
valda.
Félagsstarf aldraðra,
Háteigskirkju. Spilað í
Setrinu mánudaga kl.
13–15, kaffi. Miðviku-
dagar kl. 11–16 bæna-
stund, súpa í hádeginu,
spilað frá kl. 13–15,
kaffi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 14 félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, kl.
9.30 gler og postulíns-
málun, kl. 13.30 lomber
og skák, kl. 14.30 enska.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 10.30 bæna-
stund, kl. 14 sögustund
og spjall.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 keramik,
tau- og silkimálun og
klippimyndir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Norðurbrún 1. Á morg-
un bókasafnið opið kl.
12–15, ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9.15 handavinna, kl.
10 boccia, kl. 13 kóræf-
ing, kl. 12.15 dans-
kennsla, framhald, kl.
13.30 danskennsla, byrj-
endur, kl. 13.
Vitatorg. Á morgun kl. 9
smiðjan, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 13
handmennt, kl. 13 leik-
fimi, kl. 13 spilað.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
kl. 13 á mánudögum og
fimmtudögum. Mæting
og skráning kl. 12.45.
Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Á
morgun kl. 19 brids.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis eru
með fundi alla mánu-
daga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12, Reykjavík.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla.
Félag austfirskra
kvenna heldur fund í
safnaðarheimili Grens-
áskirkju mánud. 2. apríl
kl. 20.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur verður í Kristni-
boðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 mánud. 2.
apríl kl. 20. Leifur Sig-
fússon kristniboði og
William Lopeda, predik-
ari frá Kenýa, tala á
fundinum. Allir karl-
menn velkomnir.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar, fundur í Safn-
aðarheimili Fella- og
Hólakirkju þriðjudaginn
3. apríl kl. 20. Kínversk-
ur matur. Konur, látið
vita um þátttöku í síma
557-3240, Birna.
Félag breiðfirskra
kvenna. Páskabingó
verður mánudaginn 2.
apríl kl. 20. Margt eigu-
legra muna. Rætt verð-
ur um vorferðina á
Njáluslóðir.
Kvenfélag Háteigs-
kirkju. Aðalfundurinn
verður þriðjudaginn 3.
apríl kl. 20 í safn-
aðarheimilinu. Venjuleg
aðalfundarstörf. Óvænt
uppákoma.
Kvenfélag Óháða safn-
aðarins. Aðalfundurinn
verður haldinn í
Kirkjubæ þriðjudaginn
3. apríl kl. 20.30.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi. Helgarferð
um Snæfellsnes 26. til
27. maí, upppantað í þá
ferð. Hressingardvöl á
Laugarvatni 10.–15. júní
og ferð til Prag 5.–11.
ágúst, upppantað í þá
ferð.
Allar konur sem veita
eða hafa veitt heimili
forstöðu án launa eiga
rétt á orlofi. Þær konur
sem ekki hafa áður farið
í orlof ganga fyrir með
rými. Uppl. og innritun
hjá Ólöfu, s. 554-0388, og
Birnu, s. 554-2199. Ath.
Innritun lýkur 30. apríl.
Kvenfélag Seljasóknar,
fundur þriðjudaginn 3.
apríl kl. 20. Gestur fund-
arins: Kolbrún Björns-
dóttir grasalæknir.
Félagskonur mætið og
takið með ykkur gesti.
Kvenfélag Garðabæjar
heldur mars-fund sinn á
Garðaholti þriðjudaginn
3. apríl kl. 20.30.
Kvenfélag Laug-
arnessóknar. Afmæl-
isfundur félagsins verð-
ur á morgun, 2. apríl, kl.
20 í safnaðarheimilinu.
Konur í Kvenfélagi Ár-
bæjarsóknar koma í
heimsókn.
Kvenfélag Lágafells-
sóknar. Fundur verður
haldinn í Hlégarði
mánudaginn 2. apríl kl.
20.30. Gestir verða kon-
ur úr kvenfélagi Garða-
bæjar. Tilkynna þarf
þátttöku í síma 566-
7835.
Hana-nú, Kópavogi.
Spjallstund verður kl. 14
mánudaginn 2. apríl á
lesstofu Bókasafns
Kópavogs. Fundarefni:
Svipleiftur úr sögu
Hana-nú. Kl. 15 verður
byrjað að skrá frásagnir
í tölvutæku formi.
Í dag er sunnudagur 1. apríl, 91.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Takið á móti ögun minni fremur
en á móti silfri og fræðslu fremur
en úrvals gulli.
(Orðskv. 8, 10.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 birgðir, 4 búkur, 7 dáni,
8 vegurinn, 9 spil, 11
hægfara, 13 skjóla, 14
kirtil,
15 fum, 17 döpur, 20
poka, 22 venja, 23 húð-
poki, 24 vagn, 25 fleina.
LÓÐRÉTT:
1 loðskinns, 2 afhenti, 3
líkamshlutinn, 4 vísa, 5
skrá, 6 vitlausa, 10
bumba,
12 læri, 13 skordýr, 15
snauð, 16 ber, 18 tunna,
19 geta neytt, 20 klína, 21
ófögur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gasalegur, 8 járni, 9 sunna, 10 nía, 11 mðrin, 13
nárar, 15 svans,
18 sauðs, 21 tak, 22 fálka, 23 agnar, 24 ótuktinni.
Lóðrétt: 2 akrar, 3 arinn, 4 eisan, 5 unnur, 6 hjóm, 7
barr, 12 inn, 14 ása,
15 sefa, 16 atlot, 17 stakk, 18 skari, 19 unnin, 20 séra.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
STUÐNINGSMANNAKLÚBB-AR íþróttaliða hafa hlotið
skemmtileg nöfn, sumir hverjir. Vík-
verja er kunnugt um Hauka í horni,
sem eru vitaskuld áhangendur
Hauka í Hafnarfirði, og nýverið rakst
Víkverji á miða frá áhangendum
handboltaliðs Fram. Þeir kallast, að
sjálfsögðu, Framstuðarar!
x x x
FYRIR svörum í dálkinum Maðurvikunnar í Víkurfréttum, sem
gefið er út í Keflavík, sat nýlega
Sverrir Vilbergsson, hafnarstjóri í
Grindavík. Víkverja fannst skemmti-
leg tilbreyting að sjá, sérstaklega í
einu svari Sverris, að ekki setja sig
allir í stellingar vegna jafnréttis sem
svo mikið er rætt um þessi misserin.
Meðal þess sem Sverrir er spurður
um er: Uppáhaldsilmur? Og hann
svarar: Þegar konan kallar matur.
x x x
VÍKVERJI brá sér í kvikmynda-hús á dögunum, nánar tiltekið í
Regnbogann og sá frönsku myndina
Chocolat, sem reyndar er leikin á
ensku.
Skemmst er frá því að segja að
Víkverji skemmti sér afbragðsvel, en
hann er einmitt sérlega hrifinn af
myndum eins og þessari, þar sem
ekki er að finna neinar byssur, engan
hávaða eða læti. Óhætt er að mæla
með myndinni þótt vissulega sé hún
ekki óaðfinnanleg.
Víkverji var einnig afskaplega hrif-
inn af rúmensku kvikmyndinni Galni
gesturinn (Gadjo dilo) frá 1999 á
RÚV síðastliðið sunnudagskvöld. Þar
sagði frá ungum Frakka sem var á
ferð um Rúmeníu í leit að söngkonu
sem pabbi hans hélt upp á, eins og
sagði í dagskrárkynningu. Þetta var
frábær mynd; reyndar engir byssu-
hvellir, engir eltingaleikir á bílum –
en nóg af „daglegu lífi“; venjulegu
fólki við leik og störf.
Víkverji gæti þegið meira af mynd-
um sem þessari, um venjulegt fólk.
Myndir frá Norðurlöndunum, Frakk-
landi, Ítalíu, Spáni eða Austur-Evr-
ópulöndum. Að ekki sé talað um Suð-
ur-Ameríku. Það er auðvitað
margtuggin klisja, en engu síður
staðreynd, að heimsbyggðinni er boð-
ið upp á allt of mikið af bandarískum
kvikmyndum.
x x x
VÍKVERJI hlustar talsvert á Rás1 ríkisútvarpsins. Þar er boðið
upp á margvíslegt úrvalsefni, starfs-
fólkið er ekkert sérstaklega að flýta
sér eins og virðist stundum raunin á
öðrum stöðvum, hlustandinn er ekki
truflaður með neinum pítsutilboðum
eða leikjum, heldur getur gengið að
góðri dagskrá vísri. Dagskráin er að
mestu leyti frábær, að mati Víkverja;
þar er að finna góða tónlistarþætti,
fróðleik og ýmislegt fleira. En sumt
virðist engu að síður hálfpartinn barn
síns tíma. Úrelt eða jafnvel gagns-
laust. Eins og til dæmis þetta, sem
Víkverji heyrði einhvern morguninn:
Lagarfoss fer í dag frá Vestmanna-
eyjum til Immingham og Rotter-
dam … Er einhver að hlusta á út-
varpið kl. 10.15 árdegis sérstaklega
til að fylgjast með ferðum vöruflutn-
ingaskipa? Þetta eru eflaust leifar frá
þeim tíma þegar enginn hafði aðgang
að textavarpi eða Netinu en Víkverji
er næsta viss um að þessi þjónusta út-
varpsins þjónar litlum tilgangi í dag.
Og strax í kjölfarið var svo lesið
gengi gjaldmiðla. „… sterlingspund
131 króna og 88 aurar, japanskt jen
0,758 krónur …“ Hefur einhver gagn
af því þegar upplýsingar af þessu tagi
eru lesnar upp jafn hratt og raun ber
vitni?
x x x
VÍKVERJI fór á dögunum íSkólavörubúðina, sem nú er til
húsa á Skemmuvegi í Kópavogi.
Langt er síðan komið var síðast í
verslunina og þá var hún annars stað-
ar, en Víkverji verður að segja að
bæði honum og börnum hans fannst
hálfgert ævintýri að koma á staðinn.
Vöruúrval er svo fjölbreytt í verslun-
inni að hrein unun er að ganga þar
um, skoða og grúska.
ÞAÐ er ekki ofsögum sagt
af því, hvernig við íslenskar
húsmæður skörum framúr
á flestum sviðum og styðj-
um þá sem leggja land und-
ir fót. Hér á ég við Bónus-
feðga, sem ætla nú að gera
garðinn frægan beggja
vegna Atlantshafsins, í
Bandaríkjunum og í Evr-
ópu. Bónus-dollar verslanir
fyrir vestan ganga svo vel
að þeir reikna með að
kaupa yfir 400 verslanir.
Vil ég þess vegna skora á
íslenskar húsmæður að
herða nú róðurinn og sam-
einast um að kaupa nú bet-
ur í Bónus og styðja við
bakið á þeim feðgum.
Hvernig gætu þeir öðruvísi
verið samkeppnisfærir í
Bandaríkjunum, en þar er
matvara 30-50% ódýrari en
hér á Fróni. Getur verið að
úr pyngju okkar séu komn-
ir möguleikar þeirra til
þessa að stórgræða? Við
verðum að vænta þess að
verð lækki á okkar nauð-
synjum þegar vel fer að
ganga hjá þeim utanlands.
Þess vegna vil ég leyfa mér,
meðan ég og aðrir bíða þess
að sá tími renni upp, að
kalla þá „geisla-baugs-
feðga“ og um hugann fer að
„bráðum komi betri tíð með
blóm í haga“.
Húsmóðir.
Eignarskattur
og fasteignagjöld
MIKIL hækkun hefur átt
sér stað á eignarskatti og
fasteignagjöldum. Þessi
gjöld hafa hækkað um 40%
á síðustu tveimur árum og
kemur hart niður á eldra
fólkinu og gerir því ókleift
að búa í eigin húsnæði.
Ráðamenn þjóðarinnar tala
um að gera fólki kleift að
búa sem lengst heima, en
með þessum hækkunum er
það ekki hægt.
Eldri borgari.
Þakkir fyrir grein
RÖGNVALDUR hafði
samband við Velvakanda
og vildi þakka fyrir grein í
Umræðunni í Morgun-
blaðinu 20. mars sl. Þessi
grein er eftir Halldór Þor-
steinsson og kemst hann
vel að orði í sambandi við
Davíð Oddsson og Halldór
Blöndal. Vill hann benda
fólki á að lesa þessa grein.
Kannast einhver
við vísuna?
KANNAST einhver við
þessa vísu, hver orti hana
og hvort hún sé lengri? Nú
liggur þú dropi í lófa mín-
um/ og lát mig heyra af
ferðum þínum./ Þú hafðir
áður vökvað blómin við bæ-
inn/ svo breyttirðu þér í
lækinn sem rann út í sæinn.
Ef einhver getur gefið ein-
hverjar upplýsingar vin-
samlega hafið samband í
síma 487-8262.
Byggð í Vatnsmýrinni
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi benda
á það, að ef það yrði byggt í
Vatnsmýrinni 10.000
manna byggð þyrfti að
leggja nýjan, breiðan og
góðan veg því Hringbraut-
in taki ekki við allri þeirri
umferð, sem fer um hana
daglega, hvað þá ef fleiri
þúsund bílar bættust við á
dag.
Strætisvagnamiðar
fyrir öryrkja
ÖRYRKI hafði samband
við Velvakanda og vildi lýsa
yfir óánægju sinni með
strætisvagnamiða fyrir ör-
yrkja. Vill hann hafa þá
ljósari á lit og þykkari því
það sé mjög erfitt að ná
þeim í sundur og þeir séu of
dökkir.
Dagskrá sjónvarpsins
ÁSRÚN hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
því á framfæri að hún væri
óánægð með dagskrána í
sjónvarpinu. Henni finnst
að þeir mættu bæta sig og
sýna betri myndir á föstu-
dagskvöldum, t.d. dýralífs-
myndir eða náttúrulífs-
myndir. Of mikið sé af
endurtekningum.
Tapað/fundið
Gullarmband tapaðist
á Akureyri
TAPAST hefur gullarm-
band með múrsteins-
mynstri á Akureyri. Fund-
arlaun. Uppl. í síma
462-3777.
Dýrahald
Kalí vantar heimili
KALÍ er verðlauna síamsk-
isa og vantar gott heimili af
sérstökum ástæðum. Vin-
samlega hafið samband í
síma 565-9722.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Íslenskar
húsmæður