Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 58

Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á sunnudögum bjóðum við upp á matseðil fyrir sælkera. Sunnudagar fyrir sælkera 4 rétta fiskmatseðill 2.700.- 5 rétta kjöt- eða fiskimatseðill 3.500.- Stórglæsilegur a la Carté matseðill Valin vín og vingjarnlegt umhverfi MÚSÍKTILRAUNUM Tónabæjar lauk með bravúr síðastliðið föstu- dagskvöld, eða réttara sagt aðfara- nótt laugardags, því bæði var að hljómsveitir í úrslitunum voru óvenju margar og svo að gestir hafa líkastil aldrei verið fleiri og tók því talsverð- an tíma að telja atkvæði. Svo hefur Músíktilraunum vaxið fiskur um hrygg að úrslitin voru haldin í Íþróttahús Fram og gerði umfang tilraunanna allt mun glæsilegra fyrir vikið. Svo fór að hljómsveitin Andlát sigraði nokkuð örugglega, Halim var í öðru sæti og Anonymous því þriðja. Fyrsta hljómsveit á svið var rokk- sveitin Héróglymur sem hóf leik sinn vel þétt og sannfærandi í býsna góðu lagi. Annað lag sveitarinnar var aftur á móti ekki eins traustvekjandi, keyrslan þunglamaleg og hikandi. Þrátt fyrir ágæta spretti í þriðja lag- inu var það ekki miklu betra; greini- legt að þeir félagar þurfa að vinna meira í lagasmíðum, því þeir eru efni- legir á öðrum sviðum. Raftónlistarflokkur eins manns, sem kallar sig Skam, var næstur á svið. Hann gerði líkt og Heróglymur; byrjaði afskaplega vel og fléttaði saman klingjandi taktsyrpum og setti svo í fluggír þegar við átti. Ann- að lagið var einnig mjög gott, en heldur gamaldags og það þriðja sömuleiðis. Do what thou wilt shall be the whole of the Law skammaðist enn út í þá sem ekki gátu skrifað nafnið rétt, kannski ekki nema von þegar þeir félagar bera það rétt fram sjálfir. Hvað sem því líður var sveitin langt- ífrá eins skemmtileg og kvöldið áður. Fyrsta lagið náði aldrei að lifna og það annað var stirðbusalegt. Mikið má þó útaf betra áður en tekst að klúðra því þriðja; bráðskemmtilegt lag sem vantar bara strengjasveitina. Trenikin var eina rappsveitin sem náði í úrslit og reyndar eina eiginlega rappsveitin sem tók þátt í tilraunun- um að þessu sinni þó rapp hafi víða skotið upp kollinum. Sveitin leikur frekar mjúkt rapp með mjög skemmtilegu undirspili og fyrirtaks plötuskrámi. Annað lagið var gott en það þriðja sýnu best, ekki síst fyrir frumlegt undirspil. Í lokin sýndu þeir félagar svo að þeir gátu rappað á ís- lensku þegar sá gállinn er á þeim. Noise-félagar höfðu greinilega undirbúið sig vel fyrir úrslitin því þeir voru talsvert þéttari en í undan- úrslitunum og öruggari; létu ekki einu sinni tækjabilun í upphafi slá sig út af laginu. Þegar best var, til að mynda í fyrsta laginu, sýndi sveitin að ekki þarf nema þrjú hljóðfæri til að rokka feitt, en vissulega galli að lögin séu ekki frumlegri. Mæta vænt- anlega sterkari til leiks á næsta ári. Prozac var líka geysiþétt, þó ekki hefði sú sveit haft eins langan tíma í undirbúning. Hún státaði og af fremsta trommuleikara tilraunanna að þessu sinni, en bassa- og gítarleik- ur var líka í hæsta rokkgæðaflokki. Söngurinn er aftur á móti Akkiles- arhæll sveitarinnar, því raddir söngvaranna tveggja liggja of hátt og of nálægt hvor annarri. Sem fyrr voru bestu lögin þegar ekki var sung- ið eintóna, heldur farið upp og niður í styrk og áherslu. Eftir stutt hlé kom hafnfirska rokksveitin Halim á svið og byrjaði með látum. Lög sveitarinnar eru vel samin með óvæntum lausnum og frumlegum sönglínum og það þriðja var sérdeilis gott. Ragnar Sólberg, gítarleikari sveitarinnar og söngvari, er mikið efni og þó röddin eigi eftir að þroskast gerði hann allt rétt og með miklum sóma. Þeir félagar hans í sveitinni voru einnig í stuði, sérstak- lega trymbillinn, bróðir Ragnars. Rafdúettinn Anonymous var á öðr- um slóðum en rokkliðið, lék lagvæna raftónlist skreytta með drum ’n bass og techno. Fyrsta lag þeirra Pollock- frændsystkina var gott, en ekki full- mótað á köflum. Annað lagið fléttaði vel saman brotakenndum taktsyrp- um og skemmtilegum laglínum og líkt í undanúrslitunum var þriðja lag- ið verulega gott með vel völdum hljóðum. Ágætar pælingar voru í gangi hjá Dice og sérstaklega voru skemmti- legir sprettir í sönglínum. Þeir félag- ar þurfa þó að vinna betur í lögunum og kaflaskilum. Annað lagið var nokkuð meinlaust stuðlag en það þriðja best. Textar voru svartagalls- legir og féllu prýðilega að flutningn- um. Bimbó stakk í stúf á tilraunum að þessu sinni, enda hefur ekki sést svo eindregin poppsveit í úrslitum í mörg ár. Andvaka er fyrirtaks popp- smellur og á án efa eftir að hljóma í útvarpi áður en langt um líður, en önnur lög voru ekki beysin, sér- staklega mæðulagið sem sveitin byrjaði á, en kannski var það bara textinn. Hafi menn verið farnir að þreytast eftir að hafa setið í fimm klukkutíma og hlustað á þrjátíu lög hrukku allir upp við dogg er Andlát hóf leik sinn, enda sveitin geysiþétt og hörkugóð rokksveit. Taugar liðsmanna voru aftur á móti greinilega þandar til hins ýtrasta og gerði sitt til að sveit- in sýndi ekki allt sitt besta, en það kom ekki að sök, því þegar þeim tókst vel upp skákaði enginn And- látsfélögum. Andlát og tilraunirnarnar í heild sýna að rokkið er sterkara en nokkru sinni, harðkjarninn tekur á sig ýmsar myndir og dregur í sig áhrif úr ólík- um áttum; ungmenni vilja rokk og það hávært og hrátt. Fyrir þeim er nútíminn ekki trunta, hann er jarð- ýta og ýtustjórinn ekki með öllum mjalla. Dómnefnd og áheyrendur voru að mestu sammála, Andlát sigraði örugglega, Halim traust í öðru sæti og Anonymous ekki langt undan í þriðja sæti. Auk hljómsveitaverð- launa var Ingi Þór Pálsson í Andláti verðlaunaður sem besti gítarleikar- inn, Ragnar Sólberg úr Halim fékk verðlaun sem besti söngvarinn, Jón Hafliði Sigurjónsson úr Rúfuz þótti besti bassaleikarinn, Heiðar Brynj- ólfsson úr Prozac besti trommuleik- arinn, Þorkell Máni Þorkelsson úr Berrössuðum þótti besti hljómborðs- leikarinn og Marlon Lee Úlfur Poll- ock besti tölvarinn, Hjalti Steinn Sig- urðsson besti rapparinn. Athyglis- verðasta hljómsveitin þótti Berrass- aðir og Input var kjörin bjartasta vonin. Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, afhenti verðlaunin. Nútíminn er jarðýta Tvíburarnir í Noise. Hjalti Steinn Sigurðsson, rappari í Trenik- in, fékk verðlaun fyrir spuna. Hljómsveitin með langa nafnið, eða bara Gerðu það sem þú vilt. Eins manns hljómsveitin Skam. Heróglymur var fyrst á svið. Bimbó stakk í stúf með lagið Andvaka. Söngvari Dice var bölsýnn en gerði margt vel. Andlátsfélagar voru að vonum brattir í lokin. Morgunblaðið/Björg Sveinsd. Ragnar Sólberg fór heim með tvenn verðlaun, besti söngvarinn og var í næstbestu sveitinni, Halim. Söngfélagar í Prozac voru líf- legir í framlínunni. TÓNLIST M ú s í k t i l r a u n i r Úrslit Músíktilrauna Tónabæjar. Þátt tóku Heróglymur, Skam, Do what thou wilt shall be the whole of the Law, Trenikin, Noise, Prozac, Halim, Anonymous, Dice, Bimbó og Andlát. haldið í íþróttahúsi Fram föstudaginn 30. mars. Áhorfendur á sjöunda hundrað. TÓNABÆR Árni Matthíasson Frændsystkinin í Anonymous hrepptu þriðja sætið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.