Morgunblaðið - 13.05.2001, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Þ
AÐ HEFUR færst í vöxt að
íslenskir hlauparar bregði
fyrir sig hlaupafætinum á
erlendri grund og í ár fór
um 40 manna hópur frá Íslandi og
lagði götur Prag að fótum sér.
Fjögur alþjóðleg hlaup eru
skipulögð í Prag ár hvert. Í mars
er þar hlaupið hálft maraþon, í maí
heilt maraþon og í september er
keppt í styttri vegalengdum. Einn-
ig eru skipulögð hlaup haldin um
miðjan júní, þar á meðal sérstakt
kvennahlaup líkt og á Íslandi. Frá
því hlaupið var fyrst í borginni
undir merkjum PIM (Prague Int-
ernational Marathon) árið 1995
hefur þátttaka aukist ár frá ári.
Segja má að hlaupið í lok mars
marki upphaf ferðamannatímabils-
ins í Prag. Íslenski hlaupahópurinn
naut góðs af því, passlega margir
ferðamenn gengu um götur hinnar
töfrandi borgar og útsölur voru
enn í fullum gangi og því hægt að
gera kjarakaup.
Gott veður og mikil stemmning
Hálfa maraþonið var farið hinn
24. mars í ár og hófst og endaði við
hina sögufrægu Karlsbrú sem
byggð var að tilskipun Karls
fimmta á 14. öld. Allt til ársins
1741 var hún eina brúin yfir Moldá
og hefur síðan á 18. öld verið
skreytt fjölda styttna af dýrlingum
og er einn vinsælasti viðkomustað-
ur ferðamanna í borginni.
Hlaupið var í gegnum miðbæ
Prag og voru sumar göturnar
hlaupnar fram og til baka svo víða
mættust hlauparar sem voru mis-
jafnlega langt á veg komnir. Vel
viðraði til hlaupsins, sól skein í
heiði og góð stemmning ríkti við
endalínuna þar sem fjöldi áhorf-
enda safnaðist saman. Auðvitað
lagði íslenska klappliðið í hópnum
sitt af mörkum og hvatti sína menn
hvar sem til þeirra sást en Íslend-
ingarnir hlupu í skærgulum bolum
og voru því auðþekkjanlegir.
Hlaupaþörfin sterk
Flestir Íslendinganna sem voru
með í ár æfa saman heima á Ís-
landi undir nafni Námsflokkanna.
Pétur Ingi Frantzson fer fremstur
í þeim flokki og sér um að þjálfa
hópinn og halda fólki við efnið, en
hann hefur verið iðinn við að
hlaupa í tíu ár. Hann sagði blaða-
manni frá því að á árum áður hefði
hann verið stórreykingamaður en
að síðar hefði hlaupafíknin orðið
nikótínfíkninni yfirsterkari. Hann
var sáttur við sinn árangur í hlaup-
inu í Prag, enda meðal fyrstu Ís-
lendinganna að marklínunni.
„Ég er ánægður með hlaupið og
alla umgjörðina,“ sagði Pétur, sem
dvaldi ásamt hlaupahópnum í
borginni í nokkra daga eftir hlaup-
ið. „Við vissum áður en við komum
að það er allt annað undirlag hér,
kantsteinar sem getur verið erfitt
að hlaupa á, en það kom ekki að
sök og margir bættu sig verulega.
En þetta var virkilega skemmtilegt
og ekki spillti veðrið fyrir.“
Pétur var líkt og aðrir í hópnum
að hlaupa í fyrsta sinn í Prag en
áður hefur hópurinn farið saman
til Amsterdam og London til að
hlaupa.
„Félagsskapurinn skiptir rosa-
lega miklu máli,“ ítrekar Pétur.
„Þetta er samheldinn hópur og t.d.
eru nokkur hjón innan hans. Þó er
nýtt fólk alltaf að bætast við og er
auðvitað velkomið. Við gerum
miklu meira saman en bara að
hlaupa, höldum t.d. þorrablót,
syngjum í kór og förum saman í
ferðalög.“
Hlaupið hvernig sem viðrar
Pétur sagði misjafnt hvaða
markmið fólk setti sér þegar það
byrjaði að skokka og væri því mikil
breidd innan hópsins. „Sumir
stefna að því að halda sér í góðu
formi og að geta skokkað nokkra
kílómetra en aðrir eru toppmara-
þonhlauparar.“
Hlaupahópur Námsflokkanna
heldur til í Austurbæjarskóla og
þrisvar í viku eru skipulagðar æf-
ingar. Pétur sagði að hvernig sem
viðraði mætti fólk til að hlaupa og
að enn hefði ekki fallið niður æf-
ing, en hópurinn á tíu ára afmæli
núna í maí. Hinn 19. maí verður
hlaupið sérstakt afmælishlaup af
því tilefni.
Góður félagsskapur
Ásta Valsdóttir hefur hlaupið
með Námsflokkunum í mörg ár og
var ásamt eiginmanni sínum í
Prag.
„Mér fannst mjög gott að hlaupa
hér í borginni,“ sagði hún bros-
andi. „Kantsteinarnir voru harðir
og sums staðar sleipir en þetta var
mjög gaman og margt að skoða á
leiðinni.“ Ásta hefur áður tekið
þátt í hlaupi í útlöndum, hljóp tíu
kílómetra árið 1993 í Svíþjóð. Hún
eignaðist tvíbura árið 1995 og
sagði að síðan þá hefði hún ekki
getað hlaupið reglulega eins og
gefur að skilja. „En þetta er alltaf
jafn gaman þó að maður sé ekki
eins vel undirbúinn núna og áður.
Maður verður bara að taka sig á
og reyna að bæta sig,“ sagði hún
harðákveðin. „En það var virkilega
ánægjulegt að hlaupa þetta hálfa
maraþon. Námsflokkarnir eru líka
svo ofsalega góður og líflegur
félagsskapur. Innan þeirra er fólk
sem er misjafnlega á sig komið,
margir í mjög góðri þjálfun og
Fjörutíu Íslendingar hlupu hálft maraþon í Prag
Hlaupið í góð-
um félagsskap
Morgunblaðið/Ásdís
Íslendingunum fannst gott að hlaupa í Prag, veðrið lék við þá og það var margt að skoða á leiðinni.
Bára Ketilsdóttir á endasprettinum.
Í lok mars söfnuðust langhlauparar saman í Prag,
höfuðborg Tékklands, og hlupu hálft maraþon. Um
40 manna hlaupahópur frá Íslandi tók þátt í hlaupinu
í ár og Sunna Ósk Logadóttir hitti nokkra úr þeim
hópi eftir hlaupið.
Morgunblaðið/Sunna
F
YRIR nokkrum dögum var
farið í dagsferð til Ólafs-
fjarðar í boði Ólafsfjarðar-
bæjar. Flogið var til Ak-
ureyrar og þar tók Páll
Guðmundsson, ferðamálafulltrúi
Ólafsfjarðarbæjar, á móti gestum.
Þennan dag var áhersla lögð á að
kynna ferðalöngum ævintýri á vél-
sleðum en þrátt fyrir að vetrarver-
tíðinni sé nú senn að ljúka í ferða-
þjónustunni í Ólafsfirði er enn
nægur snjór til að fara í vélsleða-
ferð um fjöll og dali í nágrenni
Ólafsfjarðar. Þá hafa vélsleðaferð-
ir yfir í Héðinsfjörð notið mikilla
vinsælda að sögn heimamanna en
þangað var ferðinni einmitt heitið.
Birgir Guðnason ásamt nokkr-
um áhugamönnum í vélsleðaakstri
tóku á móti okkur að Kleifum sem
er vestan fjarðarins en Birgir
stofnaði nýlega Vélsleðaleigu Birg-
is Guðnasonar. Hann hefur á sín-
um snærum átta vélsleða og býður
upp á skipulegar ferðir undir leið-
sögn. Aðspurður sagði Birgir að
aðalvélsleðatíminn væri frá mars
til maí en þó sé hægt að fara í
ferðir fram í júní innar í dalnum,
þ.e. á Lágheiði. Mikill áhugi er á
vélsleðum í Ólafsfirði og skemmst
að minnast Alþjóðlega vélsleða-
mótsins í lok apríl þar sem 3.000
manns sóttu keppnina. Bæjarstjór-
inn, Ásgeir Logi Ásgeirsson, var
einnig með í för en hann var ein-
mitt nýbúinn að fjárfesta í nýjum
vélsleða.
Veðrið hefur leikið við Ólafsfirð-
inga undanfarið og þennan dag var
engin undantekning þar á, sól og í
kringum 14 stiga hiti, enda eitt
það fyrsta sem ég tók eftir íklædd
dúnúlpunni voru léttklæddir
heimamenn.
Áður en lagt var af stað í
tveggja tíma vélsleðaferð fengu
allir hjálma og þá stóð okkur til
boða að keyra vélsleðina sjálf.
Færðin var frekar þung, þar sem
snjórinn var nokkuð blautur, og
því ákvað ég að vera farþegi að
þessu sinni. Þessi ákvörðun átti
eftir að gera umrædda ferð ólýs-
anlega. Það var Grétar Björnsson,
fyrsti stýrimaður á Mánabergi,
stærsta frystitogara Ólafsfjarðar
og mikill áhugamaður um vélsleða-
akstur, sem ég fékk far hjá og það
er óhætt að segja að ferðin hafi
verið ævintýri líkust. Næstu tvo
tíma þeyttist ég upp um fjöll og
firnindi með Grétari þar sem við
stukkum af hæðum og geystumst
áfram á allt á 120 km hraða þannig
að mér þótti stundum nóg um og
ríghélt í hann. Þegar tilbaka var
komið var adrenalínið í botni.
Nyrsti 9 holu
golfvöllur landsins
Eftir vélsleðaævintýrið var ferð-
inni heitið í Holu þrettán sem er
hitaveituhola uppi í fjalli en þang-
að er að sögn kunnugra vinsælt að
fara með gesti enda útsýnið þaðan
yfir fjörðinn fallegt. Þar tók á móti
okkur Einar Þórarinsson, hita-
veitustjóri, og bauð upp á léttar
veitingar. Frá hitaveituholunni var
haldið á nyrsta 9 holu golfvöll
landsins, Skeggjabrekkuvöll. Hann
er suðvestan við bæinn og er um
þessar mundir að koma undan
snjó. Aðspurður sagði Páll ferða-
málafulltrúi að golfvöllurinn væri
ávallt orðinn fagurgrænn í júní og
þar væri afbragðsaðstæða til golf-
iðkunar. Ákveðið var að slá nokkr-
ar kúlur en ég verð þó að við-
urkenna að golfáhuginn kviknaði
þó ekki að þessu sinni. Að loknu
Vetrar- og sumarafþreying í Ólafsfirði
Á fjallahjóli til
Héðinsfjarðar
Þeyttist upp um fjöll og firnindi á vélsleða, fór í golf á
nyrsta 9 holu golfvelli landsins og hleypti af hagla-
byssu í fyrsta skipti. Hrönn Indriðadóttir skrapp í
dagsferð til Ólafsfjarðar.
Nánari upplýsingar um Ólafs-
fjörð er að finna á slóðinni
www.olafsfjordur.is.
Nánari upplýsingar um vél-
sleðaferðir í Ólafsfirði veitir
Birgir Guðnason í síma 893-
7203 og 466-2592.
Þeir sem hafa áhuga á að
láta útbúa fyrir sig sérstaka úti-
vistarpakka er bent á að hafa
samband við Pál Guðmundsson
ferðamálafulltrúa í síma 864-
0874 eða í gegnum tölvupóst-
inn pall@olf.is.
Morgunblaðið/Hrönn Indriðadóttir
Vélsleðahópurinn nýtur veðurblíðunnar og dáist að útsýninu yfir Héðinsfjörð.