Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 4

Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Suður-Ameríkuævintýri á verði sólarlandaferðar í Evrópu í sumarsól á suðurhveli í nóv. 2001 RIÓ de Janeiro - fegursta borg heims – höfuðborg hins ljúfa lífs! Iguazu-fossar - kannski fegursta náttúruundur heimsins? Buenos Aires - Ein mesta glæsiborg heimsins höfuð- borg S.Am. lista- og menningar Veldu aðra eða báðar skemmtilegustu borgir heims á ótrúlegri kjörum en heyrst hafa og stíl Heimsklúbbsins með Ingólfi og völdum farar- stj. 14./15. nóv. - 10 ógleym- anlegir dagar beint um Lond- on (1 millilending), frábært flug með BA/VARIG. Fá sæti laus á tilboði - frá kr. 149.900 + flugvsk., gildir að- eins til 3. júlí! PÖNTUNARSÍMI 562 0400 ÍSLAND, Noregur og Liechtenstein, EFTA-ríkin þrjú sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahags- svæðið (EES), eru að velta fyrir sér möguleikum á að fá samninginn upp- færðan. Þessu til grundvallar liggur ný sérfræðingaskýrsla, þar sem bent er á margar veikar hliðar hans. Í framkvæmd kann þetta að þýða að semja verði um EES-samninginn upp á nýtt. Niðurstöður skýrslunnar voru ræddar á kvöldverðarfundi utan- ríkisráðherra Íslands, Noregs og Liechtenstein í Lúxemborg í fyrra- dag, í beinu framhaldi af fundi ráð- herraráðs EES, sem ráðherrarnir þrír sátu auk fulltrúa ESB, þeim Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar sem gegnir formennskunni í ESB þetta misserið, og Chris Patten, sem fer með utanríkismál í fram- kvæmdastjórn ESB. Sérfræðingaskýrslan sem lá á borði Halldórs Ásgrímssonar utan- ríkisráðherra og starfs- félaga hans frá Noregi og Liechtenstein hefur ekki enn verið gerð formlega opinber. Hún var unnin af sérskipuð- um hópi manna af aðal- skrifstofu EFTA og háttsettum fulltrúum ís- lenzkra, norskra og liechtensteinskra stjórnvalda, en meðal helztu niðurstaðna hennar eru þessar: Innri þróun ESB frá því EES-samningurinn var gerður hefur haft veruleg áhrif á sam- starfið innan EES og varpað ljósi á vissa vankanta samningsins, svo sem varðandi ákvarðanatöku og ófull- nægjandi pólitískt samráð við ESB. Til að mæta þessu ástandi er mælt með því að EFTA-EES-löndin kanni hvort þau geti ekki nýtt betur þau tæki sem samningurinn inniheldur. Í fyrsta lagi ætti að nýta til hins ýtrasta gildandi ákvæði um möguleika EFTA-ríkjanna á að hafa áhrif á mót- un nýrra EES-gerða. Í þessu skyni skuli hleypa meira lífi í pólitíska um- ræðu um Evrópumál, bæði innan EFTA og gagnvart ESB. Þá þurfi Ís- land, Noregur og Liechtenstein að verða duglegri við að lögfesta nýjar Evróputilskipanir. Og loks skuli kannað hvort fýsilegt sé að gera „tæknilega uppfærslu“ á EES-samningnum, með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa á „ESB-stoð“ EES-samstarfsins. Sumt ekki bætt nema samið sé Í samtali við Morg- unblaðið segir Halldór Ásgrímsson að sú þró- un sem orðið hefur inn- an ESB frá því lokið var við EES-samning- inn árið 1992 hafi minnkað möguleika EFTA-ríkjanna í EES til að hafa áhrif á gerð nýrrar Evr- ópulöggjafar sem þau eru skuldbund- in til að taka hvert í sína þjóðarlög- gjöf. Sérfræðingaskýrslan lýsi vissum staðreyndum sem stjórnvöld ríkjanna þriggja verði að bregðast við. „Það er ýmislegt sem við getum gert betur með því sem við höfum, en sumt getum við ekki bætt nema með nýjum samningum við Evrópusam- bandið,“ segir Halldór. Í skýrslunni séu tíunduð ýmis vandamál sem eru því fylgjandi að ekki hefur verið hægt að breyta EES-samningnum í samræmi við breytingar sem orðið hafa á skipulagi ESB. Mestu skipti stofnsáttmála- breytingar ESB sem kenndar eru við Maastricht, Amsterdam og nú síðast Nice. Þessar breytingar hafi minnkað vægi framkvæmdastjórnarinnar í ákvarðanatöku og styrkt hlutverk Evrópuþingsins og ráðherraráðsins, stofnunum sem EFTA-ríkin hafa engan beinan aðgang að samkvæmt EES-samningnum. Með nýju sérfræðingaskýrsluna á borðinu ræddu Halldór og EFTA- starfsbræður hans hvort og hvernig hægt væri að bæta úr þessu ástandi. „Okkur lízt ekki á að endursemja EES-samninginn,“ tekur Halldór þó fram. Vænlegra sé að fara þess á leit við ESB að gerðar verði afmarkaðar breytingar á honum sem tækju mið af breytingunum sem orðið hafa innan ESB. Um það hvort ráðamenn ESB séu tilbúnir til slíkra samninga vill Halldór ekki fullyrða, en „ég trúi því að þeir vilji hlusta“, segir hann. „Margir búast við því að ESB muni á næstunni fara fram á að EFTA-rík- in í EES greiði í styrkjasjóði sem m.a. eru notaðir til að hjálpa væntanlegum nýjum aðildarríkjum að ESB – og EES – að búa sig undir aðildina,“ bendir Halldór á. Eðlilegt sé að þegar ESB komi fram með slíkar beiðnir fari EFTA-ríkin fram á að rætt sé um hagsmunamál hinna síðarnefndu. Halldór segir að á næstu vikum og mánuðum muni stjórnvöld á Íslandi, í Noregi og Liechtenstein leggja það betur niður fyrir sér hvað skuli gert í framhaldinu. Ráðherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein ræða stöðu EES-samstarfsins Samið við ESB um upp- færslu EES-samningsins? Halldór Ásgrímsson ÞESSI glaðlegu börn voru úti að hjóla á Flókagötu í góðviðrinu. Þau voru að sjálfsögðu vel búin undir hjól- reiðaferð, með hjálma á höfði og hjálpardekk á hjól- unum sér til fulltingis. Morgunblaðið/Sverrir Hjólað í Norðurmýrinni ANNAR tveggja starfsmanna kerfóðrunar, sem brenndist í slysinu í álverinu í Straums- vík sl. föstudag og hefur gengist undir langa aðgerð á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut, þarf væntan- lega ekki á fleiri skurðað- gerðum að halda næstu daga, samkvæmt tilkynningu frá sjúkrahúsinu. Í aðgerð, sem samtals tók 26 klukkustundir, hefur gervihúð verið komið fyrir á sárum hans en hann brennd- ist á 80% líkamans. Breskur ráðgjafi, sem fylgst hefur með ágræðslu gervihúðarinn- ar, hélt af landi brott í gær en kemur aftur síðar í vik- unni. Líðan sjúklingsins er sæmileg miðað við aðstæður, samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu. Hinn maðurinn, sem slas- aðist og brenndist á 35% lík- amans, er enn á gjörgæslu- deild og er líðan hans eftir atvikum. Ekki þörf á fleiri að- gerðum næstu daga BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingar á reynsluákvæði um rýmri veitingatíma áfengis, sem upphaflega var samþykkt 20. júlí 1999 og mun breytingin taka gildi 1. júlí nk. Í stað ótakmarkaðs veitingatíma áfengis um helgar verður veitinga- tími takmarkaður við kl. 05.30 aðfaranótt laugardags, sunnudags og almennra frídaga. Þá verður heimilaður veitingatími áfengis að- faranótt föstudags takmarkaður við kl. 02.00 í stað kl. 01.00 áður. Þau svæði sem breytingin nær til eru miðbæjarkjarni, verslunar- og at- hafnasvæði í miðborg Reykjavíkur, en á þessu sama svæði var veitt leyfi fyrir ótakmörkuðum veitingatíma árið 1999. Þá mun sá tími, sem rekstrarað- ilar vínveitingastaða hafa til slita á skemmtun eftir að heimiluðum veit- ingatíma áfengis lýkur verða lengd- ur úr hálfri klukkustund í eina klukkustund og gildir það um alla vínveitingastaði í borginni. Breytingarnar munu gilda til 1. október 2001, en til 1. september að því er tekur til rýmri veitingatíma áfengis aðfaranótt föstudags. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokks gagnrýna vinnubrögð í tengsl- um við breytingarnar og benda á að „engin greinargerð eða úttekt á reynslunni af breyttum afgreiðslu- tíma liggi fyrir og heldur ekki rök- stuðningur fyrir þeirri tillögu að leyfisveiting verði til kl. 05.30“, segir í bókun þeirra frá í gær. Borgarráðs- fulltrúar Reykjavíkurlistans benda hins vegar á að nú liggi fyrir ítarleg áfangaskýrsla lögreglu auk álits miðborgarstjórnar, nokkurra veit- ingamanna í borginni og minnis- punktar frá formanni og fram- kvæmdastjóra Þróunarfélags mið- borgar. „Flestir þeir aðilar sem um málið hafa fjallað hafa verið þeirrar skoðunar að „endapunkt“ þyrfti að setja og er það niðurstaða verkefnis- stjórnar að sá endapunktur verði 05.30,“ segir í bókun frá Reykjavík- urlistanum. Borgarráð samþykkir takmörkun veitingatíma áfengis Opið til hálf sex um helgar RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum í gær að greiða viðbótarstyrk til eigenda húseigna sem eyðilögðust í jarðskjálftunum á Suðurlandi síð- asta sumar. Alls er um fimmtán eignir að ræða. Styrkurinn nemur samtals um 26,3 milljónum króna. Nemur lægsta upphæðin tugum þús- unda króna en sú hæsta á fjórðu milljón króna. Viðkomandi aðilar fá tilkynningu um bæturnar á allra næstu dögum að sögn Guðmundar Árnasonar, skrifstofustjóra forsætisráðuneytis- ins. Að sögn Guðmundur kemur styrk- urinn til vegna þess að eigendur hús- eigna sem eyðilögðust í skjálftanum fengu mismunandi bætur frá Við- lagatryggingu eftir því hvernig hús- eignirnar voru metnar til brunabóta. Eignirnar sem eyðilögðust í skjálft- anum voru þannig ýmist metnar eft- ir gömlu brunabótamati eða nýju brunabótamati. Þær sem voru metnar eftir gamla matinu voru lægra metnar en þær sem voru metnar eftir nýja matinu. Styrkinum er ætlað að brúa þetta bil. Þannig verða allar eignirnar sem eyðilögðust í skjálftanum metnar eftir sama matinu, svokölluðu af- skrifuðu nývirðismati. Viðbótarstyrkur greiddur vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.