Morgunblaðið - 27.06.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐBERT Traustason, for-
maður Sambands íslenskra
bankamanna, segir að það sé al-
veg ný stefnumótun varðandi
sölu á ríkisbönkunum að ætla að
selja svona stóran eignarhlut
einum aðila og horfa sérstaklega
til útlanda í þeim efnum.
„Eftir því sem kom fram á
fundi okkar með ráðherra þá
horfir ríkisstjórnin fyrst og
fremst til Norðurlandanna og vill
kanna áhuga fyrirtækja þar og
banka, hvort þeir séu tilbúnir til
þess að koma hingað. Miðað við
það sem hefur gengið á á Norð-
urlöndunum, þar sem hafa verið
kaup þvers og kruss á landa-
mæri og það hvernig þeir bankar
hafa haldið á starfsmannamál-
um, líst okkur ekkert illa á þessa
hugmynd,“ sagði Friðbert.
Hann sagði að þar hefði verið
farið mjög varlega í öllum starfs-
mannamálum og ekki komið til
uppsagna heldur hafi í öllum
slíkum sameiningum verið gefn-
ar út yfirlýsingar um það að
starfsmannaveltan verði látin
stjórna því ef það þurfi að fækka
fólki.
Sársaukaminna en
sameiningar innanlands
„Að því leytinu til, ef til kemur
að norrænn banki komi hér inn,
þá líst okkur ekki illa á þá hug-
mynd. Okkur finnst líklegt að
það sé að því leytinu til sárs-
aukaminna hvað varðar starfs-
menn heldur en hugsanlega stór-
ar sameiningar hér innanlands,“
sagði Friðbert.
Hann benti jafnframt á að þeir
renndu afskaplega blint í sjóinn í
þessum efnum. Sambandið væri
hins vegar í miklu norrænu sam-
starfi. Þau sætu tvö á vegum
SÍB í stjórn norrænna starfs-
manna fjármálafyrirtækja, þar
sem allir bankastarfsmenn á
Norðurlöndunum væru innan-
borðs. Aðalmunurinn á aðkomu
starfsmanna þar og hér að þess-
um málum væri að atvinnulýð-
ræði þar væri afskaplega sterkt.
Starfsmenn ættu fulltrúa í
stjórnum og aðild að ákvarðana-
töku á vegum viðkomandi fyr-
irtækja.
Líst ekki illa á
erlendan aðila
„Okkur þætti ekki verra ef
slíkt yrði innleitt hér og höfum
meðal annars verið að beina því
til ráðherra í þessari lagasetn-
ingu að slíku yrði komið inn í lög
hér, en það hefur nú ekki fengist
í gegn,“ sagði Friðbert.
Hann sagði aðspurður að svo
framarlega sem hagsmuna
starfsmanna yrði gætt þá litist
þeim ekki illa á þó erlendur aðili
kæmi inn á markaðinn hér. Hins
vegar legðu þau áherslu á að
varfærni yrði gætt í þessum efn-
um og starfsmenn yrðu hafðir
með í ráðum eins og mögulegt
væri.
Friðbert Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna
Líst ekki illa á
að norrænn
banki komi inn
HALLDÓR J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að sala á
þriðjungshlut til kjölfestufjárfestis
samrýmist því markmiði sem sett
var í upphafi um dreifða eignaraðild
að Landsbankanum og jafnframt um
það að fá erlenda bankastofnun að
Landsbankanum. Halldór segir að
Landsbankinn búi yfir sterkum al-
þjóðlegum viðskiptasamböndum
sem ættu að geta auðveldað frekari
vinnu í þessu máli.
Bankinn hafi unnið mikla grein-
ingarvinnu á helstu kostum í þessu
efni og stjórnendur bankans hafi
áhuga á að leggja það allt inn í þá
vinnu sem framundan sé.
Verið að tala um virkan
eignarhlut í Landsbankanum
„Ég tel hins vegar brýnt að gerður
sé greinarmunur á óbeinni fjárfest-
ingu, innlendri eða erlendri, sem
samkvæmt lögum er skilgreind sem
öll fjárfesting sem er minni en 10% í
bankanum, og hins vegar þegar virk-
ur eignarhlutur er keyptur en það er
samkvæmt lögum eignarhlutur sem
er meiri en 10% en ekki ráðandi, þ.e.
50% eða meira. Með kjölfestufjár-
festi í almennri umræðu er átt við að-
ila sem á umtalsverðan virkan eign-
arhlut í banka en ekki ráðandi hlut.
Þannig samrýmist slík aðild mark-
miðinu um dreifða eignaraðild.“
Halldór segir að ríkisstjórn og
bankaráð Landsbankans hafi lýst því
yfir við upphaflega sölu hlutabréfa í
Landsbankanum og skráningu á
verðbréfaþingið haustið 1998 að tví-
þætt markmið væru ráðandi varð-
andi eignarhald í
Landsbankanum.
Þau markmið hafi
síðan verið ítrek-
uð í sölulýsingu
við sölu á 15%
hlut ríkisins í
bankanum í des-
ember 1999. Í
fyrsta lagi það að
tryggja dreifða
eignaraðild að
bankanum.
„Stjórnendur bankans hafa fundið
fyrir miklum áhuga almennings og
fagfjárfesta á að eiga hlut í bank-
anum. Við teljum að tekist hafi vel til
með upphaflega sölu hvað varðar
dreifða eignaraðild og teljum sömu-
leiðis að dreifð eignaraðild hafi
styrkt viðskiptalega stöðu Lands-
bankans og sjálfstæði hans á íslensk-
um fjármálamarkaði. Þetta hefur
ekki hvað síst verið jákvætt að því er
snertir víðtækt eignarhald starfs-
fólks að bankanum. Við teljum að
Landsbankinn hafi bæði sögulega og
viðskiptalega sérstöðu á íslenskum
bankamarkaði sem gerir slíka
dreifða eignaraðild að honum mjög
æskilega. “
Frá upphafi litið
til erlendra banka
„Í öðru lagi og samhliða þessu var
því lýst yfir að könnuð yrði forsenda
þess að fá kjölfestufjárfesti að bank-
anum. Í því efni var frá upphafi verið
að líta til möguleika á því að fá er-
lenda fjármálastofnun sem kjölfestu-
fjárfesti að Landsbankanum og eink-
um horft til erlends banka þar sem
það gæti best styrkt rekstrarlega
stöðu og starfsemi bankans.“ Hall-
dór segir að viðskiptalegar forsend-
ur fyrir því að fá slíkan kjölfestu-
fjárfesti að Landsbankanum séu
auðvitað að hann hafi alþjóðlegt afl,
öfluga fjárfestingabanka- og sjóða-
starfsemi og hátt tæknistig sem geti
nýst Landsbankanum í því að bæta
þjónustuna við viðskiptavinina hér á
íslenskum fjármálamarkaði.
„Það hefur ávallt verið áhugamál
Landsbankans og stjórnenda hans
að fá slíkan kjölfestufjárfesti því það
getur best tryggt uppbyggingu á
sviði upplýsingavinnslu sem er auð-
vitað mjög kostnaðarsöm í minni
banka eins og Landsbankanum og
gott að geta deilt slíkum kostnaði
með stærri banka. Þetta á raunar
einnig við á sviði eignastýringar og
sjóðalausna en þar getur samstarf
við stóran banka tryggt betri lausnir
fyrir viðskiptavini okkar. Með hlið-
sjón af þessum meginmarkmiðum
tveimur er það mikið fagnaðarefni
fyrir okkur að nú verði stigið mjög
ákveðið skref í þá átt að ná þessu síð-
ara eigendamarkmiði, þ.e. að fá al-
þjóðlegan banka til þess að kaupa
allt að þriðjungshlut í Landsbankan-
um, jafnframt sem það samræmist
einnig fyrra markmiðinu um dreifða
eignaraðild.
Við teljum að ef vel tekst til varð-
andi það að fá kjölfestufjárfesti að
Landsbankanum þá muni það
styrkja mjög starfsemi Landsbank-
ans og við fögnum þessu skrefi sem
slíku, “ segir Halldór.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans
Samrýmist upphafleg-
um markmiðum um
dreifða eignaraðild
Halldór J.
Kristjánsson
ÁKVEÐIÐ var á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gærmorgun að selja ráð-
andi hlut, þriðjung eða meira, í
Landsbanka Íslands hf. til erlends
kjölfestufjárfestis og standa vonir
til þess að gengið verði frá sölunni
fyrir lok ársins.
Í tilkynningu vegna sölunnar seg-
ir: „Viðskiptaráðherra hefur ákveð-
ið að hafinn verði undirbúningur á
sölu á umtalsverðum hlut af eign-
arhlut ríkisins í Landsbanka Íslands
hf. til kjölfestfjárfestis. Með umtals-
verðum hlut er átt við ráðandi hlut
eða að minnsta kosti þriðjung hluta-
fjár í félaginu. Ráðgert er að salan
fari fram fyrir árslok 2001. Skilyrði
samkvæmt ákvörðun ráðherra er að
sala á slíkum hlut leiði til aukinnar
samkeppni á íslenskum fjármagns-
markaði og auki samkeppnishæfni
hans. Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur verið falið að annast
framkvæmd sölunnar.“
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, sagði í samtali
við Morgunblaðið að mjög góð sam-
staða hafi verið í ríkisstjórn um
þessa niðurstöðu og hún sé mjög
ánægð með hana. „Miðað við skil-
yrðin sem sett eru, sem eru þau að
salan auki samkeppnishæfni félags-
ins og einnig samkeppnishæfni ís-
lensks fjármagnsmarkaðar, erum
við að tala um erlendan kaupanda,“
sagði Valgerður.
Hún sagði að það væri jákvætt
vegna þess að það yki erlenda fjár-
festingu í landinu, sem ekki væri
vanþörf á, auk þess sem það yki al-
þjóðavæðingu atvinnulífsins. Þá
mætti einnig gera ráð fyrir því að
það myndi bæta lánshæfismat bank-
ans.
Valgerður sagði að það fyrsta sem
myndi gerast í þessum efnum væri
að leitað yrði tilboða í ráðgjöf varð-
andi söluna. Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu myndi síðan fara með
framkvæmd málsins og vinna frek-
ari útfærslur í samvinnu við það fyr-
irtæki sem myndi fá ráðgjafarhlut-
verk við söluna.
„Við gerum okkur vonir um að
þessi sala muni geta átt sér stað á
árinu,“ sagði Valgerður.
Hún sagði að allur alþjóðamark-
aðurinn kæmi til álita í þessum efn-
um. Flestir litu hins vegar fyrst til
Norðurlandanna og Norður-Evr-
ópu, en auðvitað kæmu Bandaríkin
og aðir aðilar til greina. Þetta væru
hins vegar framkvæmdaatriði sem
yrðu í höndum einkavæðingar-
nefndar og þess fyrirtækis sem
fengi verkið.
Ráðandi hlutur gerir
bankann áhugaverðari
Aðspurð hvort orðið hefði vart
áhuga erlendra aðila á kaupum í
bankakerfinu, en fyrir nokkrum ár-
um síðan sýndi sænski SE-bankinn
áhuga á íslenska fjármálamarkaðn-
um, sagði Valgerður að þau hefðu
hugmyndir um að það hefði verið
fyrir hendi áhugi og einmitt fyrir
kaupum á stærri hlut en fram að
þessu hefði verið í umræðunni af
hálfu eigandans. „Þetta skref sem
við stígum núna með því að gefa
kost á ráðandi hlut í bankanum
breytir mjög stöðunni og gerir
bankann áhugaverðari,“ sagði Val-
gerður.
Hún sagði að lögð væri áhersla á
að fá hámarksverð fyrir eignarhlut-
inn í bankanum, þar sem þarna væri
um að ræða sölu í einu lagi til eins
aðila. Miðað við það markaðsvirði
sem væri í dag mætti áætla að verð-
mæti bankans í heild væri um 21
milljarður króna.
Valgerður sagðist ekkert sjá sem
mælti gegn því að eignarhlutur í
Landsbankanum kæmist í hendur
erlendra aðila. Þetta styrkti sam-
keppnisstöðuna hér á landi og yki
alþjóðavæðingu efnahagslífsins, auk
þess sem það væri mikilvægt vegna
efnahagsástandsins eins og það
væri, þótt það hafi verið búið að
móta þessa stefnu í raun áður en
gengið fór að síga, en línur þessa
efnis hafi verið lagðar fram í frum-
varpinu um söluna í janúar.
Ríkið á tæplega 70% í Lands-
bankanum. Valgerður sagði að
ákvarðanir um frekari sölu á eign-
arhlut í bankanum hefðu ekki verið
teknar. Sala til almennings og til-
boðssala kæmi að sjálfsögðu til
greina og væri líkleg, en hvenær til
þess kæmi væri óljóst á þessari
stundu.
Ríkisstjórnin ákveður að selja þriðjungshlut eða meira í Landsbankanum
Morgunblaðið/Billi
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, átti fund með Friðberti Traustasyni, formanni Sam-
bands íslenskra bankamanna, og Helgu Jónsdóttur, formanni Félags starfsmanna Landsbanka Íslands, í hádeg-
inu í gær eftir að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sölu á ráðandi hlut í Landsbankanum lá fyrir.
Leitað tilboða
frá erlend-
um kjölfestu-
fjárfesti