Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 13
ÚTSALA – ÚTSALA
Ótrúlega lágt verð
60-80% afsláttur
Dæmi um verð Áður Nú
„Slinky“ bolur kr. 3.700 kr. 1.400
Dömurúllukragapeysa kr. 4.900 kr. 1.500
Twill gallajaki kr. 4.400 kr. 1.400
Tunika m/satíni kr. 3.900 kr. 1.400
Dömubolur kr. 2.400 kr. 900
Hlýrabolur kr. 1.900 kr. 700
Kápa kr. 7.800 kr. 1.400
Dömubuxur kr. 3.900 kr. 1.600
Sumarkjóll kr. 3.700 kr. 1.500
Sítt pils kr. 2.900 kr. 900
Herraskyrta kr. 2.900 kr. 1.200
Herrakaðlapeysa kr. 5.900 kr. 2.300
Einnig fatnaður í stærðum 44-52.
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík.
Á BILINU 400 til 450 börn á aldr-
inum 6 til 12 ára tóku þátt í dorg-
veiðikeppni sem Æskulýðs- og tóm-
stundaráð Hafnarfjarðar stóð fyrir
á Flensborgarbryggju í gær. Óhætt
er að segja að veðrið hafi leikið við
keppendur þótt veiðimenn taki alla
jafnan súld eða rigningu fram yfir
glampandi sólskin.
Að sögn Geirs Bjarnasonar, um-
sjónarmanns keppninnar, veiddist
nokkuð vel samanborið við árið í
fyrra. Þegar keppnin hafði staðið
yfir í rúman hálftíma hafði einum
keppanda tekist að hala inn 17 fiska
en til samanburðar var aflakóng-
urinn í fyrra með 8 fiska veidda
þegar keppni lauk.
Að sögn Geirs eru veitt verðlaun
fyrir stærsta fiskinn og fjölda
veiddra fiska. Krakkarnir fengu
veiðarfæri og beitu á staðnum og
var ýmist notuð rækja eða gular
maísbaunir. Veiðarfæri voru frum-
stæð en stóðu fyrir sínu; spýta með
girnisspotta og róbolti fyrir sökku.
Sumir krakkanna höfðu þó afráðið
að taka með sér eigin búnað og gátu
fyrir vikið kastað lengra út.
Krakkarnir höfðu rúman klukku-
tíma til stefnu og nutu aðstoðar
unglinga úr vinnuskólanum. Björg-
unarsveitin Fiskaklettur var ekki
langt undan og sá til þess að allt
gengi vel fyrir sig.
Meðal þeirra sem reyndu fyrir
sér í dorgveiðinni voru þær stöllur
Kristrún Helga Árnadóttir og
Margrét Sif Magnúsdóttir. Kristrún
og Margrét drógu á land kola og
höfðu pakkað honum inn í dagblað.
Ætlunin var að láta vigta fiskinn en
allir fiskar eru vigtaðir og þeir
skráðir áður en þeim er sleppt að
nýju. Annars staðar á bryggjunni
flatmagaði Egill Fannar Alfreðsson,
7 ára. Egill hafði veitt einn fisk og
var þegar búinn að sleppa honum.
Mikil stemmning var í smábáta-
höfninni í gær og handagangur í
öskjunni enda tíminn knappur.
Ljóst var á handbragði krakk-
anna að mörg þeirra voru vanir
veiðimenn og játtu mörg hver að
hafa oft komið niður á höfn til að
veiða. Sum barnanna sögðust meira
að segja hafa rennt fyrir fisk í al-
vöru laxám.
Dorgveiðikeppni 6 til 12 ára barna á Flensborgarbryggju
17 fiskar
á rúmum
hálftíma
Morgunblaðið/Golli
Kristrún Helga Árnadóttir og Margrét Sif Magnúsdóttir, 8 ára stöllur,
veiddu kola í höfninni í gær og voru ánægðar með aflann.
Morgunblaðið/Golli
Silja Vignisdóttir veiddi stærsta fiskinn, marhnút, sem vó 482 g. Andri Jónsson veiddi flesta fiskana, 32 talsins,
en Ólafur Sigurjónsson veiddi 31 fisk og lenti í öðru sæti. Skúli Ragnarsson, Dagbjört Baldvinsdóttir og Fannar
Jónsson deildu þriðja sætinu með níu fiska hver. Eins og sést á myndinni voru bryggjurnar þétt setnar í gær.
Hafnarfjarðarhöfn