Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 15 HÖRÐ keppni var háð á Aldurs- flokkamóti Íslands í sundi sem haldið var í Sundlaug Akureyrar um liðna helgi og varð ekki ljóst hver myndi bera sigur úr býtum fyrr en komið var að síðustu boð- sundum mótsins undir kvöld á sunnudag. Það var Sundfélag Hafnarfjarðarsem sigraði með 1176 stig eftir harða rimmu við sundmenn úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar sem hlaut 1152 stig. Í þriðja sæti varð Sundfélagið Ægir með 716 stig. Þeir sundmenn sem fengu stiga- bikar einstaklinga voru Ágúst Júl- íusson ÍA í sveinaflokki, Ingibjörg Ólafsdóttir SH í meyjaflokki, Birk- ir Már Jónsson, ÍBR í drengja- flokki, Erla Dögg Haraldsdóttir, ÍBR í telpnaflokki, Jón Oddur Sig- urðsson, ÍBR í piltaflokki og Íris Edda Heimisdóttir, ÍBR í stúlkna- flokki. Þá voru valdir sundmenn til að keppa á Ólympíudögum Evrópu- æskunnar sem haldnir verða á Spáni í lok næsta mánaðar. Stúlk- urnar sem valdar voru til þátttöku eru Sigrún Benediktsdóttir, Óðni, Eva Hannesdóttir, KR og Erla Dögg Haraldsdóttir, ÍBR. Piltarn- ir sem keppa þar fyrir Íslands hönd eru þeir Hilmar Pétur Sig- urðsson, ÍBR, Hákon Jónsson, Breiðabliki og Jón Gauti Jónsson, ÍBR. Loks voru á mótinu valdar tíu stúlkur og átta piltar í svonefndan Framtíðarhóp Sundsambands Ís- lands, en um er að ræða æfinga- hóp sundmanna, sem taldar eru sterkar líkur á að skipi framtíð- arlandslið Íslands. Alls tóku um 300 ungmenni þátt í mótinu og komu þau frá 19 félög- um. Ljósmynd/Birkir Baldursson Framtíðarsundmenn Íslands tilkynntir að loknu Aldursflokkamóti Íslands, AMÍ. Aldursflokkamótið í sundi fór fram í blíðskaparveðri Úrslitin réðust á lokasprettinum KARLMAÐUR á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Norður- lands eystra verið dæmdur til að greiða 40 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs vegna lík- amsárásar. Þá var honum gert að greiða þeim sem hann réðst á 55 þúsund krónur í bætur auk dráttarvaxta sem og að greiða sakarkostnað. Maðurinn var ákærður fyr- ir að hafa veist að öðrum manni á veitingastaðnum Við Pollinn í lok október í fyrra, tekið hann hálstaki og snúið í gólfið með þeim afleiðingum að hann hlaut nokkra áverka á höfði. Málsatvik eru þau að mennirnir stóðu við barborð og áttu þar stuttaraleg sam- skipti sem lauk með áður- greindum hætti. Játaði maðurinn sakargiftir fyrir dómi, en bar því við að það hefði hann gert í varn- arskyni því hinn hefði stokkið á sig. Verulega bar á milli í frásögum mannanna tveggja um samskipti sín og þá voru vitni að atburðinum heldur ekki sammála í öllum atriðum um atburði. Héraðsdómur Norðurlands eystra Sekt vegna árásar Akureyrarbær auglýsir Gerðahverfi: Tillögur að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. Breytingin felst í því að reitur á horni Hraungerðis og Dalsgerðis, sem nú er skilgreindur sem óbyggt svæði og almennt útivistarsvæði, breytist í íbúðarsvæði. Jafnframt er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi þessa svæðis skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Tillagan felur í sér að á ofangreindum reit komi 2 einbýlishúsalóðir. Ennfremur sýnir hún nokkrar breytingar á legu gatna, sem leiða af tengingu Stóragerðis við Dalsbraut skv. gildandi aðalskipulagi. Tillöguupdrættir og greinagerðir munu hanga uppi almenningi ti sýnis í þjónustuandyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til fimmtudagsins 9. ágúst 2001, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar: http:/www.akureyri.is/ . Frestur ti að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 9. ágúst 2001 og skal athugasemdum skilað til Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar. Ný 6 manna fullbúin bandarísk fellihýsi á 12“ hjólbörðum Aðeins kr. Innifalið í verði: 1. Sjálfvirk miðstöð 2. Gluggatjöld 3. Kælibox 4. Gaseldavél 5. Gaskútur 6. Trappa 7. 48 lítra vatnstankur 8. Gasviðvörunarkerfi 9. Rafgeymabox 10. Útiljós 11. Varadekk með festingu og hlíf (cover) 12. 50 mm kúlutengi 13. Öflugir stigalausir stál- tjakkar á hverju horni (4) 14. Rafleiðslur í kapalhólk um 15. Sleðar á hjólum á út dregnum rúmum 16. Franskur rennilás vind- ver rúmstæði 17. Krossviður í rúmbotn- um 18. E-coat ryðvörn á undir vagni, vatnsvarinn botn 19. Aðgengi í kæli þó húsið sé lokað/fellt o.m.fl. Opnunartími Virka daga frá kl. 10 - 18 Laugardaga frá kl. 10 - 14 Tökum pantanir núna. Takmarkað magn á þessu verði. Verðbylting á 50w sólarrafhlöðum aðeins kr .46.500 með stjórnstöð Lúxus fortjöld með gluggatjöldum og ál súlum aðeins kr. 89.000 Svefntjöld kr. 9.900 stk. Sértilboð á pakka: Fellihýsi, fortjald, 2 svefntjöld, 50w sólarrafhlaða með stjórnstöð, rafgeymir, gasfylling og skráning kr. 699.000. Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ Sími 544 4210/565 6241 Fax 544 4211. KARLMAÐUR um tvítugt hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til að greiða 28 þús- und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna fíkniefnabrots auk þess að greiða sakarkostnað. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa verið með tóbaksblandað hass í fórum sínum í febrúar síðastliðnum er lögregla hafði af honum afskipti. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. Hann hefur áður gerst sekur um svipuð brot og var á skilorði er umrætt fíkniefnabrot var framið. Að kröfu ákæruvalds voru 0,92 grömm af hassi gerð upptæk. Héraðsdómur Norðurlands eystra Sekt til ríkis- sjóðs vegna fíkniefna FYRSTU tónleikarnir í djasstón- leikaröðinni, Tuborgjazz, Heitir fimmtudagar, verða í Deiglunni fimmtudagskvöldið 28. júní. Tónleik- arnir eru liður í dagskrá Listasumars 2001. Það er Tríó Sunnu Gunnlaugs sem ríður á vaðið. Sunna Gunnlaugs hefur verið með annan fótinn í New York síðan 1993 ýmist við nám eða störf. Hennar fyrsti geisladiskur Far Far Away kom út árið1997, fór tríó hennar þá í tónleikaferð um landið og lék m.a. á Listasumri á Akureyri. Hún stofnaði kvartett 1999 til upptöku á eigin tón- smíðum. Kvartettinn lék við góðar undirtektir hér á landi í mars 2000 og lék á vegum Jazzklúbbs Akureyrar í Gryfju, sal VMA, síðan kom svo kvartettinn fram á International Waterfront Arts Festival í Virginíu í apríl sama ár. Miðar á þá tónleika seldust upp og stærsta blað Virginíu, The Virginian Pilot, valdi disk þeirra, Mindful, sem einn af 10 bestu diskum ársins. Mindful mun fljótlega fara í dreifingu hér landi en verður einnig dreift víða um heim af bandaríska fyr- irtækinu Omnitone Records. Auk Sunnu eru í tríóinu þeir Mc- Lemore trommuleikari sem er eigin- maður hennar og Gunnar Hrafnsson. Aðgangseyrir er kr. 500 og selt er við innganginn. Djass í Deiglunni ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.