Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 17
OPNAÐ hefur verið glæsilegt nýtt
verslunarminjasafn á Hvolsvelli.
Safnið er til húsa í Sögusetrinu og er
samvinnuverkefni kaupfélaganna á
Suðurlandi, þ.e. Kaupfélags Árnes-
inga, Kaupfélags Rangæinga, Kaup-
félags Vestur-Skaftfellinga og Kaup-
félagsins Þórs á Hellu.
Upphafið að stofnun Kaupfélags-
safns má rekja til síðasta stjórnar-
fundar Kaupfélags Rangæinga en þá
var þeim Margréti Björgvinsdóttur
og Matthíasi Péturssyni falið að
safna gömlum munum er tengdust
rekstri félagsins. Starfsmannafélag
kaupfélagsins ákvað síðan að verja
eigum sínum til að koma upp safni er
segði 77 ára sögu Kaupfélags Rang-
æinga.
Þann 13. febrúar 1999 var opnað
Kaupfélagssafn í Sögusetrinu.
Kaupfélag Árnesinga ákvað síðan að
sögusafn þess skyldi einnig vera á
Hvolsvelli og var þá ákveðið að
stækka safnið og byggja upp heil-
steypt safn um sögu kaupfélaganna
á Suðurlandi. Hið nýja safn er í 200
fm húsnæði sem er í eigu Hvol-
hrepps.
Kaupfélagssafnið leitast við að
bregða upp svipmynd af verslunar-
háttum fyrri tíma á Suðurlandi og
störfum þeirra er þar lögðu hönd á
plóg. Safnið samanstendur af mynd-
um og textum er spanna sögu félag-
anna í grófum dráttum og einnig er
mjög mikið af munum sem tilheyrðu
verslunarrekstri og skrifstofuhaldi
fyrri tíma. Á safninu má einnig sjá
skrifstofur nokkurra kaupfélags-
stjóra s.s. Ingólfs Jónssonar á Hellu,
Egils Thorarensens á Selfossi og
Guðbrandar Magnússonar sem var
kaupfélagsstjóri í Hallgeirsey.
Þau Margrét Björgvinsdóttir og
Matthías Pétursson hafa borið hit-
ann og þungann af uppsetningu
safnsins með aðstoð góðra iðnaðar-
manna og starfsmanna Hvolhrepps
en List og Saga hefur skipulagt safn-
ið en aðalhönnuður var Björn G.
Björnsson. Sagnfræðingarnir Stefán
Pálsson og Erlingur Brynjólfsson
sömdu og tóku saman sýningartexta.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Jón Örn Ingólfsson, sonur Ingólfs Jónssonar kaupfélagsstjóra á Hellu,
kona hans Ástríður Jónsdóttir og Ísólfur Gylfi Pálmason alþingismaður,
lengst til hægri, rifja upp gamla tíma í kaupfélaginu.
Verslunarminja-
safn opnað í
Sögusetrinu
Jón Guðjónsson bóndi í Hallgeirsey, Erna Geirdal og Benedikt Árnason
leikari. Jón gaf safninu gamla sementstunnu sem fannst í fjörunni þar
sem skipað var upp vörum meðan kaupfélagið var í Hallgeirsey.
Óli Rúnar Ástþórsson framkvæmdastjóri KÁ og Erlingur Loftsson stjórn-
arformaður KÁ virða fyrir sér gamlar ritvélar á kaupfélagssafninu.
Hvolsvelli