Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 21
Lið-a-mót
FRÁ
Apótekin
Tvöfalt sterkara
með GMP gæðastimpli
100% nýting/frásog
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
FRÍHÖFNIN
Heimsferðir bjóða nú spennandi vikuferð til
þessarar heillandi borgar þann 28. ágúst. Hér getur
þú kynnst fegurstu borg Evrópu, gamla bænum,
Hradcany kastala, Karlsbrúnni, Wenceslas torginu, og farið í spennandi
kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða. Gott úrval hótela í boði.
Verð kr. 33.020
Flugsæti með sköttum, m.v. hjón
með 2 börn.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 57.540
Flug og hótel í 6 nætur, m.v. 2 í
herbergi, Expo, 4 stjörnur.
Aðeins 28
sæti laus
Vikuferð til
Prag
28. ágúst
frá kr. 33.020
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
60 ára frábær reynsla.
BANDARÍSKIR alríkislögreglu-
menn fengu mikilvægar vísbend-
ingar um felustaði Vladimiros
Montesinos, fyrrverandi yfirmanns
leyniþjónustu Perú, með því að
fylgjast með reikningi í banka-
útibúi í Miami á Flórída, að því er
The Washington Post greindi frá í
gær.
Montesinos flúði frá Perú fyrir
átta mánuðum, en um helgina náð-
ist hann í Venesúela og var fluttur
aftur til Perú. Var komið með
hann þangað í fyrradag. Er honum
gefið að sök að hafa stjórnað
dauðasveitum, selt fíkniefni og
auðgast á stórfelldri spillingu í
stjórnartíð Albertos Fujimoris,
fyrrverandi forseta Perú, sem nú
er í útlegð í Japan.
Samkvæmt frétt Washington
Post fór yfirmaður spillingarlög-
reglu Perú, Saul Pena Farfan,
þess á leit við bandarísku alrík-
islögregluna (FBI) fyrir tveim
mánuðum að fylgst yrði með 38
milljóna dollara reikningi í Miami-
útibúi Pacific Industrial-bankans,
sem skráður er á Caymaneyjum í
Karíbahafi.
Mánuði síðar hafði fyrrverandi
leyniþjónustumaður í Venesúela
samband við starfsmann bankans
og reyndi að taka út peninga af
reikningnum, sem talinn var vera í
eigu Montesinos, og hafði verið
frystur. Kvaðst Venesúelinn vera
fulltrúi Montesinos. FBI hafði
samband við bankastarfsmanninn
og hóf að fylgjast með samtölum
hans við Venesúelann. Þrýsti sá
síðarnefndi á um að fá að taka út
peninga með því að hóta að gera
uppskátt um þær upplýsingar sem
Montesinos hefði um peninga-
þvætti sem stundað væri í bank-
anum.
Aðgerðin náði hámarki sl. föstu-
dag þegar FBI-menn handtóku
Venesúelann og tvo aðstoðarmenn
hans þegar þeir komu inn í bank-
ann. Venesúelanum var hótað
kæru fyrir að reyna að þvinga út
peninga, og bauðst hann þá til að
búa svo um hnútana að Montes-
inos næðist gegn því að fá dóms-
sátt. Fól þetta samkomulag í sér
að Venesúelinn gaf upp nöfn á
hópi fólks sem gætti Montesinos á
nokkrum felustöðum í Venesúela.
Leiddi þetta til þess að Montes-
inos var handtekinn í Caracas.
Eftir að hann var tekinn hönd-
um hefur stjórnarandstaðan í
Venesúela krafist þess að fá að
vita hvað Montesinos var að gera
þann tíma sem hann dvaldist í
Venesúela. Stjórnarandstöðuþing-
maður sem áður var bandamaður
Hugos Chávez forseta sakaði
stjórnvöld um að „halda vernd-
arhendi yfir alþjóðlegum glæpa-
manni“.
Stjórnin hefur ekki greint frá
því hvenær henni var fyrst kunn-
ugt um að Montesinos væri í land-
inu. Varnarmálaráðherrann var fá-
orður sl. mánudag og sagði aðeins
að Perú hefði ekki beitt óvenju
miklum þrýstingi til að fá Venes-
úela til að handtaka Montesinos.
Þegar aðstoðarinnanríkisráðherr-
ann hafði lesið yfirlýsingu um
framsal Montesinos svaraði hann
ekki frekari spurningum frétta-
manna. Chávez tók sér frí frá
störfum á mánudaginn.
Krafist upplýsinga um veru Montesinos í Venesúela
Bankareikningur vís-
bending um felustaði
Reuters
Vladimiro Montesinos í Lima í
apríl 1998.
Washington, Caracas. AFP, AP.
UM 600.000 manns fögnuðu komu
Jóhannesar Páls II. páfa til borg-
arinnar Lvív, í vesturhluta Úkr-
aínu, í gær en þar eru kaþólskir í
meirihluta. Þetta er alls ólíkt þeim
viðtökum sem páfi fékk í höfuð-
borginni, Kíev, fyrr í vikunni en þar
sóttu mun færri messu hans en við
var búist.
Tugir þúsunda pílagríma lögðu
leið sína til Lvív frá fæðingarlandi
páfa, Póllandi, til að hlýða á messu
hans.
Messa páfa var haldin utandyra
nálægt landamærum Póllands og
Úkraínu á svæði sem Pólverjar og
Úkraínumenn, grísk-kaþólskir og
harðlínu-rétttrúnaðarmenn, komm-
únistar og þjóðernissinnar hafa í
gegnum aldirnar deilt harkalega
um.
Í messunni hvatti páfi Úkraínu-
menn og Pólverja til að stilla til
friðar, gleyma ágreiningi fortíðar-
innar og byggja samband sitt í
framtíðinni á gagnkvæmri virðingu.
„Það er kominn tími til að snúa
baki við sorglegri fortíðinni,“ sagði
hann í ræðu sinni. „Megi fyrirgefn-
ingin breiðast út og græða sárin.
Megi sögulegar staðreyndir hjálpa
okkur að muna hvað sameinar okk-
ur fremur en hvað sundrar okkur
svo við getum byggt framtíðina á
gagnkvæmri virðingu, samvinnu og
einhug.“
Páfi hefur lýst því yfir að hann
vilji sætta þann ágreining sem hef-
ur verið á milli kaþólsku kirkjunnar
og réttrúnaðarkirkjunnar frá árinu
1054 er kirkja kristinna manna
klofnaði.
Forseti Úkraínu, Leoníd
Kútsjma, bauð Jóhannesi Páli II.
páfa í heimsókn til landsins þrátt
fyrir að réttrúnaðarmenn í Úkraínu
legðust eindregið gegn því, en þeir
hafa sakað fulltrúa Páfagarðs um
að reyna að snúa rétttrúnaðarfólki.
Ákvörðun forsetans er talin end-
urspegla vilja framámanna í land-
inu til að eiga góð samskipti við
Vesturlönd.
Fimm daga heimsókn páfa til
Úkraínu lýkur í dag.
Jóhannesi Páli II. vel tekið í vesturhluta Úkraínu
Hálf milljón manna
sótti messu páfa í Lvív
Úkraína, Lvív. AP. AFP.
Reuters
Jóhannes Páll páfi blessar pílagríma í Lvív í gær.
BANDARÍSKUR námsmaður, John
Tobin, sem í apríl var dæmdur fyrir
eiturlyfjasölu í Rússlandi á yfir höfði
sér njósnaákæru. Talsmaður rúss-
nesku öryggisþjónustunnar (FSB)
sagði að ný sönnunargögn hefðu
komið fram sem styrktu ásakanir á
hendur Tobin.
Tobin var dæmdur í 37 mánaða
fangelsi fyrir dreifingu á marijúana í
rússnesku borginni Voronezh í apríl
en dómurinn var mildaður í eins árs
fangelsi í gær. FSB hefur haldið því
fram að Tobin sé bandarískur njósn-
ari í þjálfunarferð í Rússlandi, en
njósnaákæru var vísað frá dómi
vegna skorts á sönnunargögnum.
Hefur Tobin staðfastlega neitað
ásökunum um njósnir og segir Rúss-
ana vera að refsa sér fyrir að vilja
ekki gerast njósnari fyrir þá.
Borinn þungum sökum
Ef til ákærunnar kemur mun hún
byggjast á framburði rússnesks vís-
indamanns, Dimitrí Kútsnetsov, en
hann heldur því fram að Tobin hafi
reynt að fá sig til að njósna fyrir
leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA).
Á þetta að hafa gerst meðan Kútsn-
etsov sat í fangelsi í Bandaríkjunum
fyrir fjársvik. Hann er sérfræðingur
í eiturefnum sem nota má í hernaði
og á Tobin að hafa reynt að fá Kútsn-
etsov til að gefa sér upplýsingar um
rannsóknir hans og sambönd við
aðra vísindamenn.
Kútsnetsov hitti Tobin þar sem sá
síðarnefndi sat í rússnesku fangelsi
og sagði hann eftir fundinn að hann
væri handviss um að Tobin væri
sami maðurinn og hefði yfirheyrt
hann í Bandaríkjunum. „Hann hefur
mjög sérstakt og eftirminnilegt
bros,“ sagði Kútsnetsov um Tobin.
Talsmaður FSB sagði stofnunina
vera að meta þessi nýju gögn.
Náms-
maður
sakaður
um njósn-
ir á ný
Moskva. AP, AFP.
LÖGREGLA í þýsku borginni
Aachen var kölluð til að skilja á
milli hjóna sem hnakkrifust í
rauða hverfi borgarinnar í fyrri-
nótt. Hafði eiginmaðurinn lagt
leið sína í hverfið í leit að félags-
skap og rakst þar á eiginkonuna
sem var við vinnu sem vændis-
kona. Var manninum ekki kunn-
ugt um þessa aukavinnu eiginkon-
unnar og var því mjög brugðið og
var konan sömuleiðis ósátt við
hegðan eiginmannsins. Ekki fer
neinum sögum af heimilisfriðnum
nú þegar leyndarmálin hafa litið
dagsins ljós.
Hjón hittast í
rauða hverfinu
Aachen. The Daily Telegraph.