Morgunblaðið - 27.06.2001, Síða 23
Myndlistarkonurnar eru allar út-
skrifaðar úr Myndlista- og handíða-
skóla Íslands og hafa haldið fjölda
einka- og samsýninga hérlendis sem
erlendis.
Þær hafa allar vinnustofur á Korp-
úlfsstöðum og verk eftir þær eru
m.a. á Listasafni Íslands, Listasafni
Reykjavíkur og Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
11.-17. og lýkur 22. júlí.
Í NORSKA húsinu í Stykkishólmi
stendur nú yfir sýningin Fimm sinn-
um fimm. Myndlistarkonurnar Ása
Ólafsdóttir, Bryndís Jónsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Magdalena
Margrét Kjartansdóttir og Þorgerð-
ur Sigurðardóttir sýna hver um sig
fimm verk (5X5). Á sýningunni má
sjá leirverk, myndvefnað, tréristur
og einþrykk af tréplötum, akríl á
pappír, þurrnál, dúkristu, ætingu og
olíu á striga.
Fimm listakonur
í Norska húsinu
Listakonurnar Magdalena, Þorgerður, Bryndís, Ása og Kristín.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 23
NÚ stendur yfir sýning á myndum
eftir Svavar Guðnason í Pakkhús-
inu á Höfn í Hornafirði. Myndirnar
eru hluti af nýlegri gjöf Ástu
Eiríksdóttur ekkju Svavars en á
undanförnum árum hefur hún gefið
sveitarfélaginu fjölda mynda eftir
eiginmann sinn. Einnig hafa vinir
þeirra hjóna afhent margar myndir
að gjöf.
Svavar Guðnason fæddist á Höfn
í Hornafirði 18. nóvember 1909.
Hann hélt til Kaupmannahafnar ár-
ið 1935 og stundaði listnám og list-
sköpun. Þegar seinni heimsstyrj-
öldin braust út lokaðist hann inni í
Kaupmannahöfn. Á þessum útlegð-
arárum hófst eitt frjóasta skeiðið í
sköpunarferli Svavars. Svavar lést
25. júní 1988.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
varðveitir listaverkin en þau eru að
staðaldri til sýnis í Ráðhúsi Horna-
fjarðar. Pakkhúsið er opið alla daga
kl. 14-18. Í júlí verður opnunartím-
inn lengdur til kl. 21. Sýningin
stendur til 5. júlí.
Myndir Svavars
Guðnasonar
á Höfn
EYÞÓR Ingi Jónsson heldur org-
eltónleika í Akraneskirkju í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20. Á efnis-
skránni eru verk eftir J.S. Bach,
Georg Böhm, Francois Couperin,
Felix Mendelssohn, Bartholdy og
Otto Olsson.
Eyþór lauk kantorsprófi frá
Tónskóla þjóðkirkjunnar 1998 og
er nú við nám við kirkjutónlist-
ardeild Tónlistarháskólans í Piteå í
Svíþjóð.
Aðgangseyrir er 800 kr.
Orgeltónleikar
á Akranesi
Hafnarborg
Sýningum Werner Möllers,
Andreas Green og Magdalenu
Margrétar Kjartansdóttur lýkur á
mánudag.
Sýning Werners nefnist Arpegg-
ien - tónraðir og endurómun og
gefur þar að líta 30 lítil akrýlmál-
verk og eitt stórt textílverk. Andr-
eas hefur starfað við ljósmyndun,
grafík og málverk. Sýningin hefur
yfirskriftina Hringur og lína. Mag-
dalena Margrét nefnir sýningu
sína Rispur og er hún á kaffistofu
Hafnarborgar.
Hafnarborg er opin alla daga,
nema þriðjudaga, kl. 11-17.
Listhús Ófeigs
Sýningu Margrétar Magnúsdótt-
ur í Listhúsi Ófeigs við Skóla-
vörðustíg lýkur í dag, miðvikudag.
Þar sýnir Margrét málverk og þrí-
víða hluti.
Gallerí Sölva Helgasonar
Sýningu Þorra Hringssonar í
Gallerí Sölva Helgasonar að Lón-
koti í Skagafirði lýkur á laugardag.
Á sýningunni eru vatnslitamynd-
ir unnar á árunum 1999-2001.
Sýningum lýkur
♦ ♦ ♦
AÐRIR tónleikar í tónleikaröðinni
Bláa kirkjan á Seyðisfirði verða í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30.
Þá mun Ceilidh-band Seyðisfjarðar
leika keltneska og íslenska tónlist,
þjóðlagadansa, söngtónlist og dæg-
urlög.
Félagar í Ceilidh-band eru Árni
Jón Sigurðsson, harmonika, Guðni
Sigmundsson, bassi, Muff Worden,
hljómborð, „pennywhistles“ og kelt-
nesku trommur, Sigurður Hauks-
son, gítar. Gestaleikari er Anna Lilja
Karlsdóttir, trompett.
Keltnesk lög
á Seyðisfirði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦