Morgunblaðið - 27.06.2001, Page 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GRUNDARTANGAKÓRINN, kór
starfsmanna Íslenska Járnblendi-
félagsins á Grundartanga vann til
þriðju verðlauna í sínum flokki í
kórakeppninni Syng for oss, sem
haldin var í Grieghallen í Bergen 15.-
16. júní sl.
Alls tóku 50 kórar þátt í keppninni
með um 1500 kórsöngvurum, en það
var Kórasambandið á Hörðalandi
sem stóð fyrir keppninni. Keppt var í
sjö flokkum, A og B-flokki blandaðra
karla- og kvennakóra, en auk þess í
flokki kammerkóra. Sigurvegari í
keppninni var kvennakórinn Voci
Nobili frá Bergen, sem keppti í A-
flokki kvennakóra, en kórinn fékk
alls 139,6 stig. Grundartangakórinn
keppti í B-flokki karlakóra og
hreppti þriðja sætið með 94,2 stig.
Grundartangakórinn var eini ís-
lenski kórinn sem tók þátt í keppn-
inni; einn sænskur kór keppti einnig,
en allir hinir kórarnir voru norskir.
Að sögn Smára Guðjónssonar,
starfsmanns Járnblendifélagsins og
félaga í Grundartangakórnum, var
þátttaka í kórakeppninni ákveðin í
fyrrasumar. „Þá kom norskur kór
hingað að heimsækja okkur. Hann
hafði tekið þátt í svipaðri keppni í
Noregi. Þeir hvöttu okkur óspart til
að koma til Noregs og taka þátt í
þessari keppni og heimsækja þá í
leiðinni, og það gerðum við. Við erum
náttúrulega vinnustaðarkór, allir
kórfélagar vinna hér, og við vorum
mjög ánægðir með okkar hlut og
mjög stoltir.“ Allir kórarnir sem
sungu í keppninni þurftu að syngja
eitt fyrirfram ákveðið lag, en auk
þess söng Grundartangakórinn
Krummavísur og Hver á sér fegra
föðurland. „Það skemmtilegasta við
þetta var að syngja í Grieg-höllinni,
sem er alveg frábær; það var mikil
upplifun,“ sagði Smári. Kórstjóri er
Atli Guðlaugsson.
Grundartangakórinn syngur til verðlauna
„Ánægðir með okkar
hlut og mjög stoltir“
Grundartangakórinn á söngpalli í Noregi ásamt stjórnanda sínum Atla Guðlaugssyni.
Í SJÓMINJASAFN-
INU í Hafnarfirði
stendur nú yfir sýning
á verkum Ásgeirs
Guðbjartssonar.
Listaverkin á sýning-
unni eru af ýmsum
toga. Margar mynd-
irnar eru útskurður í
tré, ýmist styttur eða
lágmyndir. Einnig
kemur útskurður í
hvaltennur, gler og
plexigler við sögu og
ein myndin er gerð úr
fjöðrum páfagauks Ás-
geirs, sem er fyrir-
mynd tveggja mynda.
Myndefni sækir Ás-
geir að öðru leyti í gamlar myndir af
Reykjavík, Hafnarfirði og öðrum
stöðum á Íslandi, sem og til sjávar-
ins, en hann var um tíma á sjó.
Myndir úr
vindlahringjum
Margar sjávarmyndirnar eru mál-
verk sem að hluta eru gerð úr vindla-
hringjum. „Sennilega manst þú ekki
eftir vindlahringjum sökum aldurs,“
segir Sveinn Guðbjartsson, bróðir
Ásgeirs þegar blaðamaður hittir
hann að máli á sýningunni. „Slíkir
hringir eru vandfundnir nú til dags.“
Um er að ræða hringi úr marglitu
bréfi sem var haft utan um vindlana
miðja á árum áður. Ásgeir nýtir sér
þessa hringi í segl og bátsskrokka í
myndverkum sínum. „Móðir okkar
safnaði upphaflega þessum vindla-
hringjum og gerði tvívíðar myndir úr
þeim. Ásgeir erfði svo þetta safn eft-
ir hana, en það var fjöldi manns sem
safnaði fyrir hana þessum hringjum.
Hann byrjaði þá að gera þessar hálf-
þrívíðu myndir,“ útskýrir Sveinn.
Óhætt er að segja að enginn annar
geri slíkar myndir um þessar mundir
á Íslandi. „Fólk sem hingað kemur
er mjög hrifið. Myndirnar eru þó
ekki til sölu, enda hefur Ásgeir ekki
litið á sig sem sölulistamann. Hann
hefur haft þetta að tómstundagamni
til að gleðja sjálfan sig og fjölskyldu
og vini.“
Það var Sveinn sem hvatti Ásgeir
til að halda sýninguna í Sjóminja-
safninu. Sjálfur sýnir hann einnig
tréútskurð á sýningunni. Það eru
gestabækur og box að norskri fyr-
irmynd. „Ásgeir hefur aldrei lært
myndlist. Þó held ég að fáir geti leik-
ið handbragð hans eftir,“ segir
Sveinn. Útskurður bræðranna ber
natni merki. Trélágmyndir Ásgeirs
sem eru á annan tug og sýndar í öðru
herbergi safnsins, eru afar fíngerðar
og nákvæmlega unnar. Þema nokk-
urra þeirra er sótt í gamlar teikn-
ingar af Íslandi. „Sumar þessara
mynda eru teknar úr ferðabókum út-
lendinga, sem komu til Íslands á nít-
jándu öld,“ útskýrir Sveinn. „Aðrar
eru unnar eftir ljósmyndum eða
póstkortum sem hann hefur fengið
send.“
Andstæðir pólar
Listamannsgenið er ríkjandi í fjöl-
skyldu þeirra Sveins og Ásgeirs. Svo
skemmtilega vill til, að þeir eru
ömmubræður tveggja íslenskra
listamanna, þeirra Ólafs Elíassonar,
myndlistarmanns, sem búsettur er í
Þýskalandi og Ara Magg, ljósmynd-
ara. Með sanni má segja að listsköp-
un kynslóðanna tveggja sé talsvert
ólík, en þó er víst að allir fara þeir
óhefðbundnar og nýstárlegar leiðir í
listsköpun sinni.
Sýningin í Sjóminjasafninu er opin
alla daga milli kl. 13 og 17. Henni
lýkur 22. júlí.
Ein af útskurðarmyndum Ásgeirs á sýningunni í Sjóminjasafninu.
Ásgeir
Guðbjartsson
Ólíkt öllu
öðru
Sveinn
Guðbjartsson
Morgunblaðið/Sverrir
Mynd eftir Ásgeir Guðbjartsson, þar sem vindlahringir eru notaðir.
Í BANDARÍSKU spennumynd-
inni The Watcher leikur James
Spader fyrrum lögreglumann hjá
FBI sem eltist svo lengi og svo ár-
angurslaust við fjöldamorðingja,
sem Keanu Reeves leikur, að hann
hætti í löggunni, flutti í aðra borg
og lagðist í þunglyndi með reglu-
legum mígreniköstum. Hann er í
meðferð hjá sálfræðingi, Marisu
Tomei, og reynir að gera sitt besta
en virðist ekki hafa árangur sem
erfiði.
Svo gerist það að erkióvinur
hans birtist á ný og myrðir ungar
konur sér til skemmtunar en til
þess að auka skemmtigildið lætur
hann Spader vita í hvert skipti
hverja hann ætlar að myrða og hef-
ur gamla löggan dagspart til þess
að bjarga lífi hennar.
Joe Charbanic stýrir fjöldamorð-
ingjatrylli þessum án þess að finna
í honum nokkra einustu spennu eða
óhugnað. Persóna Spaders er
sæmilega skýr en það sama verður
ekki sagt um morðingjann sem
Reeves leikur með aðeins rétt
mátulegum áhuga; það er eins og
leikarinn viti ekki í hvorn fótinn
hann á að stíga í hlutverkinu. Hann
virkar ekki öðruvísi en sem eitt-
hvert furðufrík og tekst hvorki
Reeves né leikstjóranum að gera úr
honum þann ógnvald sem nauðsyn-
legt er að skelfi áhorfendur. Í
spennuleysinu grípur leikstjórinn
til stílbragða sem aðeins virka
hvimleið og hægja á atburða-
rásinni.
Kannski er einn gallinn líka sá að
þetta virðist allt saman hafa verið
gert áður og miklu betur. Það er
eins og allt í þessari mynd hafi ver-
ið þaulreynt í öðrum myndum.
Handritið er þannig formúlukennt
og þegar við bætist slöpp leik-
stjórnin og áhugalítill leikur er ekki
von á góðu. Úr verður furðulega lít-
il spenna í verki sem annars gefur
sig út fyrir að vera spennumynd.
Spennulaus
eltingarleikur
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjórn. Joe Charbanic.
Handrit: David Elliot og Clay
Ayers. Aðalhlutverk: James
Spader, Keanu Reeves, Marisa
Tomei og Ernie Hudson. 95 mín.
„THE WATCHER“ 1 ⁄2
Arnaldur Indriðason
DILBERT
mbl.is