Morgunblaðið - 27.06.2001, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Járnsmiður
eða maður vanur járnsmíði óskast til
starfa. Upplýsingar í síma 861 7414.
Mikil vinna í Stokkhólmi/Svíþjóð,
sanngjörn laun!
Góðir smiðir
sem geta unnið sjálfstætt óskast strax!
Frítt húsnæði og fargjald báðar leiðir.
Nánari upplýsingar í síma 00469252088/
0046706889932. Netfang hoxa@hoxa.com .
Barnfóstra -
„au pair“ - amma
Óskum eftir að ráða trausta og barngóða
manneskju á gott heimili í Kópavogi, til að
passa tæplega árs gamalt barn og sjá um
létt húsverk. Vinnutími frá ca 8—16
(samkomulag). Reyklaus. Þetta er ekki
sumarstarf. Útlendingur kemur til greina.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Barngóð“.
Umhverfisráðuneytið
Staða lögfræðings
Umhverfisráðuneytið auglýsir lausa til umsókn-
ar stöðu deildarsérfræðings í lögfræðideild.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi embættis-
próf í lögfræði og starfsreynslu úr opinberri
stjórnsýslu.
Laun eru samkvæmt samningi fjármálaráðher-
ra við Félag háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins. Umsóknarfrestur er til 12. júlí.
Frekari upplýsingar eru veittar í umhverfisráðu-
neytinu.
ⓦ á Kársnes-
braut,
Kópavogi
Fulltrúi
Menntaskólinn í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
fulltrúa í fullt starf á skrifstofu skólans.
Starfið felur í sér símsvörun og almenn skrif-
stofustörf s.s. afgreiðslu, ritvinnslu, móttöku,
miðlun upplýsinga til starfsmanna og nem-
enda, auk sérverkefna. Æskilegt er að umsækj-
andi hafi menntun í skrifstofu-og/eða viðskipta-
greinum.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst nk. og fara launa-
kjör eftir sérstökum samningi Starfsmanna-
félags ríkisins og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 4. júlí.
Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknar-
eyðublaði en í umsókn þarf að greina frá
menntun og starfsreynslu. Umsókn skal senda
til skólameistara.
Frekari upplýsingar um starfið veita skóla-
meistari, Margrét Friðriksdóttir og aðstoð-
arskólameistari, Örn Sigurbergsson í síma
544 5510.
Skólameistari.
Borgarbyggð
Laus störf
Skólaráðgjafi, umsjón Íþrótta- og
tómstundaskóla, kennarastöður
Borgarbyggð auglýsir eftir:
Skólaráðgjafa við sérfræðiþjónustu.
Starfsvettvangur er grunnskólar og leikskólar
í Borgarbyggð. Fagleg ráðgjöf og leiðbeiningar
vegna sérþarfa barna og sérkennslu. Ráðgjöf
og stuðningur við nemendur, foreldra og
starfsfólk skólans. Kennslufræðilegar athuganir
og greiningar.
Íþróttakennara — umsjón Íþrótta- og tóm-
stundaskóla.
Starfið felst í almennri íþróttakennslu við
Grunnskólann í Borgarnesi og umsjón og
skipulagi með Íþrótta- og tómstundaskóla
Borgarbyggðar auk leiðbeiningastarfa. Um
er að ræða spennandi mótunarstarf þar sem
starfsemi Íþrótta- og tómstundaskóla hefst í
haust.
Kennurum við Grunnskólann í Borgarnesi.
Lausar eru til umsóknar stöður almennra bekkj-
arkennara á yngsta- og miðstigi. Einnig staða
sérkennara. Skólinn verður einsetinn í haust
og eru vinnuskilyrði hin ágætustu.
Umsóknir berist skrifstofu Borgarbyggðar,
Borgarbraut 11, eða til skólastjóra Grunn-
skólans í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar:
Starf skólaráðgjafa: Hjördís Hjartardóttir í síma
437 1224, netfang: hjordis@borgarbyggd.is .
Kennarastöður: Kristján Gíslason skólastjóri
í síma 437 1229, netfang: kristgis@ismennt.is .
Einnig hjá Stefáni Kalmanssyni bæjarstjóra
í síma 437 1224, netfang: stefan@borgar-
byggd.is .
Biskup Íslands
auglýsir laust til umsóknar
embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðar-
prestakalli í Austfjarðarprófastsdæmi
frá 1. september 2001.
● Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknar-
presta til fimm ára.
● Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefnd-
ar, en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir
að taka fram.
● Valnefnd velur sóknarprest skv. starfs-
reglum um presta nr. 735/1998, en biskup
ákveður með hvaða umsækjanda hann
mælir náist ekki samstaða í valnefnd.
● Heimilt er að óska eftir því að almennar
prestskosningar fari fram samkvæmt 20.
gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998, en
ákvæðið er svo hljóðandi:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakalli þess, að almenn
prestskosning fari fram, er skylt að verða
við því. Skrifleg ósk um kosningu skal
hafa borist biskupi eigi síðar en að hálf-
um mánuði liðnum frá þeim degi er kallið
var auglýst laust til umsóknar.“
● Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur,
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, s. 535 1500, grænt nr. 800 6550, fax
551 3284.
● Umsóknarfrestur rennur út 1. ágúst 2001.
● Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Það athugist að embætti sóknarpresta eru aug-
lýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og
prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta
breytingu á störfum sínum og verksviði á skip-
unartímanum, sbr. 19. grein laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Viltu læra að mála í sumar?
Listahús Veru
býður upp á öðru-
vísi og spennandi
námskeið í listmál-
un (olíu). Nám-
skeiðið hentar jafnt
byrjendum sem
lengra komnum.
Námskeiðið fyrir byrjendur hefst 3. júlí kl. 17—21.
Allt efni innifalið í verði.
Námskeið fyrir lengra komna á hverjum laugar-
degi kl. 10—17. Við förum út til að mála íslenskt
landslag. Vinsamlega látið skrá ykkur fyrir
2. júlí nk. í síma 565 9559 eða 897 4541.
Veffang Veru er: www.artvera.com .
TIL SÖLU
Woma 325 z háþrýstidæla
1000 bör, 131 l/mín. vatnsflæði, árg. '92, kúin
af MAN D 2866 vél. Vél og dæla bæði nýupptek-
in. Dæla er í einangruðum vagni. Í vagni er
vatnstankur. Einnig er hægt að tengja dælu beint
í vatnsbrunn.
Upplýsingar í síma 560 8834 eða 861 6919.