Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
GUÐMUNDUR Ólafsson hefur á
opinberum vettvangi gagnrýnt nið-
urstöður Þorsteins Siglaugssonar
rekstarhagfræðings um áætlaða arð-
semi fyrirhugaðrar Kárahnjúka-
virkjunar. Nú síðast í Morgun-
blaðinu 23. júní. Þar sakar hann
Þorstein enn einu sinni um að velja
forsendur við hæfi viðskiptavina
sinna, þ.e. Náttúruverndarsamtaka
Íslands.
Fulltrúar Landsvirkjunar hafa þó
sagt skýrslu Þorsteins vandaða út-
tekt og lofað færni hans og kunnáttu
þó svo að fyrirtækið haldi því fram
að hann skorti mikilvægar upplýs-
ingar og forsendur til að geta fengið
rétta niðurstöðu – upplýsingar sem
fyrirtækið neitar þó að láta af hendi.
Á hinn bóginn hefur Landsvirkjun
veitt nokkrar upplýsingar sem Þor-
steinn – líkt og vandaðir fræðimenn
gera – hefur nýtt sér til að endur-
skoða útreikninga sína. Það hefur
ekki breytt meginniðurstöðu Þor-
steins um að Kárahnjúkavirkjun
verði rekin með umtalsverðu tapi.
Þorsteinn Siglaugsson er vita-
skuld fullfær um að svara fyrir sig
sjálfur. Á það skal hins vegar bent að
starfsmenn Háskóla Íslands ættu að
vera þess umkomnir að koma eigin
skoðunum á framfæri eða gagnrýna
verk annarra fræðimanna án þess að
ráðast að starfsheiðri þeirra eða ve-
fengja heilindi þeirra. Ásakanir Guð-
mundar á hendur Þorsteini Sig-
laugssyni bera vott um fræðilegt
óöryggi lektorsins. Hann virðist ekki
treysta eigin kunnáttu og færni og
reynir þess í stað að ata andstæðing
sinn auri. Það eru vinnubrögð sem
ekki sæma starfsmanni Háskóla Ís-
lands.
ÁRNI FINNSSON,
formaður Náttúruverndar-
samtaka Íslands.
Guðmundi Ólafssyni
svarað
Frá Árna Finnssyni:
Í FRÉTT í Morgunblaðinu 24. júní
sl. var vitnað í dagblaðið Inde-
pendent í London og sagt, að
bresk stjórnvöld væru í þann veg-
inn að breyta stefnu sinni í hval-
veiðimálum. Það er ekki rétt.
Þótt breska stjórnin viðurkenni
rétt frumbyggja til takmarkaðra
hvalveiða og veiðar í vísindaskyni
samkvæmt reglum Alþjóðahval-
veiðiráðsins, IWC, þá hafnar hún
veiðum þar sem vísindin eru að-
eins yfirskin og eru ekki í sam-
ræmi við IWC-reglurnar. Það
sama á við um tilraunir til að snið-
ganga alþjóðlegar samþykktir með
því að selja hvalrengi á heims-
markaði. Breska stjórnin er enn
sem fyrr andvíg hvalveiðum í at-
vinnuskyni.
Með þökk fyrir birtinguna,
JOHN CULVER,
sendiherra Bretlands á Íslandi.
Engin breyting
í hvalveiðimálum
Frá John Culver:
Undanfarið hafa verið nokkur orða-
skipti milli okkar Ásmundar Geirs-
sonar um Mývatn
og Kísiliðjuna.
Hefur hann skrif-
að nokkrar grein-
ar um málið og
heitir síðasta
grein hans „Sömu
lygar og venju-
lega“. Ég hef líka
skrifað nokkrar
greinar um sama
mál.
Ásmundur segir að ég sé sein-
heppinn með þær heimildir sem ég
nota í öllum skrifum mínum og hafi
ég vitnað í sömu grein í Mbl. frá 13.
okt. í fyrra eftir tvo veiðibændur við
Mývatn. Það er nú ekki rétt hjá
honum að ég vitni í öllum skrifum
mínum í þessa grein. En þó svo
væri sé ég ekkert athugavert við
það. Þessir menn hjóta að vera öll-
um staðháttum kunnugir. Ásmund-
ur notar svo meirihlutann í grein
sinni til þess að gera athugasemdir
við þessi skrif þeirra og segir í lok-
in, „þessi grein þeirra byggist því
miður öll á fullyrðingum, en engum
rökum.“ Þetta virðist nú eitthvað
hafa snúist í kollinum á honum. Því
það er fátt af fullyrðingum í grein-
inni og líklega engar sem ekki eru
staðreyndir fyrir. Þeir virðast hafa
full rök fyrir sínu máli. Þá segir Ás-
mundur að ég fagni mjög hinum
nýju náttúruverndarsamtökum Mý-
vatns. Hvergi sér hann það í skrif-
um mínum að ég fagni þeim mjög.
En sjálfsagt fögnum við því báðir
og margir fleiri að ný náttúruvernd-
arsamtök séu stofnuð við Mývatn
en ég náttúrulega ekki meira en
aðrir.
Það er nú vonandi að þessi nýju
samtök, sem samanstanda af heima-
mönnum sem best þekkja til og eiga
mest undir því komið að Mývatn
skemmist ekki, finni þá leið sem
menn geta sameinast um og farsæl-
ust er fyrir vatnið og Kísiliðjuna.
Ætti þá þessi leiðindaágreiningur
um Kísiliðjuna og Mývatn að geta
hætt?
BJÖRN LOFTSSON,
Drápuhlíð 49, Reykjavík.
Lítið eitt enn
um Mývatn
Frá Birni Loftssyni:
Björn Loftsson