Morgunblaðið - 27.06.2001, Qupperneq 43
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 43
KOMIÐ Á FÆREYSKA DAGA
í ÓLAFSVÍK 29. JÚNÍ - 1. JÚLÍ NK.
FÖSTUDAGURINN 29. JÚNÍ.
Kl. 13.00: Markaðurinn við húsakynni HÓ verður opnaður.
Kl. 14.00: Leiktækin opnuð.
Kl. 16.00: Fótboltaleikur milli unglinga frá Færeyjum og Ólafsvík.s
Kl. 18.00: Dorgkeppni á vegum Sjósnæs. Grillað verður fyrir
keppendur.
Kl. 20.30: Menningarvaka á Hótel Höfða. Hjálmar Árnason alþm.
flytur fyrirlestur um Færeyjar. Þjóðlagasöngvarar frá Færeyjum,
Nikkolína Jakobsen og Erlingur Jakobsen taka lagið við undirleik
Regins Joensen.
Kl. 22.00: Bryggjuball. Hans Jakob og vinfolk spila. Stuðbandið
Tónól spilar á Þorgrímspalli.
Kl. 24.00: Flugeldasýning.
LAUGARDAGURINN 30. JÚNÍ.
Kl. 10.30: Hestamenn í hestamannafélaginu Hring í Ólafsvík leyfa
ungum sem öldnum að fara á bak fákum sínum við skeiðvöll
félagsins við Fossá.
Kl. 11.00: Opna færeyska golfmótið á vegum Golfklúbbsins Jökuls.
Kl. 13.00: Íslandsmeistaramót í mótokrosskeppni á Breiðinni.
Kl. 13.00: Markaðurinn opnaður.
Kl. 13.00: Leiktækin opnuð.
Kl. 14.00: Hátíðin sett á Þorgrímspalli. Bæjarstjórinn í Vestmanna,
Gunn Joensen, og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar,
flytja ávarp. Kórsöngur. Kvennakór frá Vestmanna syngur en hann
samanstendur af 60 konum. Færeyskur dans stiginn á palli. Örn
Árnason og Árni Tryggva-son skemmta. Fallhlífarstökk.
Söngvakeppni barna. Erling Jakobsen og Nikkolína syngja nokkur
lög við undirleik Regins Joensen. Söngtríóið Eggjastokkarnir syngja.
Dansarar frá Ólafsvík taka línudans. Fleira verður til skemmtunar.
Kynnir verður Magnús Stefánsson alþingismaður.
Kl. 17.00: Handboltaleikur á milli HK og handboltaliðs frá
Færeyjum í íþróttahúsinu.
Kl. 23.00: Stórdansleikur í Félagsheimilinu Klifi. Hin sívinsæla
færeyska hljómsveit Twilight leikur fyrir dansi.
SUNNUDAGURINN 1. JÚLÍ.
Kl. 13.00: Á Þorgrímspalli. Útimessa. Sóknarprestarnir frá
Vestmanna og Ólafsvík munu sjá um athöfnina. Kirkjukór Vestmanna
og kirkjukór Ólafsvíkur syngja. Undirleik annast hljómlistarmenn frá
Ólafsvík.
Kl. 14.30: Skemmtisigling út á Ólafsvík. Lifandi músík verður í
hverjum bát. Sýning verður opin á færeyskum munum í Gamla
Pakkhúsinu.
Einnig verður sýning á skipslíkönum. Þá verða á markaðnum m.a.
knettir, frigadellur, rastkjöt og súpa og þjóðarréttur Færeyinga,
skerpukjötið, og m.m.fl.
Safnaðarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Léttur málsverður á eftir.
Háteigskirkja. Kærleiksmáltíð kl. 12
í hádegi í Setrinu. Að henni lokinni
er dægradvöl fyrir eldri borgara.
Spiluð félagsvist og brids. Kvöld-
bænir og fyrirbænir í dag kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr.
Halldór Reynisson.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu eftir stundina.
Fella- og Hólakirkja. Samræmd
heildarmynd, sýning á glerlistaverk-
um og skrúða kirkjunnar opin kl. 10–
16.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10–12 í safnaðarheimilinu.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádegi kl. 12.00, altarisganga og
fyrirbænir. Léttur hádegisverður
frá kl. 12.30–13.00.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladeflía.
Grunnfræðsla kl. 20.00, þar sem
kennd eru undirstöðuatriði kristinn-
ar trúar. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Morgunblaðið/Jim Smart
FRÉTTIR
Í KVÖLD, miðvikudaginn 27. júní
stendur Hafnargönguhópurinn fyrir
gönguferð frá Hafnarhúsinu, Mið-
bakkamegin kl. 20:00.
Farið verður upp Grófina, Aðal-
stræti, með Tjörninni og um há-
skólahverfið suður að strönd Skerja-
fjarðar. Síðan með ströndinni inn í
Nauthólsvík og um vesturhlíðar
Öskjuhlíðar, Flugvallarveginn,
Vatnsmýrarveginn og Hljómskála-
garðinn til baka niður að Hafnar-
húsi. Hægt verður að stytta göngu-
ferðina með því að fara í SVR á
leiðinni.
Gengið á
milli fjarða
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 28.
júní verður gengið um land-
græðslusvæðið sunnan Hafnar-
fjalls við þjóðveg nr. 1. Gengið
verður frá Ölveri kl. 20:30 í fylgd
Gísla Jónssonar, Ný-Höfn í Mela-
sveit.
Gangan er fyrir alla aldurshópa
og tekur um einn og hálfan tíma.
Gengið verður að gömlum skóg-
arlundi, fræðst um skjólbeltarækt
og landgræðslustarf á Hafnarmel-
um auk þess sem farið verður yfir
helstu kennileiti umhverfisins.
Kvöldganga við
Hafnarfjall
SAMTÖK eigenda sjávarjarða verða
stofnuð í Bændahöllinni í Reykjavík,
Ársal, fimmtudaginn 5. júlí kl. 20.00.
Á fundinum verða flutt stutt erindi
um aðdraganda að stofnun samtak-
anna og hver séu helstu hlunnindi
sjávarjarða auk þess sem rætt verð-
ur um tillögu að lögum fyrir vænt-
anlegt félag og kosið í stjórn.
Dr. Ole Lindquist, sagnfræðingur,
mun flytja erindi sem heitir „Forn-
norrænn réttur sjávarjarða til auð-
linda við strendur Íslands“ en hann
hefur stundað rannsóknir á þessu
sviði sem birtust í doktorsritgerð
hans 1994. Allt áhugafólk um mál-
efnið er velkomið á fundinn.
Samtök eig-
enda sjávar-
jarða stofnuð
ÞINGMENNINRIR Össur Skarp-
héðinsson, Einar Már Sigurðarson,
Svanfríður I. Jónasdóttir og Krist-
ján L. Möller heimsækja fyrirtæki
og stofnanir á Húsavík í dag.
Um kvöldið kl. 20.30 er stofn-
fundur Samfylkingarfélags Húsa-
víkur á Hótel Húsavík, Bláa saln-
um. Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, ávarpar
fundinn. Allir velkomnir. Fimmtu-
daginn 28. júní heimsækja þing-
mennirnir Kópasker, Raufarhöfn
og Þórshöfn og verður m.a. fundað
með sveitarstjórnum og fyrirtæki
heimsótt.
Samfylkingin
fundar á Norð-
austurlandi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Ljós-
mæðrafélagi Íslands.
„Talsverð umræða hefur verið í
þjóðfélaginu undanfarið um hvort
bjóða eigi öllum verðandi foreldr-
um fósturskimun snemma á með-
göngu.
Um er að ræða snemmómun þar
sem mæld er hnakkaþykkt fósturs-
ins og/eða mælingu á sérhæfðum
lífefnafræðilegum gildum í blóði
móður.
Aðalfundur Ljósmæðrafélags Ís-
lands haldinn 19. maí 2001 beinir
þeim tilmælum til heilbrigðisyfir-
valda að þessi fósturskimun verði
ekki tekin upp sem tilboð til allra
verðandi foreldra fyrr en að lokinni
skipulegri umfjöllun hlutaðeigandi
aðila um málið.
Það er álit fundarins að verði
ákvörðun heilbrigðisyfirvalda sú að
bjóða öllum verðandi foreldrum
þessar fósturskimanir sem valkost,
verði að tryggja jafnan rétt allra
verðandi foreldra að þjónustunni
hvað varðar aðgengi og kostnað.
Ennfremur verður að tryggja hlut-
lausa ráðgjöf frá hendi ljósmæðra
og lækna sem sinna mæðravernd.“
Tryggð verði
ráðgjöf
vegna fóst-
urskimunar
♦ ♦ ♦