Morgunblaðið - 27.06.2001, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 45
DAGBÓK
Lágmúla 7, sími 55 12345
Um 450 m²
verslunarhúsnæði
að Barðastöðum 1-3
í Grafarvogi.
Allar upplýsingar
hjá Stóreign
í s. 55 12345.
TIL LEIGU
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri
á síðustu sætunum til Costa del Sol,
12. júlí í eina eða tvær vikur.
Þú bókar núna og 4 dögum fyrir
brottför segjum við þér hvar þú
gistir og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra okkar
allan tímann.
Verð kr. 39.985
Verð á mann miðað við hjón
með 2 börn 2–11 ára, flug,
gisting, skattar, 12. júlí, vikuferð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
viku, 12. júlí, vikuferð.
Verð kr. 49.985
Verð á mann miðað við hjón
með 2 börn 2–11 ára, flug,
gisting, skattar, 12. júlí, 2 vikur.
Síðustu sætin
Stökktu til
Costa del Sol
12. júlí í 1 eða 2 vikur
frá kr. 39.985
LJÓÐABROT
MINNI INGÓLFS
Lýsti sól
stjörnu stól,
stirndi á Ránar klæði.
Skemmti sér
vor um ver,
vindur lék í næði.
Heilög sjón:
hló við Frón.
Himinn, jörð og flæði
fluttu landsins föður heillakvæði.
Himinfjöll
földuð mjöll,
fránu gulli brunnu.
„Fram til sjár,“
silungsár
sungu, meðan runnu.
Blóm á grund,
glöð í lund,
gull og silki spunnu,
meðan fuglar kváðu allt, sem kunnu.
Blíð og fríð
frelsistíð.
Frægur steig á grundu
Ingólfur
arnar bur,
íturhreinn í lundu.
Dísafjöld
hylltu höld,
heill við kyn hans bundu.
Blessast Ingólfs byggð frá þeirri stundu.
Matthías Jochumsson.
SAGNHAFI þarf ekki að
kvarta yfir lauflegunni, en ef
vestur stendur sig eins og
maður hefur suður fulla
ástæðu til að kveinka sér
undan vörninni:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 6
♥ 8642
♦ KDG942
♣ K6
Vestur Austur
♠ 532 ♠ 108
♥ ÁK753 ♥ DG10
♦ 653 ♦ Á87
♣ ÁD ♣ 107432
Suður
♠ ÁKDG974
♥ 9
♦ 10
♣ G985
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta 2 tíglar 2 hjörtu 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartaás.
Vestur heldur á ÁD í laufi
og það gefur sagnhafa tvo
slagi á lauf og níu í allt. Síð-
an er tígullinn mikill vonar-
peningur og því lítur út fyrir
að sagnhafi standi sitt spil.
En vestur á fallega vörn sem
heldur sagnhafa í níu slög-
um. Hver er hún?
Það er tilgangslaust að
spila spaða, því sagnhafi
tekur þá bara trompin og
spilar tígli. Laufkóngurinn
er síðan innkoma á frítígl-
ana. Því verður að ráðast
strax á laufkónginn. En það
dugir ekki að spila laufás og
drottningu. Sagnhafi fer þá
heim með því að trompa
hjarta og stingur lauf með
sexu blinds. Vestur er svo
óheppinn að eiga ekkert
tromp yfir sexunni.
Eina vörnin sem virkar er
að spila laufdrottningu í öðr-
um slag. Þar með er inn-
koman á laufkóng farin og
vörnin nær að trompa út í
tæka tíð, hvort sem sagnhafi
spilar tígli eða laufi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Með morgunkaffinu
Staðan kom upp á helg-
arskákmótinu á Akureyri
er fór fram um hvítasunnu-
helgina. Ólafur Kristjáns-
son (2215) hafði hvítt gegn
Sveinbirni Sigurðssyni
(1650). 34.Hxd5 Lagleg
skiptamunsfórn
sem byggist á yf-
irráðum hvíts á
hvítu reitunum.
Framhaldið varð:
34... cxd5 35.Bb3
Ha7 36.Bxd5+
Kg7? 36...Ke8 hefði
gefið svörtum mun
betri færi á að verj-
ast þótt staðan sé
ekki fögur eftir 37.
Bc6+ Kd8 38.
Bxb5. 37.Bxb7!
Hxb7 38.Rc5 Hb8
39.d7 Kf6 40.Rb7!
og svartur gafst
upp. Staðan í helgarskák-
mótasyrpunni eftir þrjú
mót er þessi: 1. Arnar
Gunnarsson 42,50 stig 2.
Helgi Ólafsson 30 3. Helgi
Áss Grétarsson 22,50 4.
Sævar Bjarnason 14,50 5.
Þorsteinn Þorsteinsson
13,50 6. Jón Viktor Gunn-
arsson 11,14 7. Björn Þor-
finnsson 10,25 8. Gylfi Þór-
hallsson 10 9.-10. Ólafur
Kristjánsson og Sigurður
Páll Steindórsson 9 11.
Stefán Kristjánsson 8
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert rólyndur og margir
leita skjóls í öryggi þínu.
Hafðu bara ekki of mikið á
þinni könnu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinnufélagi þinn kemur þér á
óvart og þú skalt vera já-
kvæður í hans garð, þegar
undrunin rennur af þér.
Kurteisi kostar ekkert og
skuldbindur ekki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt ekki taka svona
þungt á öllum hlutum.
Reyndu að líta á broslegu
hliðarnar og hafa gaman af
hlutunum. Þannig færðu
mest út úr lífinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt að varast alla óþarfa
áhættu. Góður vinur þarfnast
aðstoðar þinnar og þú skalt
hjálpa honum án þess að gera
hans vandamál að þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki smámuni fara í
taugarnar á þér. Hafðu yfir-
sýn og horfðu fyrst og fremst
á heildarmyndina. Þannig
tekst þér ætlunarverk þitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Beindu orku þinni á jákvæð-
an hátt til að koma verkefn-
um þínum í framkvæmd.
Mundu að það er farsælast að
vinna hvert mál fyrir sig í
áföngum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stattu fast á þínum rétti og
láttu engan komast upp með
að fótum troða hann. Það er
bara rétt að sækja sinn hlut
ef græðgin er ekki með í för.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur unnið vel að undan-
förnu og átt því skilin þín
laun. Mundu bara að þú varst
ekki einn að verki og fleiri
mega njóta sviðsljóssins.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki hugfallast þótt
lausn á verkefni þínu láti bíða
eftir sér. Þú ert ekki í neinni
tímaþröng og verður viðbú-
inn, þegar kallið kemur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sóaðu ekki orku þinni í fánýta
hluti. Það leiðir ekki til neins
og rænir þig bara þreki, sem
þú myndir annars nota til
þarfari verka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Veltu vandlega fyrir þér til-
boði, sem þú færð. Hrapaðu
ekki að neinu og hafðu hug-
fast að þetta er ekki síðasta
tækifærið sem þér býðst.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er bara sjálfsagt að þú
veltir því fyrir þér, hvort þú
getir gert öðrum gott utan
þíns venjulega verksviðs. Þú
myndir líka græða á því sjálf-
ur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vertu ekki of kröfuharður við
samstarfsmenn þína. Þeir
gera sitt besta og þótt þér
finnist ekki mikið til þess
koma, er það ekki þitt að
dæma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hann er langbesti
sölumaðurinn okkar.
Við eigum ekki meira
af B12 vítamíni svo ég
gef þér bara tvær
sprautur af B6 víta-
míni í staðinn.
Fyrir alla muni segðu
mér ef það virkar. Ég
þjáist nefnilega oft af
því sama.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík