Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 4

Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                  Til sölu Range Rover, nýskráður, 20.12.1996, 5 dyra sjálfskiptur, bensín 4600 Hse, leðurinnréttinng, álfelgur, Cd ásett, ekinn 76.000 km. Ásett verð 3.890.000 skipti á ódýrari. ÞUNG slysaalda reið yfir landsmenn um nýliðna helgi. Margir voru á ferðalagi um helgina og hlutust af slys í umferðinni, en einnig vegna slagsmála og annarra orsaka. Mikið álag var á lögreglu og ekki síst áhöfn á TF-LÍF, stærri þyrlu Landhelg- isgæslunnar, sem kölluð var út í sjö sjúkraflug frá föstudegi til sunnu- dags. Að sögn Hjalta Sæmundsson- ar, aðalvarðstjóra hjá Landhelgis- gæslunni, hafa líklega ekki komið eins mörg þyrluútköll á jafnstuttum tíma.Vegna hvíldarákvæða flug- manna var TF-LÍF ekki tiltæk frá sunnudagskvöldi til kl. 6 á mánu- dagsmorgun og var því óskað eftir því að þyrlusveit Varnarliðsins yrði í viðbragðsstöðu í millitíðinni, ef á þyrfti að halda. Litlu munaði að til þess kæmi, enda barst hjálparbeiðni rétt eftir hádegið í gær vegna alvar- legs vinnuslyss í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur. Hrinan hófst á föstudagskvöld þegar óskað var aðstoðar þyrlunnar þegar jeppabifreið valt í Laugardal við bæinn Efstadal í Biskupstung- um. Flytja varð ökumann og farþega á Landspítalann í Fossvogi. Þeir reyndust ekki lífshættulega slasaðir en voru lagðir inn á spítalann til frekari meðferðar. Þegar slysið varð, var þyrlan stödd á Þingvöllum að svipast um eftir ferðamanni sem þar hafði villst fyrr um daginn. Maður- inn var heill á húfi en kaldur og hrak- inn, þegar ung stúlka, Hanna Björg Geirsdóttir, fann hann fyrir tilviljun um kl. 21.30. Þyrla Landhelgisgæslunnar var síðan kölluð út fimm sinnum frá því á laugardagskvöld og fram á sunnu- dag. Fyrst voru tveir ferðamenn sóttir á Hrafnseyrarheiði með hrygg- og höfuðáverka eftir bílveltu. Þá var óskað eftir þyrlunni til að sækja meðvitundarlausan mann í Langadal í Þórsmörk um kl. 5 á sunnudagsmorgun. Skömmu síðar var þyrlan send vestur á Arnarstapa til að sækja þangað slasaðan mann sem fallið hafði í sjóinn úr hömrum við Arnarstapa er hann reyndi að bjarga barni sem komið var í sjálf- heldu. Að sögn Landhelgisgæslunn- ar var hann mikið slasaður og hætti á tímabili að anda en var bjargað af fólki á staðnum. Barninu var bjarg- að. Á sunnudag var þyrlan enn send í sjúkraflug að sækja slasaðan mann í Þórsmörk, en hann hafði hlotið bein- brot við fall úr klettum skammt frá Skagfjörðsskála. Síðla sunnudags var þyrlan síðan send upp að Hengli til að sækja þangað konu sem hafði fótbrotnað. Mikil ölvun var í Þórsmörk um helgina að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli og bar töluvert á pústrum og smáslagsmálum. Tveir gistu fangageymslu lögreglunnar vegna líkamsmeiðinga og nokkrir ökumenn voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur. Lögreglan taldi að um 1.500 manns hefðu verið í Þórsmörk um helgina. Annir hjá Selfosslögreglu Ungur maður er talinn hafa höf- uðkúpubrotnað í slagsmálum í Út- hlíð í Biskupstungum aðfaranótt sunnudags, að sögn lögreglunnar á Selfossi og var hann fluttur á slysa- deild í Reykjavík. Margir voru í tjöldum í Úthlíð um helgina og var töluvert um slagsmál og ölvun á svæðinu. Að sögn Þrastar Brynjólfs- sonar yfirlögregluþjóns á Selfossi eru fjórir lögreglumenn á vakt um kvöld og helgar, en þyrftu að vera sex, til að anna löggæslu þegar mest er að gera. Hann segir ekki fjarri lagi að sumar helgar nærri tvöfaldist íbúatalan í Árnessýslu og fari nálægt 25 þúsund manns, vegna þess mikla fjölda sumarbústaða sem eru í sýsl- unni, en þeir eru um 5 þúsund tals- ins. Á sunnudag um kl. 15 varð óhapp á veginum að Dyrhólaey, þegar rúta með farþega innanborðs fór út af veginum, þegar vegkantur gaf sig, þegar hún mætti annarri rútu. Kalla varð til björgunarsveitarbíl til að ná henni aftur upp á veginn. Engan sak- aði, að sögn lögreglunnar í Vík. Stakk af frá slysstað Ekið var á erlendan hjólreiða- mann í Fossvogi á laugardag og stakk ökumaður af eftir slysið. Hann gaf sig þó fram við lögreglu síðar um daginn. Í bifreið hans fundust ætluð fíkniefni Mildi þykir að ekki fór verr að- faranótt laugardags þegar eldur kviknaði í kjallara íbúðarhúss á bæn- um Hólum í Stokkseyrarhreppi. Helgi Ívarsson, sjötugur bóndi á bænum, varð eldsins var og náði að vekja ráðskonu og vinnumann áður en ólíft varð inni vegna reyks. Eldurinn kom upp í kjallara og segir lögregla eldsupptök rakin til hleðslutækis sem var í notkun. Þung slysaalda um nýliðna helgi Miklar annir hjá áhöfn þyrlu Gæslunnar Morgunblaðið/Júlíus Ekið var á hjólreiðamann á Kringlumýrarbraut á laugardag og stakk ökumaður bifreiðar af frá vettvangi en gaf sig fram síðar. KAUPÞING spáir 1% hækkun á vísitölu neysluverðs á milli mánaða sem samsvarar 12,7% verðbólgu á ársgrundvelli. Gangi spáin eftir hef- ur vísitalan hækkað um 7,3% síðustu 12 mánuði. Landsbankinn spáir 0,56% hækk- un á vísitölu neysluverðs milli júní og júlí. Gangi spáin eftir mun vísitalan hafa hækkað um 6,8% síðustu 12 mánuði. Greiningardeild Búnaðarbankans spáir 0,4-0,45% hækkun vísitölunn- ar. Gangi spáin eftir mælist verð- bólga síðustu 12 mánaða 6,7%. Greiningardeildin telur þó of fljótt að álykta að stærsti verðbólgukúf- urinn sé yfirstaðinn. Gjaldeyrismál sem Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. gefa út spá 0,4– 0,9% hækkun vísitölunnar. Hagstofa Íslands mun birta vísi- tölu neysluverðs fyrir júlí miðviku- daginn 11. júlí. Vísitala neysluverðs 0,4–1% hækkun spáð MÁLFLUTNINGUR fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í lög- bannskröfu þriggja hluthafa í Lyfja- verslun Íslands hf. á kaup félagsins á Frumafli ehf., móðurfélagi eiganda Sóltúnsheimilisins. Sýslumaðurinn í Reykjavík hafði áður hafnað lög- bannskröfunni en búist er við úr- skurði héraðsdóms í dag eða á morg- un. Hluthafarnir sem kröfðust lög- banns á samninginn eru Aðalsteinn Karlsson, Guðmundur Birgisson og Lárus L. Blöndal. Hluthafafundur er boðaður í Lyfjaverslun Íslands þann 10. júlí nk. en á fundinum stendur til að ræða þær deilur sem verið hafa uppi innan stjórnar félagsins að und- anförnu. Þannig er ætlunin að gera grein fyrir samningum félagsins við A. Karlsson hf., Thorarensen-Lyf ehf. og Frumafl ehf. Aukinheldur stendur til að taka fyrir stjórnarkjör og tillögu um vantraust á stjórn félagsins og meint trúnaðarbrot eins stjórnarmanns í félaginu, Lárusar L. Blöndals. Sáttatónn í tveimur bréfum Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur vilji staðið til þess, innan stjórnar Lyfjaverslunarinnar, að lægja þær öldur sem vakið hafa athygli á valdabaráttu innan fyrir- tækisins að undanförnu. Í því skyni hefur Grímur Sæmundsen stjórnar- formaður sent deiluaðilum bréf þar sem hvatt er til sátta og auk þess hefur lögmaður Jóhanns Óla Guð- mundssonar, stærsta hluthafans í Lyfjaverslun og eiganda Frumafls, sent bréf til lögmanns þremenn- ingana þar sem viðraðar eru hug- myndir í þá átt að „takmarka þann skaða“ sem Lyfjaverslun hafi hlotið af neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun und- anfarna daga, eins og það er orðað. Í bréfi sem Grímur Sæmundsen sendi sem stjórnarformaður Lyfja- verslunar, til helstu deiluaðila í mál- inu og jafnframt tveggja stærstu hluthafa í fyrirtækinu, þeirra Jó- hanns Óla Guðmundssonar og Aðal- steins Karlssonar, segir: „Harðvít- ugar deilur hafa staðið í hluthafahópi Lyfjaverslunar Íslands hf. að und- anförnu og hafið þið, Aðalsteinn og Jóhann Óli, verið í forystu fyrir and- stæðum fylkingum innan félagsins. Hafa þessir flokkadrættir og mikil opinber umfjöllun um þá þegar skað- að Lyfjaverslun Íslands hf. Fyrir hönd Lyfjaverslunar Ís- lands hf. vil ég eindregið hvetja ykk- ur til að setja niður þessar deilur og leita allra leiða til sátta sem mögu- legar eru. Það eru ríkir hagsmunir allra hlut- hafa félagsins og ykkar mestir að sá ágreiningur sem uppi er leysist nú þegar, ella er mikil hætta á að Lyfja- verslun Íslands hf. bíði ómetanlegt fjárhagslegt og ímyndarlegt tjón af.“ Í bréfi Hróbjarts Jónatanssonar- hrl. fyrir hönd Jóhanns Óla Guð- mundssonar til Jóns Steinars Gunn- laugssonar hrl., sem farið hefur með mál þremenninganna, er m.a. viðruð hugmynd sem lýtur að því að tak- marka þann skaða sem Lyfjaverslun Íslands „hefur hlotið af neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun undanfarna daga vegna ágreinings hluthafa um Frum- aflssamninginn. En eins og ljóst er stefnir í að lögmæti Frumaflssamn- ingsins verði lagt undir dómstóla til úrlausnar og sýnist gilda einu hvort það gerist í kjölfar lögbanns eður ei.“ Í bréfinu segir lögmaðurinn að umbjóðandi sinn [þ.e. Jóhann Óli] hafi verulegar áhyggjur af því að frekari neikvæð umfjöllun um félag- ið muni spilla hagsmunum LÍ og hluthafanna enn meira en orðið er sem erfitt geti síðan orðið að bæta. „Hann vill, í því sambandi, sér- staklega benda á að fyrir liggur að auka hlutafé félagsins til þess að félagið geti staðið við þær peninga- legu skuldbindingar sem fylgja samningum félagsins um kaupin á A. Karlssyni hf. og Thorarensen-Lyfj- um og ekki sé fýsilegt að afla fjár til félagsins á meðan opinberlega logi í illdeilum milli helstu hluthafa félags- ins,“ segir einnig í bréfinu. Að lokum segir Hróbjartur að um- bjóðandi sinn hafi beðið sig um að fara þess á leit við Jón Steinar að umbjóðendur hans, og aðrir sem fylgi þeim að málum, séu reiðubúnir til eftirfarandi samkomulags: „Að sameinast um að reka ágrein- inginn fyrir dómstólum eins fljótt og kostur er og fá flýtimeðferð fyrir dómi, ef unnt er, að hluthafafundin- um þann 10. júlí verði frestað þar til dómsniðurstaða liggur fyrir, að allir aðilar láti af neikvæðri fjölmiðlaum- fjöllun um félagið meðan á mála- rekstri standi og menn standi sam- eiginlega að því að endurvekja traust markaðarins á félaginu og stjórn- endum þess.“ Lögmaðurinn getur þess í lok bréfs síns að umbjóðandi sinn sé reiðubúinn að lýsa því yfir, í þágu slíks samkomulags, að hann muni ekki selja hlutabréf þau sem um ræðir á meðan málið er til meðferðar hjá dómstólum. Að sögn Hróbjarts hefur ekkert svar borist við bréfinu sem sent var sl. föstudag. Grímur Sæmundsen sagði hins vegar við Morgunblaðið að hann fagnaði öllum sáttaumleit- unum enda væri hag félagsins best borgið með því að hluthafar létu af ágreiningi sínum sem háður væri fyrir opnum tjöldum. „Að öllu óbreyttu verður hluthafa- fundur í félaginu í næstu viku og þá verða þessi mál og önnur rædd sam- kvæmt dagskrá. Ég vonast til að menn verði málefnalegir á fundinum og leiti allra leiða til ná fram ásætt- anlegri niðurstöðu. Óbreytt ástand er algjörlega óviðunandi fyrir félag- ið,“ sagði Grímur. Undrandi á sáttaumleitunum Jón Steinar sagði við Morgunblað- ið í gær að umbjóðendur sínir hefðu ekki tekið afstöðu til bréfanna tveggja. Hins vegar kvaðst hann undrandi á þeim sáttatóni sem nú væri í meirihluta stjórnarinnar eftir það sem á undan væri gengið. „Eftir að meirihluti stjórnar Lyfjaverslunar hefur gert samning við Jóhann Óla þrátt fyrir lögbanns- aðgerðir og viðleitni til þess að koma í veg fyrir hann, koma nú bréf frá stjórnarformanninum og þessum að- ilum, einhver bréf um sættir. Þetta sáttarboð kemur fram eftir að menn hafa farið fram með allt sitt fram- ferði og verið er að fjalla um málið fyrir dómi,“ sagði Jón Steinar. „Málið var flutt í héraðsdómi í dag [í gær] og við berum auðvitað fullt traust til hans. Þessar sáttatilraunir trufla ekki neitt það að mínir um- bjóðendur séu að reyna að ná fram rétti sínum í þessu máli. Það má hins vegar segja að sé dálítið hjákátlegt að beita fyrst valdi til þess að koma fram gjörðum sínum en bjóða svo sættir. Af hverju buðu þessir menn ekki sættir áður en það var gert?“ sagði Jón Steinar enn fremur. Kaup Lyfjaverslunar Íslands á Frumafli, eiganda Sóltúnsheimilisins Deiluaðilar leita sátta Búist er við því að héraðsdómur kveði upp í dag eða á morgun dóm um lögbannsbeiðni þriggja hluthafa í Lyfjaverslun Íslands á samning félagsins við Frumafl ehf., skrifar Björn Ingi Hrafnsson. Sátta er þó leitað. bingi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.