Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 20
NEYTENDUR 20 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝVERIÐ var sagt frá því að Sam- band garðyrkjubænda hefði gefið út flokkunarreglur fyrir grænmeti þar sem grænmetinu væri skipt niður í úrvalsflokk, fyrsta flokk og annan flokk. Þessar flokkunarreglur eiga að samræma staðla á öllum stigum, allt frá grænmetisbóndanum til verslun- arinnar. Þessi þróun virðist þó ekki vera komin fram í verslunum og því var kannað hvort þær væru búnar að taka flokkunarreglurnar í notkun og ef ekki, hvers vegna. Flokkunarreglurnar tryggja að neytendur geta vitað hvaða gæði þeir eru að kaupa og hvaða kröfur þeir geta gert til grænmetisins. Einnig verður verð gegnsærrasem auðveldar verðsamanburð. Þó er það galli að grænmeti eðli málsins samkvæmt fellur hratt í gæðum. Það sem sett er í grænmetisborðið sem fyrsti flokkur getur fallið í gæðum á stuttum tíma og því í raun verslununum í sjálfsvald sett hvernig eftirliti með gæðum grænmetisins er háttað. Svara kröfum neytenda Að sögn Guðmundar Marteinsson- ar, framkvæmdastjóra Bónuss, hafa Bónusverslanirnar ekki tekið flokk- unarreglurnar í notkun enn sem kom- ið er. „Við vorum nú bara að fá þetta í hendurnar og ég reikna með því að þetta verði tekið til athugunar í vik- unni.“ Aðspurður hvort grænmeti verði merkt eftir flokkum í Bónusi segir Guðmundur: „Við verðum að svara þeim kröfum sem til okkar eru gerðar. Við verðum sennilega ekki með marga flokka í sölu hverju sinni. Við stefnum á að vera með fyrsta flokks grænmeti á besta fáanlega verði, það er það sem okkar viðskipta- vinir vilja.“ Ætla einnig að geta upprunalands Júlíus Guðmundsson, kaupmaður í Sparversluninni, segir flokkunarregl- urnar ekki hafa borist sér enn sem komið sé en hann eigi von á því að þessu verði komið á fljótlega. „Það á eftir að fara eftir grænmetistegund- um hvaða flokka við bjóðum upp á. Í sumum tilvikum er kannski í lagi að bjóða upp á annan flokk, til dæmis hvað varðar tómata. En sumt þolir ekki annað en að vera í fyrsta flokki. Svo hefur staðið til hjá okkur að setja miða með hverjum hlut sem við erum með í sölu, erlent eða innlent, þar sem merkt er hvaðan það kemur og úr hvaða uppskeru. Nákvæm dagsetn- ing á því hvenær þetta mun verða liggur ekki fyrir en lokaútfærslan er ennþá óviss. Þessar íslensku flokkun- arreglur ættu að geta verið komnar í gang fyrr en seinna.“ Áhrif á verð koma ekki í ljós strax Árni Ingvarsson í Nýkaupi, segir þessar reglur komnar í notkun í versl- uninni. „Í dag á allt íslenskt græn- meti, sem fellur undir flokkunarregl- urnar, að vera merkt með þeim flokki sem það fellur í. Það er ekki svo langt síðan þetta komst í gagnið en þetta er að komast í endanlegt horf. Við erum eingöngu með fyrsta flokk. Við höfum hugsað okkur að vera með úrvals- flokk líka. Það er bara svo lítið fram- boð af honum, en þegar hann fæst reiknum við með að bjóða upp á hann.“ Spurður um áhrif nýju flokk- unarreglnanna á verð segir Árni: „Það hefur ekki reynt á það. Fyrsti flokkurinn er það sem verslanir hafa verið með í sölu undanfarið, en það fer ekkert að reyna á verðið fyrr en úr- valsflokkurinn fer að koma í verslan- ir.“ Ætla ekki að merkja grænmetið sérstaklega Gísli Sigurbergsson, verðlagsstjóri í Fjarðarkaupum, segir þessar reglur litlu breyta fyrir búðina: „Við höfum verið með svona kerfi í gangi innan búðarinnar svo þetta er ekkert nýtt fyrir okkur. Svo höfum við verið að tína úr hillunum ef það er eitthvað sem stenst ekki gæðakröfurnar. Við höfum sett það sem hægt er að selja sérpakkað í hillur og selt sem annan flokk. Við erum alltaf að selja fyrsta flokks grænmeti í hillunum.“ En verður þá ekki merkt í hillunum í Fjarðarkaupum í hvaða flokki græn- metið er? „Nei, við komum ekki til með að gera það,“ segir Gísli. „Við erum bara með fyrsta flokk svo ég sé ekki þörf- ina fyrir þetta hjá okkur.“ Komið í notkun að hluta til Hagkaup er farið að nota þessar flokkunarreglur á íslensku grænmeti að hluta til að sögn Finns Árnasonar framkvæmdastjóra. „Við erum búnir að taka þessar flokkunarreglur í notk- un, þó ekki að öllu leyti og búnir að skilgreina staðla í ekki bara grænmeti heldur ávöxtum líka. Vinna við merk- ingar er á lokastigi þannig að við- skiptavinir eiga að sjá þessar breyt- ingar innan skamms. Við erum með um og yfir 200 tegundir og því miður er þetta flóknara mál en svo að það sé hægt að gera þetta auðveldlega, sér- staklega vegna þess að við viljum upp- lýsa neytendur um upprunaland inn- fluttrar vöru sem breytist hratt.“ En hvað þá um íslenska grænmet- ið, er ekki hægt að byrja á að merkja það og vinna svo áfram í hinu? „Jú, við erum komnir með merk- ingar að hluta til og sú vinna er á loka- stigi.“ En hvaða gæðaflokka verður hægt að kaupa í Hagkaupum? „Markmið okkar er bjóða eingöngu fyrsta flokk,“ segir Finnur. „Framboð á ákveðnum tímum er samt þannig að það næst ekki alltaf.“ Þessir flokkar grænmetis ættu að gera verðlag á íslensku grænmeti gegnsærra að mati Finns. „Verðsam- anburður milli aðila á markaði ætti einnig að vera sanngjarnari. Undan- farið hefur enginn greinarmunur ver- ið gerður á gæðum í verðkönnunum, sem er miður.“ Fagna þessu framtaki Jón Þorsteinn Jónsson, markaðs- stjóri Nóatúns, segist vera nýbúinn að fá flokkunarreglurnar í hendur og þær því ekki komnar í notkun í Nóa- túnsbúðunum. „Við höfum að sjálf- sögðu alltaf verið með mikil gæði á okkar vörum. Í einhverjum tilfellum verður þó hægt að kaupa annars flokks grænmeti hjá okkur, hingað til hefur stundum fengist annar flokkur af bönunum og annar flokkur af sveppum. Annars hefur verið lítið framboð af öðrum flokki, hann fer mest í matvælavinnslu. Flokkun á ís- lensku grænmeti hefur verið mjög ábótavant undanfarin ár svo við fögn- um þessu framtaki auðvitað.“ Reglurnar seinar að berast Sigurður Teitsson, framkvæmda- stjóri 11–11, sagðist ekki tilbúinn að ræða þetta mál. „Þetta er nú bara nýbúið að berast til okkar svo við höf- um ekki fengið ráðrúm til að skoða þetta. Þetta er sem sagt í vinnslu hjá okkur,“ segir Sigurður. Skúli Skúlason, fulltrúi fram- kvæmdastjóra hjá Samkaupum, tek- ur í sama streng og segir að þar sé ekki farið að merkja grænmetið eftir flokkum: „Við vorum að fá þessar flokkunarreglur í hendurnar í síðustu viku og höfum verið að lesa þetta yfir og skoða málin. Við teljum okkur ein- göngu selja 1. flokks grænmeti og fáum það þannig frá okkar birgjum.“ Verður merkt í hillum eins fljótt og hægt er Nettóbúðirnar eru ekki búnar að taka þessar flokkunarreglur í notkun. Gísli Gíslason, deildarstjóri innkaupa hjá Matbæ, segir að það muni þó verða gert. „Ég þori ekki að segja til um hvenær við verðum búnir að merkja allt í hillunum en við erum að vinna í þessum málum núna. Þetta verður komið í hillur okkar eins fljótt og hægt er.“ Aðspurður hvaða flokka Nettó verði með í sölu segir Gísli: „Við mun- um vera með fyrsta og annan flokk í sölu í Nettóbúðunum. Annan flokk þá frekar í ávöxtum, ekki í íslensku grænmeti. Við höfum smávegis verið með sérpakkaða annars flokks tóm- ata, en framboðið er mjög lítið.“ Merkingar ekki við hverja vöru Helgi Sigurður Haraldsson, mark- aðsstjóri KÁ-verslana, segir þessa flokkun í þann mund að komast í gagnið hjá þeim. „Við munum gera þá kröfu til okkar birgja að við fáum ein- göngu það sem best er hverju sinni. Merkingar í verslununum verða sennilega ekki við hverja vöru heldur verður sett upp tilkynning um að við förum eftir þessu flokkunarkerfi og seljum alltaf besta flokkinn hverju sinni.“ Nýjar flokkunarreglur á íslensku grænmeti kynntar nýlega Morgunblaðið/Golli Fáar verslanir farnar að flokka grænmeti brjann@mbl.is Nýlegar flokkunarregl- ur á íslensku grænmeti eru fagnaðarmál fyrir neytendur. Brjánn Jónasson kannaði hvort verslanir væru farnar að bjóða upp á flokkað grænmeti og hverju það breytti fyrir neytendur. GERÐARDÓMUR í kjaradeilu sjó- manna og útvegsmanna var kveðinn upp sl. laugardag og framlengist kjarasamningur frá 27. mars 1998 með tilgreindum breytingum til 31. desember 2002. Helstu breytingar eru þær að frá gildistöku úrskurðarins skulu kaup- trygging og tímakaup hækka um 40%, um 3% 1. janúar 2002 og um 3% 1. janúar 2003. Aðrir launaliðir en kauptrygging og tímakaup hækka um 10% frá gild- istöku úrskurðarins og taka síðan sömu hækkunum og kauptryggingin á gildistíma úrskurðarins. Vegna atriða er varða áhrif sem breyting á fjölda í áhöfn hefur á skiptakjör segir í úrskurði að séu færri menn á skipi en við er miðað í skiptakjaraákvæðum (skiptatöflum) kjarasamninga varðandi þær veiðar skiptist hlutur eða hlutir þeirra sem á vantar milli þeirra sem á skipinu eru í réttu hlutfalli við hluti þeirra. Geti færri menn sinnt skipsstörfum en kveðið er á í skiptatöflu í kjara- samningnum vegna hagræðingar skal hlutur eða hlutir þeirra sem á vantar skiptast að hálfu milli þeirra sem á skipinu eru í hlutfalli við skiptahlut- fall þeirra. Hinn helmingurinn skal ganga óskertur til útgerðarinnar. Varðandi fiskverð skal miða við það markmið að meðalverð á tilgreindum tegundum í beinum viðskiptum nálg- ist vegið meðaltal markaðar og beinn- ar sölu þannig að hlutfall verðs í beinni sölu, af vegnu meðalverði í beinni sölu og vegnu verði á markaði, verði ekki lægra á viðmiðunartíman- um en skilgreind hlutföll. 1. júní 2002 skal vegið meðalverð í beinum við- skiptum á undangengnu 12 mánaða tímabili, sem hlutfall af vegnu með- alverði í beinum viðskiptum og verði á innlendum fiskmörkuðum að frá- dregnum 5% sölukostnaði ekki vera lægra en 92,7% fyrir slægðan þorsk og 90,8% fyrir óslægðan þorsk. 1. júní 2003 skal verðið ekki vera lægra en 93,5% fyrir slægðan þorsk og 91,8% fyrir óslægðan. 1. desember 2003 eru samsvarandi tölur 94,0% og 92,4%. Í tengslum við slysatryggingar skal kostnaðarhlutdeild hinna tryggðu vera 2.100 kr. á mánuði og hlutfallslega fyrir brot úr mánuði en fjárhæðin taki sömu breytingum og kauptrygging tekur á hverjum tíma. Þegar skipverji leggur til viðbótar- framlag í séreignarsjóð greiðir út- gerðarmaður frá 1. júní 2001 1% af fastri fjárhæð sem skal vera hin sama og kauptrygging á gildistímanum gegn 2% framlagi starfsmanns. Frá 1. júní 2002 skal mótframlag útgerðar vera 2%. Í gerðardómi voru Brynjólfur Sig- urðsson prófessor, Garðar Garðars- son hrl. og Guðmundur Skaftason, fyrrverandi hæstaréttardómari, til- nefndir af Hæstarétti. Vonbrigði Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands, segir að úr- skurðurinn sé vonbrigði en við þessu hafi mátt búast, því lögin, sem hefðu verið sett á sjómenn, hefðu verið það þröngt sniðin. Hann segir að ekkert hafi verið tekið á fiskverðinu umfram það sem gert hafi verið í vélstjóra- samningnum og það sé hann ósátt- astur við. „Það er allt í ólestri í verð- myndun á fiski og útgerðin vill greinilega hafa það þannig áfram,“ segir hann. Sævar segist líka vera ósáttur við hvernig tekið sé á mönnunarmálun- um. „Þar fór í broddi fylkingar for- ysta Vélstjórafélagsins og samdi um alla aðra karla en sína. Gerðardómur yfirfærir það á okkur með lítilfjörleg- um breytingum.“ Hann segist einnig vera óánægður með að tilvitnanir skuli vera í vélstjórasamninginn eins og hann leggi sig. „Það sem ég sagði í vor þegar lögin voru sett – að þau hafi verið gerð að undirlagi LÍÚ við stjórnvöld ásamt vélstjórunum með því að gera þennan samning – hefur allt gengið eftir og það er af hinu vonda.“ Hann segir reyndar rétt að kaup- tryggingin hafi hækkað um 10% meira en í vélstjórasamningnum en huga þurfi að öðrum launaliðum. Til dæmis sé til staða aðstoðarmatsveins á stærri togurum og sá launaliður hækki aðeins um 10% en ekki eins og kauptryggingin. Sá sem þurfi að nota launaliðina sé skilinn eftir. Eins sé al- varlegt af gerðardómi að skamm- tímasamningur Vélstjórafélagsins um vinnslu eins skips í uppsjávarfiski sé alhæfður yfir öll sambærileg skip og það ótímabundið. Sjómannasam- bandið hafi boðið frystitogarasamn- inginn í þessu sambandi en ekki að frádregnu 10% frystiálagi eins og gert hafi verið. „Þrátt fyrir þröngan stakk gat gerðardómur farið út í þetta með uppsjávarveiðiskipin en svo var stakkurinn þröngur á gerð- ardómsmönnum í sambandi við til dæmis uppsagnarfrest háseta.“ Flótti Grétar Mar, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, seg- ir slæmt að hafa fengið lögin og gerð- ardóminn yfir sjómenn. „Þetta er að stærstum hluta Laxdæla,“ segir hann og er einkum óánægður með verð- lags- og mönnunarmálin. „Þetta er bara kjaraskerðing í báðum tilfell- um,“ segir hann og bætir við að ekki sé tekið á mörgum kröfum sjómanna. Gleymst hafi að ræða um t.d. leng- ingu á uppsagnarfresti, frí frá löndun á uppsjávarfiski og hækkun á orlofi eftir starfsaldri, þegar lögin hafi verið sett. „Það er bara tekið á nokkrum málum. Við erum látnir borga 2.100 krónur á mánuði í tryggingar og það er ýmislegt fleira sem við erum ekki ánægðir með.“ Grétar Mar Jónsson segir að laun skipstjóra á nýju nótaskipunum séu stórlega skert. Þar hafi skipstjórnar- menn verið með 6,4% af skiptaverði en fari niður í tvo hásetahluti, um 3,6 til 4%. „Það er einstakt að lækka eina stétt svona í launum og það verður örugglega flótti sjómanna af fiski- skipum,“ segir hann og óttast að margir góðir sjómenn fari í land. „Mér sýnist að þessi orrusta sé töpuð en stríðið er ekki búið,“ segir Grétar Mar. Aðlögun Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags Íslands, segir að gerðardóm- urinn sé svipaður og samningurinn sem Vélstjórafélagið hafi gert en í sumum tilvikum sé útfærslan ekki eins. Erfitt sé að vera með mörg kerfi varðandi eina áhöfn og því verði reynt að samræma þessi atriði með LÍÚ. Helgi bendir á að samningur Vél- stjórafélagsins gildi tveimur árum lengur. „Ég vil bara segja það við vini mína í Sjómannasambandinu og Far- mannasambandinu að þarna hafa þeir tvö ár án þess að við spillum fyrir þeim árangri. Ég vona að þeir nýti þessi tvö ár vel og geri þá gott fyrir sína menn.“ Erfitt verkefni Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir að vél- stjórasamningurinn verði aðlagaður úrskurðinum en samningsrétturinn hafi verið tekinn af LÍÚ ekki síður en viðsemjendum og þar með hafi LÍÚ misst forræðið. Gerðardómur hafi fengið erfitt verkefni að leysa úr á skömmum tíma en hann hafi staðið sig vel. Upp úr standi að viðurkennt sé að launin hækki ekki við fækkun í áhöfn. Eins verði hægt að gera nýju fjölveiðiskipin út vegna samnings vél- stjóra og úrskurðar gerðardóms, en það hefði ekki verið hægt miðað við kröfur Farmanna- og fiskimanna- sambandsins. Gerðardómur í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna Sjómenn óánægð- ir með úrskurðinn ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.