Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Oft höfum við hjónin á það minnst hversu mikils virði það var fyrir okkur að eiga frænd- garð á Ísafirði þegar okkur bar þar að landi til þjónustu við kirkjuna þar fyrir nær aldarfjórð- ungi. Ég hafði lengi vitað af fólki af báðum ættum mínum þar og vitjað þess fyrr. Það fagnaði okkur vel og greiddi götu okkar á allan hátt við komuna vestur. Það var einnig til margvíslegs stuðnings fjölskyldu okkar og í kirkjustarfinu. Það kom svo í ljós að hluti frænd- garðs míns var einnig frændfólk Auð- ar minnar. Sigurður á Nauteyri var ömmubróðir minn en Sigurveig kona hans frændkona Sigríðar móður Auð- ar. Sigurður var nýlega látin er við komum vestur en þær Nauteyrar- mæðgur allar tóku okkur einkar vel og ættarböndin styrktust með árun- um. Nú eru þær farnar þrjár heim til Guðs mæðgurnar, Sigga frænka farin núna eftir veturlangan frest og sjúk- dóm, farin eftir farsælt og gefandi líf. Sigríði Sigurðardóttur eigum við öll í fjölskyldunni gott upp að inna. Á allan hátt lét hún vel við okkur og bar fyrir brjósti. Þau Gunnar og fjöl- skylda þeirra öll opnuðu okkur hús sitt og vináttu. Ég vil fyrst minnast á það að Sigga SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR ✝ Sigríður Sigurð-ardóttir fæddist á Nauteyri í N-Ísa- fjarðarsýslu hinn 1. mars 1927. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 25. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Ísafjarðar- kirkju 30. júní. tók það upp á sína arma að halda þessari fjöl- skyldu okkar sem hafði afa og ömmur fyrir sunnan jólaboð á jóla- dag. Það var okkur mik- ils virði og ekki vantaði myndarskapinn og rausnina. Þar var jafn- an Sigurveig og það af börnum þeirra Gunnars sem voru heimavið. Okkur eru þessi boð jafnan í huga þegar við rifjum upp jól. Oft hef ég og við komið þar að garði og einlægt verið tekið sem aufúsugestum. Sigga lét líka um sig muna í kirkju- starfinu, söng í kirkjukórnum og starfaði í Kvenfélagi Ísafjarðarkirkju og var boðin og búin ef einhvers var þörf. Þó fer ekki hjá því að manni komi þær systur allar í hug, Sigga, Helga og Ellabogga, þegar ein þeirra er nefnd, svo samrýndar og samhentar voru þær að það sem gilti um eina þeirra fannst manni gilda um þær all- ar. Við frændfólk þeirra hugsum líka gjarnan til þeirra þannig, ekki síst fyrir framgöngu þeirra á ættarmót- um þar sem þær lífguðu ekki lítið upp á stemmninguna með söng og gítar- slætti. Þær voru engir ættlerar í þeim sökum að kunna að gleðjast, syngja og hlæja mikið og þarf þó talsvert til fyrir einn að slá annan út í því á mót- um Vatnsfjarðarættarinnar. Sigríður Sigurðardóttir var vönduð kona og ábyrg og gott að reiða sig á hana. Hún vissi líka jafnan hvar hún hafði menn og málefni og var gaman að ræða það við hana. Hún fylgdist býsna vel með en ekki bar hún út ávirðingar annarra. Hún bjó vel að fjölskyldu sinni og bar mjög fyrir brjósti. Hún var stolt af sínum og mátti vera það. Ekkert gladdi hana meir en framgangur barna og barnabarna í lífinu. Hún Sigga frænka skilur við þenn- an heim stórum bættari fyrir líf sitt í honum. Það þökkum við öll sem átt- um hana að og biðjum henni farnaðar annars heims og hvert öðru huggun- ar. Við biðjum Guð að leiða fólkið hennar og blessa minningu hennar. Auður og Jakob Hjálmarsson. ✝ Guðný AðalbjörgPétursdóttir fæddist á Oddsstöð- um á Melrakkasléttu 25. apríl 1926. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 25. júní síð- astliðinn. Aðalbjörg var yngsta dóttir hjónanna Péturs Siggeirssonar, bónda á Oddsstöð- um, f. 15. apríl 1889, d. 10. janúar 1972, og Þorbjargar Jóns- dóttur, f. 20. janúar 1881, d. 1. október 1964. Systkini hennar eru: Oddgeir, f. 29. des- ember 1915, d. 27. nóvember 1989; Borghildur, f. 12. júlí 1917, d. 2. desember 1992; Jón, f. 20. október 1919, Friðný, f. 4. jan- úar 1922 og Árni, f. 4. júní 1924. 1. júní 1947 giftist Aðalbjörg Jóni Einarssyni, frá Sandgerði, Raufarhöfn, f. 8. febr. 1923, d. 22. júlí 1979. Þau ráku um árabil síldarsöltun og síðar saltfisk- verkun á Raufarhöfn. Þeim varð ekki barna auðið saman, en tóku að sér mörg börn ætt- ingja um lengri og skemmri tíma, og dóttursonur Jóns, Jón Sigurbjörn Ólafsson, f. 3. sept- ember 1961, ólst að öllu leyti upp hjá þeim. Kona hans er Guðlaug Jónsdóttir, f. 6. maí 1962. Sam- an eiga þau Magn- ús, f. 10. júlí 1993, en fyrir á jón dæt- urnar Aðalbjörgu, f. 5. júní 1983, og Aldísi Erlu, f. 19. nóvember 1992. Aðalbjörg stundaði nám við Laugaskóla í tvo vetur og lauk síðan námi við íþróttakennara- skólann á Laugarvatni 30. júní 1945. Hún kenndi sund og íþrótt- ir, bæði í Reykjavík og síðar á Raufarhöfn þar sem hún bjó til æviloka. Útför Guðnýjar Aðalbjargar fór fram frá Raufarhafnarkirkju 30. júní. Síminn hringir mánudaginn 25. júní og karlmannsrödd segir: „Jæja, þá er hún farin.“ Þetta er Jónsi litli að segja að mamma hans sé dáin. Það kom kannski ekki svo mjög á óvart því kvöldið áður var ljóst að hverju dró. Allí var yngst sex systkina, barna Péturs og Þorbjargar frá Oddsstöð- um á Melrakkasléttu. Á undan henni eru farin Oddgeir, d. 1989, og Borghildur, d. 1992. Allí hafði verið ekkja í mörg ár er hún lést. Hún var gift Jóni Ein- arssyni, Jónsa, framkvæmdamanni á Raufarhöfn og héldu þau heimili lengst af í húsi sínu Hliðskjálf. Við systkinabörn hennar áttum alltaf hauk í horni þar sem hún var og ávallt stóð heimili hennar og Jónsa okkur opið. Eftir margra ára sam- búð bættist svo sólargeislinn, Jónsi litli, við í heimilið í Hliðskjálf. Þá var nú gaman að lifa. Allí var mjög sterkur persónu- leiki. Hún var einstaklega trygg- lynd, vinur vina sinna, og þau hjón voru skjól og skjöldur margra barna á lífsleiðinni. Það vissu allir hvar þeir höfðu Allí því hún var ófeimin við að segja álit sitt á mönnum og málefnum og þá bæði að hrósa og lasta eftir því sem henni þurfa þótti. Allí var sérlega fylgin sér í orði og æði og ákaflega ósérhlífin en þegar hún sagði: „Jæja, nú verður þú,“ þá var langbest að samþykkja strax því það sparaði mikinn tíma. Ofurhug- anum Allí datt stundum í hug að framkvæma ýmislegt sem aðrir töldu óframkvæmanlegt en það mátti bóka það að með einhverjum ráðum fann hún leið til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Allí var íþróttakennari að mennt og nýttist sú menntun hennar vel þegar hún kenndi okkur systkina- börnum sínum ásamt fjölda annarra barna að synda í síldarþró á Rauf- arhöfn. Henni fannst að börn sem alin eru upp við sjó þyrftu að kunna að synda en þar sem engin sundlaug var á staðnum mátti búa hana til úr því sem fyrir hendi var. Þó að Allí þætti gott að geta verið út af fyrir sig naut hún þess að vera í góðra vina hópi og rökræða ýmis málefni og syngja. Hún var að eðl- isfari mjög listræn og á fjölskyldu- móti á Oddsstöðum sumarið ’98 vildi hún koma sögu forfeðranna til skila. Brá hún sér þá í gervi leikritahöf- undar, leikstjóra, ljósameistara, leikmuna- og búningahönnuðar. Tjóaði þá lítt að mótmæla þeim hlutverkum sem mönnum var út- hlutað. Sveitin hennar var henni ákaflega mikils virði og vildi hún allt á sig leggja til að viðhalda sínu gamla heimili á Oddsstöðum. Ekki stóð okkur öllum á sama þegar hún, nærri 70 ára lítið annað en skinn og bein, var prílandi utan á Oddsstaða- húsinu í stiga alveg upp undir mæni með málningarpensil í hendi. En svona var Allí, hún vílaði ekki fyrir sér hlutina og fannst mikil- vægt að hafa snyrtilegt í kringum sig og ekki láta hlutina drabbast niður. Síðastliðið sumar var hún að dytta að húsinu sínu við Ásveginn á Raufarhöfn þótt allir teldu hana svo mikinn sjúkling þá að hún ætti ekk- ert að geta. Nú að leiðarlokum verður það brosið hennar Allíar sem mun fylgja okkur í minningunni um hana. Allt andlitið ljómar af brosi en því fylgir líka pínulítið sposkur svipur. Elsku Jónsi, við vonum að bjartar minningar fylgi þér og þínum og létti söknuðinn sem við vitum að býr með ykkur núna. Vera, Þorbjörg, Guð- rún, Finnbogi og Borg- hildur frá Oddsstöðum. AÐALBJÖRG PÉTURSDÓTTIR E ins og menn þekkja er nokkuð algengt, bæði hér á landi og erlendis, að sagðar séu fréttir af því að einhverjum hafi verið mismunað. Stundum er aðeins um ásakanir um meinta mismunun að ræða, en það kemur líka fyrir að dómar falla sem segja að bætur skuli greiddar til þeirra sem orðið hafi fórnar- lömb mismununar. Eða jafnvel að bætur eru dæmdar ef fyrirtækjum tekst ekki að sýna fram á að ekki hafi verið um mismunun að ræða. Dæmigert er að fórnarlömbin séu fyrrum starfsmenn fyrirtækja og að dómurinn telji sennilegt að ómálefnalegar ástæður hafi verið fyrir því að þau hafi ekki náð þeim framgangi hjá fyrrum vinnu- veitendum sín- um sem þau að mati dómsins hefðu átt að ná. Nú er það svo að öllu sæmilega vel gerðu fólki finnst verra ef aðrir fá ekki að njóta sannmælis og eru látnir gjalda fyrir það sem þeir geta ekki að gert. Þess vegna þyk- ir fólki að fyrirtæki ættu að láta starfsmenn njóta verka sinna og því þykir ósanngjarnt ef þeir fá það ekki. Meðal annars af þessum sökum leitast fyrirtæki einmitt við að mismuna starfsmönnum ekki og þykir vont að fá á sig ásakanir um mismunun því þær geta dregið úr vinsældum fyrirtækisins og á endanum komið niður á hagnaði þess. En ef flestir eru þeirrar skoðunar að mismunun sé vond, þýðir það þá að réttast sé að banna hana skilyrðislaust? Nei, svo er reyndar ekki. Til að sjá að rétt er að leyfa mis- munun, jafnvel þó okkur sé illa við hana, þarf að líta á að minnsta kosti tvennt. Annað er að líta þarf á báða aðila málsins, þ.e. bæði hinn kærða og kærandann, og hitt er að skoða þarf afleiðingar fyrr- greindra afskipta dómstólanna í víðara samhengi. Hinn kærði er einstaklingur eins og kærandinn. Þetta á líka við þó um stórfyrirtæki sé að ræða og hluthafar séu margir, þeir eru allir eigendur og allir eigendurnir eru einstaklingar þó stundum kunni að vera flókið að rekja eignina til þeirra í gegnum frumskóg fyr- irtækja. Einstaklingur sem er eig- andi fyrirtækis verður að njóta fullra réttinda eins og aðrir ein- staklingar. Hann verður að fá að ráða lífi sínu, þar með talið að ráð- stafa starfsorku sinni og eignum, rétt eins og næsti maður. Ef hann á að fá að ráða eigum sínum felur það í sér að hann verður að hafa heimild til að skipa í stöður innan fyrirtækis síns eins og honum þyk- ir best henta og hann á ekki að þurfa að rökstyðja þá ákvörðun sína fyrir öðrum mönnum (und- antekning væri vissulega ef hann hefði samið um annað, en óþarfi er að fara út í það hér). Það að eigandi fyrirtækisins eigi að mega haga þessu eftir eigin höfði og án útskýringa þýðir ekki að allir þurfi endilega að vera sátt- ir við að hann nýti sér þann rétt til hins ýtrasta. Aðrir geta haft þá skoðun að hann eigi að rökstyðja allar ákvarðanir sínar og hann get- ur orðið óvinsæll ef hann tekur ákvarðanir sem virðast ósann- gjarnar og órökstuddar. Með því að gera það tekur hann bæði þá áhættu að viðskipti við hann drag- ist saman vegna óvinsældanna og eins að fyrirtækið gjaldi fyrir það að hæfir einstaklingar njóti ekki sannmælis innan þess. Með þessu móti er eigandanum veitt eðlilegt aðhald. Hann hefur heimild til að mismuna en velji hann að nýta sér hana mun hann bera kostnað af því vali. Þetta er sú aðferð sem mark- aðshagkerfið býður upp á við lausn á því vandamáli sem mismunun er, og ólíkt þeirri leið sem ríkið býður upp á felst ekki í henni nauðung. Eins og sagði hér að framan er mikilvægt að líta á mismunun í víðu samhengi. Markaðshagkerfið er það hagskipulag sem fært hefur fólki velsæld í veröldinni og ekki er hægt að benda á annað skipulag sem gagnast hefur með ámóta hætti. Grundvöllur þess er eign- arrétturinn og að virðing sé borin fyrir honum. Þegar gáð er að því hvað skilur að rík lönd og fátæk má sjá að þar er eignarrétturinn eitt af því allra mikilvægasta, ef ekki mikilvægastur. Skýringin á því er í sjálfu sér einföld. Til að markaðshagkerfi gangi sem best fyrir sig þurfa viðskipti að ganga sem greiðast og eitt af því helsta sem stuðlar að greiðum við- skiptum er skýr skilgreining eign- arréttar. Sé eignarréttur óljós, skilyrtur eða takmarkaður með einhverjum hætti dregur það úr virkni markaðarins og veldur því þar með að velsæld verður minni en ella. Af þessum ástæðum og fleirum er mikilvægt að ríkið skerði rétt manna til ráðstöfunar eigna sinna sem minnst. Ríkið er ekki í aðstöðu til að meta hvort ákvarðanir ein- staklinga um ráðstöfun eigna sinna skili miklum eða litlum ávinningi, úr því fæst skorið í óendanlegum fjölda frjálsra viðskipta á markaði. Séu viðskiptin hins vegar ekki frjáls heldur heft af alls kyns reglum, meðal annars reglum sem banna mismunun, er engin von til að hagkvæmasta niðurstaða fáist. Nú er líklega rétt að taka fram, þó það megi sjálfsagt vera ljóst af því sem segir hér að framan, að mismunun og misrétti eru sitt hvað. Starfsmaður er þannig ekki endilega beittur misrétti þó honum sé mismunað, því ekki er hægt að halda því fram að hann eigi rétt á að vinnuveitandi hans ákveði fram- gang innan fyrirtækis með til- teknum hætti. Annað mál má vera ef ríkis- stofnanir fara að mismuna mönn- um gróflega. Þó einkaaðilar verði að hafa fullt frelsi til mismununar þá gegnir öðru máli um opinberar stofnanir. Og í því ljósi má spyrja hvað mönnum finnist um nýlega atvinnuauglýsingu frá Byggða- stofnun. Þar var sérstaklega aug- lýst eftir „fólki sem ... trúir á jafn- vægi í byggð landsins og vill leggja sitt af mörkum til að snúa óhag- stæðri byggðaþróun við.“ Er mis- munun misrétti? En ef flestir eru þeirrar skoðunar að mismunun sé vond, þýðir það þá að réttast sé að banna hana skilyrðislaust? Nei, svo er reyndar ekki. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj- @mbl.is MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.