Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 7 STJÓRN Gjafa- og styrktarsjóðs Jónínu S. Gísladóttur hefur ákveðið að úthluta 77 milljónum króna til kaupa á búnaði vegna hjartalækn- inga á Landspítala – háskólasjúkra- húsi, til stuðnings annarri þjónustu við hjartasjúklinga og eflingar rann- sókna á hjartasjúkdómum. Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur var stofnaður í júlí 2000 og var stofnfé 200 milljóna króna framlag hennar en meginhlutverk sjóðsins er að efla hjartalækningar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Sjóðurinn gerði kleift að ákveða strax sumarið 2000 að ráðast í kaup á nýju hjartaþræðingartæki sem verð- ur komið fyrir á Landspítala Hring- braut og tekið í notkun í ágúst næst- komandi. Sjóðurinn styrkir kaupin með 40 milljóna króna framlagi. Nú hefur stjórn Gjafa- og styrkt- arsjóðs Jónínu S. Gísladóttur ákveð- ið að stíga næstu skref til að efla hjartalækningar, rannsóknir vegna hjartasjúkdóma og þjónustu við hjartasjúklinga. 25 milljónum króna verður varið til að koma á fót göngu- deild fyrir hjartabilaða, en fjár- magninu er ætlað að standa undir húsnæði og öðru því sem þarf til þess að stofna deildina og verður árangur metinn að tveimur árum loknum. Þá veitir sjóðurinn 10 milljónum króna til þess að koma upp hjarta- rannsóknarmiðstöð Landspítala – háskólasjúkrahúss til grunnrann- sókna í hjarta- og æðasjúkdómum og fáist stuðningur annarra aðila styrk- ir sjóðurinn starfið með framlagi sínu. Sjóðurinn styrkir einnig kaup á ST-monitor fyrir Landspítala – há- skólasjúkrahús að upphæð 2 millj- ónir króna,en tækið er síriti sem skráir reglulegar og óreglulegar hjartsláttartruflanir. Jónína S. Gísladóttir er 79 ára að aldri, ekkja Pálma Jónssonar í Hag- kaupi. Með framlagi sínu til hjarta- lækninga á Íslandi vill hún leggja sitt af mörkum til að efla þær og styrkja. Tæpar 80 milljónir til hjarta- lækninga Úthlutað úr styrktar- sjóði Jónínu S. Gísladóttur ♦ ♦ ♦ ELSA B. FRIÐFINNSDÓTTIR verður aðstoðarmaður Jóns Krist- jánssonar, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, og tekur til starfa innan skamms. Hún kemur í stað Þóris Haraldsson- ar sem hverfur til annarra starfa. Elsa B. Frið- finnsdóttir er hjúkrunarfræð- ingur. Hún lauk mastersprófi í kennslu- og rannsóknum frá háskól- anum í Bresku Kólumbíu árið 1995 og heilsuhagsfræði frá Endurmenntun- arstofnun Háskóla Íslands 1997. Elsa B. Friðfinnsdóttir hefur verið lektor við Háskólann á Akureyri frá 1991 og var starfandi forstöðumaður heilbrigðisdeildar háskólans þar frá 1997 til 1999. Elsa var hjúkrunarframkvæmda- stjóri fræðslu- og rannsóknardeildar hjúkrunar á Landspítalanum frá haustinu 1999 til haustsins 2000, þeg- ar Elsa var valin til að gegna starfi sviðsstjóra hjúkrunar skurðlækn- ingasviðs Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og fær leyfi frá því starfi nú. Nýr aðstoðar- maður heil- brigðis- og tryggingamála- ráðherra Elsa B. Frið- finnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.