Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Á leikferð um landið:         39  * .@AB   !) " #@A( > A@AC '  ;@A3)   $@A6 * @A1 ' :@A! .@A(   "@A =    #@A     !" #"  $% $&''()& % *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/! 333  & (   $4 & (  HEDWIG KL. 20.30 Forsýning mið 4/7 UPPSELT Frumsýning fim 5/7 UPPSELT Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda örfá sæti laus Fös 13/7 Lau 14/7 Hádegisleikhús KL. 12 RÚM FYRIR EINN fim 5/7 nokkur sæti laus Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fös 6. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI Lau 14. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Söngleikur fluttur af nemendum Verslunarskóla Íslands Í KV0LD Þri 3. júlí kl. 20 – Forsýning, miðaverð kr. 1.200 Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning Lau 7. júlí kl. 20 Sun 8. júlí kl. 20 Ath. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið NEMENDASÝNING Verslunarskól- ans á söngleiknum Wake me up before you go go eftir Hallgrím Helgason fékk bæði glimrandi dóma og sló í gegn í vetur. Þar lék Valdimar Kristjónsson föður Tomma tímaflakkara sem fer aftur til ársins 1984 til að bjarga sam- bandi foreldra sinna og vonandi einhverju af poppmenningu þessa sérstaka tímabils. Ákveðið hefur verið að taka upp sýningar að nýju og nú í Borgarleik- húsinu og hefjast þær á morgun, miðvikudag 4. júlí. Hvernig hefur þú það í dag? Bara mjög fínt. Undirbúningur fyrir sýninguna er í fullum gangi, hann gengur gríðarlega vel og ég er orð- inn mjög spenntur. Hvað ertu með í vösunum í augna- blikinu? Símann minn, bíllyklana að mömmu bíl og Britney Spears- veskið mitt. Ef þú leggur ekki leiklistina fyrir þig, hvað langar þig þá helst að gera í framtíðinni? Fjölmiðlarnir heilla mig svolítið, en ég er að fara í sagnfræði í HÍ næsta haust og er bara nokkuð spenntur fyrir því. Bítlarnir eða Rolling Stones? Bítlarnir, engin spurning. Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Það voru tónleikar með hljómsveit- inni Maggi maggi þar sem söngv- arinn Bjarki Guðmundsson fór hamförum. Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga úr eldsvoða? Ég myndi hlaupa inn og snara pí- anóinu mínu út. Hver er þinn helsti veikleiki? Ég á mjög erfitt með að ákveða hvað ég vil. Hefurðu tárast í bíó? Nei, því miður. En ég hef hlegið...! Finndu fimm orð sem lýsa persónuleika þínum vel. Óákveðinn, stríðinn, hress, nautnaseggur, og síðast en ekki síst mömmustrákur. Hvaða lag kveikir bloss- ann? „Neistinn“ með Sál- inni hans Jóns míns. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Þetta hérna strik – er mitt mesta prakkarastrik. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Ég er alltof mikil skræfa til að að þora að smakka furðulegan mat. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Nýjustu plötuna hennar Nelly Furr- ado. Hún er mjög góð og ekki skemmir útlit söngkonunnar fyrir. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Steven Seagal er alveg hræðilegur leikari. Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Ég held bara að ég sjái ekki eftir neinu og er sáttur við lífið og til- veruna. Trúir þú á líf eftir dauðann? Já, mér finnst það góð tilhugsun að vita að það sé eitthvað meira eftir þetta líf. Stríðinn mömmustrákur SOS SPURT & SVARAÐ Valdimar Kristjónsson ÉG ÆTLA mér ekki að kynna Alan Moore sérstaklega hér í upp- hafi enda væri það eflaust að bera í bakkafullan lækinn fyrir flesta lesendur þessa dálks. Rétt til að fullnægja helstu formkröfum má þó nefna að hann er höfundur verkanna Watchmen, V for Vend- etta, A League of Extraordinary Gentlemen og From Hell, meðal annarra, og ber að stórum hluta sök á því að draga ofurhetjusögur út úr barnaherberginu og inn und- ir leslampa bókmenntakreðsunnar. Sagan sem hér er til umfjöll- unar, The Birth Caul, víkur sér all- kyrfilega undan ofurhetjustimplin- um. Um er að ræða ljóð/texta/ mynd í einni kös sem mynda sam- an undirstöður ríkrar skynreynslu. Erfitt er að lýsa því sem fram fer á og yfir síðum bókarinnar en þung kjölfestan felst mótsagna- kennt í hinni fíngerðu, næfur- þunnu himnu sem umlykur okkur í móðurkviði, líknarbelgnum. Í ein- staka tilvikum fylgja tætlur úr belgnum börnum í heiminn og mynda skuplu um höfuð þeirra og dregur bókin nafn sitt af þessu fyrirbæri; sigurkufl, „birth caul“. Moore sér margs konar samsvörun við sigurkuflinn í vegleið manna gegnum lífið og notar óspart vís- anir í þetta sjaldgæfa fæðingarein- kenni til að setja umfjöllunarefnið í samhengi. Verkið er sjálfsævisögulegt. Moore vitnar í dauða ömmu sinnar og sinn eigin fæðingardag. Hann fjallar meðal annars um villuráf- andi ungling, tilvistarkvíðinn ung- an mann og barn að uppgötva heiminn (í þessari röð) á svo ná- kvæman hátt að ekki verður efast um einlægni hans né sjálfsvísun. Lesandinn finnur til sterkrar sam- svörunar við þessa útlendu veru sem fellir fjaðrirnar fyrir augum hans og stendur eftir berreitt, krufin að innsta merg en þó svo undarlega sterk fyrir vikið; heilli eftir að hafa brotið niður varnir sínar og sjálfsprottnar lygar, eina af annarri. The Birth Caul er ekki hefð- bundin myndasaga. Frásagnarmát- inn er ekki línulegur. Þvert á móti rennur hann afturvirkt frá ósi sín- um og kvíslast þaðan í smáspræn- ur sem, þegar lengra er komið, deyja út í fjalllendi sögunnar. Teikningar Campbells eru sem hvasst grjót í flóðinu, tæta upp textann og veita honum farveg. Strengir lýsingarorða og líkinga sem geta við fyrstu sýn virst yf- irþanin og fram úr hófi erfið, jafn- vel ónotaleg, mynda að lokum upp- kast að hugmyndum höfundarins. Moore kallar þetta „a shaman- ism of childhood“ eða „bernsku- blót“ og það dylst engum að hann hefur tök á orðum sem ekki eru öllum gefin. Galdralíkingin er ekki úr lausu lofti gripin. Moore hefur sjálfur ástundað galdur að heiðn- um sið um nokkurt skeið og verið ötull talsmaður þess að fólk leiti aftur í fornar hefðir til að finna leið sína í lífinu frekar en að leggja alla tiltrú sína á vísindi og raun- hyggju samtímans. Líf okkar er sem logi sem verður að viðhalda með réttu eldsneyti. Eldurinn kulnar samfara aukinni tilhneig- ingu okkar til að leita lífsfyllingar í hlutum sem hafa ekki skírskotun til okkar eigingildis. Við skilgrein- um okkur sem það sem við eigum en ekki sem það sem við erum. Moore telur að þessu megi breyta með því að leita aftur til neistans sem fylgir okkur, eignalausum og mjúkum, í heiminn og í því skini er þessi galdraþula kveðin. MYNDASAGA VIKUNNAR The Birth Caul eftir Alan Moore og Eddie Campbell. Útgefið af Eddie Campbell Comics, 1999. Bókin fæst í Nexus 6 á Hverfisgötu. Lífsgaldur Heimir Snorrason heimirs@mbl.is Ljósmynd/Jim Smart NÝJASTA hljóðversskífa Modest Mouse, The Moon & Antarctica, hef- ur fengið lofsamlega dóma víðast hvar og sveitin er um þessar mundir í miklum metum hjá þeim sem leggja sig eftir jaðarrokki. Sveitin hefur náð að skapa sér sérstæðan einkenn- ishljóm sem virðist í fljótu bragði ekki draga dám af neinu sem heyrst hefur en ef menn setja sig í stellingar er sosum hægt að heyra áhrif frá hljómsveitum eins og Pixies og Sonic Youth. En umfram allt er eitthvað skringilega frumlegt og ferskt í gangi hjá þremenningunum sem skipa músina hógværu; þeim Isaac Brock (gítar, söngur), Eric Judy (bassi) og Jeremiah Green (tromm- ur). Hljómsveitin var stofnuð 1993 í bænum Issaquah í Washington-ríki Bandaríkjanna. Eftir hana liggja fimm hljóðversskífur auk safnplatna og sjötomma. Um þessar mundir er sveitin á tónleikaferðalagi og lék t.d. á Hróarskeldu um helgina. K Brock er hlýlegur og kurteis við- mælandi. Hann segir tónleikana á Hróarskeldu hafa gengið vel; and- rúmsloftið verið gott og þeir hlakki til Íslandsferðar. Hann er þó að von- um svekktur yfir að geta ekki stopp- að lengur, en hér verða þeir bara í tæpan sólarhring. Brock er nefni- lega dálítið forvitinn um hagi lands- ins en hingað hefur hann aldrei kom- ið áður. „Ætli þetta sé ekki bara svipað og í Alaska?“ segir Brock þegar honum er svo sagt frá nóttunum björtu sem eru einkennandi fyrir íslenska sum- artímann. The Moon & Antarctica var gefin út á Epic sem er eitt af undirmerkj- um Sony-risans en fyrri plöturnar voru gefnar út á smærri, óháðum merkjum eins og Up, Suicide Squeeze, K og Sub Pop. Og Brock virðist hreint ekkert ánægður með þennan nýja verustað. „Okkur líður ekki lengur eins og við séum hluti af einhverri heild. Það er svipað og að vera einn af fjölskyld- unni þegar maður gefur út á óháðu merki. Æ, það eru nú ekki margir kostir fyrir sveit eins og okkur að vera á stóru merki; jú, þeir geta komið okkur í útvarpið en oft er það líka þannig að þeir sem eru að vinna með okkur að plötunni skilja ekki út á hvað þetta gengur. Þannig að þetta er svolítið pirrandi, verð ég nú bara að segja.“ Hann segist því ekki vera neitt sérstaklega hamingjusamur hjá Sony, ætlar að sjá til hvernig næsta plata gengur og reyna þá kannski að rifta samningum ef útlitið er dökkt. Brock er heldur ekkert of hress með nýju safnplötuna, Sad Sappy Sucker, sem kom út á K Records á dögunum (hálfgerð frummynd hinn- ar óháðu útgáfu en þar hafa verið gefnar út plötur með Beck, Beat Happening og Built To Spill svo dæmi séu tekin). Þar er að finna m.a. „týnda“ plötu frá árinu 1994 sem átti að verða fyrsta plata Modest Mouse. „Calvin [Johnson, eigandi merkis- ins og mikill gúrú í neðanjarðar- bransanum þar ytra] vildi endilega gefa þetta út en ég var fremur treg- ur til. Hann nauðaði í mér í þrjú ár og ég gaf loks eftir. Ég sé eiginlega hálfpartinn eftir því. Platan gefur ekki góða mynd af sveitinni.“ Í svona viðtölum fara væntanlegir gestir oft að spyrja meira en spyrill- inn, þá einatt um land og þjóð. Þann- ig fer umræða í gang um stærð og umfang borgar og bæja hérlendis. Og væntanlegur Íslandsvinur er að sjálfsögðu nokkuð hissa yfir fólks- fæðinni. „Svona svipað og í Alaska?“ segir hann. Úlpa Brock á erfitt með að pinna niður áhrifavalda og upp kemur hefðbund- ið rokk og ról svar. „Það er erfitt að svara þessu, það er svo mikið af tón- list ... látum okkur sjá, ... allt frá Cure, Pixies og Talking Heads; gam- alt reggí og gamall blús einnig. Í upphafi hlustaði ég mikið á efni frá Dischord-merkinu (Fugazi, Minor Threat, Shudder To Think, Rites Of Spring).“ Eins svarar hann til þegar hann er spurður um þróun sveitar- innar í gegnum árin. „Það verður einhver annar að dæma um það en við. Erfitt að sjá slíka hluti út. Hljómurinn er a.m.k. að verða æ meira hrollvekjandi.“ Og að þeim orðum slepptum snýr hann sér að veðurfarinu hér; er að velta því fyrir sér hvort hann eigi að taka með sér úlpu... Tónleikarnir eru eins og áður seg- ir á Gauki á Stöng og um upphitun sjá Maus og Lúna. Húsið opnar kl. 21 en miðaverð er 1.500 kr. arnart@mbl.is Modest Mouse spilar á Gauki á Stöng í kvöld Móðins mýs Modest Mouse-liðar í léttsteiktu, kryddlegnu humargríni. Hin lofi hlaðna ný- bylgjusveit Modest Mouse spilar á Gaukn- um í kvöld. Arnar Egg- ert Thoroddsen bjall- aði í Isaac Brock, söngvara og gítarleik- ara, og tók af honum skýrslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.