Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. ÝMSAR kynjamyndir má sjá á Jök- ulsárlóni við Breiðamerkurjökul enda staldra þar margir við og bregða sér jafnvel í siglingu um lónið. Þórey Bjarnadóttir og Eyþór Sigurðsson starfa að ferðaþjónustu þar en auk ferðamanna á siglingu má iðulega sjá seli og fugla á sundi. Morgunblaðið/RAX Kynjamynd- ir á lóni  Óvenjumikill/12 LÖGREGLAN á Seyðisfirði stöðvaði í gær tvo karlmenn á þrítugsaldri sem höfðu tekið loftvarnarbyssu úr flaki olíu- skipsins El Grillo, sem liggur á botni fjarðarins, ófrjálsri hendi. Mennirnir höfðu kafað niður að flakinu um morguninn og fjarlægt loftvarnarbyssuna, sem þeir ætluðu að eiga. Sigurjón Andri Guðmunds- son aðstoðarvarðstjóri segir að mennirnir hafi talið sig vera í fullum rétti, en bæjarsamþykkt Seyðisfjarðar kveður á um að ekki megi kafa niður að flakinu án leyfis bæjaryfirvalda. Þegar mönnunum var gerð grein fyrir þessu afhentu þeir byssuna og segist Sigurjón Andri ekki telja að framhald verði á málinu. Byssan er nú í geymslu bæj- aryfirvalda og er hún geymd í vatni til að koma í veg fyrir ryð- myndun. Sigurður Andri segist reikna með því að hún verði gerð upp og höfð til sýnis, en ein loftvarnarbyssan er sýnd á safni á Seyðisfirði. Köfuðu eft- ir loftvarn- arbyssu úr El Grillo sett sig í samband við Barnaspítala Hringsins og óskað eftir formlegu samstarfi um barnalækningar á við- komandi stöðum. Rætt hefur verið um að barnalæknar komi reglulega á þessa staði, nokkra daga í senn, til að sinna ungbarnavernd, taka þátt í heilsugæsluþjónustu við börn sem annars þyrftu að leita til Reykjavík- ur eftir sérfræðiaðstoð, og sinna eft- irliti með börnum sem legið hafa á Barnaspítalanum. Einnig hefur kennslu- og þróunarstarf barna- lækna komið til tals á þessum stöð- um. Niðurstaða í haust Fordæmi eru fyrir því að barna- læknar hafi starfað tímabundið á ÁFORM eru uppi innan Landspítala – háskólasjúkrahúss, í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, um að auka barnalækningar á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum pistli Magnúsar Péturssonar forstjóra á fréttavef Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, LSH, um áhersluatriði í starfi stofnunarinnar. Rætt hefur verið við forráðamenn heilbrigðis- stofnana á Ísafirði, Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði í þessu sambandi en fleiri staðir koma einnig til greina. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er forsaga málsins sú að nokkur sjúkrahús og heilsugæslu- stöðvar hafa á undanförnum árum sumum stöðum á landsbyggðinni en aðallega á eigin vegum eða í sam- starfi við heimamenn og án afskipta Landspítalans eða heilbrigðisráðu- neytisins. Góð reynsla hefur verið af þessu og þjónustan verið kærkomin. Sveinn Magnússon, skrifstofu- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði við Morgunblaðið að ráðuneytið styddi þessi áform heilshugar. Að- eins væri eftir að ákveða útfærsluna í samráði við heimamenn á viðkom- andi stöðum og gæti niðurstaða von- andi fengist í haust í þeim efnum. Ásgeir Haraldsson, sviðsstjóri barnalækninga LSH, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið vilja leggja áherslu á að málið væri á frumstigi. Jákvæður og gagnkvæmur vilji væri hjá barnalæknum Barnaspítalans og ráðuneytinu til samstarfs við ákveðna staði á landsbyggðinni. Ná- ið samráð væri þar í milli. „Málið hefur verið rætt ítarlega innan spítalans og kynnt ráðuneyt- inu. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um frekari útfærslu en við finnum greinilega fyrir mikill þörf á þjónustu sem þessari. Fyrir okkur vakir að auka þjónustuna við fólk í sinni heimabyggð,“ sagði Ásgeir og bætti við að samstarf yrði væntan- lega haft við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri um skipulagningu þjónust- unnar, yrði hún að veruleika. Barna- læknar á FSA myndu þá sjá um nokkra staði í nágrenni Akureyrar en Landspítalinn um aðra staði. Landspítali – háskólasjúkrahús og heilbrigðisráðuneyti ræða samstarf Áformað að auka barna- lækningar úti á landi KAUPÞING hefur selt 21 milljón að nafnverði eða 9,38% hlut í Trygg- ingamiðstöðinni hf. til Ovalla Trad- ing á genginu 52,50. Söluverð hlut- arins er 1.102,5 milljónir króna. Kaupþing hefur einnig gert valrétt- arsamning við Ovalla sem gildir til 28. júlí nk. þar sem Ovalla hefur rétt á að kaupa jafnstóran hlut, eða 9,38%, af Kaupþingi á sama gengi. Ovalla Trading Ltd er fjárfest- ingarfélag í eigu Gaums Holding S.A. og Austursels ehf. Eigandi Gaums Holding S.A. er Fjárfesting- arfélagið Gaumur sem er í eigu Jó- hannesar Jónssonar og barna hans, Jóns Ásgeirs og Kristínar. Eigandi Austursels er Hreinn Loftsson, hrl. og stjórnarformaður Baugs. Ef Ovalla nýtir sér valréttar- samninginn þá eru þetta viðskipti upp á 2.205 milljónir króna og mun Kaupþing þá ekki eiga neinn hlut í Tryggingamiðstöðinni en fyrir söl- una nú átti Kaupþing 18,39% hlut. Að sögn Sigurðar Einarssonar, forstjóra Kaupþings, fékk félagið það gott tilboð í hlutinn að ekki var ástæða til annars en að selja, m.a. vegna þeirra aðstæðna sem eru á innlendum markaði. Stærstu hluthafarnir í Trygg- ingamiðstöðinni 29. júní sl. voru fyr- ir utan Kaupþing: Fram hf., sem er í eigu fjölskyldu Sigurðar heitins Einarssonar, útgerðarmanns í Vest- mannaeyjum, með 17,74% hlut, Fjárfestingarfélagið Straumur hf., sem varð til upp úr Hlutabréfa- sjóðnum og Vaxtarsjóðnum, sem voru í vörslu Íslandsbanka, með 9,86%, Fjárfestingarfélagið Ívar, sem er í eigu fjölskyldu Sigurðar heitins Einarssonar, með 8,78%, Eignarhaldsfélagið Vor, sem er í eigu Péturs Björnssonar, fyrrum forstjóra Vífilfells, með 4,75%, Fontaine Blanc Holding S.A. með 3,5%, Haf hf., sem er í eigu Ágústar Einarssonar, með 3,38% hlut, Ís- landsbanki er með 2,93%, Sigríður E. Zoëga með 2,66%, Víðir ehf., sem er í eigu Auðar Einarsdóttur, með 2,52% og Kristinn hf., sem er í eigu fjölskyldu Sigurðar heitins Einars- sonar, með 2,47% hlut. Kaupþing selur fjárfestingarfélagi 9,86% hlut í Tryggingamiðstöðinni Söluverðið rúmur 1,1 milljarður ALÞÝÐUSAMBAND Íslands kynnti í gær tillögur að aðgerðum til að draga úr verðbólgu og hækka gengi krónunnar. Vill sambandið að hið opinbera grípi sem fyrst til að- gerða þannig að koma megi í veg fyr- ir að verðbólga festist í sessi. Meðal þess sem ASÍ leggur til er að ríkið taki 15–20 milljarða króna erlent lán til þess að greiða niður innlendar skuldir ríkissjóðs. Þá er hvatt til að stjórnvöld nýti heimildir til lækkunar á grænmetistollum að fullu og minnki álögur á bensín. Þá mótmælir ASÍ hækkunum á þjónustugjöldum sveitarfélaga, eins og dagvistargjöldum og fargjöldum almenningsvagna. Einnig gerir sambandið kröfu til þess að sveitar- félög og stjórnvöld komi í veg fyrir að breytingar á fasteigna- og bruna- bótamati verði nýttar til að hækka álögur á almenning. Loks hvetur Al- þýðusambandið til þess að efnt verði til samstarfs vinnumarkaðar og stjórnvalda til að tryggja verðlags- aðhald með virkri samkeppni, þann- ig að áhrif af styrkingu krónunnar skili sér strax að fullu út í verðlagið. Efnahagstillögur ASÍ Vill aðgerðir til að hækka gengi krónu  Ríkið taki/12 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.