Morgunblaðið - 03.07.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 9
HÆKKUN á framlagi til
fræðslumála í Reykjavík sam-
kvæmt fjárhagsramma fyrir
2002 nemur tæplega 1,8 millj-
örðum króna miðað við fjár-
hagsáætlun fyrra árs. Þetta
kom fram á fundi fræðsluráðs
en hækkunin nemur 28,2%.
Að sögn Sigrúnar Magnús-
dóttur, formanns fræðsluráðs,
vega kjarasamningar þyngst í
þessari hækkun.
„Við vonumst náttúrlega til
að þessar hækkanir bæti skóla-
starfið og efli á þá lund að við
fáum fleiri vel menntaða kenn-
ara til starfa,“ segir Sigrún.
Hún segist þegar sjá þess
merki að sú þróun sé að eiga
sér stað þótt enn sé skortur á
kennurum. Að hennar mati
spilar fjölgun nemenda stórt
hlutverk. Bæði séu stærri ár-
gangar að koma inn í skólana
og eins merkja skólayfirvöld
fjölgun nemenda sem eru að
flytja erlendis frá. Þá hefur
orðið veruleg aukning í hópi ný-
búa að hennar mati.
Að sögn Sigrúnar má rekja
hluta kostnaðarhækkana til
mötuneyta sem ráðgert er að
rísi í öllum grunnskólum
Reykjavíkur. „Við erum að
klára stjórnunarkvóta fyrir alla
skóla, þ.e. ákveðna viðbót, og
við erum líka að koma á mat-
armálum fyrir yngstu börnin
sem er nýjung. Það þýðir auð-
vitað aukningu í rekstri og
aukningu í mannskap.“
Að sögn Sigrúnar er eitt og
hálft ár síðan fræðsluráð sam-
þykkti að fara þá leið að bjóða
upp á heitan mat í öllum skól-
um. Að líkindum verða 9 af
hverjum 10 skólum komnir með
framleiðslueldhús á næsta ári.
Framlög til fræðslu-
mála í Reykjavík
28,2%
hækkun á
milli ára
SEX menntaskólanemar, fimm úr
MR og einn úr MH, fara til Washing-
ton, höfuðborgar Bandaríkjanna,
fyrir Íslands hönd í byrjun júlí. Þar
fer fram alþjóðleg ólympíukeppni í
stærðfræði og eru nemendurnir
þessa dagana á kafi í undirbúningi.
Þátttakendurnir Guðni Ólafsson,
Grétar Már Ragnarsson Amazeen,
Stefán Þorvarðarson, Eyvindur Ari
Pálsson, Ragnheiður Helga Har-
aldsdóttir, Andri Heiðar Kristinsson
og varamaður Þorbjörn Guðmunds-
son voru valdir eftir árangri í stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanema og
Norðurlandakeppni. Þau hittast
þessa dagana í húsnæði raunvísinda-
deildar Háskóla Íslands, hlýða á fyr-
irlestra og leysa þrautir undir hand-
leiðslu þjálfara. Aðspurð hvort þau
hafi einhverja sérstaka æfingatækni
segja þau einfaldlega „nei, við bara
reiknum“. Ekki er tími til að vinna
samfara æfingum en að sögn þeirra
hafa þau mjög gaman af þessu.
Haft hefur verið á orði að á Íslandi
sé ekki lögð nógu mikil áhersla á
raunvísindi í skólastarfi en liðið blæs
hins vegar á þá yfirlýsingu og segj-
ast þau vera bjartsýn og búist við
ágætu gengi í keppninni. „Miðað við
það að Ísland er minnsta þjóðin sem
tekur þátt í keppninni þá erum við
alveg fyrir miðju í styrkleika,“ segja
þau kotroskin.
Krakkarnir segjast ekki vanrækja
félagslífið þó þau séu þau bestu í
stærðfræði á landinu. Það sé mjög
auðvelt að samræma þetta tvennt.
Þau eru hins vegar ekki jafn viss um
að allar námsgreinar njóti jafnrar at-
hygli hjá þeim. Þeim hætti kannski
til að leyfa sumum að sitja á hak-
anum og leggja bara stund á það sem
þeim finnst skemmtilegast.
Eflaust gætu einhverjir ályktað
sem svo að einungis „nördar“ væru í
ólympíuliði Íslands í stærðfræði.
Krakkarnir eru hins vegar mjög
hressir og þvertaka fyrir það að þau
séu „nördar“. „Jafnaldrar okkar
hlæja bara að þessu og finnst þetta
frekar fyndið en eitthvað annað,“
segja þau. Aðspurð segjast þau ekki
taka stefnuna á verkfræðina heldur
sé það stærðfræðin sem á hug þeirra
allan. „Enda eru það aðeins þeir sem
eru lélegir í stærðfræði sem fara í
verkfræði,“ segja þau hlæjandi.
Þegar líður að lokum spjallsins
leikur blaðamanni forvitni á að vita
hvort þau ætli að vera í happafötum
eins og Hjalti Snær sem gerði garð-
inn frægan í Gettu betur. Krakkarn-
ir taka dræmt í það og segjast
kannski ætla að fá fötin hans lánuð.
Liðið vildi þakka Reykjavíkur-
borg, Kópavogsbæ og skólunum sín-
um, MR og MH, fyrir góðan stuðn-
ing.
Alþjóðleg ólympíukeppni í stærðfræði í Washington
Stærðfræðin á allan hug
íslensku keppendanna
Morgunblaðið/Billi
Ólympíuliðið í stærðfræði. Neðri röð f.v.: Andri Heiðar Kristinsson,
Ragnheiður Helga Haraldsdóttir og Grétar Már Ragnarsson Amazeen.
Efri röð: Guðni Ólafsson, Stefán Þorvarðarson og Eyvindur Ari Pálsson.
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegt úrval af vönduðum
kvenfatnaði
Gott verð
www.oo.is
Ungbarnafötin
fást hjá okkur
sumarkjólar — stuttermabolir — buxur — sundföt
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Sumarveisla
Sérhönnun. St. 42-56
Útsalan byrjar í dag
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Við ráðleggjum
og saumum fyrir þig
Austurhrauni 3, Hfj.
sími 5552866
Rýmingar
á að seljast.
sala
Allt
Lokað á laugardögum í sumar
Nýjar vörur væntanlegar
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Töfraundirpils
verð kr. 2.900
Opið frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen),
sími 553 0100.
Opið virka daga kl. 10–18, laugardaga kl. 10–16.
Útsalan er hafin
30-60% afsláttur
Ef verslað er fyrir 20.000 kr.
eða meira er gefinn
10% aukaafsláttur
Útsala - Útsala
30%-70% afsláttur
ÚTSALA
Grímsbæ,
sími 588 8488
Útsala! útsala!