Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 25
veðurupplýsingum. Þessu hefur
verið hafnað eða óeðlilegum skil-
málum verið borið við.
Halo ehf., sem íslenskur lögaðili
og skattgreiðandi, telur sig vera í
sömu sporum og hver annar hér-
lendur neytandi sem hefur byggt
upp færni og þekkingu til að hag-
nýta veðurupplýsingar. Húseigandi
getur metið hvort viðrar til máln-
ingarvinnu, trillusjómaður hvort
viðrar til róðra eða náttúrufræð-
ingur að vinna upplýsingaafurðir
sem þjónusta aðra.
Allir hafa þessir notendur tæki-
færi til að bæta við nýrri þekkingu
og færa sér hana í nyt. Í því felst
virðisauki við úrvinnslu upplýsing-
anna.
Orð veðurstofustjóra um neikvæð
áhrif samkeppni á veðurþjónustu
verða ekki skilin öðruvísi en að
hann treysti ekki Veðurstofu Ís-
lands til að spreyta sig á samkeppni
í veðurþjónustu. Það sjónarmið að
samkeppni geti skaðað veðurþjón-
ustu á aðeins við ef höft og einokun
fá að ráða.
Það er ljóst að brot á íslenskum
samkeppnislögum og alþjóðasam-
þykktum fórnar hagsmunum neyt-
enda um skilvirka veðurþjónustu.
Hvaða hagsmunir réttlæta þessa
fórn? Þessar aðstæður rifja upp
stríðsárin og baráttuna við óvin-
veittan her þegar íslenskir sjómenn
fórnuðu lífi sínu í baráttunni. Bann-
að var að útvarpa veðurfréttum á
Íslandi þannig að íslenskum sjó-
mönnum, sem og óvininum, var
gert ókleift að fylgjast með veðri til
að auka öryggi sitt. Samlíkingin er
nöturleg, – en erum við í stríði og ef
svo er, við hvern?
Höfundur er hafeðlisfræðingur og
stjórnarformaður Halo ehf.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 25
Rás 1
Íslenskur djass
kl. 19.00 um helgar