Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 33
tekist að ná þessari leikni, hún var bundin persónu Magnúsar. Það var gott að leita Magnúsar, þegar svör þurfti að fá við spurn- ingum úr faginu og jafnvel út fyrir það voru þau vægast sagt af marg- víslegum toga. Hann var fróður og fróðleiksfús en hefði hann svarið ekki á reiðum höndum lét hann ekki við svo búið standa, heldur leitaði upplýsinga í fræðiritum þannig að aldrei fór neinn bónleiður til búðar. Magnús var gjarnan í því óform- lega hlutverki að sinna starfsmönn- um stofnunarinnar vegna kvilla af ýmsu tagi og hafði nokkra ánægju af, en sagði þó stundum „nú verður þú að leita alvöru læknis.“ Þetta leiðir hugann að hans sérstæðu kímnigáfu- og ekki fóru menn heldur varhluta af stríðni hans. Þegar fram líða stundir verða þessir þættir í fari hans okkur samstarfsmönnunum að öllum lík- indum minnisstæðastir. Það var ógleymanlegt að setjast í kaffistof- una og ræða málin, í hálfkæringi, jafnvel gálgahúmor. Eftir samræður sem þessar fóru menn léttari í lund, jafnvel með nýja lífssýn, og tókust á við eril dagsins með öðru hugarfari. Þetta var ógleymanleg vin, sem sam- starfsmennirnir sóttu í, og hverju fyrirtæki lífsnauðsyn eigi starfs- menn að þrífast. Eitt það síðasta sem Magnús sagði í sínu þunga sjúk- dómsstríði var „Ég er ekkert viss um að ég vilji hressast mikið, þá hætta þessar yndidlegu hjúkkur að sinna mér,“ en hann naut þjónustu Heima- hlynningar. Hugur okkar er nú hjá fjölskyldu Magnúsar. Eiginkonu sína, Guðrúnu Salóme, kallaði hann ævinlega Dystu og það fengum við samstarfsfólkið líka að gera. Þótt Magnús talaði ekki mikið um tilfinningar sínar eða einkahagi var alltaf einhver einstak- ur tónn virðingar og hlýju þegar hann nefndi konu sína, það fór ekki fram hjá okkur og barnabörnin voru honum ofarlega í huga, ósjaldan minntist hann t.d. á litlu prins- essurnar. Einlægar samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar fylgja þessum minning- arorðum. Blessuð sé minning Magnúsar Þorsteinssonar barnalæknis. F.h. starfsfólks Miðstöðvar heilsu- verndar barna. Bergljót Líndal. Áratugir eru liðnir þótt skammt virðist í minni frá því að hitaveitu- nefnd (og síðar miðnefnd) hóf funda- höld á heimili Mumma í Hamrahlíð 13. Var þar jöfnum höndum á dag- skrá alvarleg fræðistörf og ítarleg skipulagning á skemmtanahaldi með þar tilheyrandi bollaleggingum um með hvaða hætti og eftir hvaða leið- um, sem flestar virtust æði torsóttar, mætti nálgast hitt kynið. Árangur varð hlutfallslega meiri af fræða- starfi. Þessi tíðu fundahöld voru iðu- lega rofin af Distu sem tilkynnti að kaffi og pönnukökur væru á borðum. Magnús settist þá gjarnan hjá okk- ur, kveikti sér í Chesterfields, hallaði sér fram, lyfti brúnum með glettni í augum og spurði tíðinda. Ekki þó sérstaklega um námsafrek heldur fremur um strákapör og óknytti. Í framhaldi af því rifjaði hann upp prakkarasögur úr austurbænum, skólasögur og námsára, eða sagði harðsoðnar sögur af héraðsárum. Var sá brunnur seint þurrausinn og margar sögurnar verið nýttar síðan á mannamótum. Alltaf kom Magnús fram við þessa sumpart óhörðnuðu en sumpart ofurfullorðnu ungmenni á jafnræðisgrundvelli. Þannig liðu þessi skólaár með traustu athvarfi hjá Magga og Distu í Hamrahlíðinni sem sýndu eðlislægan höfðingsskap og langlundargeð í verki. Engin hjón voru jafn samhent og þau ræktuðu garðinn sinn bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Þau standa ávallt fyrir hugskotssjónum í garð- inum mikla við Hamrahlíð. Og árin liðu fram og að því kom að fastur atburður varð að leiða af- kvæmin fyrir Magnús sem tók þau út, vó og mældi og varði fyrir kvill- um. Hann barg þeim frá eyrnabólg- um og hughreysti í þeim þrenging- um. Þá varð ljóst að hann ræddi einnig við ungviðið á jafnræðis- grundvelli. Vaxnar eru úr grasi margar kynslóðir Reykvíkinga sem farið hafa um hans hæfu hendur. Eiginlega finnst manni að enginn barnalæknir hafi verið til nema Magnús. Og hann var alltaf flottur í tauinu og manni virtist hann hold- gervingur læknisins sem listamenn túlkuðu á forsíðum Hjemmet og Familie Journal. Magnús Þorsteinsson var prúð- menni í orðsins fyllstu merkingu. Hann var hæglátur og feiminn að eðlisfari, skarpgáfaður og fljótur að greina kjarna málsins. Hann var einn af þessum fágætu mönnum, semhafði raunverulegan áhuga á því sem viðmælandinn var að segja jafn- vel þótt talsvert væri yngri að árum. Alltaf þegar maður hitti hann á síð- ari árum var sami glettnisblærinn í svipnum og hann virtist ætla að spyrjast fyrir um hvaða prakkara- strik „strákarnir“ hefðu nú staðið fyrir. Með fráfalli hans er mikill harmur kveðinn að Distu og fjöl- skyldunni en minning lifir um góðan dreng. Ásgeir Ásgeirsson. Þegar leið mín lá fyrst í Hamra- hlíð 13 fyrir hartnær þrjátíu árum vissi ég það næsta eitt um heimilis- fólkið að húsbóndi var bróðursonur Jóhanns skálds Jónssonar en amma húsfreyju hafði skapað sér ódauðleg- an sess í íslenskri bókmenntasögu með því að skvetta úr hlandkoppi yf- ir Þórberg Þórðarson. Slíkur bak- grunnur vakti vissulega góð fyrirheit hjá forvitnum menntaskólastrák. Heimsóknirnar áttu eftir að verða margar; að öðrum bæjum ólöstuðum fengum við, vinir miðsonarins á heimilinu, hvergi notalegra húsa- skjól til samfunda en hjá þeim Magn- úsi og Distu. Á móti okkur var tekið af einhvers konar höfðinglegu frjáls- lyndi sem var með öllu óþvingað og án tilgerðar. Við vorum ekki sendir ofan í kjallara ellegar upp á háaloft heldur leiddir í stofu og skipað þar til sætis í sófa Jóns forseta sem fylgt hafði fjölskyldu Magnúsar í margar kynslóðir. Úr þessu hásæti voru síð- an mestu alvörumál augnabliksins skipulögð í þaula, einkum þó hvernig tryggja mætti öruggan aðgang að þeim lókölum sem öðrum fremur skiptu máli fyrir lífshamingju okkar og sálarheill á þeim árum. Varð þá margur heimagangurinn sómi Ís- lands, sverð þess og skjöldur. Fáa menn hef ég hitt sem hlegið hafa jafnskemmtilega með augunum og Magnús Þorsteinsson; í skini minninganna man ég hann ekki öðruvísi en glaðan en umfram allt prúðan. Ekki kannast ég við að hafa séð Magnús skipta skapi en skaplaus var hann áreiðanlega ekki. Og ekki sá hann ástæðu til að hirta okkur sérstaklega þegar við svo gott sem sprengdum húsið hans í loft upp eftir að hafa feillesið efnafræðilegar formúlur – í þeirri viðleitni okkar að bæta samkeppnisstöðu íslensks heimilisiðnaðar gagnvart ríkisrek- inni einokun á velkunnum nauð- synjavörum. Fráfall Magnúsar Þorsteinssonar, á besta aldri á nútímavísu, er vissu- lega hryggilegt. En mikill gæfumað- ur má hann teljast að hafa aðeins skilið eftir skínandi myndir í hugum þeirra sem voru svo lánsamir að njóta velvildar hans og umhyggju. Ögmundur Skarphéðinsson. Atvikin höguðu því svo að leiðir okkar Magnúsar lágu saman er ég tók við nýju starfi sem forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík í upp- hafi árs 1992, en Magnús starfaði þá sem deildarlæknir við barnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar. Því er ekki að neita að ég kveið nokkuð fyr- ir þessu nýja starfi en starfsemi heilsugæslunnar hafði þá nýlega ver- ið flutt frá Reykjavíkurborg til rík- isins í samræmi við breytt lög. Þessi kvíði reyndist frá fyrsta starfsdegi með öllu ástæðulaus og réðu þar mestu afskaplega hlýlegar móttökur samstarfsfólksins. Fóru þar fremstir í flokki heiðursmennirnir Gísli Teits- son, framkvæmdastjóri, blessuð sé minning þess mæta manns, Halldór Hansen, yfirlæknir, og Magnús. Gísla og Halldór þekkti ég fyrir en Magnús aðeins af afspurn. Snemma að morgni fyrsta dags í nýju starfi drap Magnús á dyr hjá mér, bauð mig hjartanlega velkominn og árnaði mér velfarnaðar í starfi á sinn hóg- væra en einstaka hátt. Frá fyrstu kynnum urðum við Magnús vinir. Þótt aldursmunur væri á okkur og við tilheyrðum í reynd sinn hvorri kynslóðinni náðum við einstaklega vel saman og það segir meira um Magnús en mörg orð og margra dálka minningargreinar að mér varð frá fyrsta degi mjög hlýtt til hans. Skröfuðum við margt saman þennan áratug sem kynni okkar stóðu, bæði um starfið, sem og lífið og tilveruna. Breytti engu þótt ég hyrfi til annarra starfa 1994. Að leiðarlokum þakka ég Magnúsi samfylgdina og votta eiginkonu, börnum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Guð geymi góð- an dreng. Ingimar Sigurðsson. Magnús Þorsteinsson, fyrrverandi aðstoðaryfirlæknir barnadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, er látinn á 76. aldursári. Eftir nám í barnalækningum og ýmis störf sem læknir í Þýskalandi, Svíþjóð og hér á landi kom hann á Heilsuverndar- stöðina 1960 og helgaði henni og ungviði Reykjavíkur starfskrafta sína upp frá því. Fyrstu þrjú árin starfaði hann jafnframt að sams kon- ar verkefnum á Heilsuverndarstöð Hafnarfjarðar. Magnús var í forystusveit lækna á Heilsuverndarstöðinni um langt skeið. Gegndi hann m.a. formennsku í læknaráði Heilsuverndarstöðvar- innar í nokkur ár. Þar og endranær reyndist Magnús varkár en jafn- framt úrræðagóður. Eins og mörg góð fyrirtæki og stofnanir hefur Heilsuverndarstöðin sem nú er hluti af Heilsugæslunni í Reykjavík geng- ið í gegnum erfið breytingaskeið bæði í ytra og innra umhverfi. Magn- ús var ávallt einn þeirra manna sem höfðu mikinn metnað fyrir heilsu- verndarstarfið og sína deild. Það er ánægjulegt að barnadeildin á Heilsuverndarstöðinni sem hann helgaði ævistarf sitt er nú Miðstöð heilsuverndar barna innan Heilsu- gæslunnar og hefur á að skipa áhugasömu og vel menntuðu fólki sem tekið hefur við fánanum af Magnúsi og starfsfélögum hans í baráttunni við sjúkdóma og fötlun barna. Ég kynntist Magnúsi fyrst þegar ég kom að vinna á Heilsuverndar- stöðinni 1979 og vorum við starfs- félagar upp frá því, hvor í sinni grein, að frátöldum nokkrum árum er ég var við framhaldsnám erlendis. Magnús var hugsunarsamur við vinnufélaga sína og vini. Hann var viljugur að hjálpa fólki sem til hans leitaði ef hann taldi það á sínu færi. Hann var glaðlyndur og hafði þægi- lega samveru í daglegri umgengni, enda heyrðust sjaldan hnjóðsyrði í hans garð. Hann gerði málefni ekki of flókin í samskiptum fólks eða vinnu og var lítið fyrir skriffinnsku og kerfisflækjur. Það var gott að leita til Magnúsar og ræða málin við hann. Góð kímnigáfa var hans sterka hlið og bilaði hún ekki fram til hins síðasta. Magnús bar minnsta virð- ingu fyrir þeim sem höfðu lítið skop- skyn. Hann hafði ætíð lag á að sjá hið kátlega við hlutina enda er þannig hægt að öðlast styrk til að mæta ýmsum erfiðum úrlausnarefnum. Hann gaf mér mörg góð ráð sem urðu að hollu veganesti. Þá naut kímnigáfan hans sín vel og það lærð- ist að taka sjálfan sig ekki of hátíð- lega. Magnús vann heilshugar að heilsuvernd barna í áratugi og trúi ég að segja megi að hann hafi verið flinkur og heppinn læknir. Hann lagði með daglegri alúð og natni mik- ilvægan skerf til góðrar heilsu Reyk- víkinga á síðari hluta tuttugustu ald- ar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu og fyrstu. Hafi maður þvílík verkefni og markmið og starfsfélaga eins og Magnús er hægt að hlakka til að fara í vinnuna dag hvern. Eftir slíkt ævi- starf er líka hægt að kveðja þennan heim með léttri lund. Ég sendi fjölskyldu Magnúsar hugheilar samúðarkveðjur. Helgi Guðbergsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 33 01 ' 22 ) & ,(*! "#  %     !      "#$$ %             &  '  (  !) *      ) /  .((./ .  + *(     (   *,)         -   .       +/0123/,%4,356713341/,    (,!$(    % / 6      01 ' 2  22     (   .$  8   *   9  ) %& ((. , 3 4/ %& ()** /         2-5   6, * 7 +(    ( 89    3  *  :;  2 *    9 &  * ! &  .!   & /                :-  01   22 3;  " '); .!  *        46+ :  +3 ((. ,%& ! < ( 46+ )**  , 46+ )**  %& ! ,+,((. .  46+ (. ,, ' (*%6()** .!   & /            =2     22        < '    ='    8   *   9 %  ((, (./ / -     * - 9    9             *   *    ' <   $,+&  >   .(( 6, 3 .* ?  $/ .(  5  )**  5  ( ((. ,+, !,  )**  (   ( ((. ! 3 ( %  )**  ' *  ( ()**  ,  @  ((.  ! A* ,, ( ()**  4A*, '3   &  .!  ! & /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.