Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 35

Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 35 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 LEGSTEINAR Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK           0 -   (*,     6, =,!&*, 8B  < '   !  -  :>     !  (     #..$  ! A* !,  )**  !+,, - ((.  7, !,  )**  * 6 4/  ((.   !, ((. -(  *  !3()**   & !,  )**  -, =   ((. ,+,, 2/  !3((. 4 *  / 5!3(*()**    &  .!     & /                 < / / 4/ C' !7.*( ! >  %       < '  ='   :?       !      "..$   - ((. ' (* ?) (  ()**  )7   , ((. 4A*,  (  ((. ' (*  ! )()**    ,  ()**  ,%) !, ((.    ((. &   ()**    &  .!     & / +        -  - <' 22 ;*  (*! 8   %      :#  *     < '  <   2 *      !   ' * >..$ %       ,       A()**  ,   ((. -( , ()**  ?) ' (* , ()**  *  , ((./ !         '2 ' 2 - 6 %3 7     (     &*   -   :>       &*   * >"$$ (*  , / Elsku Hjalti minn. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, fimmtudaginn 10. maí, þegar ég fékk þær hræðilegu fréttir að þú værir dáinn. Ég var ekki búin að þekkja þig nema í kringum sjö mánuði en samt var eins og ég væri búin að þekkja þig í mörg ár. Það liðu ekki nema 2–3 vikur frá því við kynntumst að við fórum að vera saman á hverjum degi og fljótlega urðum við bestu vinir. Þú sóttir mikið í mig og það fannst mér gott. Það var alltaf svo þægilegt að vera í kringum þig. Þú vildir líka oft bara liggja við hliðina á mér og láta mig halda utan um þig, þannig leið okkur oft best. Þú varst allra besti vinur minn og mér þótti og þykir enn alveg of- boðslega vænt um þig. Þú varst alltaf svo góður og heiðarlegur. Þú vildir öllum vel og vildir allt fyrir alla gera. Þú varst ekki ánægður sjálfur fyrr en þeir sem skiptu þig máli voru ánægðir. Við töluðum meira að segja oft um það að þú værir allt of góður í þér og gjaf- mildur. Ég gerði líka mjög mikið fyrir þig og hefði gert meira ef þú HJALTI S. SVAVARSSON ✝ Hjalti S. Svavars-son fæddist í Reykjavík 4. júní 1979. Hann lést 10. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju 17. maí sl. hefðir leyft mér það. Það skipti ekki máli hvað það var sem þú baðst mig um, ég gerði það af því það varst þú sem baðst mig um það. Ég treysti þér fullkom- lega fyrir öllu, því allt sem ég átti, áttir þú og þú vissir það. Þú varst alltaf svo glaður, hress og skemmtilegur og það var alltaf stutt í grínið hjá þér. Ég hef aldrei eignast eins góðan og traustan vin eins og þig og þú munt alltaf eiga þinn stað í mínu hjarta. Því miður er það þannig að þeir deyja ungir sem guðirnir elska mest. Ég veit að þú passar stelpuna þína þaðan sem þú ert núna eins og þú gerðir alltaf hér og að lokum ætla ég að skrifa niður brot úr ljóð- inu „Söknuður“ eftir Jónas Hall- grímsson sem mér finnst passa vel við þessar aðstæður. Lít ég það margt, er þér líkjast vill guðs í góðum heimi: brosi dagroða, blástjörnur augum, liljur ljósri hendi. Hví hafa örlög okkar beggja skeiði þannig skipt? Hví var mér ei leyft lífi mínu öllu með þér una? Löngum mun ég, fyrr hin ljósa mynd mér úr minni líði, á þá götu, er þú ganga hlýtur, sorgaraugum sjá. Elsku Hjalti, við hittumst aftur þegar minn tími kemur. Þín vinkona, Helena Guðmundsdóttir. Elsku Hinni frændi. Það er svo skrýtið að þú sért farinn, eins sterkur og þrekmikill kafari sem þú varst. Þú sem lést ekk- ert stoppa þig svo duglegur og klár sama hvað þú fékkst við. Þú varst alltaf fyrsti maðurinn til að hjálpa mér ef ég þufti á aðstoð að halda og sýndir alltaf mikinn áhuga á því sem ég var að gera. Og sagðir mér til ef eitthvað mætti gera betur. Ég get varla trúað því að stundin sem við áttum saman á 17. júní yrði seinasta stundin sem við ættum sam- an. Þegar við drukkum kaffi og kjöft- uðum saman. Það hefur vantað mikið upp á mitt líf eftir að þú fórst. Dag- arnir voru styttri og skemmtilegri þegar þú komst upp í hús að hjálpa mér og pabba að koma bílunum eða tækjunum í vinnu. Því það var svo gaman að umgangast þig því þú varst svo jákvæður, hress og fljótur að hressa mig við ef ég var dapur. Það voru margar góðar stundir sem við áttum saman, Ólafsfjörður, sum- arbústaðurinn og Veiðivötn. Þar sem við veiddum titti og drukkum „volka“ í friði frá kellingum. Við vorum bestu félagar þó að það væru 26 ár á milli okkar. Þú leist ávallt á mig sem jafn- ingja. Því þú varst svo ungur í anda og ætlaðir þér aldrei að verða krumpudýr. Elsku Hinni minn, ég á eftir að sakna þín sárt en ég mun upplifa margar góðar minningar þegar ég hugsa um þig. Þú munt fylgja mér þannig inn í framtíðina. Þinn frændi og félagi, Aron. Nú guð ég von’ að gefi af gæsku sinni frið HINRIK PÉTURSSON ✝ Hinrik Péturssonfæddist í Hafnar- firði 6. desember 1950, hann lést í Landspítalanum við Hringbraut 19. júní síðastliðinn. Útför Hinriks fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðju- daginn 26. júní. að sársaukann hann sefi af sálu allri bið. Og þó að sárt sé saknað og sól sé bak við ský þá vonir geta vaknað og vermt okkur á ný. Þá ljósið oss mun leiða með ljúfum minningum og götu okkar greiða með góðum hugsunum. Elsku Hinni minn. Það er með gnístandi sársauka í hjarta sem ég kveð þig nú, elsku vinur. Þú ert farinn frá okkur, litlu fjölskyldunni, langt fyrir aldur fram. Alltaf varst þú reiðubú- inn að leggja hönd á plóg ef eitthvað stóð til, alltaf til staðar og reiðubú- inn. Margt hefur þú reynt síðustu mánuði, erfiðan skilnað og nú sjúkra- húsvist vegna sykursýki í febrúar á þessu ári. Það áfall leiddi til þess að þú misstir minnið að hluta og mátt, og dró það mjög úr þér allan kraft. Kraftur var eitthvað sem einkenndi þig, einnig dugnaður og útsjónar- semi. Eftirsóttur varst þú í vinnu sem kafari og líkaði þér það starf vel og tókst að leysa það vel af hendi. Já, margt er ósanngjarnt í þessum heimi og andlát þitt er eitt af því sem erfitt verður að sætta sig við. Fram undan voru gleðistundir, við Helgi að fara að gifta okkur og einnig Hildur og Ingó. Það verður sárt að gera það án þín, elsku vinur, því öll hefðum við viljað njóta stundarinnar með þér. Nú leggjum við á brattann með minningarnar að vopni og vonumst til þess að sjá sólarglætu á ný. Megi kærleiksríkur Guð umvefja okkur hlýju og styrk í þessari miklu sorg. Þú komst um nótt. Ég sá þig ekki. En ég fann návist þína álengdar ... Þegar þú fórst, var tómið eftir. Og dagurinn fæddist ... en allt var breytt. Þín Bryndís Fanney. Nú er komið að kveðjustund og eru fáar eins erfiðar og þessi. Hinrik Pétursson var mér mikil- vægur maður, tilvonandi tengdafaðir og traustur vinur. Honum var mjög annt um dóttur sína, sem og öll börnin sín, og tók hann það vel á móti mér, að mér fannst eins og ég væri einn af þeim. Þegar hann hitti foreldra mína og systkini þá var eins og þau hefðu fundið aftur gamlan fjölskylduvin. Það var mér mikilvægt að standa með Hinriki við altarið og taka við hendi Hildar frá honum því ég veit hvað hann er henni mikilvægur, þeg- ar ég kynntist henni fyrst barst talið fljótt að pabba hennar og þegar þau náðu svo aftur saman var eins og þau hefðu aldrei verið í sundur, ég veit að þegar stundin stóra rennur upp þá mun hann standa þar hjá okkur. Hinrik minn, ég lofa að hugsa vel um dóttur þína og segja öllum tilvon- andi barnabörnunum sögur af þér svo að þú megir lifa að eilífu í hjarta okkar. Ingólfur Níels Árnason. Árið 1976 gekk til liðs við Lions- klúbbinn Ásbjörn í Hafnarfirði ung- ur og kraftmikill maður, Hinrik Pét- ursson kafari og vélvirkjameistari. Klúbburinn var aðeins þriggja ára gamall þegar Hinrik gekk til liðs við hann og það var mikill akkur í því fyrir okkur að fá Hinrik til starfa á mótunarárum klúbbsins. Hann var alltaf tilbúinn til þátttöku í líknar- og fjáröflunarverkefnum á vegum klúbbsins og hafði yndi af því að ferðast með klúbbfélögum þegar tækifæri gafst til. Hinrik gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir Lionsklúbbinn Ásbjörn og sat í stjórn hans um eins árs skeið. Um tíma fluttist Hinrik til Akur- eyrar og sótti þá fundi hjá Lions- klúbbi á Akureyri en skilaði sér aftur í klúbbinn sinn, Ásbjörn, þegar hann kom suður fyrir heiðar á ný. Hinrik átti, eins og við öll, sín vandamál en þau bar hann ekki á torg. Hann var alltaf hress og kátur á fundum og hvers manns hugljúfi. Við félagar hans vissum að hann hafði orðið fyrir áfalli fyrir nokkrum mánuðum en hann hélt áfram að mæta á fundi og gerði lítið úr veik- indum sínum. Við töldum að hann myndi jafna sig fljótlega og því var það mikið áfall þegar okkur barst fregnin um dauða hans. Þar fór góður drengur of snemma. Við söknum góðs félaga og send- um fjölskyldu hans og vinum inni- legar samúðarkveðjur á þessum sorgardögum. Lionsklúbburinn Ásbjörn, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.