Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 45 DAGBÓK Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar á verði sem hefur aldrei fyrr sést. Þú bókar tvö sæti til Mílanó þann 13. júlí, en greiðir bara fyrir 1, og kemst til einnar mest spennandi borgar Evrópu á frábærum kjörum. Frá Mílanó liggja þér allar leiðir opnar um Evrópu og hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela. Verð kr. 15.207 Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1. 30.414/2 = 15.207. Skattar kr. 2.495, ekki innifaldir. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Forfallagjald, kr. 1.800. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Síðustu sætin Tveir fyrir einn til Mílanó 13. júlí frá kr. 15.207 HÓTEL TANGI VOPNAFIRÐI Nýir eigendur hafa tekið við rekstri Hótels Tanga. Við bjóðum upp á gistingu, veitingar, bar og góða þjónustu. Opið allt árið. Hótel Tangi, Vopnafirði. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbarn dagsins: Þú ert varkár og vinafastur og beitir ágætu minni þínu óspart í þágu annarra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hláturinn lengir lífið svo blessaður taktu sjálfan þig ekki svona hátíðlega. Það get- ur jafnvel virkað spaugilega í augum annarra. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert heltekinn af gróðahug- myndinni svo ekkert annað kemst að hjá þér. Þessu þarft þú að breyta því lífið snýst um svo margt annað en peninga. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gættu þess að þú gangir ekki fram af þér í vinnunni. Það er sannarlega orðið tímabært að þú slakir aðeins á. Örstutt frí mundi gera kraftaverk. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Láttu ekki draga þig inn í deil- ur sem koma þér ekkert við. Þótt það freisti þín að láta að þér kveða skaltu forðast það því þú munt aðeins bíða hnekki af. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Loks verður einhver til þess að veita starfi þínu athygli. Gakktu úr skugga um að áhuginn sé af hinu góða og ef svo er skaltu ekki hika við að notfæra þér hann. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vertu ekki svo upptekinn að þú gleymir þínum nánustu og í raun áttu að láta þá ganga fyr- ir öllu öðru. Þeir eru stoð þín og stytta og hamingja í senn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Enginn er dómari í sjálfs sín sök. Hlustaðu á það sem aðrir hafa fram að færa og reyndu að nýta þér það til jákvæðrar uppbyggingar á sem flestum sviðum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er kominn tími til þess að tala út um hlutina við sína nánustu. Gerðu þeim grein fyrir tilfinningum þínum og láttu þá segja þér hvað þeim finnst. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það þarf að vera ákveðið sam- ræmi á öllum hlutum til þess að lífið gangi átakalaust fyrir sig. Kúnstin er að færa til þess vegar allt sem ruggar bátn- um. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þrjóskan kemur sér stundum vel en getur líka verið ákaf- lega hvimleiður galli. Reyndu að nota hana til jákvæðra hluta og slepptu hinum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Líttu ávallt á björtu hliðar lífs- ins því það gerir aðeins illt verra að mikla erfiðleikana fyrir sér. Gakktu óhræddur á hólm við verkefni dagsins. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það eru mjög alvarleg málefni sem hvíla þungt á þér þessa dagana og þú þarft að gefa þér góðan tíma til þess að finna lausn á þeim. En þeim tíma er vel varið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hlutavelta Þessir duglegu strákar söfnuðu flöskum og seldu fyrir kr. 7.776 til styrktar Barnaþorpi SOS. Þeir heita Ívar Þór Birg- isson og Benedikt Páll Jónsson. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.205 til styrktar blindum börnum á Íslandi. Þær heita Margrét Guðmundsdóttir og Bjarnheiður Sigurbergsdóttir. SUM spil eru ein flækja frá upphafi til enda og minna helst á skákstöður, þar sem allt er morandi í „ef-þá“ möguleikum. Hér er eitt slíkt sem kom upp á Netinu fyrir nokkrum árum þegar Bobby heitinn Goldman og Paul Soloway spiluðu sýningarleik gegn sterkum mótherjum. Þeir voru í vörninni gegn fjórum hjörtum: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ Á982 ♥ D109 ♦ ÁD2 ♣ G105 Vestur Austur ♠ 3 ♠ DG764 ♥ K32 ♥ G ♦ 97543 ♦ KG8 ♣ D982 ♣ Á763 Suður ♠ K105 ♥ Á87654 ♦ 106 ♣ K4 Vestur Norður Austur Suður -- 1 lauf 1 spaði 2 hjörtu Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Goldman kom út með einspil- ið í spaða og sagnhafi drap gosa Soloways með kóng heima. Spaðastaðan var ljós og sagnhafi spilaði strax hjartaás og meira hjarta. Goldman tók með kóng og íhugaði framhaldið eftir lauf- kall makkers. Hann gat vissulega spilaði laufi á ás og fengið stungu. Þá hefur vörn- in fengið þrjá slagi og síðan kæmi tígull í gegnum ÁD. En sagnhafi myndi mæta því með að drepa á ásinn, taka hjartadrottningu, stinga lauf heim og spila öllum hjörtun- um. Austur lendir þá í þving- un í spaða og tígli. Þetta sá Goldman fyrir og spilaði því tígli, en ekki laufi, þegar hann var inni á hjarta- kóng. En sagnhafi var vand- anum vaxinn. Hann tók með ás, svo hjartadrottningu og spilaði laufi að kóng. Ef aust- ur tekur strax með ás lendir hann í innkastsþvingun í lok- in – verður að halda í Dx í spaða og hæsta tígul, en þá sendir sagnhafi hann inn á tígul og fær tvo síðustu slag- ina á spaða. Svo auðvitað dúkkaði Soloway. Sagnhafi fékk á laufkóng og tók öll hjörtun. Í fjögurra spila endastöðu átti blindur Á9 í spaða og Dx í tígli, en austur Dx í spaða og KG í tígli (hann varð að henda laufás). Þá var einfalt að spila hvort heldur spaðaás og spaða, eða tígli og dúkka. Sannarlega margslungið spil og vel að verki staðið, bæði í vörn og sókn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STAÐAN kom upp á EM einstaklinga er lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedón- íu. Moldavíski stórmeistar- inn, Viktor Bologan (2.676), hafði hvítt gegn Sarunas Sulskis (2.530) frá Litháen. 53. Hxf7! Skiptamunsfórnin einfaldar úrvinnslu hvíts. Í framhaldinu fellur hvert peð svarts á fætur öðru: 53. ...Hxf7 54. Dxg6+ Hg7 55. De6+ Kh7 56. Df5+ Kg8 57. Dxe5 Hf8 58. h4 f3 59. Kh3 Hff7 60. d6 Hg1 61. Dd5! Kf8 62. d7 og svartur gafst upp. Á síðasta heimsmeistaramóti FIDE bar Bologan sigurorð af Hann- esi Hlífari í einvígi í fyrstu umferð. Á EM tókst Viktori með herkjum að tryggja sér sæti á næsta HM á meðan Hannes sat eftir með sárt ennið. Undir eðlilegum kringum- stæðum hefði Hannes átt mjög góða möguleika á að komast áfram. Hins vegar höfðu engar ráðstafanir ver- ið gerðar til að senda hann á mótið fyrr en viku fyrir brottför. Þá hafði Hannes verið á ferðalagi í einn mán- uð í þrem heimsálfum og staðið sig vel á tveim firna- sterkum skákmótum. Þótt hann sé vel á sig kominn má telja líklegt að álagið hafi orðið of mikið og hann ekki náð að sýna sitt rétta andlit á EM. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. LJÓÐABROT VORIÐ GÓÐA Það seytlar inn í hjarta mitt sem sólskin fagurhvítt, sem vöggukvæði erlunnar, svo undurfínt og blítt, sem blæilmur frá víðirunni, – vorið grænt og hlýtt. Ég breiði út faðminn, – heiðbjört tíbrá hnígur mér í fang. En báran kyssir unnarstein og ígulker og þang. – Nú hlæja loksins augu mín, – nú hægist mér um gang. Jóhannes úr Kötlum. Með morgunkaffinu Þú ert of góður fyrir mig, Jónas. Ég verð að finna mér annan yf- irmann til að spila við. YUMI Koba Yashy frá Jap- an óskar eftir pennavini á Íslandi. Yumi Koba Yashi, 17-19 Miyake-cho, Fukui-shi, Fukui-ken #910-3103, Japan. Japönsk kona, 22ja ára óskar eftir íslenskum pennavinum. Hún hefur áhuga á Íslandi, íslenskri menningu. tónlist og ferða- lögum. Yayoi Ito, 1-6-33 Boyodai, Otaru, Hokkaido, 047-0155, Japan. Danskur karlmaður leitar að Íslendingum sem safna frímerkjum, með hugsanleg skipti í huga. Poul Larsen, Egholmvej 18 B, DK - 2720 Vanløse, DANMARK. Pennavinir    

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.