Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 11 LÚÐVÍK Ólafsson, héraðslæknir í Reykjavík, segir erfitt að nefna nákvæma tölu yfir hversu margir eru án heimilislæknis í Reykjavík. Í Morgunblaðinu á laugardag sagði Guðmundur Karl Snæbjörnsson, formaður Félags heimilis- lækna í Skandinavíu, sem hefur hug á að koma á fót einkarekinni heilsugæslustöð, að hann teldi að þessi tala væri um 18 þúsund. Guðmundur sagði að hann teldi ummæli héraðslæknis og for- stöðumanns Heilsugæslu Reykjavíkur, að rúm- lega 5000 manns séu án heimilislæknis, vera byggð á úreltum upplýsingum. „Ég get ekki nefnt hárréttar tölur en ég efast um að þessar tölur [Guðmundar Karls] séu eitt- hvað réttari en aðrar. Mér finnst þetta ekki endilega vera kjarni umræðunnar, heldur hvort heilsugæslan, sem samkvæmt lögum á að veita þessa þjónustu, sé í stakk búin að veita þá þjón- ustu sem sóst er eftir,“ segir Lúðvík. Hann segir að vissulega séu þessar tölur mjög mikilvægar hvað varðar uppbyggingu og skipulag heilsu- gæslunnar. „Heilsugæslan hefur ekki getað sinnt sínu hlutverki og það þarf að fjölga heim- ilislæknum innan heilsugæslunnar,“ segir Lúð- vík. Hann segir að síðar á árinu muni Heilsu- gæslan í Grafarvogi flytja í stærra húsnæði og að unnið sé að stofnun heilsugæslustöðvar í Voga- og Heimahverfi. Einnig segir hann áætl- anir uppi um heilsugæslustöðvar í nýjum hverf- um sem eru að rísa. Lúðvík segir þó að höf- uðborgarsvæðið byggist svo hratt upp að erfitt sé fyrir heilsugæsluna að halda í. Hann nefnir sem dæmi að í Kópavogi sé nýleg heilsugæslu- stöð en að nú þegar sé þörf fyrir þá þriðju. Þörf á auknum fjármunum Lúðvík segir að aukið fjármagn þyrfti að leggja í málaflokkinn. „Við þurfum fjármagn til að ráða lækna og annað starfsfólk. Einnig þurf- um við að fá fjármagn og helst svolítið frelsi til að semja um húsnæði þannig að við gætum farið hagkvæmustu leiðirnar til að verða okkur út um húsnæði og gert langtímaskuldbindingar. Heilsugæslan, sem er einskonar ríkisfyrirtæki, hefur ekki sömu heimild til að binda sig fjár- hagslega og menn í einkarekstri.“ Guðmundur Karl hefur sótt um til tryggingaráðs að fá að opna og reka stofu sem yrði hugsuð sem bráða- móttaka fyrir þá sem ekki eru með heimilis- lækni. Lúðvík lagðist gegn umsókn Guðmundar Karls í umsögn sinni til ráðsins. „Við eigum ekki að tvískipta heilsugæslunni, láta einn aðila sjá um létt, einföld og fljótafgreidd vandamál og láta heilsugæslustöðvarnar annast þungu, erf- iðu og flóknu málin. Menn þurfa að hafa hvort tveggja. Lúðvík segir að meðan þrengslin í heilsugæslunni séu jafnmikil og þau eru nú telji hann það ekki góða leið að koma með nýja teg- und heilsugæslu á markaðinn. Frekar eigi að styrkja heilsugæsluna þannig að hún geti tekið á móti þeim sjúklingum sem eru án heimilislækn- is. Lúðvík segir að Tryggingastofnun sé með samning við læknafélögin vegna heimilislækna utan heilsugæslunnar þar sem séu skýrt tekin fram þau skilyrði sem samningurinn byggir á. Guðmundur Karl sé að biðja um eitthvað allt annað. „Ég trúi ekki á skipulagsleysi í heilbrigð- ismálum og mér finnst þetta vera að bjóða upp á einn nýjan anga af því,“ segir Lúðvík. Fjármun- ir frá hinu opinbera koma til heilsugæslunnar eftir tveimur leiðum. Annars vegar sem föst upphæð á fjárlögum Alþingis til heilbrigðismála og hins vegar frá Tryggingastofnun sem gerir samninga við lækna sem reka eigin stofur. „Það er mjög óeðlilegt að fjármögnunin komi eftir tveimur leiðum. Annar aðilinn, Tryggingastofn- un, hefur enga ábyrgð varðandi skipulag og heil- brigðisþjónustu, hvorki í Reykjavík né á lands- byggðinni. Ég tel að besta leiðin væri að einhver einn aðili haldi utan um skipulagið og fjármun- irnir komi eina leið þar sem þetta komi hvort eð er frá sömu uppsprettu.“ Guðmundur Karl sagðist telja að hverfisskipting heilsugæslunnar væri úrelt og nefndi sem dæmi að í Árbæ séu 4.800 íbúar með heimilislækni en að við stöðina séu skráðir tæplega 8.700 einstaklingar. „Það eru margar ástæður fyrir því að fólk kýs að sækja þjónustu á einn stað en ekki annan. Eitt er ákveðin íhaldssemi, þegar fólk flytur vill það ekki skipta um lækni og hef ég ákaflega mikinn skilning á því sjónarmiði. Annað er að fólk vill ekki þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu langt frá vinnustað. Við getum sagt að hverfisstöðv- arnar hafi ákveðna ábyrgð gagnvart íbúum hverfisins. Ég vil ekki horfa á það sem skyldu fólks að skipta við sína hverfisstöð, heldur ábyrgð stöðvarinnar að sinna þeim sem búa í hverfinu. Það er kjarni þess máls,“ segir Lúðvík. Hvað orð Guðmundar um að núverandi skipu- lag hreki nýútskrifaða lækna frá segir Lúðvík að mikill barlómur hafi verið í læknum í heilsu- gæslunni, m.a. vegna kjara. „Það hefur fælt frá, menn hafa séð að það er kannski meira gull að sækja í greipar Tryggingastofnunar en hjá heilsugæslunni,“ segir Lúðvík og minnir á að um 200 heilsugæslulæknar starfi á landinu öllu. Þörf á að fjölga heimilislæknum Héraðslæknirinn í Reykjavík svarar gagnrýni á uppbyggingu heilsugæslunnar KUNNUGUM brá nokkuð í brún er þeir sáu til ferða Eiríks Hreins Helgasonar, yfirlögregluþjóns við Lögregluskóla ríkisins, í umferð- areftirliti á mótorhjóli á Vest- urlandsvegi nýverið. Yfirlögregluþjónar hjá hinum stærri embættum eru sjaldséðir í þessu hlutverki en Eiríkur Hreinn sagði við Morgunblaðið að umferðareftirlitið á götum úti væri kærkomin tilbreyting frá hefðbundnum störfum inni við í Lögregluskólanum, annaðhvort við tölvu eða fyrir framan kenn- aratöfluna. „Við höfum gert þetta áður, yf- irmenn við skólann, til að halda okkur við grasrótina, enda er það alveg nauðsynlegt. Ég hef ekki ekið mótorhjóli í nokkur ár en þetta hefur bara gengið vel. Mað- ur yngist um tuttugu ár,“ sagði Eiríkur, sem fer aftur til starfa í Lögregluskólanum í haust, en umferðarmál hafa eimmitt verið hans meginkennsluefni í skól- anum undanfarin ár. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Eiríkur Hreinn Helgason, yfirlögregluþjónn við Lögregluskóla ríkisins við umferðargæslu á Vesturlandsvegi. Yfirlög- regluþjónn í umferðar- eftirlit DANSKIR sprengjusérfræðingar hófu í gær störf sín við flak olíuskips- ins El Grillo sem liggur 400 metra frá landi fyrir utan Seyðisfjörð. Þeir munu eyða rúmlega viku í að kafa niður að flakinu og leita að sprengj- um sem kynnu enn að leynast þar. Eins og áður hefur komið fram var það norska fyrirtækið Riise Und- erwater Engineering sem átti lægsta tilboðið í losun olíu af El Grillo. Norðmennirnir munu hefjast handa um næstu mánaðamót og er áætlað að verkið í heild taki rúmlega mánuð. Bæjarstjóri Seyðisfjarðar, Ólafur Sigurðsson, segir að það sé einungis verið að gæta fyllsta öryggis með sprengjuleitinni. „Þeir byrjuðu að leita í morgun en það er mjög ólík- legt að þeir finni nokkuð því að Atl- antshafsbandalagið hefur látið leita nokkuð rækilega a.m.k. tvisvar áð- ur.“ Aðspurður um magn olíunnar í skipinu segir Ólafur að það sé ekki hægt að segja það með vissu en það hafi verið gert ráð fyrir 2000 tonnum í útboðinu. „Það getur verið allt að 3500 tonn þar sem enginn veit með vissu hversu mikil olía hefur lekið út í umhverfið. Miðað við þær upplýs- ingar um að skipið hafi verið fullt þegar það sökk má gera ráð fyrir því að a.m.k. 2000 tonn séu eftir. Það verður spennandi að sjá hvað þetta er mikið magn þegar byrjað verður að dæla úr tönkunum.“ Olían verður sett á tanka sem búið er að útbúa en gera má ráð fyrir því að olían verði síðan seld. Landhelgisgæslan hefur sent út tilkynningu til sjófarenda um að 250 metra radíus í kringum flakið sé bannsvæði og verður varðskip stað- sett þar þann tíma sem sprengjuleit- in fer fram. Undirbúningur fyrir hreinsun úr El Grillo hafinn Sérfræðingar leita að sprengjum í flakinu Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra skoðaði olíumengun frá El Grillo á Seyðisfirði í fylgd fulltrúa bæjaryfirvalda. Í framhaldi af því var ákveðið að ráðast í hreinsun olíu úr flakinu. EINS og fram kom í Morgunblaðinu á sunnudaginn hefur Skipulagsstofn- un hafið mat á umhverfisáhrifum vegna jarðganga og vegagerðar á norðanverðum Tröllaskaga. Um er að ræða tvær leiðir annars vegar Héðinsfjarðarleið og hins vegar Fljótaleið. Ekki hefur verið endan- lega ákveðið hvor leiðin verður valin. Á Héðinsfjarðarleið er gert ráð fyr- ir jarðgöngum milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og öðrum göngum milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Miðað við Héðinsfjarðarleið er vegalengdin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar 15,2 km. Þar af verða jarðgöngin 10,56 km. Á Fljótaleið er gert ráð fyrir göng- um milli Siglufjarðar og Fljóta og síð- an milli Fljóta og Ólafsfjarðar. Miðað við Fljótaleið er leiðin milli Siglu- fjarðar og Ólafsfjarðar 31,5 km. Ný- bygging yrði um 27 km löng. Þar af verða jarðgöng 12,4 km.                                                                         !"  #$ %         &                            Tvær leiðir um Tröllaskaga LÍNA.NET hefur sótt um leyfi til að nýta tíðnisvið Gagnaveitunnar í kjölfar þess að úrskurðarnefnd fjar- skipta- og póstmála staðfesti ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn- unar þess efnis að fyrirtækið hefði ekki formlega heimild til að nýta sér tíðnisvið Gagnaveitunnar eftir sameiningu fyrirtækjanna. Eiríkur Bragason, framkvæmdastjóri Línu- .Nets, sagði að Lína.Net væri með umfangsmikið fjarskiptaleyfi og málið snerist einungis um ákveðna tíðniúthlutun sem þeir gerðu ráð fyrir að þeir mundu fá, þar sem búnaður þeirra væri stilltur inn á þessa tíðni. „Lína.Net er í dag með mjög al- mennt og umfangsmikið fjarskipta- leyfi. Það sem Gagnaveitan var með var ákveðið leyfi til að vinna á ákveðinni tíðni líka og við gerum ráð fyrir að við fáum það leyfi í lok- in,“ sagði Eiríkur. Aðspurður hvort ákvörðun hefði verið tekin um að fara ekki dómstólaleiðina í þessum efnum, sagði Eiríkur að málið yrði skoðað aftur þegar lögfræðingur þeirra hefði farið yfir það á nýjan leik Gagnaveitan komst í eigu Línu- .Nets snemma á síðasta ári þegar Íslandssími keypti 12,3% hlut í fyr- irtækinu fyrir öll hlutabréf Gagna- veitunnar. Aðspurður hvort þáttur í verðmati á Gagnaveitunni hefði ver- ið handhöfn á þessu tíðnisviði, sagði Eríkur það ekki vera beinlínis. Hins vegar segði sig sjálft að Lína.Net hefði verið að kaupa þarna búnað og gert hefði verið ráð fyrir því að leyfi fylgdi til að reka búnaðinn. Lína.Net og tíðnisvið Gagnaveitunnar Sótt hefur verið um nýtt leyfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.