Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 51
DAGBÓK
Gull
er gjöfin
Gullsmiðir
Tilboð
Barnamyndatökur verð frá
kr. 5.000
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
brautir &
gluggatjöld
Útsala
Mikið úrval - Efni
- Sængurver
- Handklæði
- Dúkar
- Taukappar o.fl.
Verð frá kr. 100
Faxafen 14, sími 525 8200
Ný
sending
LJÓÐABROT
Miðsumar
Oft finnst oss vort land eins og helgrinda hjarn,
en hart er það aðeins sem móðir við barn.
Það agar oss strangt með sín ísköldu él,
en á samt til blíðu, það meinar allt vel.
Því svartar sem skyggir vor skammdegis neyð,
þess skærara brosir vor júnísól heið.
Nú skín hún á frónið vort fátækt og kalt,
og fegurðar gullblæjum sveipar hún allt.
Sjá ljómann um strandir, þar leikur hún sér
í ljósinu suðandi bjargfugla her,
og æðarfugls móðurkvak ómar í ró
við eyjarnar grænar á lognstafa sjó.
Nú veit ég, að engu finnst ævi sín löng.
því allt fagnar hásumarbirtu með söng
frá hafströnd að óbyggðar hrjóstugri slóð
þar heiðlóan kveður sín einbúa ljóð.
– – –
Steingrímur Thorsteinsson
SUM spil hafa á sér yfir-
bragð einfaldleikans, en eru
þó glettilega flókin þegar
dýpra er kafað. Slemma
suðurs hér að neðan er af
þeim toga:
Norður
♠ DG10942
♥ ÁK3
♦ Á5
♣ 106
Suður
♠ Á
♥ DG9752
♦ D3
♣ Á975
Samningurinn er sex
hjörtu og útspilið tígulgosi.
Hver er besta leiðin?
Prófum fyrst þetta: Tíg-
ulás (það er sjálfgefið),
spaðaás, hjartadrottning og
ás, spaðadrottning og tígli
hent heima. Er þetta ekki
skothelt ef trompið liggur
sæmilega?
Norður
♠ DG10942
♥ ÁK3
♦ Á5
♣ 106
Vestur Austur
♠ K876 ♠ 53
♥ 6 ♥ 1084
♦ G10876 ♦ K942
♣ KG2 ♣ D843
Suður
♠ Á
♥ DG9752
♦ D3
♣ Á975
Vestur fær á spaðakóng-
inn og síðan er hægt að
taka síðasta trompið í borði
og fríslagina á spaða. Ein-
falt spil, ekki satt?
Rétt svo langt sem það
nær, en hver segir að vest-
ur þurfi að taka strax á
spaðakóng? Látum hann
dúkka. Austur rekur tromp
í næsta spaða og þá hrynur
spilið.
Sagnhafi á svar við þess-
ari hættu. Hann geymir
hjartatvistinn og spilar
fyrsta trompinu á ás blinds.
Svo spaðadrottningu og
hendir tígli. Vestur dúkkar
og austur trompar næsta
spaða. En nú yfirtrompar
suður, fer inn í borð á
hjartakóng, spilar spaða-
gosa og hendir tígli. Tromp-
þristurinn er svo innkoma á
fríspaðana.
Þetta blasti ekki við í
upphafi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í gær,mánudaginn 13.
ágúst, varð Pétur Bjarna-
son, til heimilis á Löngu-
mýri 34, Akureyri, fimm-
tugur. Af því tilefni munu
hann og kona hans, Herdís
S. Gunnlaugsdóttir, taka á
móti vinum og vandamönn-
um í veislusal Fiðlarans á
Akureyri á fjórðu hæð milli
kl. 17 og 19 laugardaginn 18.
ágúst nk. Gestum er bent á
að lokatónleikar DjangoJazz
2001 verða á Glerártorgi að
móttöku lokinni.
BRÚÐKAUP.
Gefin voru sam-
an 28. júlí sl. í
Háteigskirkju
af sr. Sigurði
Arnarsyni Júlía
Þorvaldsdóttir
og Kjartan Þor-
björnsson.
Heimili þeirra
er í Sóltúni 9,
Reykjavík.
Þorkell Þorkelsson
Árnað heilla
Sigurður Daði Sigfússon tók
þátt í sumar í þrem lokuðum
alþjóðlegum mótum í Ung-
verjalandi. Hann stóð sig
með mikilli prýði og var í öll-
um þrem mótunum hárs-
breidd frá því að ná alþjóð-
legum áfanga. Á Fyrsta
laugardagsmótinu í júlí í
Búdapest var hann næst því
að takast ætlunarverk sitt
en hann naut þá félagsskap-
ar Sigurbjörns Björnssonar
(2.297). Þeir tóku þó ekki
þátt í sama móti þar sem um
tvö lokuð mót var að ræða
þótt teflt væri á einum stað.
Sigurbjörn hafði hvítt í stöð-
unni gegn Jero-
en Blokhuis
(2.341) og þving-
aði hann til upp-
gjafar eftir 43.
h7+! enda verð-
ur svartur mát
eftir 43. ... Bxh7
44. Df7#. Loka-
staðan í flokki
Sigurbjörns
varð þessi: 1.
Lajos Seres
(2.427) 9½ vinn-
inga af 13 mögu-
legum. 2. Shuai
Wang (2.320)
8½ v. 3. Florian
Grafl (2.317) 8 v.
4.–5. Pal Petran (2.388) og
Jeroen Blokhuis (2.341) 7½
v. 6.–7. Anita Gara og Sand-
or Farago 6½ v. 8. Sigur-
björn Björnsson (2.297) 6 v.
9.–10. Rangel Fernandez
(2.217) og Yu Minguyan
(2.277) 5 v. 11. Robert Sinn
(2.140) 4½ v. 12. Nicholas
Maloney (2.208) 4 v. 13.
Chris Desmaris (2.180) 3 v.
14. Ticia Gara ½ v. (2.381)
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert sannfærandi og sjálf-
stæður, en eigingirni þín
getur stundum gengið of
langt og fælt frá.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú verður að hafa augun opin
og fylgjast með nýjungum á
þínu sviði því að öðrum kosti
áttu á hættu að dragast aftur
úr og þá munu menn leita
annað en til þín.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Undirbúðu ákvarðanir þínar
vandlega á hvaða sviði sem
þær eru og forðastu allar
skyndiákvarðanir þótt sumar
virðist freistandi í fyrstu sýn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt þú hafir í mörg horn að
líta máttu ekki láta sam-
bandið við vini þína rofna
enda er tæknin orðin slík að
hægt er að hafa samband án
mikillar fyrirhafnar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er sjálfsagt að lyfta sér
upp þegar tilefni er til og þú
hefur lagt hart að þér að
undanförnu svo það er í góðu
lagi að þú gerir þér einhvern
dagamun.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt ekki sé ástæða til þess
að segja öllum allt er heldur
ekki ástæða til þess að þegja
þunnu hljóði þegar sam-
starfsmenn setjast að spjalli.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að forðast það að
valda samstarfsmönnum þín-
um misskilningi með því að
tala tæpitungulaust og leyna
í engu skoðunum þínum eða
fyrirætlunum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hlutirnir virðast ákaflega já-
kvæðir í kringum þig og þú
ættir að leita uppi einhvern
sem deilir áhugamáli þínu og
sjá hvort þið getið ekki átt
skap saman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sýndu mikla varfærni í við-
skiptum í dag. Vertu sérstak-
lega á verði gegn gylliboðum
sem eru í raun og veru of góð
til þess að vera sönn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur nóg á þinni könnu
og mátt ekki taka að þér
fleiri verkefni því þú átt enga
möguleika til þess að standa
við þau loforð sem mun bara
skemma fyrir þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að vera við því bú-
inn að aðrir uppfylli ekki þær
skyldur sem þeir hafa tekist
á herðar og að það lendi á þér
að koma verkefninu í höfn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Forðastu eins og heitan eld-
inn að láta einkamálin hafa
áhrif á starf þitt því þetta
tvennt á ekki að fara saman.
Forðastu fljótfærna vini sem
best þú getur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Finnist þér þú innikróaður
skaltu taka þér hlé til þess að
líta yfir sviðið því það er oft
erfitt að sjá heildarmyndina í
hita leiksins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Líttu á björtu hliðarnar. Þú verður hvorki atvinnu-
laus eða húsnæðislaus næstu 10 árin.
ATVINNA mbl.is