Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 20
NEYTENDUR
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Víkjandi, verðtryggð skuldabréf
Kaupþings hf.,
1. flokkur 2001,
á Verðbréfaþing Íslands.
Verðbréfaþing hefur samþykkt að taka skuldabréf
Kaupþings hf., 1. flokk 2001, á skrá þingsins. Bréfin
verða skráð mánudaginn, 20. ágúst nk. Skuldabréfin
greiðast í einu lagi 22. júní 2011, bera 8,00% fasta vexti
og eru bundin vísitölu neysluverðs. Krafa skv. skuldbréfi
í 1. flokki 2001 víkur fyrir öllum öðrum kröfum á
hendur útgefanda og við gjaldþrot eða slit endurgreiðist
hún á eftir öllum kröfum öðrum en endurgreiðslu
stofnfjár. Skuldabréfin eru innkallanleg frá 22. júní
2006. Skráningarlýsingu er hægt að nálgast hjá
Kaupþingi hf. Hjá Kaupþingi hf. er einnig hægt að
nálgast þau gögn sem vitnað er til í skráningarlýsingunni.
Ármúla 13A, 108 Reykjavík,
sími 515 1500, fax 515 1509
NÝLEGA tók gildi reglugerð varð-
andi takmarkanir á sölu á vörum sem
í er nikkel svo sem úrum, skartgrip-
um og fleiri vörum sem geta komist í
beina snertingu við hörund fólks.
Þetta er gert vegna ofnæmistilfella
sem upp hafa komið og rekja má til
notkunar á ýmsum vörum sem inni-
halda nikkel.
Tíðni sjúkdóma og óþæginda af
völdum ofnæmis fer sífellt vaxandi,
sérstaklega hjá börnum. Mikið hefur
verið sett á markað á undanförnum
árum af varningi sem innihélt efni
sem talin voru hættulaus en síðar
kom í ljós að þau gátu valdið ýmis
konar óþægindum. Fjöldi þeirra efna
sem talin eru ofnæmisvaldar fer stöð-
ugt vaxandi. Nikkel er eitt þeirra efna
sem getur valdið ofnæmi og hefur það
verið vitað undanfarna áratugi. Nikk-
el er helsti ofnæmisvaldurinn í mörg-
um Evrópulöndum en málmurinn
getur valdið næmi sem varir ævi-
langt. Einstaklingar sem eru við-
kvæmir af þessum sökum geta fundið
til verulegra óþæginda við notkun á
beltissylgjum, úrum og skartgripum
sem innihalda nikkel. Af þessum sök-
um hefur notkun nikkels verið bönn-
uð í vissum vörum sem líklegt er að
komist í langvarandi snertingu við
hörund nema að uppfylltum ákveðn-
um skilyrðum um hlutfall nikkels í
málmblöndu og hve auðveldlega
nikkel losnar úr málminum. Þetta á
jafnt við um hreinan málm, málm-
blöndu og húðaðan málm. Bann þetta
gildir nú á öllu Evrópska efnahags-
svæðinu.
Nikkel er algengur málmur í iðnaði
og hefur notkun þess aukist stöðugt
síðan á 5. áratug síðustu aldar. Um
það bil 50% af nikkeli úr málmvinnslu
er notað í ryðfrítt stál. Önnur not eru í
ýmsar vörur úr málmi, til málmhúð-
unar, í rafhlöður, hvata og efnavörur.
Ofnæmisáhrifin eru ekki aðeins
bundin við nikkel í málmi og hefur
komið í ljós að uppleyst nikkel og
nikkelsölt eru jafnvel enn áhrifameiri
ofnæmisvaldar. Vegna þessa á fólk í
þeim atvinnugreinum þar sem unnið
er með nikkelmálm og nikkelsölt
frekar á hættu að fá ofnæmi en aðrir.
Efnasambönd nikkels á borð við nikk-
eloxíð og nikkelsúlfíð eru krabba-
meinsvaldandi og þeir sem vinna með
slík efni eiga það á hættu að fá húð-
krabbamein. Það sama gildir um
nikkelmálmryk. Ekkert bendir hins
vegar til að önnur efnasambönd nikk-
els séu krabbameinsvaldandi.
Aukin tíðni ofnæmis
Fyrstu tilfelli nikkelofnæmis voru
greind hjá mönnum sem unnu við
nikkelhúðun en síðan hafa tilfellin
aukist í hlutfalli við aukna notkun á
málminum. Talið er að allt að 10%
evrópskra kvenna hafi ofnæmi fyrir
nikkeli, sem er sennilega vegna skart-
gripanotkunar og 1% karla. Rann-
sóknir hafa sýnt að þetta hlutfall fer
hækkandi. Í sumum löndum er þetta
hlutfall enn hærra og er hlutfallið
hærra meðal þeirra einstaklinga sem
bera skartgripi sem festir eru í gegn-
um göt í eyru eða aðra líkamsparta.
Fleiri ofnæmistilfelli eru skráð af
völdum nikkelsúlfats en nokkru öðru
efni í sænsku atvinnulífi. Slík efni
valda bæði ofnæmi í húð og í önd-
unarfærum eftir því hvort um hefur
verið að ræða snertingu eða innönd-
un. Hætta er á að fólk fái astma við
mikla innöndun.
Mjög algengt er að einstaklingar
með nikkelofnæmi þjáist af exemi á
höndum sem í mörgum tilfellum er
erfitt að lækna og geta sum tilfelli
verið það slæm að um örorku er að
ræða. Í Danmörku eru greiðslur ör-
orkubóta vegna húðsjúkdóma af völd-
um nikkelofnæmis algengari en
vegna nokkurra annarra húðsjúk-
dóma. Aukning ofnæmistilfella er
greinilegust í yngri aldurshópum.
Hafi maður ofnæmi fyrir málminum
geta ýmsir málmhlutir valdið exemi
þótt snertingin vari aðeins í stuttan
tíma (mynt, lyklar, hurðarhúnar og
ýmis verkfæri og áhöld). Mesta hætt-
an stafar af götum í eyrum og öðrum
líkamshlutum sem í er stungið pinn-
um og hringjum sem innihalda nikkel.
Í mörgum tilfellum eru þessir hlutir
kallaðir öðrum nöfnum en nikkel, t.d.
gull eða stál en innihalda engu að síð-
ur nógu mikið af nikkeli til að valda
ofnæmi.
Nikkel úr fæðu
veldur ekki ofnæmi
Nikkel er að finna í mörgum mat-
vælum en yfirleitt í það litlu magni að
það veldur ekki óþægindum hjá hinn
almenna neytanda en hjá þeim sem
þjást af nikkelofnæmi getur ofnæmið
versnað. Upptaka nikkels í melting-
arvegi er hæg en er nokkru meiri úr
vatni en úr mat. Nikkel úr fæðu veld-
ur ekki ofnæmi en getur kallað fram
ofnæmisviðbrögð og getur matarkúr
sem samanstendur af mat með litlu
nikkelinnihaldi minnkað ofnæmis-
áhrifin.
Það hefur reynst vandkvæðum
bundið að finna prófunaraðferðir til
að meta nikkelinnihald vöru og hraða
losunar nikkels úr vörum, og var sú
aðferð sem mest var notuð ekki talin
gefa áreiðanlegar niðurstöður. Evr-
ópska staðlaráðið hefur nú samþykkt
þrjár mælingaaðferðir og eru niður-
stöður þeirra viðurkenndar á Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Framleiðendum og innflytjendum
verður hér eftir óheimilt að markaðs-
setja vörur úr málmi sem innihalda
nikkel, ef hætta er á að nikkel losni úr
málminum og geti þannig valdið of-
næmi. Hollustuvernd ríkisins beinir
þeim tilmælum til framleiðenda, inn-
flytjenda og söluaðila að þeir fjarlægi
slíkar vörur úr verslunum sem fyrst.
Vörur með nikk-
eli af markaði
Nikkel er helsti ofnæmisvaldurinn í
mörgum Evrópulöndum, segir Haukur
Rúnar Magnússon, en málmurinn getur
valdið næmi sem varir ævilangt.
Höfundur starfar á eiturefnasviði
hjá Hollustuvernd ríkisins.
Í KÖNNUN norska heilbrigðiseft-
irlitsins á hitastigi kæliborða í
140 matvöruverslunum í Ósló
kom í ljós að í 94 tilvikum var það
of hátt, segir í frétt á netútgáfu
Aftenposten. Hámarkshitastig á
kælivörum eins og kjöti, áleggi,
fiski og mjólkurvörum eru 4°C,
en ef vörurnar eru geymdar við
hærra hitastig ná gerlar að fjölga
sér og þá er ekki hægt að treysta
merkingum um geymsluþol. Í
einni af hverri þremur búðum var
hitastig 7-12°C en í ellefu búðum
var það yfir 12°C og lét eftirlitið
loka þeim kælum umsvifalaust.
Hitastig í kæliborðum hér á
landi var síðast kannað fyrir
þremur árum, að sögn Rögnvalds
Ingólfssonar, sviðsstjóra mat-
vælasviðs hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur. Þá kom í ljós að
hitastig var í 50% tilvika 4°C eða
lægra og í 74% tilvika 6°C eða
lægra, „Við vitum að ástandið
hefur batnað mikið síðan þá,
verslanir hafa margar hverjar
tekið í notkun sjálfvirkan búnað
sem vaktar hitastigið í kælunum.“
Slíkar kannanir eru ekki gerðar
reglulega en hann segir fulla þörf
á að huga að þessum málum hér
og hitastigið verði væntanlega
kannað hér á næstu misserum.
Morgunblaðið/Kristinn
Geymsluþol minnkar ef hitastig í kæliborðum er of hátt.
Kannanir ekki
gerðar hér reglulega
Hár hiti í kæliborðum norskra verslana
VERÐHÆKKANIR á lambakjöti
af nýslátruðu eru fyrirsjáanlegar í
haust og er áhrifa jafnvel þegar
farið að gæta, að sögn Steinþórs
Skúlasonar, forstjóra Sláturfélags
Suðurlands.
Hækkanirnar eru á bilinu 6–7%
víðast hvar, um 7% hjá SS og segir
Steinþór skýringuna vera verð-
hækkanir til bænda. „Bændur fá
verðbreytingu einu sinni á ári, í
fyrra var hún um 5% en er hærri
nú meðal annars þar sem verðbólg-
an hefur aukist og því meira um
kostnaðarhækkanir en ella.“
Jón Helgi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri, Norðlenska mat-
borðsins, tekur í sama streng, kjöt
frá þeim mun hækka um 7% í haust
þar sem afurðaverð til bænda hef-
ur hækkað, en auk þess hefur
framleiðslan verið léleg í greininni.
Um 6% hækkun til neytenda er
fyrirsjáanleg í haust hjá Kaup-
félagi Skagfirðinga, að sögn
Ágústs Andréssonar sláturhús-
stjóra. „Helst þyrfti að hækka verð
um 8–9% þar sem rekstrarkostn-
aður hefur mikið hækkað, en
hækkun til bænda var um 5% hjá
okkur í ár.“
Sigurður Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri hjá Sölufélagi Aust-
ur-Húnvetninga, segir hækkanir
vera að meðaltali um um 6–7% hjá
þeim þar sem verð til bænda hefur
hækkað, en einnig laun og rekstr-
arvörur, sér í lagi umbúðaverð.
Um 7% hækkun
á lambakjöti
Verð á lambakjöti í verslunum mun líklega hækka í haust.
Reyktur lax og silungur
Er óhætt að grafa eða reykja
ferskan lax og silung eða á að
frysta hann áður?
Það fer eftir því hvort um er að
ræða eldisfisk eða villtan fisk, að
sögn Gísla Jónssonar dýralæknis
hjá embætti yfirdýralæknis á
Keldum. „Eldisfiskinn er óþarfi að
frysta en í meltingarvegi hjá villt-
um fisktegundum, eins og til dæm-
is silungi, laxi og þorski getur
anisakis spólorminn verið að finna.
Hann getur valdið sjúkdómnum
anisakinosis hjá fólki en algengt
einkenni hans eru miklir maga-
verkir. Yfirleitt nægir að fjarlægja
innyflin til að losna við orminn en
lirfur hans geta þó í einhverjum
tilvikum borist út í vöðvana sem
við borðum. Þær drepast við frost
og því er mjög góð regla að frysta
villtan fisk áður en hann er settur
í reyk eða grafinn.“
Hann segir tilfelli sjúkdómsins
algengust í Japan þar sem mikið
er borðað af hráum fiski en þau
séu mjög fátíð á Norðurlöndum og
hafi helst komið upp þegar fólk
hefur verið að borða hráan þorsk.
Spurt og svarað um neytendamál
Morgunblaðið/Arnaldur
NÝ verslun með vörur úr
Freemans-pöntunarlistanum
var í vikunni opnuð í Bæjar-
hrauni 14 í Hafnarfirði. Free-
mansverslun var í mörg ár starf-
rækt í sama húsi en henni var
lokað fyrir þremur árum, að
sögn Önnu Báru Teitsdóttur
markaðsstjóra. „Í apríl ákváð-
um við síðan að opna verslunina
á nýjan leik og höfum verið að
vinna við húsnæðið síðan. Við
höfum fært okkur um set og
verslunin er nú baka til í húsinu
sem hún var áður í.“
Freemans-pöntunarlistann
má nálgast í versluninni og í
bókaverslunum og kostar hann
400 krónur, en einnig er hægt að
panta vörur úr listanum á
heimasíðunni www.freemans.is.
Verslun í
Bæjar-
hrauni
Morgunblaðið/Golli
Á myndinni er Anna Bára
Teitsdóttir, markaðsstjóri.