Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 29 MIKIÐ hefur verið rætt um kjarasamninga og samningaviðræð- ur, en ekki að ástæðulausu. Mörg stéttarfélög hafa lokið kjarasamn- ingagerð sinni og er það vel, enda má búast við að þeir sem nú þegar hafa samið og samþykkt samn- ingana séu sáttir. En sjúkraliðar eru ekki sáttir og hafa ekki hlotið þá áheyrn sem þeir sjálfir hefðu kosið en verið gróflega hundsaðir. Launanefnd ríkisins hefur staðið sig með eindæmum illa og skömm frá því að segja að kjarasamningur sjúkraliða við ríkið hefur verið laus síðan í október í fyrra og margir sjúkraliðar að gefast upp á biðinni. Launanefnd sveitarfélaganna hefur í engu staðið sig betur svo ekki sé minnst á fulltrúa séreignarstofnana og Reykjavíkurborgar en þeir hreinlega mæta ekki á boðaðan fund. Fáheyrður dónaskapur. Kröfur óraunhæfar Sjúkraliðar eru og verða ein af undirstöðustéttum heilbrigðisgeir- ans og fikra sig ávallt meira inn í félagsgeirann enda menntun okkar vel til þess fallin. Launakjör stétt- arinnar hafa ekki endurspeglað mikilvægi hennar, en farið er fram á það í yfirstandandi kjarasamn- ingum að svo verði. Sjúkraliðar hafa dregist aftur úr þeim stéttum sem þeir miða sig við en launaskrið þeirra stétta hefur verið meira en hjá okkur en eru þó ekki of miklar og kominn tími til að lagfæringar eigi sér stað fyrir sjúkraliðastétt- ina, ef ekki nú þá hvenær? Eru þessar kröfur sjúkraliða óraunhæf- ar? Nei segjum við! Byrjunarlaun sjúkraliða á sjúkrahúsi eru í dag: kr: 89.173 og tveim launaflokkum hærri á öldrunarstofnunum. Sjúkraliðamenntunin tekur 7 annir í fjölbrautaskóla og verknám 6 mánuði. Hér sjá allir að ekki er allt sem skyldi, leiðréttingar á launum sjúkraliða er þörf. Sjúkraliðastarfið Engum dylst það sem komið hef- ur inná sjúkrastofnanir að störf sjúkraliða eru erfið, bæði andlega og líkamlega, svo ég minnist nú ekki á öldrunarstofnanirnar. Sífellt veikara fólk kemur þar inn og verr á sig komið líkamlega og þyngir lík- amleg störf sjúkraliða. Atvinnu- sjúkdómur sjúkraliða er bilun í stoðkerfi og það er ekki að ástæðu- lausu. Það er deginum ljósara að ef sjúkraliða nyti ekki við yrði þjón- ustustigið við eldri borgara sam- félagsins, sem til þessara stofnana þurfa að leita, ekki það sama. Launanefnd sveitarfélaganna þorir ekki að ríða á vaðið og gera vel við sína sjúkraliða af hræðslu við ríkið. En það yrði okkur sem störfum hjá sveitarfélögunum gleðiefni ef launin yrðu til þess að fjölga sjúkraliðum í starfi. Ég sé ekkert athugvert við að sveitarfélögin keppi við ríkið um jafnmikilvæga stétt og sjúkraliða og manni sínar stofnanir að mestu með fagmenntuðu fólki. Nýliðun Umönnunar- og hjúkrunarstörf eiga ekki uppá pallborðið hjá ungu fólki og þarf að lyfta Grettistaki til að breyta við- horfum þeirra til þessara starfa. Margt gott er við sjúkraliðastarfið en þeir sem þurfa að sjá sér og sín- um farborða hljóta að vega og meta hver launakjör stéttarinnar eru. Það er jafnmikil ábyrgð ráðamanna sem og Sjúkraliða- félagsins að sjá til þess að eðlileg ný- liðun sé innan stéttarinnar. Sjúkraliðafélagið hef- ur lagt mikið að mörkum til að fjölga nýnemum en ekki haft erindi sem erfiði og nú má líta til viðsemjenda okkar, þeirra tími er kominn. Öllum er það ljóst að uppúr 2010 fjölgar öldruðum til muna og ekki minnkar þörfin á dvalar og hjúkrunarrým- um þegar þannig stendur á, en stærsta vandamálið er og verður hvort og þá hvernig starfsfólk mun starfa á slíkum heimilum í framtíðinni. Hvaða metnað hafa ráðamenn til að halda úti þeirri þjónustu sem þeir hyggjast bjóða uppá eftir um það bil tíu ár. Mér sýnist allt stefna niður á við í þeim efnum. Ósamið við sjúkraliða Helga Dögg Sverrisdóttir Kjarabarátta Sjúkraliðar eru og verða ein af undirstöðustétt- um heilbrigðisgeirans, segir Helga Dögg Sverrisdóttir, og fikra sig ávallt meira inn í félagsgeirann. Höfundur er sjúkraliði á Dalbæ Dalvík Nærir og mýkir NÆRINGAROLÍA Mikið úrval af brjóstahöldurum verð frá kr. 700 Mömmubrjósta- haldarar kr. 1900 Úrval af náttfatnaði fyrir börn og fullorðna Nýbýlavegi 12, sími 554 4433 Tölvur og vinnuumhverfi N Á M S A M H L I ‹ A S T A R F I Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 skoli@raf.is · www.raf.is Tölvur og vinnuumhverfi 1 er hnitmiðað nám fyrir byrjendur þar sem farið er vandlega í grunnatriði tölvunotkunar. Lögð er áhersla á að kynna möguleika forritanna og kenna rétt vinnubrögð. Námið hentar þeim vel sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og öðlast hagnýta tölvuþekkingu. 2. H L U T I • Tölvuvinnsla • Fingrasetning • Windows umhverfið • Word ritvinnslan • Excel töflureiknirinn • Internetið • Tölvupóstur • Raunhæf verkefni 1. H L U T I Framhaldsbraut fyrir þá sem hafa lokið við Tölvur og vinnuumhverfi 1 eða hafa góða grunnþekkingu á Windows, Word og Excel og vilja bæta við hæfni sína. Þessi námsbraut hentar þeim vel sem notað hafa tölvur um lengri eða skemmri tíma en vilja auka við þekkingu sína og öðlast meira öryggi. Að námi loknu eiga þátttakendur að vera færir um að leysa flóknari verkefni með hjálp tölvunnar. • Word framhald • Excel framhald • PowerPoint • Umbrotsforrit kynnt Hvort nám fyrir sig er 120 kennslustundir. Námið tekur 12 vikur. Kennt er tvisvar sinnum í viku. • Internetið • Tölvupóstur • Samsteypa: Word/Excel Nánari upplýsingar í síma 568 5010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.