Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 21 GÁMAHÚS BYGGINGAKRANAR STEYPUMÓT Til sölu eða leigu LIEBHERR 71 EC turnkrani árgerð 2000 með öllum fylgibúnaði. Til afhendingar strax. Hagstætt verð! BYGGINGA- KRANAR KIM Jong Il, leiðtogi Norður-Kór- eu, er nú á heimleið eftir heimsókn sína til Moskvu. Á hinu hálfsmán- aðarlanga lestrarferðalagi hins sérvitra kommúnistaleiðtoga, sem kvað kjósa þennan ferðamáta vegna flughræðslu, hafa norður- kóreskir og rússneskir leyniþjón- ustumenn með aðstoð lögreglu á hverjum stað lokað fyrir umferð um vegi og götur nálægt teinunum sem leið lúxuslestar leiðtogans hef- ur legið um. Í lestinni, sem var sér- smíðuð í Japan, eru 21 brynvarinn vagn, innréttaðir með öllum hugs- anlegum nútímaþægindum. Kim Jong Il mun ekki eiga langt að sækja flughræðsluna. Faðir hans, Kim Il Sung, hætti sér víst aldrei upp í flugvél af ótta við bana- tilræði. Það er lífhræðsla sem liggur að baki sérvizkulegum háttum margra einræðisherra, eftir því sem greint er frá í þýzka dag- blaðinu Welt am Sonntag. Þannig lætur Saddam Hussein Íraksleið- togi alltaf nokkur hundruð ná- kvæmlega eins lúxusbíla aka þá leið sem hann þarf að fara um við opinber tækifæri, svo að ekki sé hægt að sjá í hvaða bíl valdhafinn sjálfur sitji. Er Saddams var vænzt í opinbera heimsókn til Jórdaníu fyrir nokkru varð Hussein þáver- andi Jórdaníukonungur að láta sér lynda að fylgjast með fjöldanum öllum af tómum farþegaflugvélum lenda unz Saddam birtist loks út úr yfirlætislítilli þotu. Saddam Hussein gistir sjaldan í einhverri hinna 60 halla sem hann hefur látið reisa sér. Lífhræðslan rekur hann til að nátta frekar hjá óbreyttum landsmönnum sínum, jafnvel í tjaldi úti í eyðimörkinni. Á lúxusinn lætur hann þó ekki skorta frekar en flestir aðrir ein- ræðisherrar; hann lætur færa sér nýja mjólk úr spenum hvítra kam- eldýra með þyrlu á hverjum morgni. Sagt er að hann eigi í fata- skápnum yfir 200 sérsaumuð tízku- jakkaföt og reyki Havana-vindla. Oft lætur Saddam tvífara koma op- inberlega fram í sinn stað og hann hefur dreymt upphátt um að láta einrækta sig. Muammar Gaddafi Líbýuleið- togi er svo snjall að tengja per- sónulegt öryggi sitt við persónuleg þægindi með því að láta 40 sér- þjálfaðar konur þjóna sér sem líf- verði. Gaddafi hefur af hégómagirnd ekki aðeins látið græða hár í sí- hækkandi kollvikin, heldur lætur hann ítalska tízkujöfra sjá um að sauma á sig alla einkennisbún- ingana sem hann klæðist. Er hann vaknaði einn daginn í loftkældu be- dúínatjaldi sínu fann hann hjá sér köllun til að láta að sér kveða á sviði bókmenntafræði og sagðist hafa gert þá merku uppgötvun, að skáldið William Shakespeare hefði í rauninni verið arabi sem hét „Sheik Spear“. Hjá járnbrautaáhugamanninum Kim Jong Il má annars segja að stórmennskubrjálæðið sé í ættinni. Faðir hans Kim Il Sung heitinn lét á sínum tíma útbúa handa sér sæng fyllta dúninum af 700.000 spörfuglum. Er einræðisherrann var kominn á efri ár lét hann dæla blóði úr hreinum meyjum undir 25 ára aldri í æðar sér, í þeirri trú að það hjálpaði honum að ganga í end- urnýjun lífdaga. Sín er hver sérvizkan Hin sérkennilega lest- arferð Kim Jong Il um Rússland er enn eitt dæmið um sérvizku lífhræddra einræðis- herra. Reuters Kim Jong Il þiggur brauð úr hendi þjóðbúningaklæddra stúlkna í Omsk í Síberíu. ED Hammer, 45 ára gamall banda- rískur flugmaður, lagar annan gervifótinn sem hann hyggst láta bera sig upp á tind Everest-fjalls, hæsta fjalls í heimi, í Katmandú í Nepal í gær. Hammer ætlar sér að verða fyrsti fótalausi maðurinn til að komast á tindinn. Fæturna missti hann í flugslysi. Reuters Fótalaus á Everest RISAPÖNDUM í Kína mun fjölga á næstu mánuðum svo um munar. Í uppeldisstöðvum í suðvesturhluta Kína eru þrettán pandabirnur eigi einsamlar og búist er við að þær skili afkvæmum í heiminn á næstu mánuðum. Hugsanlega eiga ein- hverjar þeirra von á tvíburum og má því búast við allt að tuttugu nýj- um risapöndum. Risapandan er ein þeirra dýra- tegunda sem er í hvað mestri út- rýmingarhættu og talið er að færri en 1.000 villtir birnir séu á lífi. Þeim hefur farið ört fækkandi, einkum vegna ágangs manna á náttúruleg heimkynni bjarnanna. Einnig háir það tegundinni hve hægt pandabirnir fjölga sér sem og matvendni þeirra, en þeir leggja sér ekki annað en bambusstilki til munns. Kínversk stjórnvöld hafa gert hvað þau geta til að vernda pöndurnar og eru uppeldisstöðvarn- ar hluti af þeirri viðleitni. Pöndum fjölgar Beijing. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.