Morgunblaðið - 14.08.2001, Qupperneq 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
,-
./ 0
!
" #
$
!
% %
!
" #$!%&' &
' '
& $
() !%&'&&
*+!, -. !/+ # +"& (
&)
0!%&'1 2) #& ) &
3# !#4 56& 4 &* +,(
&" %-
3# #'!4 !$!%&' &.
%
&/
% 7" 589 !4 &* "0 &)
:6& #4 56& 4 &* ,+,(
&" %-
3# #'!49# &*1 2
&3
()''"'; !&* 4 & )
%
5( )* +,-./00
0!%&'1 2) #& ) &
<& !!&2% *1 2%
&6!%
<6"# ; &'& 0 &6!%
=/ &" 3
&6!%
*#'!* &) 78
&
<6%; &" &
>??4@ 7 ! 8#&)
8 &
A' !#&*1$1 &(
B!!$ +# #&
9
&
C'6!49'&
&
8 !' & 7 8
:&
%
( )* +12,-./0012312*14,-5*-)6*-137+52
7 ? # &"
!0$- &
!CD) ) C ' &*
,+
: &(
=/#! '#8&78
&
1&+ "5!' &3 (;
,&
!CD) )! "*,'!%!&*
,+
: &(
<!!!%"!$ +&" #
'* , ,&
,
!CD) )4 #'# &*
,+
: &(
1%% %C E*+; 1%%!&&6!%
< %%! E7 !!+% &&6!%
F !&< (
(
&6!%
%
51)8**9:*6,-1*037+52
" #$!%&' &
' '
& $
() !%&'&&
*+!, -. !/+ # +"& (
&)
3# !#4 56& 4 &* +,(
&" %-
3# #'!4 !$!%&' &.
%
&/
% 7" 589 !4 &* "0 &)
:6& #4 56& 4 &* ,+,(
&" %-
3# #'!49# &*1 2
&3
()''"'; !&* 4 & )
G 9 C'6!49'&'<
%
(; *1
&+(
3; <
; =>
%
)-
%
;(=>>?,@ %
)- %
)-!
% , A#
# 1%
; B
A - # ,
1+ ,-
./ !% %
* C
/% ! &% # "
!
9
"
%
5( )* +,-./00)?@A
"4!+"/+ # +"&&9 G +# !E76&
$!&2% '
&; $,
76& !# #& (;
% &
H!!4 &C9
&
%
57B6 C-52,-*05286**6*-12
B !1 ' ##)E--% &9( )
&3
B !1 ' ##)E---% &9( )
&3
(4 !#& &" " & ;% /
H +# !499!&) A &
> %"6"#%)!& < 1
&* 6!%
< < !7 ! ;4 #'"#&9% 9 ; &* 6!%
Á DÖGUNUM komu út tvær nýj-
ar bækur í flokki vasabrotsbóka
Vöku-Helgafells en það eru Völuspá
og úrval úr ljóðum Steins Steinarr.
Sigríður Rögnvaldsdóttir annaðist
útgáfu hins ágæta þúsund ára kvæð-
is, Völuspár; samdi aðgengilegar
skýringar með hliðsjón af fyrri skýr-
ingum Sigurðar Nordals, Ólafs
Briem og Gísla Sigurðssonar og rit-
aði hnitmiðaðan og fræðandi for-
mála. Handhæg útgáfa á Völuspá er
gleðiefni og höfðar væntanlega til
ferðamanna, erlenda sem innlenda,
enda Völuspá næstum því eins þjóð-
leg og lopapeysan (bara miklu ódýr-
ari).
Að sigra heiminn og fleiri ljóð er
úrval ljóða Steins Steinarr í ritstjórn
Valgerðar Benediktsdóttur sem
skrifar stuttan en gagnmerkan for-
mála. Þar er vikið að róttækni Steins
framan af skáldaferli og fjallað stutt-
lega um módernískar nýjungar í
ljóðabálknum fræga, Tímanum og
vatninu. Á bókarkápu er sagt frá
helstu einkennum hans sem skálds:
kaldhæðni, dulúð og efahyggju. Það
hefur örugglega verið erfitt að velja
ljóð í þessa litlu bók, svo mörg eru
snilldarverk Steins. Í bókina hafa
ratað alls 57 ljóð sem troðið er á 70
blaðsíður – en það er auðvitað til-
gangur og eðli vasabrotsbóka að
koma sem mestu efni fyrir á sem
fæstum síðum. Úrvalið gefur því
ágæta mynd af höfundarverki
Steins.
Í sambærilegu ljóðaúrvali, Ljóða-
perlum, eru 32 þekktustu og vinsæl-
ustu ljóð Jónasar Hallgrímssonar.
Valgerður Benediktsdóttir annaðist
einnig þessa útgáfu og ritar alltof
stuttan inngang. Á bókarkápu er
kunnugleg mynd af Jónasi sem hefur
verið skemmtilega stílfærð. Þung-
lynd og bólgin ásjóna hans hefur
gjörbreyst; skáldið er glatt í bragði
og upplitsdjarft og horfir til himins
með „rauðan skúf“ um hálsinn. Þessi
mynd skáldsins er í fullkomnu sam-
ræmi við markmið útgáfunnar: að-
laðandi, notenda- og markaðsvæn.
Útgáfa Vöku-Helgafells á Háva-
málum hefur nú verið endurprentuð.
Pétur Már Ólafsson skrifar ágætan
inngang en Pétur Ástvaldsson tók
saman skýringar við kvæðið sem
byggðar eru á skýringum Ólafs
Briem og Gísla Sigurðssonar. Bók-
ina prýða ýmsar smámyndir, fornar
teikningar og skreytingar. Í Háva-
málum er að finna mikla speki, allt
frá leiðbeiningum um hegðun í kurt-
eisisheimsóknum til gullinna lífs-
reglna og ætti bókin því að vera til á
hverjum bæ. Þá er þessi Hávamála-
útgáfa, líkt og Völuspáin, skemmti-
legur minjagripur um íslensku sögu-
eyjuna og menningarþjóðina sem
þar býr. Væri ekki ráð að koma
henni út í sama broti á ensku, þýsku
og dönsku?
Allar innihalda bækurnar brot af
viðteknum og markaðsvænum
menningararfi. En þær þjóna vel til-
gangi sínum, fara vel í vasa og eru
sérlega handhægar í notkun. Þetta
eru tilvaldar sumarbækur: í tjaldið
eða hjólhýsið, til að skoða í flugvél-
inni, lesa á hótelinu eða leggja yfir
andlitið þegar birtan frá sólinni verð-
ur of sterk. Lofsvert er ætíð þegar
fögur og sígild bókmenntaverk verða
aðgengileg, ódýr og eiguleg fyrir
alla, jafnt frækna ferðalanga og þá
sem heima sitja. Þessar vasabækur
fást meira að segja á bensínstöðvum
og standa í rekka við hliðina á klám-
blöðunum í Select-sjoppunum. Von-
andi er hörð samkeppni þar á milli.
Markaðs-
vænar
vasa-
bækur
Steinunn Inga Óttarsdótt ir
BÆKUR
V a s a b æ k u r
Útgefandi: Vaka-Helgafell
1996, 2001.
HÁVAMÁL, VÖLUSPÁ,
LJÓÐAPERLUR,
AÐ SIGRA HEIMINN
OG FLEIRI LJÓÐ
SAGT er að vitleysan sé ekki öll
eins en þegar kemur að Wayans-
bræðrum er hún nú ósköp svipuð. Í
Scary Movie 2, sem er sjálfstætt
framhald kvikmyndarinnar Scary
Movie, sem mér fannst reyndar
nokkuð fyndin og jafnvel beitt á köfl-
um, halda þeir áfram að gera grín að
hryllingsmyndum.
Þessi mynd er þó ekki svipur hjá
sjón, hún er aldeilis ófyndin og út-
þynnt endurtekning á sömu brönd-
urunum, þeir leggja af stað með
söguþráð sem þeir týna eftir hálf-
tímasem er synd því það var sniðugt
hvernig ein úr hópnum var orðin ást-
fangin af óvininum. Einnig virðist
hryllingsmyndaþemað vera frekar
afsökun til að búa til mynd heldur en
að þeir hafi eitthvað um það að segja.
Fjórar aðalsöguhetjur seinustu
myndar birtast nú aftur; dóphausinn
Shorty, samkynhneigði Ray í afneit-
un, fórnarlambið sæta hún Cindy og
ofurýkta svertingjaklisjan Brenda.
Reyndar eru þetta ágætis karakter-
ar í grínmynd og stóðu vel fyrir sínu í
fyrri myndinni, og það hefði verið
gaman að sjá þau halda áfram að
gera það í ferskum atriðum. En með
þessar persónur gildir það sama og
um annað í myndinni, að þeir bræður
taka því sem sjálfgefnu að þessi vit-
leysa virki í annað sinn, án þess að
þeir þurfi að leggja nokkuð á sig.
Í fyrri myndinni var ítrekað gert
grín að öllum hópum samfélagsins
og helst þeirra er minna mega sín,
eins og vangefnu fólki. Nú er það
fatlað eða vanskapað fólk sem þeir
bræður einblína á og það gert með
eindæmum ógeðslegt. Það má dæma
um hversu fyndið og smekklegt það
nú er.
Miðað við listann eru handritshöf-
undarnir ansi margir og dreg ég af
því þá ályktun að Wayans-bræður
hafi hóað í nokkra félaga sína, boðið
þeim upp á pizzu og skrifað niður alla
vitleysuna sem rann upp úr þeim.
Síðan hafi þeir farið að sofa með bros
á vör eftir vel heppnað dagsverk sem
þeir vissu að allir myndu gleypa við
og þeir græða helling á.
Útþynntir brandarar og ógeð
Hildur Loftsdótt ir
KVIKMYNDIR
S t j ö r n u b í ó , R e g n b o g -
a n u m o g L a u g a r á s b í ó
Leikstjórn: Keenen Ivory Wayans.
Handrit: Shawn og Marlon Wayans
og margir til viðbótar.
Aðalhlutverk: Marlon og Shawn
Wayans, Anna Faris, Regina Hall,
Tori Spelling, James DeBello, Kat-
hleen Robertsson, Tim Curry og Ja-
mes Woods. 90 mín. Miramax 2001.
SCARY MOVIE 2 ½
ÁTTA ár eru liðin frá ógnaröldinni
í Júragarðinum á eyjunum Nublar
og Sorna, þar sem klónun risaeðlna
endaði með skelfingu. Síðan hafa eyj-
arnar verið lokaðar allri umferð. Þá
koma til sögunnar Paul og Amanda
Kirby (William H. Macy og Téa
Leoni), foreldrar piltsins Erics sem
stalst til Sornu fyrir nokkrum vikum
og er týndur. Þau gabba Dr. Grant
(Sam Neill), einn vísindamanninn
sem kom við sögu Júragarðsins, að
koma með þeim til eyjarinnar til
halds og trausts.
Í stuttu máli fer allt úrskeiðis sem
farið getur. Doktorinn og þeir af leið-
angrinum sem lifa af fyrstu árás risa-
eðlnanna vafra um eyjuna í leit að
Eric og síðan að undankomuleið. Á
meðan gera hinar forsögulegu
ófreskjur, af öllum stærðum og gerð-
um, hvert áhlaupið á eftir öðru. Hóp-
urinn minnkar óðum og dugar ekk-
ert minna en flugher og floti
Bandaríkjanna til að heimta mann-
skapinn úr helju.
Þriðji kaflinn gefur þeim fyrsta lít-
ið eftir og er mikið mun betri en The
Lost World sem kemur á milli þeirra.
Sagan er viðstöðulaus framvinda þar
sem ein skelfingin tekur við af ann-
arri. Ekkert ýkja merkilegt né frum-
legt þar sem við höfum séð allt sam-
an áður. Upp á móti vegur að allt er
ljómandi vel gert undir stjórn hins
bráðsnjalla Joe Johnston sem keyrir
atburðarásina áfram af miklum móð
og setur upp fjölmargar æsilegar
senur. Þær eru þó farnar að gerast
leiðigjarnar undir lokin sem eru, vel
að merkja, í ódýrari kantinum.
Skemmtilega samvalinn leikhópur
lífgar upp á sakirnar og svo að sjá
sem brotthvarf Sir Richards Atten-
borough, Jeffs Goldblum og Lauru
Dern (að mestu leyti), sé til mikilla
bóta. Þau Neill, Leoni, Macy og
Allessandro Nivola eru öll hin fram-
bærilegustu og gera, ásamt snagg-
aralegri leikstjórn og brellum, gamla
lummu að góðri afþreyingu.
Á forboðinni eyju
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó , L a u g -
a r á s b í ó , B í ó h ö l l i n ,
B o r g a r b í ó A k u r e y r i .
Leikstjóri: Joe Johnston. Handrits-
höfundar: Peter Buchman, Alex-
ander Payne og Jim Thomas.
Tónskáld: Don Davis. Kvikmynda-
tökustjóri: Shelly Johnson. Aðal-
leikendur: Sam Neill, William H.
Macy, Téa Leoni, Allessandro
Nivola, Trevor Morgan, Michael
Jeter, John Diehl og Bruce A.
Young. Sýningartími 90 mín.
Bandarísk. Universal 2001.
JURASSIC PARK III .
1/2
NÝTT fjölnota listhús, E-541 List-
hús, er komið á göturnar, en það
er appelsínugult VW-Rúgbrauð
árgerð 1978. Umsjónarmenn og
hugmyndafræðingar E-541 List-
húss eru Áslaug Thorlacius og
Finnur Arnar Arnarson.
Í fréttatilkynningu segir að
hugmyndin að baki listhúsinu sé
fremur að hýsa listræn augnablik
en langar og leiðinlegar kyrr-
stæðar sýningar. Yfirferð, snerpa
og sveigjanleiki eru þess helstu
kostir. Hreinn Friðfinnsson
myndlistarmaður reið á vaðið
þegar listhúsið mætti á opnun
sýningar hans í Ljósaklifi í Hafn-
arfirði sl. laugardag.
E-541 Listhús.
Listhús
á hjólum