Morgunblaðið - 14.08.2001, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 45
FYRIRTÆKI
Heildsala
Gjafavöruumboð, sérvara, til sölu.
Upplýsingar í síma 691 0808.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Lúxusíðbúð til leigu
Ný falleg 3ja herb. 100 fm íbúð til leigu í Smár-
anum í Kópavogi. Innangengt í blílskýli, sól-
stofa, svalir og frábært útsýni.
Íbúðin leigist aðeins stofnunum, fyrirtækjum
eða traustum einstaklingum.
Langtímaleiga kemur til greina.
Svar sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Lúxus—11499“ fyrir 17. ágúst nk.
KENNSLA
Stöðupróf
Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins
verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
í ágúst sem hér segir:
Miðvikudaginn 15. ágúst:
Kl. 17.00 Norðurlandamál og franska.
Kl. 19.00 Ítalska, spænska og þýska.
Fimmtudaginn 16. ágúst:
Kl. 17.00 Stærðfræði skv. nýrri námskrá
STÆ 103, STÆ 203 og STÆ 263.
Kl. 19.00 Enska.
Tekið verður á móti skráningu í stöðupróf á
skrifstofu skólans í síma 595 5200 til kl. 12.00
daginn sem próf er haldið.
Prófgjald, kr. 3.500 á hvert próf, greiðist hálf-
tíma fyrir prófið. Í Aðalnámskrá framhaldsskóla
er tekið fram að þessi próf eru ætluð þeim, sem
búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur
verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur
álit menntamálaráðuneytisins um að stöðupróf
skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nem-
endur sem fallið hafa á annar- eða bekkjar-
prófi.
Rektor.
ÞJÓNUSTA
Gluggaviðgerðir
Smíðum glugga og komum þeim fyrir, ef óskað
er. Gerum tilboð. Klæðum einnig bárujárnshús.
Friðgeir og Hjalti
Símar 869 1442 og 581 4906.
Geymið auglýsinguna.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Matvælavinnsla
88 fm húsnæði ásamt frysti, kæli og ýmsum
tækjum til leigu í vesturbæ Kópavogs. Tilvalið
fyrir vinnslu eða veislueldhús.
Upplýsingar í síma 8925611.
TILKYNNINGAR
Drög að tillögu að
matsáætlun
kísilgúrvinnslu úr
Ytriflóa Mývatns
Hafið er matsferli vegna fyrirhugaðrar
stækkunar á núverandi námusvæði
Kísiliðjunnar í Ytriflóa Mývatns.
Kísiliðjan er framkvæmdaraðili verks-
ins en mat á umhverfisáhrifum kísil-
gúrvinnslu úr Ytriflóa Mývatns verður
unnið hjá Hönnun hf. Á vefsíðu Hönn-
unar http://www.honnun.is eru nú til
kynningar drög að tillögu að matsáætl-
un framkvæmdarinnar.
Óskað er eftir athugasemdum og
ábendingum almennings, ef einhverjar
eru, innan tveggja vikna eða fram til
28. ágúst. Þær skulu sendar til Hönn-
unar hf., Síðumúla 1, 108 Reykjavík eða
á netfangið haukur@honnun.is.
Tilkynning frá
utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, sam-
tökum, stofnunum og einstaklingum viðtals-
tíma við sendiherra Íslands til þess að ræða
hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika
og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan
getur orðið að liði.
Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í London,
verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtu-
daginn 16. ágúst nk. frá kl. 10 til 12 eða eftir
nánara samkomulagi.
Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Grikk-
lands, Hollands, Indlands, Írlands, Maldíveyja,
Nepal og Nígeríu.
Helgi Ágústsson, sendiherra Íslands í Kaup-
mannahöfn, verður til viðtals í utanríkisráðu-
neytinu miðvikudaginn 22. ágúst nk. frá
kl. 9.30—12 eða eftir nánara samkomulagi.
Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Ísrael,
Litháen, Möltu, Rúmeníu og Tyrklands.
Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York, verður til
viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 28.
ágúst nk. frá kl. 10-12 eða eftir nánara samkom-
ulagi. Sendiskrifstofan gegnir hlutverki sendi-
ráðs gagnvart Bahamaeyjum, Barbadoseyjum,
Grenada og Kúbú.
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í
Kanada, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu
miðvikudaginn 29. ágúst nk. kl. 10-12 eða eftir
nánara samkomulagi.
Ingimundur Sigfússon, verðandi sendiherra
Íslands í Japan, verður til viðtals í utanríkisráð-
uneytinu föstudaginn 31. ágúst nk. frá kl. 8-10
eða eftir nánara samkomulagi.
Kornelíus Sigmundsson, sendiherra Íslands
í Helsinki, verður til viðtals fimmtudaginn 6.
september nk. kl. 10-12 eða eftir nánara sam-
komulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig
til Eistlands, Lettlands og Úkraínu.
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands
gagnvart Evrópusambandinu í Brussel, verður
til viðtals í utanríkisráðuneytinu sama dag,
fimmtudaginn 6. september nk. frá kl. 10-12
eða eftir nánara samkomulagi.
Umdæmi sendiráðsins nær til Belgíu, Liechten-
stein og Lúxemborgar.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560 9900
þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
■ www.nudd.is
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristinboðssaln-
um í kvöld og annað kvöld,
þriðjudag og miðvikudag
kl. 20.30. Helgi Hróbjartsson
talar. Allir hjartanlega vel-
komnir. www.sik.is .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
SÍÐDEGIS á föstudag varð bílvelta á
Vesturlandsvegi við Móa. Tveir í bifreið-
inni kenndu eymsla og voru fluttir með
sjúkrabifreið á slysadeild. Lögreglumenn
voru með sérstakt umferðareftirlit á Suð-
urlandsvegi og könnuðu hraðakstur, akst-
ur án öryggisbelta, brot á stöðvunar-
skyldu o.fl. Tveir voru kærðir fyrir að
vera ekki í öryggisbelti og tveir fyrir brot
á stöðvunarskyldu.
Á föstudagskvöld var tilkynnt um að
bifreið hefði verið ekið á ljósastaur á
Miklubraut við aðrein að Reykjanesbraut.
Ökumaður var fluttur af lögreglu á slysa-
deild til skoðunar en mun lítt meiddur.
Um hádegi á laugardag var bifreið ekið
í gegnum rúðu í húsi við Fossaleyni.
Þarna höfðu ung börn tekið bifreiðina úr
gír, þannig að hún rann af stað og inn um
glugga hjá fyrirtæki.
Mynd stolið af
myndlistarsýningu
Eftir hádegi á föstudag var tilkynnt um
að stolið hefði verið akrýlmynd af Bláa
lóninu af myndlistarsýningu í Laugardals-
höll. Þá var tilkynnt um þjófnað á vörum
úr tollvörugeymslu við Héðinsgötu.
Á föstudagskvöld fannst smávegis af
fíkniefnum í fórum manns í austurborg-
inni.
Leitað var á heimili hans og fundust
cannabisplöntur og fleira. Aðfaranótt
laugardags varð vinnuslys er verið var að
taka niður undirstöður brúa á Reykjanes-
braut/Breiðholtsbraut er undirstöðurnar
hrundu. Þarna höfðu 18 starfsmenn verið
uppi á bitum sem féllu niður. Tveir starfs-
menn slösuðust, annar kvartaði um eymsl
í hálsi en hinn var með brotna rist. Þeim
var ekið af starfsmanni á slysadeild.
Þá óskaði ung kona aðstoðar vegna lík-
amsárásar í trjágöngum á háskólasvæðinu
við Sæmundargötu. Konan hafði verið á
gangi þegar ungur karlmaður réðst á
hana. Hann flúði af vettvangi þegar konan
öskraði á hjálp. Maðurinn fannst ekki
þrátt fyrir talsverða leit.
Á laugardagsmorgun tilkynnti vegfar-
andi um tvo menn sem höfðu verið að
skemma bifreiðar við Klapparstíg. Menn-
irnir voru handteknir og færðir í fanga-
geymslu. Miklar skemmdir voru á báðum
bifreiðunum.
Þá var tilkynnt um innbrot í kaffihús
nálægt miðbænum. Þar var brotin rúða,
farið í sjóðsvél og stolið nokkru af pen-
ingum. Unnin voru skemmdarverk á
stjórnborði moldarhörpuvélar við Gufunes
og verulegu tjóni valdið.
Síðdegis á laugardag var maður stöðv-
aður í verslun í Vesturbænum en hann
hafði tekið vörur að andvirði 55.000 kr.
Maðurinn var handtekinn og færður á lög-
reglustöð.
Á laugardagskvöld var tilkynnt um inn-
brot i fyrirtæki í Höfðahverfi. Farið var
inn um glugga og stolið mjög verðmætum
tölvubúnaði. Kl. 1 aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um reyk og brunakerfi í
gangi í fyrirtæki í Vogahverfi. Í ljós kom
að freon lak af kælikerfi. Mikill reykur
var á staðnum en slökkviliðið reykræsti.
Átök á veitingahúsi
Átök urðu í veitingahúsi nálægt mið-
borginni þar sem hent var flösku í höfuð
stúlku og á eftir var maður sleginn í ennið
með öskubakka. Þau voru bæði með
skurði og stúlkan var flutt með sjúkra-
bifreið en lögregla ók manninum á slysa-
deild. Árásarmaðurinn var færður í fanga-
móttöku. Auk þessa var mikill erill um
nóttina vegna ölvunar, hávaða og slags-
mála en meiðsli voru yfirleitt minni hátt-
ar.
Átök urðu á Lækjartorgi á sunnudags-
morgun en þar hafði verið ráðist á mann,
hann skallaður, sleginn og síðan stigið á
háls hans. Hann var með skurð á enni, lík-
lega nefbrotinn, skurð á nefi og brotið upp
úr tönn. Maðurinn var fluttur á slysadeild
og síðan heim. Árásarmaðurinn og stúlka
voru handtekin. Upphaf átakanna var sagt
vera deilur á milli hins slasaða og stúlk-
unnar.
Um helgina var brotist inn í margar bif-
reiðar víðsvegar um borgina og stolið úr
þeim mismiklum verðmætum. Þess vegna
vill lögreglan enn einu sinni minna á að
menn gangi vel frá bílum sínum og skilji
ekki eftir í þeim neitt sem hægt er að taka
með sér. Bent er á leiðbeiningar á heima-
síðu lögreglunnar: www.logreglan.is
Dagbók lögreglunnar
Mikið um inn-
brot í bíla
10.–13. ágúst