Morgunblaðið - 14.08.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 14.08.2001, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞESSI texti í lagi Bubba Morthens kom óneitanlega upp í hugann eftir viðskipti mín við Jón Egilsson hdl. Ég hélt að til væri eitthvert almennt sið- ferði sem lögfræðingar, ekki síst, þyrftu að fara eftir. Þannig var að ég skrifaði út 75.000 króna ávísun og af- henti kunningja mínum, að ég taldi traustum, sem ekki á ávísanahefti, og átti hún að notast sem eins konar trygging vegna viðskipta kunningj- ans við Jón, en hann var að kaupa mótorhjól. Kunninginn lofaði að ávís- unin færi ekki „inn“, hann átti von á peningum annars staðar frá, sem myndu notast til að fá ávísunina aftur frá Jóni litlu síðar, en kunninginn taldi mér trú um að Jón hefði sam- þykkt þessa tilhögun. Auðvitað má segja að það hafi verið mjög einfeldn- ingslegt af mér að gera þetta, en nokkrum dögum eftir að ávísunin var dagsett, en hún var dagsett u.þ.b. tíu daga fram í tímann frá því hún var skrifuð, hringir Jón Egilsson hdl. í mig og segir mér að hann hafi frá mér innstæðulausa ávísun, sem hann vilji fá borgaða, en við Jón könnuðumst aðeins hvor við annan frá fyrri tíð. Ég segi honum hvernig í pottinn sé búið og ég muni tala við kunningjann og biðja hann að útkljá þetta mál við Jón. Ég hringi síðan í kunningjann og hann lofar mér að tala við Jón og leysa málið þannig að ég bíði ekki skaða af. Þremur dögum seinna fæ ég bréf frá lögmannsstofu Jóns Egils- sonar hdl. og er krafinn um greiðslu á 104.202 krónum, sem er þá vegna ávísunarinnar ásamt innheimtuþókn- un o.fl. Ég fer á fund Jóns og segi honum, að mér finnist miður hvernig framganga hans sé í þessu máli. Mér hefði fundist eðlilegt að Jón Egilsson varaði mig við því, þótt ekki væri nema vegna gamals kunningsskapar, að hann myndi senda ávísunina til innheimtu hjá Lögmannsstofu Jóns Egilssonar hdl. og þar með myndi bætast við 30.000 króna innheimtu- þóknun til hans sjálfs vegna nokkurra daga sem hann lá með ávísunina fram yfir dagsetningu hennar. Ég vildi semja um greiðslu ávísunarinnar, þar sem ég gerði ljósa stöðuna sem ég var búinn að koma mér í, en taldi ekki óeðlilegt að hann sleppti 29.202 króna þóknun sér til handa vegna þess hvernig í pottinn væri búið, jafnvel þótt hann hefði látið stelpurnar á skrifstofunni sinni útbúa innheimtu- bréf til að senda mér. Hann taldi það af og frá en vegna sérstakrar velvild- ar væri hann tilbúinn að fella niður helminginn af innheimtuþóknuninni, gegn því að greitt væri á stundinni. Mér til furðu kaus Jón að ræða þetta mál í móttökunni/afgreiðslunni á skrifstofu sinni, þar sem meðal ann- ars skrifstofustúlka hans blandaði sér í umræðurnar og lýsti þeirri skoðun sinni að húsbóndi sinn væri alls ekki ósanngjarn í þessu máli. Það getur verið að innheimtulög- fræðingurinn Jón Egilsson hafi lögin sín megin, en í mínum huga er sið- ferðið ansi vafasamt. Kristján Kristjánsson, Löngubrekku 5, Kópavogi. Hafa lögfræðingar sál? Frá Kristjáni Kristjánssyni: FYRIR 3 árum eða svo stóðu bæj- aryfirvöld hér í Garðabæ fyrir her- ferð til að fá fólk til að flokka sorp og draga úr sorpmagni eftir mætti svo hægt væri að komast af með að hirða sorpið hálfsmánaðarlega sem myndi spara bæjarfélaginu verulegar fjár- hæðir. Svo komu þessar langþráðu stóru ruslatunnur sem tæmdar voru á hálfsmánaðar fresti en það var ekki lengi unað við það en okkur sem lögðum í þá framkvæmd að safna pappír og gleri í sinnhvorn pokann og grafa holu úti í garði fyrir græn- metis- og brauðafganga nægði þetta alveg. Þessi þarfa ábending um sorp- flokkun og innræting umhverfis- væns hugsunarháttar hefur svo komið frá bænum af og til síðan og kynt enn frekar undir ánægju minni með bæjaryfirvöld. Svona séu þau að berjast þetta við sauðsvartan almúg- ann og reyna að höfða til skynsemi fólks í stað þess að ganga hreint til verks og vigta sorpið og láta fólk borga umfram það sem eðlilegt get- ur talist miðað við lágmarksflokkun. En viti menn, hvað kemur svo uppúr kafinu? Það er nefnilega ekki flokkað sorp á einni einustu stofnun á vegum bæjarins sjálfs. Á leikskól- unum eru börnin látin henda brauð- og ávaxtaafgöngum saman við papp- írinn sem er það rusl sem langmest fellur til af eins og á flestum stofn- unum bæjarins. Í einum skólanum hafði að vísu verið gerð tilraun með að halda pappírnum sér og þá aðeins hjá kennurunum og starfsliði skól- ans en það reyndist of flókið og var fljótlega hætt, það þurfti víst í þokkabót að flokka pappírinn í tvo flokka sem reyndist fólkinu svona geysilega snúið og erfitt viðureignar, rétt eins og starfsliðinu á bæjarskrif- stofunum. Þar hafði lítillega verið byrjað að flokka sorp áður en flutt var í nýja húsnæðið en var svo hætt og síðan hefur ekki verið borið við að setja pappír í sérgáma. Það væri kannski von til að fólk næði tökum á sorpflokkun ef byrjað væri strax að venja það við á leik- skólunum. Ég átti ekki von á þessu skeytingarleysi á bæjarskrifstofun- um þar sem bæjarstjórinn er ung kona en konur á aldrinum 30–45 ára eru víst sá þjóðfélagshópur sem er hvað mest meðvitaður um umhverf- ismál. Það voru til dæmis konur á þessum aldri sem fyrst byrjuðu að kaupa blýlaust bensín á sínum tíma. Það er sorglegt ef þessar ungu konur í valdastöðum eins og Ásdís Halla og Siv Friðleifsdóttir reynast svo ekki nútímalegri í hugsun og framkvæmd hvað umhverfismál varðar en hver annar forpokaður karlfauskur kominn yfir miðjan ald- ur. ÁSDÍS ARTHÚRSDÓTTIR Ægisgrund 10, Garðabæ. Sorpflokkun er umhverfisvæn Frá Ásdísi Arthúrsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.