Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isIpswich vill fá Eggert
til reynslu / B1
Íslendingar og Pólverjar skildu
með skiptan hlut / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli hefur hert eftirlit með inn-
flutningi á ostum til landsins, en
bannað er að flytja inn osta sem
gerðir eru úr ógerilsneyddri
mjólk. Að sögn Einars Birgis Ey-
mundssonar, tollvarðar hjá toll-
gæslunni á Keflavíkurflugvelli,
jókst eftirlit með innflutningi ost-
anna eftir að gin- og klaufaveiki-
faraldurinn kom upp í Evrópu síð-
astliðið vor.
Einar segir að nokkuð sé um að
fólk grípi með sér tvö, þrjú ost-
stykki þegar komið er til landsins,
hver einstaklingur sé yfirleitt ekki
með mikið magn með sér en margt
smátt geri eitt stórt. Tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli hafi gert þó
nokkurt magn osta upptækt á und-
anförnum mánuðum.
Ostar úr
ógeril-
sneyddri
mjólk gerð-
ir upptækir
MAÐUR, sem slasaðist í bílveltu í
Kelduhverfi í fyrradag, lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri í gær-
morgun. Maðurinn var farþegi í bif-
reið á vesturleið, frá Kópaskeri í átt
að Húsavík, þegar slysið átti sér
stað. Hann hét Kjartan Jónsson og
var 84 ára, bóndi á Brekku í Núpa-
sveit í Öxarfjarðarhreppi.
Lést eftir
bílveltu
FJÖGURRA ára gamall ís-
lenskur drengur lést er hann
varð fyrir bifreið í Gautaborg
rétt eftir hádegi á mánudag.
Hann lést samstundis. Dreng-
urinn hét Breki Eiríksson og
var fæddur 5. febrúar 1997.
Hann hafði verið búsettur í
Gautaborg um tveggja ára
skeið.
Íslenskur
drengur lést
í Gautaborg
♦ ♦ ♦
RÍKISSTJÓRNIN hefur beint því
til ráðuneytanna að yfirfara út-
gjalda- og fjárfestingaráætlanir sín-
ar með tilliti til þess að draga úr út-
gjöldum vegna fyrirsjáanlegs
samdráttar í tekjum ríkissjóðs í ár
vegna minnkandi veltu í þjóðfélag-
inu.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að gengið hefði verið frá öllum
helstu atriðum fjárlagagerðarinnar
í apríl síðastliðnum en nú væri unnið
að því að endurmeta stöðuna í ljósi
efnahagsþróunarinnar frá því í vor.
Staðan væri verri en hún hefði verið
vegna minni veltu í þjóðfélaginu og
minni tekna af veltusköttum af þeim
sökum. Þetta hefði komið fram í
mánaðarlegum uppgjörum ríkis-
sjóðs að undanförnu. Út af fyrir sig
væru þetta bara jákvæð teikn um
það að þjóðarbúskapurinn leitaði
jafnvægis, innflutningur drægist
saman og viðskiptahallinn minnk-
aði. Hins vegar væri einnig um að
ræða aukningu á útgjaldahliðinni
sem hefði ekki að öllu leyti verið fyr-
irséð í vor en þar væri t.a.m. um að
ræða nýja löggjöf, áhrif kjarasamn-
inga og gengisbreytinga á ýmsa
þætti ríkisrekstrarins. Það væri
hefðbundið að leggja síðustu hönd á
fjárlagagerðina á þessum árstíma
og vonandi yrði hægt að leggja loka-
hönd á þessa hluti á næstu vikum.
„Vegna þessa hefur ríkisstjórnin
ákveðið að fela ráðuneytunum að
koma fram með ákveðnar sparnað-
arhugmyndir bæði í rekstri og fjár-
festingum,“ sagði Geir enn fremur.
Hann sagði að þrátt fyrir þessa
sveiflu í þjóðarbúskapnum nú, sem
alltaf mætti búast við, stæði ríkis-
sjóður mjög vel og væri vel í stakk
búinn til þess að mæta henni og það
væri grundvallarbreyting frá því
sem verið hefði.
Geir sagði aðspurður að enn væru
í skoðun tillögur um breytingar á
skattalögum en niðurstaða lægi
ekki fyrir í þeim efnum. Þar væri
meðal annars um að ræða viðmið-
anir vegna hátekjuskatts, eigna-
skatta og ekki síst tekjuskatta fyr-
irtækja.
Hann benti jafnframt á að nú þeg-
ar hefðu verið teknar ákvarðanir
um skattalækkanir sem að hluta til
ættu eftir að koma til framkvæmda.
Þannig væri til dæmis háttað um
millifærslu persónuafsláttar milli
hjóna sem hækkaði í 90% í ár og
færi í 100% á næstu tveimur árum
auk þess sem ákveðið hefði verið í
tengslum við endurskoðun kjara-
samninga í vetur að lækka tekju-
skattshlutfallið um 0,33% á næsta
ári.
Ráðuneytunum falið að leggja
fram sparnaðartillögur
SÓLVEIG Pétursdóttir, dómsmála-
ráðherra, situr í dag og á morgun
fund með dómsmálaráðherrum
Norðurlanda á Álandseyjum en ráð-
herrarnir munu ræða um afbrot
barna og ungmenna, skilvirkni dóm-
stóla og sameiginlegar aðgerðir
gegn verslun með konur í samvinnu
við baltnesku löndin.
Einnig verður fjallað um óeirðirn-
ar sem brutust út í Gautaborg þegar
leiðtogar Evrópusambandsins komu
þar nýlega saman og leiðir til að taka
á slíkum atburðum. Að sögn Ingva
Hrafns Óskarssonar, aðstoðarmanns
dómsmálaráðherra, munu Svíar
miðla af reynslu sinni frá Gautaborg
og lýsa því til hvaða aðgerða þeir
hyggist grípa í kjölfarið.
Ræða aðgerðir
gegn óeirðum
og verslun
með konur
LÖGREGLAN í Borgarnesi telur
aðkallandi að koma upp einhvers
konar æfingaakstursbraut fyrir er-
lenda ferðamenn, áður en þeir leigja
bíl og halda út á þjóðvegi landsins.
Ungt þýskt par velti bílaleigubíl sem
það var á rétt norðan við Hestháls á
Borgarfjarðarbraut um klukkan
hálfníu í fyrrakvöld.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi slapp parið ómeitt en bílaleigu-
bíllinn, einn svokallaðra smájeppa,
er töluvert skemmdur.
Alltof algengt að ferðamenn
velti bílum í lausamöl
Þá valt bíll í Jökuldal um hádeg-
isbilið í gær. Að sögn lögreglunnar á
Seyðisfirði voru fjórir í bílnum, ung
erlend kona og þrjú börn hennar og
sluppu þau öll ómeidd. Bíllinn, sem
var bílaleigubíll, er mikið skemmd-
ur.
Lögreglan í Borgarnesi segir það
alltof algengt að ferðamenn velti bíl-
um sínum í lausamöl og bendir á að
oftast séu útlendingar ekki vanir
hinum íslensku akstursskilyrðum.
Hún segir að hægt væri að sameina
æfingabraut fyrir ferðamenn og
unga ökumenn, þar sem yrði að finna
ýmis erfið akstursskilyrði, eins og til
dæmis lausamöl og hálku. „Þetta eru
aðstæður sem útlendingar eru óvan-
ir og þekkja ekki. Það skapast ekki
nein reynsla fyrr en þeir lenda í
þessu og þá er það of seint. Það hef-
ur verið í bígerð að setja upp svona
æfingaakstursbraut og ég veit ekki
betur en ein slík sé í undirbúningi
fyrir unga ökumenn og jafnvel eldri
sem vilja æfa sig í hálku og öðru. En
hugmyndin er að útlendingum yrði
beint inn á brautina líka,“ segir
Theodór Þórðarson, varðstjóri í
Borgarnesi.
Þær upplýsingar fengust hjá Öku-
kennarafélagi Íslands að staðið hafi
til að koma upp svona braut í mörg
ár en loksins virðist málið í höfn, þar
sem samningar hafi verið gerðir
meðal annars við Reykjavíkurborg
um land fyrir slíkt svæði. Svæðið
yrði þá ætlað fyrir unga ökumenn og
alla þá sem telja sig þurfa á æfingu
að halda. Sérstök hálkubraut yrði á
staðnum og malarvegur.
Vantar æfingabraut fyrir
akstur í lausamöl og hálku
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra kom í gær til Kosovo en til-
gangur ferðarinnar er að hitta að
máli ýmsa ráðamenn alþjóðastofn-
ana og eiga fund með Íslendingum
sem starfa að friðargæslu og upp-
byggingu í héraðinu. Í för með Hall-
dóri eru Stefán Skjaldarson, skrif-
stofustjóri alþjóðaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, Gunnar
Pálsson, sendiherra Íslands hjá Atl-
antshafsbandalaginu (NATO), og
Auðunn Atlason, sem fer með mál-
efni íslensku friðargæslunnar.
Halldór heimsótti í gær höfuð-
stöðvar Evrópusambandsins í Kos-
ovo og hitti síðan að máli Thorstein
Skiaker, yfirmann KFOR-fjöl-
þjóðahersins sem lýtur yfirstjórn
NATO. Um fjörutíu þúsund her-
menn vinna undir stjórn KFOR að
því að tryggja öryggi íbúa í Kosovo.
Halldór átti síðan kvöldverð með
þeim Íslendingum sem búsettir eru í
Kosovo. Nú eru alls sautján Íslend-
ingar í Kosovo en þar af starfa sjö
þeirra á vegum utanríkisráðuneyt-
isins hjá ýmsum alþjóðastofnunum.
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði viljað koma
til Kosovo til þess að átta sig betur á
hvernig standa mætti að málum þar
í framtíðinni. „Hér er veruleg starf-
semi sem Íslendingar koma að, og
það er okkar ætlan að auka þessa
starfsemi. Það er afskaplega mik-
ilvægt að þar takist vel til.“ Halldór
sagði þetta heppilegan tíma til að
heimsækja Kosovo. Verið væri að
ganga frá friðarsamkomulagi í
Makedóníu en það hefði mikil áhrif á
gang mála í Kosovo. „Mér hefur þess
vegna fundist sem ég skynjaði stöðu
mála á þessu svæði betur en áður
eftir þær samræður sem ég hef átt í
dag.“ Sagði Halldór að erfitt væri að
sjá hver framvindan yrði á þessu
svæði. Hitt væri hins vegar ljóst að
grundvöllur bjartrar framtíðar væri
sá að friður væri tryggður.
Halldór sagði afskaplega gaman
að hitta Íslendingana sem starfa í
Kosovo. „Ég hef orðið þess áskynja í
dag að störf þeirra eru mikils metin.
Okkar fólk hefur komið sér af-
skaplega vel hér og það yljar alltaf
hjarta landans að vita af því að okk-
ar fólk stendur sig vel á erlendri
grundu.“
Halldór mun í dag hitta að máli
Hans Hækkerup, æðsta yfirmann
Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, en
SÞ hafa farið með stjórn mála í
Kosovo síðan stríðinu í Júgóslavíu
lauk sumarið 1999 og heimsækja
höfuðstöðvar ÖSE.
Utanríkisráðherra
ræddi við Íslend-
inga í Kosovo
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra heimsótti Kosovo í gær og ræddi
við Íslendinga sem þar eru við störf en þar er meðal annarra Kristín
Ástgeirsdóttir, starfsmaður UNIFEM, sem er fremst á myndinni.