Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ HESTARNIR þrír sem hér sjást spókuðu sig á dögunum við fjallið Horn í Hornafirði þegar fréttarit- ari Morgunblaðsins átti þar leið hjá. Á því augnabliki sem myndin var tekin voru hestarnir örlítið annars hugar en hvað það er sem fangaði athygli þeirra skal ósagt látið. Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Veðurblíðu notið í Hornafirði Skólar sameinaðir í Árborg? Hagkvæmur kostur VERIÐ er að skoðahugsanlega sam-einingu grunnskól- anna á Selfossi um þessar mundir. Þorlákur Helga- son, fræðslustjóri Árborg- ar, hefur lagt greinargerð um þetta efni fyrir bæjaryf- irvöld. Hann var spurður hver væri niðurstaða at- hugana hans um þetta efni. „Niðurstaðan er annars vegar að ég tel að það megi lækka rekstrarkostnað um 25 milljónir króna á ári og hins vegar að það gæti styrkt skólastarf að sam- eina skólana.“ – Hvað eru skólarnir margir sem til greina kem- ur að sameina? „Núna eru tveir grunn- skólar á Selfossi og fyrir- hugað er að reisa nýjan skóla í Suð- urbyggð á Selfossi.“ – Er tillaga þín að sameina alla þessa þrjá skóla? „Nei, í fyrstu þá tvo sem þegar eru starfandi. Þeir yrðu saman- lagðir mjög fjölmennir en hins ber að gæta að hluti nemenda sem eru að hefja skólagöngu núna mun flytjast í Suðurbyggðarskólann þegar hann hefur starfsemi. Síðan munu bætast við í þann skóla æ fleiri nemendur þar til hann verður fullskipaður.“ – Hvers vegna koma þetta til umræðu? „Kennaraháskóli Íslands hafði unnið fyrir okkur skýrslu um hag- kvæmni Surðurbyggðarskóla. Þar er lagt til að skólarnir tveir sem fyrir eru verði sameinaðir. Síðan gerði Sigurður Helgason stjórn- sýsluráðgjafi úttekt á skipulagi og stjórnun á fræðslu- og menningar- sviði og ýmsu í hans rökum erum við að byggja á núna.“ – Hvers vegna verða sameinaðir skólar að þínu mati faglega sterk- ari skóli? „Ég tel að það sem þurfi að gera og er í anda nýrra kjarasamninga sé að laða fram þá krafta sem finn- ast í hverjum og einum kennara og fela þeim meiri ábyrgð. Það þarf að styrkja almennt stjórnun og það þarf að byggja meira á sjálfstæði nemendanna og ábyrgð heimil- anna.“ – Hvað áttu við með þessu? „Ég sé fyrir mér að nemendur yrðu ekki lengur njörvaðir niður fast í bekkjardeildir heldur tæki hópur kennara ábyrgð á ákveðnum fjölda nemenda, t.d. úr sama ár- gangi, og þá væru þeir ýmist að vinna einir og sér eða í mismunandi hópum – eftir getu og áhuga. Samt ætti hver einstaklingur að eiga sína heimahöfn.“ – En yrði aukin ábyrgð kennara þá til þess að ábyrgð skólastjóra yrði minni? „Einmitt ekki – en ábyrgð hans yrði fólgin meira í því að vera frum- kvöðull í skólastarfi, ögra í skóla- stefnu og mynda farvegi fyrir þá strauma sem búa í hverjum kenn- ara, hverjum nemanda og hverju heimili.“ – Hvernig sparast þessar 25 milljónir króna? „Sparnaðurinn felst m.a. í stjórnunarþætt- inum. Skólar eru alls staðar að efla stjórnun og það þarf að efla hana. Við getum leyft okkur meira í þeim efnum í einum skóla en í tveimur minni. Síðan felst hagræðing í því að skoða nemendasamfélagið sem heildstætt, þannig að hagræðingin kemur líka fram í kennslunni eins og ég kom inn á áðan – að nem- endur yrðu ekki alltaf í fimm bekkjum heldur kannski einum færri t.d. Þá má nefna hagræðingu í sambandi við sérkennslu. Það þarf alltaf að vera að endurskoða sérkennslumálin, þau eru á sí- felldri hreyfingu. Þá má nefna atriði eins og að í einum skóla er eitt bókasafn, eitt aðalmötuneyti. Innkaup yrðu hagstæðari fyrir stærri heild og þannig mætti telja.“ – Myndi kennurum fækka við sameiningu? „Já, í mínum tillögum fækkar kennurum um 5%.“ – Hvernig hefur almenningur á Selfossi tekið í þessar hugmyndir? „Þetta er ekki ný hugmynd, þetta hefur verið í umræðunni í meira en tvo áratugi en það hafa ekki komið fram beinar tillögur um sameiningu skólanna fyrr. Margir hafa kallað eftir þessu – spurt; af hverju sameinið þið ekki? En breytingar eru alltaf erfiðar og ég legg áherslu á að verði þetta skref stigið þá yrði að vinna þetta með skólunum. Breytingin verður að koma innan frá skólastarfinu. Það er lag núna við nýja kjarasamn- inga, það er verið að boða breyttar áherslur í skólastarfi. Þetta er því í raun hluti af skólaþróun, skóla- starfið er alltaf í gerjun. Svona breytingar verða að vinnast í góðu samstarfi.“ – Getið þið litið til einhverra fyr- irmynda ef af þessu verður? „Ég lít fyrst og fremst til þess að þess- ar breytingar flytji okkur skrefi framar í skólamálum. Það má segja að skólar séu ekki fjöldi nemenda eða kennara. Skóli verður alltaf sá andi sem þar ríkir og sá metnaður sem fyrir hendi er. Þessi atriði vil ég efla. Hér er mjög gott starfsfólk og mik- ill áhugi foreldra á skólastarfi. Ég tel að það sé skynsamlegt að íhuga þennan kost alvarlega einmitt þeg- ar nýir kjarasamningar eru að taka gildi en það gerðist einmitt nú 1. ágúst sl.“ Þorlákur Helgason  Þorlákur Helgason fæddist 24. september 1948 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi 1969 frá Menntaskólanum í Reykjavík og lauk háskólanámi í Svíþjóð í hag- fræði og félagsfræðum. Hann starfaði sem ráðgjafi í skóla- málum í Svíþjóð og sem kennari við Menntaskólann við Hamra- hlíð og Fjölbrautaskóla Suður- lands, þar sem hann var aðstoð- arskólameistari og skólameistari eitt ár. Einnig starfaði hann nokkur ár sem sérfræðingur í menntamála- og utanríkisráðu- neytum og við blaðamennsku. Nú er Þorlákur fræðslustjóri í Ár- borg. Kona hans er Kristjana Sigmundsdóttir félagsráðgjafi. Þau eiga samtals fjögur börn. Það er lag núna við nýja kjarasamninga HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra hefur dæmt ráðningu í stöðu aðstoðarskólastjóra við Grunnskól- ann á Blönduósi vorið 1999 ólögmæta og gert Blönduósbæ að greiða um- sækjanda sem hafnað var 700 þúsund krónur í skaða- og miskabætur ásamt vöxtum. Kennarasamband Íslands stóð að baki málsókn vegna ráðningarinnar. Á heimasíðu Kennarasambandsins kemur fram að stefnandi, sem er kona, var kennari við Grunnskólann á Blönduósi 1991 til 1995 og 1997 til 1999. Hún sótti um starfið ásamt ann- arri konu og tveimur körlum. Bæj- arstjórn réð annan karlanna sem skólastjóri hafði mælt með. Þegar stefnanda var kunnugt um afgreiðslu málsins í bæjarstjórn sagði hún starfi sínu við skólann lausu og tilgreindi sem ástæðu fyrir uppsögninni að karlmaður með minni starfs- og stjórnunarreynslu hefði verið tekinn fram yfir hana við ráðn- ingu í stöðu aðstoðarskólastjóra. Konan taldi ráðninguna ólögmæta og hélt því fram að jafnréttislög hefðu verið brotin. Hún hefði meiri menntun og starfsreynslu en um- sækjandinn sem ráðinn var og gerði hún þær dómkröfur að ráðningin yrði dæmd ólögmæt og Blönduósbæ gert að greiða henni skaða- og miskabæt- ur að fjárhæð tæplega 13 milljónir króna auk vaxta. Dómurinn kemst að þeirri niður- stöðu að hvað menntun snerti hafi stefnandi verulegt forskot fram yfir þann sem ráðinn var. Engra utanað- komandi umsagna hafi verið aflað um þá sem sóttu um starfið. Með þessu hafi Blönduósbær brugðist rann- sóknarskyldu sinni og verði hann að bera hallann af því við úrlausn máls- ins. Jafnréttislög brotin Þá komst dómurinn að þeirri nið- urstöðu að skýra beri jafnréttislög á þann hátt að konu skuli veita starf ef hún er að minnsta kosti jafnt að því komin, að því er varðar menntun og annað sem máli skiptir, og karlmaður sem við hana keppir ef á starfssviðinu eru fáar konur. Með ráðningunni hafi Blönduósbær því brotið gegn þágild- andi jafnréttislögum og sé ráðningin því ólögmæt. Í niðurstöðum dómsins segir að stefnandi hafi orðið fyrir nokkru tjóni við að framhjá henni var gengið við ráðningu í stöðuna. Þykja skaðabæt- ur hennar hæfilega ákveðnar 450.000 krónur auk þess sem miskabætur þykja hæfilega ákveðnar 250 þúsund krónur. Með hliðsjón af niðurstöðu málsins þykir rétt að stefndi greiði stefnanda 400.000 krónur í máls- kostnað. Ráðning aðstoðarskóla- stjóra dæmd ólögmæt SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall- ist á fyrirhugaða vegagerð á Vest- fjarðavegi, 23 km kafla á Barðaströnd milli Eyrar og Vattarness í Reykhóla- hreppi, eins og henni er lýst í mats- skýrslu Vegagerðarinnar sem er framkvæmdaraðili. Kærufrestur á úrskurðinn er til 19. september. Markmið framkvæmdarinnar er að endurbæta Vestfjarðaveg þannig að hann uppfylli kröfur um umferðar- öryggi og bættar samgöngur. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í haust og að þeim ljúki eftir tvö ár. Skipulagsstofnun telur að umhverfis- áhrif fyrirhugaðrar vegalagningar lúti einkum að áberandi skeringum Kollafjarðarmegin í Klettshálsi og nýlagningu vegar gegnum birkikjarr neðan Eyvindargötu í Skálmardal. Segir í niðurstöðum stofnunarinnar að óhjákvæmilegt virðist að skeringar austan í Klettshálsi verði alláberandi, að minnsta kosti fyrstu árin eftir framkvæmdir og ljóst sé að efnistaka á ofanverðum Klettshálsi muni valda töluverðu raski. Lítill gróður sé þó á efnistökusvæðunum samkvæmt gögnum Vegagerðarinnar. Mælist stofnunin til þess að birkikjarri verði sáð eða plantað í núverandi vegstæði í stað þess sem raskast neðan Eyvind- argötu við Skálmardal. Vegagerðin hefur lagt fram upplýs- ingar um tilhögun mótvægisaðgerða og vöktunar sem miða að því að draga úr óæskilegum áhrifum framkvæmd- arinnar á dýralíf, gróður, fornminjar og landslag. Niðurstaða Skipulags- stofnunar um að fallast á fram- kvæmdirnar byggist á því að fram- fylgt verði tilhögun um framkvæmdir og mótvægisaðgerðir sem Vegagerð- in hefur lagt til. Fallist á vegagerð á Vestfjarðavegi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.