Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í FRAMHALDI af opinberri um-
fjöllun um fjárhagslega umsýslu
Árna Johnsen, þáverandi alþingis-
manns og formanns byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins, ákvað Rík-
isendurskoðun hinn 16. júlí s.l. að
taka til athugunar fjárreiður bygg-
ingarnefndarinnar. Einnig var
ákveðið að kanna ýmsa aðra fjár-
hagslega umsýslu Árna Johnsens
vegna annarra viðfangsefna sem
honum hafa verið falin á vegum rík-
isins. Rétt er að geta þess í þessu
sambandi að stofnuninni barst bréf,
dags. 16. júlí 2001, frá forseta Al-
þingis þar sem hann framsendi bréf
Gísla Einarssonar alþingismanns
þar sem óskað er eftir því að gerð
verði bókhalds- og stjórnsýsluút-
tekt á fjárveitingu til Þjóðleikhúss-
ins, nýframkvæmda og viðhalds.
Enn fremur vísast til bréfs for-
sætisráðherra, dags. 20. júlí s.l., til
Ríkisendurskoðunar þar sem hann
ítrekar áður framkomið álit sitt að
vegna eðlis málsins sé nauðsynlegt
að kanna önnur umsýslustörf þing-
mannsins en þau er snúa að bygg-
ingarnefnd Þjóðleikhússins.
Athugun Ríkisendurskoðunar
nær til fjárreiðna vegna eftirtalinna
viðfangsefna:
Byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins árin 1996 til 2001
Byggingar stafkirkju í Vest-
mannaeyjum
Byggingar kirkju Þjóðhildar og
bæjar Eiríks rauða á Grænlandi
Jafnframt var kannað hvort Árni
Johnsen hafi haft með fjárráð að
gera á vegum Vestnorræna ráðsins
og Grænlandssjóðs, ráðstöfun til-
tekinna framlaga á fjárlögum árið
2001 til verkefna, sem Árni hefur
lagt lið, og loks var erlendur ferða-
kostnaður Árna á vegum ýmissa að-
ila hjá hinu opinbera á árunum 1998
til 2001 kannaður.
Við framkvæmd verksins þurfti
stofnunin að afla upplýsinga frá
fjölmörgum aðilum, þ.á m. starfs-
mönnum Þjóðleikhússins, Fram-
kvæmdasýslu ríkisins, Verktakafyr-
irtækinu Ístaki hf., starfsmönnum
menntamálaráðuneytis og forsætis-
ráðuneytis, tæknideild Vestmanna-
eyjakaupstaðar auk Árna Johnsen
sjálfum. Stofnunin þakkar öllum
þessum aðilum fyrir veitta aðstoð
og góða samvinnu.
Ríkisendurskoðun hefur nú lokið
athugun sinni á framangreindum
viðfangsefnum. Í greinargerð þess-
ari er gerð grein fyrir niðurstöðum
stofnunarinnar vegna einstakra
þátta. Ríkisendurskoðun hefur af-
hent embættum ríkissaksóknara og
ríkislögreglustjóra greinargerð
þessa ásamt gögnum til frekari at-
hugunar.
Niðurstöður athugunar á
fjárreiðum byggingarnefndar
Þjóðleikhússins
Verkefni byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins, sem hér er til skoðunar,
snýr að ráðstöfun framlaga End-
urbótasjóðs menningarstofnana til
endurbóta og meiriháttar viðhalds í
Þjóðleikhúsinu á árunum 1996 til
2001. Í nefndinni sátu upphaflega
Árni Johnsen, Stefán Baldursson og
Steindór Guðmundsson en sá síðast
nefndi hætti störfum í nefndinni
1999.
Á nefndu árabili hefur Endur-
bótasjóður veitt alls 146 milljónum
króna til þessa verkefnis. Heildar-
kostnaður vegna framkvæmdanna
nam hins vegar 115 milljónum
króna. Mismunur að fjárhæð 30
milljónir króna skiptist að jöfnu
milli þess að greiða upp skuld í upp-
hafi tímabilsins og ónotaða fjár-
heimild í lok þess. Af heildarkostn-
aði hefur tæplega 2/3 framlaganna
runnið til verkefna, sem skilgreina
má sem endurbætur og meiriháttar
viðhald. Þriðjunginn er nærtækara
að skilgreina sem rekstrarviðhald
en sá kostnaður er að mati Rík-
isendurskoðunar hluti af hinum
hefðbundna rekstrarkostnaði Þjóð-
leikhússins en ekki byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins.
Öll bókhaldsgögn voru könnuð
með það í huga að staðreyna að þau
aðföng og vörur, sem bókuð eru
sem kostnaður við verkið, sé að
finna á kostnaðarstað, þ.e. Þjóðleik-
húsinu, og að sú vinna, sem gjald-
færð hefur verið á verkið, hafi verið
innt þar af hendi. Við þá athugun
var m.a. rætt við þjóðleikhússtjóra,
fjármálastjóra leikhússins og
nokkra aðra starfsmenn, sem höfðu
komið að þessum málum.
Bókhald og fjárvarsla vegna
starfsemi byggingarnefndar er í
umsjón Framkvæmdasýslu ríkisins.
Niðurstaða athugunarinnar er
eftirfarandi:
Árni Johnsen, fyrrum alþingis-
maður, hefur viðurkennt að 9 reikn-
ingar, sem greiddir voru af framlagi
til endurbóta á Þjóðleikhúsinu til-
heyri honum persónulega. Alls er
um að ræða 1.852 þúsund krónur.
Þessa fjárhæð hefur Árni Johnsen
endurgreitt ríkisféhirði þann 13.
ágúst 2001. Þá hefur Árni staðfest
að í hans vörslu séu nánar tilteknir
hlutir sem greiddir voru af framlagi
til endurbóta að fjárhæð 217 þús-
und krónur.
Í vörslu opinberra aðila eru nán-
ar tilteknir þrír hlutir sem reikn-
ingar bárust byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins, sem tengjast fyrr-
verandi alþingismanni, en eru ekki
greiddir, samtals að fjárhæð 464
þúsund krónur. Til viðbótar eru
tveir reikningar sem voru endur-
greiddir að fjárhæð 318 þúsund
krónur.
Þessu til viðbótar hefur að mati
stofnunarinnar ekki fengist full-
nægjandi skýring á 6 reikningum að
fjárhæð 650 þúsund krónur.
Niðurstöður athugunar á fjár-
reiðum vegna byggingar staf-
kirkju í Vestmannaeyjum
Norsk stjórnvöld ákváðu í tilefni
af 1000 ára afmæli Kristnitöku á Ís-
landi að gefa íslensku þjóðinni staf-
kirkju og var henni valinn staður í
Vestmannaeyjum. Með bréfi for-
sætisráðuneytisins 8. mars 1999 var
skipuð nefnd til að hafa stjórn og
yfirumsjón með framkvæmdum og
öðru er laut að móttöku gjafarinnar.
Árni Johnsen, þáverandi alþingis-
maður, var skipaður formaður
nefndarinnar. Í nefndu bréfi kemur
fram að kostnaðaráætlun hljóði upp
á 38 milljónir króna og skyldi verkið
miðast við þá fjárhæð. Heildar-
kostnaður nemur hins vegar um 57
milljónum króna.
Athugun á starfsemi byggingar-
nefndar stafkirkjunnar náði til ár-
anna 1999 og 2000. Öll bókhalds-
gögn voru könnuð með það í huga
að staðreyna að þau aðföng og
vörur sem bókuð eru sem kostnaður
við verkið, sé að finna á kostnaðar-
stað, þ.e. kirkjunni og tengdum
mannvirkjum, og að sú vinna, sem
gjaldfærð hefur verið á verkið, hafi
verið innt þar af hendi. Við þá at-
hugun var m.a. rætt við starfsmenn
forsætisráðuneytis og tækni- og
umhverfissviðs hjá Vestmannaeyja-
bæ. Þá skoðuðu starfsmenn Ríkis-
endurskoðunar vettvang. Enn frem-
ur fól stofnunin sérfræðingum á
sviði byggingarframkvæmda að
taka út og meta tiltekna verkþætti.
Bókhald og fjárvarsla vegna
starfsemi byggingarnefndar staf-
kirkju var í umsjón starfsmanna
forsætisráðuneytis og nutu þeir að-
stoðar ríkisbókhalds og ríkisféhirðis
í því tilefni.
Niðurstaða athugunarinnar er
eftirfarandi:
Að mati Ríkisendurskoðunar var
staðið eðlilega að framkvæmd, eft-
irliti, fjárvörslu og bókhaldi vegna
þessa verkefnis og eru ekki gerðar
athugasemdir við framkvæmd þess.
Ríkisendurskoðun vill þó taka fram
að í tengslum við tvo verkþætti var
ekki fylgt eftir í öllu þeim fyrirmæl-
um sem byggingarnefndin hafði
sett sér vegna eftirlits. Í umrædd-
um tilvikum tók formaður nefnd-
arinnar sjálfur beina ákvörðun um
framkvæmdir án þess að fylgja
ákvörðunum nefndarinnar í því efni.
Ríkisendurskoðun skoðaði þessa
verkþætti sérstaklega og eru ekki
gerðar aðrar athugasemdir við þá.
Niðurstöður athugunar á
fjárreiðum vegna byggingar
Þjóðhildarkirkju og bæjar
Eiríks rauða á Grænlandi
Á árinu 1997 ákvað Vestnorræna
ráðið og Grænlenska Landsráðið að
setja á fót byggingarnefnd, sem
hefði það verkefni að byggja kirkju
og bæ í Brattahlíð á Grænlandi.
Formaður byggingarnefndar var
skipaður Árni Johnsen, þáverandi
alþingismaður. Vinna við þetta
verkefni hófst á árinu 1999 og lauk í
júlímánuði 2000. Heildarkostnaður
við verkið var tæplega 80 milljónir
króna en lokauppgjör við verktaka
hefur ekki farið fram.
Athugun á starfsemi byggingar-
nefndarinnar og þeirri undirbún-
ingsvinnu sem fram fór áður en
endanleg ákvörðun var tekin um að
hefja verkefnið náði frá árinu 1996
til ársins 2000. Öll bókhaldsgögn
voru könnuð með það í huga að
staðreyna að þau aðföng og vörur,
sem bókuð eru sem kostnaður við
verkið, sé að finna á kostnaðarstað,
þ.e. í Bröttuhlíð, og að sú vinna,
sem gjaldfærð hefur verið á verkið,
hafi verið innt þar af hendi. Við þá
athugun var m.a. rætt við fyrrver-
andi starfsmann Vestnorræna ráðs-
ins en það veitti byggingarnefndinni
skrifstofuaðstöðu og starfsmenn Ís-
taks hf., sem önnuðust smíði
húsanna.
Fjárvarsla og bókhald vegna
starfsemi byggingarnefndarinnar
var í umsjón starfsmanna Vestnor-
ræna ráðsins og formanns nefnd-
arinnar.
Niðurstaða athugunarinnar er
eftirfarandi:
Árni Johnsen, fyrrum alþingis-
maður, hefur staðfest að í hans
vörslu séu þrír nánar tilgreindir
hlutir eða búnaður, sem greiddir
voru af byggingarnefnd, samtals að
fjárhæð 471 þúsund krónur. Þessu
til viðbótar hefur að mati stofnunar-
innar ekki fengist fullnægjandi
skýring á einum reikningi vegna
vinnu við grjóthleðslu að fjárhæð
645 þúsund krónur. Skýring hans á
þessu er sú að ákvörðun hafi ekki
enn verið tekin um það hvort koma
eigi þessum hlutum fyrir í bygging-
unum í Brattahlíð.
Þegar óskað var eftir bókhalds-
gögnum vegna þessa verkefnis kom
í ljós að endanleg reikningsskil
höfðu ekki verið gerð. Að frátalinni
vörslu gagna um ráðstöfun ofan-
greindra framlaga eru ekki gerðar
athugasemdir um frágang og vörslu
bókhaldsgagna. Ríkisendurskoðun
vinnur nú að gerð endanlegra reikn-
ingsskila vegna þessa verkefnis.
Niðurstöður athugunar á
fjárreiðum v/ýmissa viðfangs-
efna annarra sem tengjast
Árna Johnsen
Ríkisendurskoðun kannaði um-
sýslu Árna Johnsen sem formanns
Grænlandssjóðs, umsýslu vegna
setu hans í stjórn Vestnorræna
ráðsins og umsýslu hans í tengslum
við tiltekin framlög á fjárlögum árs-
ins 2001 til verkefna utan ríkisgeir-
ans. Þá kannaði hún erlendan ferða-
kostnað, sem honum var greiddur á
árabilinu 1998 til 2001 af ýmsum op-
inberum aðilum.
Niðurstaða þessara athugana er
eftirfarandi:
Athugun Ríkisendurskoðunar
gefur ekki tilefni til athugasemda.
Skipan og verklag bygging-
arnefndar Þjóðleikhússins
Í ársbyrjun 1989 skipaði mennta-
málaráðherra sérstaka fimm manna
byggingarnefnd Þjóðleikhússins.
Nefndin átti að vera ráðgefandi um
endurreisn Þjóðleikhússbyggingar-
innar, undirbúa eða skipuleggja til-
tekna þætti hennar og hafa umsjón
með henni. Formaður byggingar-
nefndarinnar var skipaður Skúli
Guðmundson, forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar Innkaupastofnunar
ríkisins. Árni Johnsen, þáverandi
alþingismaður, var skipaður vara-
formaður. Árni tók við formennsku
í nefndinni á árinu 1990. Nefnd
þessi hafði yfirumsjón með um-
fangsmiklum breytingum á suður-
álmu leikhússins, einkum áhorf-
endasal og öðrum gestasvæðum
Þjóðleikhússins og Þjóðleikhúss-
kjallarans, sem stóðu yfir á árunum
1989 til 1991. Á vegum nefndarinn-
ar starfaði sérstakur verkefnis-
stjóri. Með bréfi, dags. 13. desem-
ber 1995, til nefndarmanna í
byggingarnefnd Þjóðleikhúss, til-
kynnti menntamálaráðuneytið að
það hygðist leysa nefndarmenn frá
störfum fyrir lok ársins þar sem
fyrir dyrum stæði að endurskipu-
leggja nefndina. Með bréfi, dags. 1.
febrúar 1996, var nefndin leyst upp.
Hinn 13. febrúar 1996 skipaði síð-
an menntamálaráðherra þá Árna
Johnsen, þáverandi alþingismann,
Stefán Baldursson, þjóðleikhús-
stjóra, og Steindór Guðmundsson,
þáverandi forstöðumann Fram-
kvæmdasýslu ríkisins, í nefnd, sem
fjalla skyldi um endurbætur og
uppbyggingu Þjóðleikhússins. Árni
Johnsen var skipaður formaður
nefndarinnar. Í skipunarbréfinu
segir svo orðrétt um hlutverk
nefndarinnar: „Hlutverk nefndar-
innar verður meðal annars að
skipuleggja framhald þess upp-
byggingarstarfs sem staðið hefur
um skeið, gera áætlanir um kostn-
að og tillögur um leiðir og verk-
lag.“ Loks er í skipunarbréfinu
mælt svo fyrir að þóknun fyrir
nefndarstörfin verði greidd að feng-
inni umsögn Þóknananefndar rík-
isins. Þess skal getið að er Steindór
Guðmundsson lét af störfum for-
stöðumanns Framkvæmdasýslu rík-
isins á árinu 1999 lét hann einnig af
störfum í byggingarnefndinni.
Menntamálaráðherra taldi ekki
ástæðu til að skipa nýjan nefnd-
armann, enda verkefni nefndarinn-
ar ekki það umfangsmikil að þörf
væri á slíku að hans mati.
Verklag byggingarnefndar
Af ýmsum gögnum má ráða að
nefndin hafi haldið fjölmarga fundi.
Ekkert liggur á hinn bóginn fyrir
um fundi þessa því til þeirra var
jafnan boðað með óformlegum hætti
og engar fundargerðir voru haldn-
ar. Því verður hvorki ráðið af fyr-
irliggjandi gögnum hvað á dagskrá
fundanna var, hverjir sátu þá né
hvað ákveðið var á þeim eða gert að
öðru leyti. Engu að síður má ætla af
bréfi Árna Johnsen, formanns
nefndarinnar til menntamálaráðu-
neytisins, í tengslum við þóknana-
Greinargerð vegna
athugunar á opinberum
fjárreiðum Árna Johnsen
Í gær gerði Ríkisendurskoðun opinbera greinargerð um athugun
stofnunarinnar á opinberum fjárreiðum Árna Johnsen, fyrrverandi
alþingismanns. Greinargerðin er hér birt í heild.
Morgunblaðið/Billi
Greinargerðin snertir m.a. störf byggingarnefndar Þjóðleikhússins.
SJÁ SÍÐU 12