Morgunblaðið - 16.08.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 16.08.2001, Síða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is GRUNNSKÓLAR Akureyrar verða settir mánudaginn 27. ágúst nk., eða viku fyrr en venjulega. Tæplega 2.500 nemendur mun þá setjast á skóla- bekk, eða heldur fleiri en á síðasta ári. Að sögn Herdísar Gunnlaugsdótt- ur, fulltrúa á skóladeild, hefur gengið vel að ráða kennara til starfa. Herdís sagði að búið væri að manna allar kennarastöður í grunnskólum bæjarins og aðeins væri óráðið í stöð- ur námsráðgjafa í tveimur skólum. Skólastarfið mun jafnframt standa lengur fram á vorið en skólaslit verða þann 7. júní á næsta ári. Skólastarf í grunn- skólum að hefjast Vel hefur gengið að ráða kennara AKUREYRARBÆR hefur fest kaup á Varpholti, húsnæði Rík- isútvarpsins í Hörgárbyggð, fyrir Bröttuhlíðarskóla. Húsið er um 470 fermetrar að stærð á tveimur hæðum og er kaupverð- ið 13,5 milljónir króna. Að sögn Guðríðar Friðriks- dóttur framkvæmdastjóra Fast- eigna Akureyrarbæjar þarf ekki að gera miklar breytingar á hús- næðinu fyrir starfsemi skólans og er stefnt að því að skólastarf hefjist þar nú í haust. Akureyr- arbær hefur þegar sent sveitar- stjórn Hörgárbyggðar erindi þar sem óskað er eftir leyfi fyrir starfsemi skólans í húsnæðinu. Bröttuhlíðarskóli er lítill sér- skóli fyrir börn á grunnskóla- aldri með aðlögunarvanda og eru nemendur rúmlega 10. Skól- inn hefur fram að þessu verið rekinn í íbúðarhúsnæði við sam- nefnda götu á Akureyri. Áður hafði Akureyrarbær gert tilboð upp á um 20 milljónir króna í einbýlishús við Beyki- lund 10, undir starfsemi skólans. Á fundi bæjarráðs í síðustu viku var samþykkt að fela forstöðu- manni Fasteigna Akureyrar- bæjar að afturkalla tilboð bæj- arins í fasteignina. Var það gert með vísan til þeirra at- hugasemda sem fram voru komnar við grenndarkynningu á breyttri nýtingu fasteignarinnar við Beykilund. Bröttu- hlíðar- skóli í Varpholt SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG Akureyrar (Sjóak) heldur tveggja daga sjóstanga- veiðimót á morgun, föstudag, og laugardag. Mótið er átt- unda og það síðasta á Ís- landsmótinu í sjóstangaveiði á þessu ári. Mótið hefst form- lega í kvöld, fimmtudags- kvöld, á Hótel KEA kl. 20.30. Þar verða mótsgögn afhent, jafnframt því sem fram fer kynning á mótinu og skráning í makaferð. Keppni hefst svo snemma í fyrramálið en róið verður frá Dalvík kl. 6 og veitt til kl. 14. Eftir veiði verður bryggju- knall, boðið upp á kakó og kræsingar. Sama fyrirkomu- lag verður á laugardag og ró- ið frá Dalvík kl. 6 og veitt til kl. 14. Á laugardagskvöld verður lokahóf á Hótel KEA þar sem verðlaun verða afhent fyrir árangur á Íslandsmótinu. Sjóstangaveiðifélag Akur- eyrar var stofnað árið 1963 og í dag eru félagar alls 110 sem gerir það að fjölmenn- asta sjóstangaveiðifélaginu á landinu en þau eru átta. Félögin hafa leyfi sjávarút- vegsráðuneytisins fyrir 8 tveggja daga mótum, sem eru opin mót, ásamt því að leyfa hverju félagi fyrir sig að halda eins dags innanfélags- mót ár hvert. Núverandi formaður fé- lagsins er Pétur Sigurðsson sem jafnframt er núverandi Íslandsmeistari. Sjóstanga- veiðimót í Eyjafirði LEIÐANGUR breskra og norð- lenskra björgunarsveitarmanna í vikunni að flaki bresku sprengju- flugvélarinnar sem fórst á jökli milli Öxnadals og Eyjafjarðar fyrir um 60 árum gekk mjög vel og var árangursríkur. Með vélinni fórust fjórir menn. Tilgangur leiðangursins var að sækja líkamsleifar mannanna, sem komið hafa í ljós. Einnig var unnið við að færa brak vélarinnar af jökl- inum og á hærra svæði – þar sem það mun bíða flutnings til byggða. Hörður Geirsson, safnvörður á Minjasafninu, sem fann vélina fyrir tveimur árum, sagði að leiðang- ursmenn hafi fundið líkamsleifar í ferð sinni í vikunni. Leiðangurs- menn voru fluttir til og frá jökl- inum með þyrlum Gæslunnar og þyrlu bandríska hersins og höfðu þeir næturdvöl á fjöllum. Hörður sagði að m.a. hefði fund- ist ein vélbyssa til viðbótar við tvær aðrar byssur sem áður höfðu fund- ist á slysstaðnum. Hann sagði það væri mönnum hulin ráðgáta hvers vegna svo margar vélbyssur hefðu verið um borð í vélinni. Björgunarsveitarmenn ganga frá braki vélarinnar við jökulinn. Árangurs- ríkur leiðangur Ljósmynd/Skúli Árnason FINNUR Aðalbjörnsson verktaki frá Laugarholti í Eyjafjarðarsveit og aðstoðarmenn hans gerðu mikla frægðarför fram á Garðsárdal sl. þriðjudag. Þeir félagar fóru þangað á mjög stórum traktor með vagn og sóttu flugvélina sem nauðlenti þar um verslunarmannahelgina. Tveir menn voru í vélinni þegar hún nauð- lenti og sakaði þá ekki. Traktorinn, sem notaður var til verksins, er með tvöföldum dekkjum að aftan og sagði Finnur að öðruvísi hefði hann aldrei komist fram á dal- inn, því yfir mjög djúp og snarbrött gil var að fara. Þrátt fyrir erfiðar að- stæður tókst leiðangurinn mjög vel og var flugvélin, sem skemmdist nokkuð við óhappið, flutt í geymslu í flugskýli á Akureyrarflugvelli. Rannsókn á orsökum flugslyssins stendur enn yfir hjá Rannsóknar- nefnd flugslysa. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins eru vísbend- ingar um að vélin hafi orðið bensínlaus. Flugvélin komin til byggða Morgunblaðið/Finnur Aðalbjörnsson Aðstæður við flutning flugvélarinnar til byggða voru mjög erfiðar. Eyjafjarðarsveit VERKEFNISHÓPUR vegna fyrir- hugaðrar byggingar fjölnota íþrótta- húss á Akureyri hefur óskað eftir frekari fresti hjá þeim aðilum sem buðu í framkvæmdina til að taka af- stöðu til tilboðanna, eða til 11. sept- ember nk. Ásgeir Magnússon, for- maður verkefnishópsins, sagði að leitað hefði verið eftir frekari upplýs- ingum frá bjóðendum svo hægt væri að meta tilboðin endanlega. „Við höf- um ekki getað gert það ennþá, þar sem við höfum ekki haft nógu góðar upplýsingar frá öllum bjóðendum um sundurliðun verksins. Þær tölur ættu að liggja fyrir í þessari viku og ég vona því að hægt verði að ljúka málinu í næstu viku.“ Eins og fram hefur komið sendu fjögur fyrirtæki samtals átta tilboð í verkið í alútboði og voru þau mun hærri en bæjarstjórn hafði sam- þykkt að leggja í framkvæmdina á næstu árum. Bygging fjölnota íþróttahúss Mati á tilboð- um seinkar Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.