Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 26

Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ - heilshugar um þinn hag  Suðurlandsbraut 50  108 Reykjavík  Sími 533 4300  Fax 568 4094 Til sölu eða leigu - Smiðjuvegur 6 1369 fermetrar í vel hirtu húsi og á áberandi stað á hornlóð. Innkeyrsludyr og mikil bílastæði. Húsnæðið er glæsilegt og ný- innréttað. Möguleiki að skipta því upp í allt að fjóra hluta. Upplýsingar gefa Jens í síma 895 8248 & Agnar í síma 896 5048 einnig viðstaddur athöfnina, tók und- ir orð Koizumis og sagðist iðrast verka Japana í stríðinu. Mótmæli í Kína og Suður-Kóreu Uppnámið, sem heimsókn Koizum- is að minnismerki Japana um fallna hermenn sl. mánudag olli, kastaði þó óneitanlega skugga á athöfnina en í augum margra er minnismerkið táknrænt fyrir japanska hernaðar- stefnu. Sérstaklega vegna þess að ár- ið 1978 grófu Japanir upp líkamsleif- ar hermanna sem teknir voru af lífi fyrir stríðsglæpi og fluttu á hinn helga stað. Talið er ólíklegt að um- mæli Koizumis geti lægt reiðiöldurn- ar sem risið hafa upp meðal ná- grannaþjóðanna vegna heimsóknar hans. Kínverskir stúdentar efndu í gær til mótmæla víðs vegar í Kína vegna heimsóknar Koizumis og í Peking brenndu stúdentarnir japanska þjóð- JUNICHIRO Koizumi, forsætisráð- herra Japans, lét í gær í ljós iðrun vegna grimmdarverka Japana í síð- ari heimsstyrj- öldinni. Þessu lýsti ráðherrann yfir við athöfn sem haldin var af því tilefni að í gær voru 56 ár liðin frá því að Japanir gáfust upp í síðari heimsstyrjöld- inni. „Þjóð okkar hefur valdið mörgum þjóðum verulegum sárs- auka og tjóni, sérstaklega nágrönn- um okkar í Asíu,“ sagði Koizumi í opnunarræðu við athöfnina. Þá bætti hann við að Japanir gættu bætt fyrir þetta með því að hlúa að friði og hag- sæld á þessu svæði. Akihito Japanskeisari, sem var fánann framan við sendiráð Japans. Líta stúdentarnir á heimsókn jap- anska forsætisráðherrans sl. mánu- dag sem móðgun við Kína og aðrar þjóðir sem þurftu að þola hervald Japana í síðari heimsstyrjöldinni. Í miðborg Seoul í Suður-Kóreu mótmæltu einnig hundruðir manna í gær. Nokkrar aldraðar konur sem lifðu af kynlífsþrælkun Japana í síð- ari heimsstyrjöldinni tóku þar þátt í mótmælunum. Þúsundir Japana heiðruðu minningu látinna hermanna Þúsundir manna heimsóttu minn- ismerkið í gær í tilefni af afmælinu. Fólkið vottaði helgistaðnum og fölln- um hermönnum virðingu sína með því að klappa saman höndum og lúta höfði í bæn. Fyrrverandi hermaður, Yano, sem heimsótti minnismerkið klæddur einkennisbúningi, sagði að japanskir hermenn í síðari heims- styrjöldinni hefðu ekki haft neitt val og hafi orðið að verja landið sitt. „Gildi þess tíma voru önnur en í dag, það sem við gerðum var einungis vegna löngunar til að tileinka líf okk- ar því að verja föðurlandið,“ sagði hann. Meðal þeirra sem heimsóttu minnismerkið í gær var fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Ryutaro Hashimoto. Fjöldi ráðherra í ríkisstjórn Jap- ans hefur lýst því yfir að þeir muni ekki fara að minnismerkinu, þar á meðal utanríkisráðherrann, Makiko Tanaka. Koizumi lýsti því yfir í gær að hann hafi ekki ætlað að skaða samskipti Japan við önnur ríki með heimsókn sinni sl. mánudag. Þá sagðist hann vilja funda með Kim Dae-jung, for- seta Suður-Kóreu, til að bæta sam- skipti ríkjanna en Kim sagðist í gær hafa áhyggjur af spennu í samskipt- um ríkjanna. Koizumi lét í ljós iðrun vegna verka Japana Tókíó. AP. Junichiro Koizumi Ríflega hálf öld frá því Japanir lýstu sig sigraða í síðari heimsstyrjöldinni FYRRVERANDI yfirmaður í her Bosníu-Serba, sem grun- aður er um stríðsglæpi í Bosníustríðinu, gaf sig fram í búðum friðargæsluliðs Atl- antshafsbandalagsins nærri Banja Luka í gær. Dragan Jokic er eftirlýstur af stríðsglæpadómstóli Sam- einuðu þjóðanna í Haag og verður fluttur þangað. Hann var yfirmaður herdeildar í austurhluta Bosníu, sem talin er hafa átt þátt í fjöldamorð- unum í Srebrenica árið 1995, einhverjum mestu voðaverk- um Bosníustríðsins. Ritstjóri tek- inn höndum RITSTJÓRI eina óháða dag- blaðsins í Zimbabwe var handtekinn í fyrrinótt. Lögreglumenn sóttu Geoff Nyarota, sem ritstýrir dag- blaðinu Daily News, á heimili hans í höfuðborginni Harare og fluttu hann í höfuðstöðvar lögreglunnar. AFP-fréttastof- an hafði eftir aðstoðarrit- stjóranum, Bill Saidi, að handtakan tengdist sennilega umfjöllun blaðsins um grip- deildir á búgörðum hvítra manna undanfarna daga. Í frétt Daily News á þriðjudag var gefið í skyn að lögreglan hefði átt þátt í gripdeildun- um. Bush fær lága einkunn MEIRIHLUTI Evrópubúa gefur George W. Bush, Banda- ríkjafor- seta, lélega einkunn fyrir stefnu hans í ut- anríkismál- um. Að- spurðir sögðu lang- flestir að ákvarðanataka for- setans í utanríkismálum byggðist oftar en ekki á hags- munum Bandaríkjanna. Þetta kom fram í nýrri skoðana- könnun sem gerð var í fjórum Evrópulöndum. Bush fékk mun lægri ein- kunn en Bill Clinton, fyrrver- andi Bandaríkjaforseti, í sam- bærilegri könnun sem gerð var í forsetatíð hans. Hvetja til friðar BISKUPAR í Angóla hafa hvatt Jonas Savimbi, leiðtoga UNITA-skæruliðahreyfingar- innar, til að lýsa tafarlaust yf- ir vopnahléi, eftir mannskæð- ar árásir undanfarið. Fyrir tæpri viku féllu 252 manns og 165 særðust í fyr- irsát skæruliða fyrir farþega- lest í norðurhluta landsins. Sprengja feykti lestinni af sporinu og skæruliðar eru sagðir hafa skotið á farþeg- ana er þeir reyndu að forða sér úr flakinu. UNITA- skæruliðahreyfingin hóf upp- reisn í Angóla árið 1975. STUTT Bosníu- Serbi gefur sig fram George W. Bush ÍSRAELSKIR leyniþjónustumenn sátu fyrir einum af leiðtogum rót- tækra Palestínumanna í Hebron í gær og myrtu hann í miklu byssu- kúlnaregni. Héldu Ísraelar þar með áfram þeirri stefnu sinni, sem hefur verið harkalega gagnrýnd um víða veröld, að „taka úr umferð“ menn sem þeir telja sérstaklega ógna ör- yggi Ísraelsríkis. Þá gerðist það enn fremur í gær að ísraelskt herlið hernam land- svæði við bæinn Beit Jalla á yf- irráðasvæði Palestínumanna á Vest- urbakkanum en þar hefur oft komið til vopnaðra átaka milli ísraelskra hermanna og vopnaðra Palestínu- manna. Ísraelsher lét þó vera að ráðast inn á stærra svæði. Heita hefnd innan tveggja sólarhringa Mikill fjöldi Palestínumanna fylgdi hinum 25 ára gamla Emad Abu Sneineh, manninum sem myrt- ur var í gærmorgun, til grafar í Hebron í gær. Abu Sneineh var meðal forystumanna skæruliða- hópsins Tanzim, sem á aðild að Fatah-hreyfingu Yassers Arafats, og að sögn Palestínumanna tók hann oft þátt í vopnuðum átökum við Ísraela. Hétu félagar Abu Sneineh við útförina því að hans yrði hefnt „innan tveggja sólar- hringa“. Nabil Amar, ráðherra í ríkisstjórn Palestínumanna, for- dæmdi morðið í gær. Hann sagði það merki um áframhaldandi „rík- isrekin hryðjuverk“ Ísraelsstjórnar. Morðin orðin fleiri en 50 Stjórnvöld í Ísrael vildu hvorki staðfesta né neita því að þau stæðu á bak við morðið en Raanan Gissin, háttsettur ráðgjafi Ariels Sharons forsætisráðherra, lét hafa eftir sér að Abu Sneineh hefði haft „mikið blóð á höndum sér“. Á vegum Ísraelsstjórnar hafa yf- ir 50 manns, flestir meintir palest- ínskir öfgamenn verið drepnir í markvissum tilræðum frá því nýj- asta átakabylgjan í Mið-Austur- löndum hófst í september í fyrra. Talsmenn Ísraelsstjórnar hafa ítrekað sagt að til þess að hindra árásir á ísraelska borgara sé það oft eina leiðin að drepa hina meintu öfgamenn. Hefur þessi stefna Ísr- aela verið harðlega gagnrýnd, bæði af forystumönnum Palestínumanna og ríkisstjórnum margra landa, þar á meðal Bandaríkjanna, dyggasta bandamanni Ísraels. Aðgerðir Ísr- aela undanfarna daga hafa aukið enn á gagnrýni alþjóðasamfélags- ins. Meintur öfga- maður myrtur Hebron. AP. Ísraelar halda áfram að „taka menn úr umferð“ í markvissum tilræðum UNGVERJAR halda nú upp á þús- und ára afmæli kristnitöku í land- inu. Svo vill til að1000 ár eru einnig liðin frá því að páfi og keisari við- urkenndu tilvist ungverska ríkisins og er því um sérstaklega merk tímamót að ræða. Hér bera hallarverðir kórónu Heilags Stefáns, sem var konungur frá árinu 1000 til 1038, frá þinghús- inu í Búdapest snemma í gærmorg- un. Kórónan var þá flutt að dóm- kirkjunni í Esztergom, 40 km ofar við Dóná. Þar fór í gær, á Himna- fararmessu Maríu meyjar, fram há- tíðarguðsþjónusta sem markaði há- mark kristitökuhátíðar Ungverja í ár. Stefán konungur lýsti á þessum degi fyrir 1000 árum Maríu mey verndardýrling Ungverjalands. Kristnitökuhátíð í Ungverjalandi AP ÚTGEFENDUR Svenska dag- bladet, eins stærsta dagblaðs Sví- þjóðar, tilkynntu í gær að 55 starfsmönnum hefði verið sagt upp en það eru um 12% af mannafla blaðsins. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að samdráttur í auglýsingatekjum sé helsta ástæða uppsagnanna en þær bitna helst á ritstjórn blaðsins og netúgáfu. Vonast útgefendurnir til að spara 55 milljónir sænskra króna (um 530 milljónir ísl. kr.) með aðhaldsaðgerðum en auk upp- sagnanna verður gripið til þess ráðs að hætta prentun sérútgáfu blaðsins í Umeå. Svenska dagbladet er rúmlega aldargamalt en tap hefur verið á útgáfunni undanfarin ár. Fram- kvæmdastjórinn Gunnar Ström- blad segir að fyrri aðhaldsaðgerðir hafi skilað árangri en að efnahags- lægð í landinu hafi komið í veg fyrir að reksturinn kæmist á rétt- an kjöl. Uppsagnir hjá Svenska dagbladet Stokkhólmur. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.