Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 28
LISTIR 28 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ LJÓSMYNDUN er smám sam- an að öðlast sess hér á landi sem listmiðill þótt við séum töluvert á eftir öðrum vestrænum þjóðum í mati okkar á verðleikum hennar. Einhvern veginn hefur farið svo fyrir íslenskri ljósmyndun að henni hefur verið haldið utan og ofan við öll myndlistargildi í lok- uðum heimi út af fyrir sig. Hólfun er svo sem ekkert nýtt fyrirbæri í íslenskri myndlist. Hún hefur verið regla fremur en hitt. Formræn sótthreinsun hverrar greinar fyrir sig – eins konar geymsla í formalíni – virðist skipta okkur meira máli en skapandi sambræðsla. Þetta hefur leitt til þeirrar leiðinlegu skipunar mála að allt verður að vera fyrirsjáan- legt. Það er auðvelt að ímynda sér hvað þetta þýðir fyrir hugmynda- flugið. Íslensk ljósmyndun hefur verið þjökuð af þessari innikróun, en ýmislegt bendir til að jákvæðra breytinga sé að vænta. Eitt dæmið er sýning Ólafar Bjarkar Braga- dóttur hjá Íslensk grafík. Þessi franskmenntaða listakona virðist býsna laus við þá heftandi virðingu fyrir miðlinum sem stíflar sköp- unargleðina. Verið getur að það sé vegna þess að hún fæst jafnframt við ýmsar aðrar greinar innan myndlistarinnar, svo sem málara- list. Ekkert virðist eins blóðauk- andi og haftalosandi nú á tímum en það að stunda nógu margar aukabúgreinar. Litmyndir Ólafar Bjarkar eru allar teknar á flóamarkaði í Mont- pellier, í Suður-Frakklandi, þar sem borðin skarta hvers kyns varningi. Myndirnar eru allar teknar beint yfir viðfangsefninu – samkvæmt fuglsflugi, eins og það er kallað á frönsku – þannig að varningurinn glatar vissum raun- veruleikasvip, og myndar í staðinn ryþmískt mynstur yfir allan flöt- inn, ekki ósvipað kyrralífsskreyt- ingum á síðrómverskum mósaík- veggjum og gólfum; veisluborðum í málverkum Pierre heitins Bonn- ard; ellegar hlutafjölfeldisskápum franska nýrealistans Armans. Það er alltaf eitthvað traustvekjandi við list sem skírskotar til svo margra ólíkra tíma, fornra sem nýrra, en að auki er mikil og rík Miðjarðarhafsgleði, og litagleði, í ljósmyndum Ólafar Bjarkar. Hlutirnir ofan frá MYNDLIST Í s l e n s k g r a f í k , H a f n a r h ú s i n u Sýningunni er lokið. LJÓSMYNDIR ÓLÖF BJÖRK BRAGA- DÓTTIR Halldór Björn Runólfsson FORSETA Íslands Ólafi Ragn- ari Grímssyni, Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra og Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra voru afhent fyrstu eintök bókarinnar Fóst- bræðralag, saga Karlakórsins Fóstbræðra í hófi sem fór fram á Hótel Borg í tilefni af út- komu bókarinnar. Söguna hefir Páll Ásgeir Ás- geirsson skráð og lýsir sögu Fóstbræðra, allt frá því að kór- inn varð til innan raða KFUM, og hét þá Karlakór KFUM, og til þessa árs. Í bókinni er lýst þeim aðstæðum sem tónlistar- iðkun var búin hér á landi á fyrri hluta síðustu aldar og er verðug heimild um framgang tónlistar á Íslandi á 20. öldinni. Útgefandi er Karlakórinn Fóstbræður. Bókin er prýdd fjölda mynda, auk félagatals yfir alla sem sungið hafa með Karlakórnum Fóstbræðrum frá upphafi. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Björn Bjarnason, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Ólafur Ragnar Grímsson kynna sér nýútkomið Fóstbræðralag. Fóstbræðralag í 90 ár SKAFTFELL á Seyðisfirði hýsir þessa dagana sýningu þriggja finnskra listamanna og hentar sýn- ingaraðstaða þessa vinalega menn- ingarhúss Seyðfirðinga vel undir sýn- ingu á borð við þessa. Verk þeirra Pauls Osipows, Philips von Knorr- ings og Pamelu Brandt eru fjöl- breytileg á að líta, en málverkið er miðill þeirra Osipows og Brandt á meðan von Knorring býður sýning- argestum upp á innsetningu er sýnd var í SÚM-sal Nýlistasafnsins nú fyrr í sumar. Osipow sem er þeirra félaga þekkt- astur, en verk hans hafa m.a. verið sýnd á Feneyjatvíæringnum, býður gestum upp á litskrúðugar smá- myndir. Meirihluti verkanna, sem öll eru nafn- og númeralaus, myndar röð skærlitra abstrakt litflata eftir einum veggja sýningarrýmisins. Misþykk lög af grænum, rauðum, bláum, brún- um og fjólubleikum litflötum, þar sem breið pensilförin eru víða sýni- leg, veita myndröðinni barnslegt yf- irbragð. Glaðlegir litfletirnir leitast ekki við að réttlæta tilveru sína með tilvitnunum til fígúratífra forma og myndirnar verða fyrir vikið að sjálf- stæðum rýmisverkum í stað tákn- mynda raunveruleikans. Hér er það áhorfandans að gefa ímyndunarafli sínu lausan tauminn og einna helst að hvítur og blár flekkur á grænum grunni kalli fram í hugann íslenska sveitasælu. Nokkuð annar blær er á tveimur verkum Osipows er hanga saman að- skilin myndröðinni. Þótt yfirbragð þessara verka sé ekki síður glaðlegt er útfærslan nú hins vegar öllu nost- urslegri. Hröð handbrögð fyrri myndraðarinnar eru hér víðsfjarri en léttleiki, glaðværð og kæruleysi, sem veitir myndunum styrk sinn, þeim mun meira áberandi. Verk Pamelu Brandt, sem einnig hefur valið sér málverkið sem sinn miðil, eru töluvert ólík og öllu hljóð- látari en list Osipows. Myndirnar, sem einnig eru nafnlausar, eru stærri að ummáli, fígúratívar og ekki jafn litaglaðar – bláir, bleikir og grænir litatónar sem jaðra við pastelliti eru víða ríkjandi – og viðfangsefnið sækir Brandt til kyrralífsmynda. Einna sterkust verka hennar eru tvær samhangandi myndir í hvítum og brúnum tónum. Hvítur fiskur á gráum grunni hefur þar létt og fín- legt yfirbragð á meðan og þverskurð- ur af ávexti í rauðbrúnum lit nær fram djúpri og munúðarfullri lita- notkun. Myndaröð Brandt af könnu og vatnsglasi er hins vegar öllu lak- ari, líkt og þar skorti nokkra festu. Eitt þeirra verka ber þó af öðrum, og er sú mynd mikið unnin líkt og reynd- ar flest verka listakonunnar. Hér er hins vegar dýptin meiri en annars staðar í myndröðinni, auk þess sem þverskorinn bakgrunnur veitir verk- inu aldrað yfirbragð er svartir og blá- leitir litatónar stuðla enn frekar að. Það er þó óneitanlega innsetning Philips von Knorrings sem dregur aðsér athygli sýningargesta á kostn- að hinna með hinu ómótstæðilega að- dráttarafli sjónvarpsskjánna. Verkið, sem sýnt var í SÚM-sal Nýlistasafns- ins fyrr í sumar, er hringur af klass- ískum stöplum sem á hafa verið settir litlir skjáir er nema umhverfið. Inn- setningar hafa höfðað töluvert til von Knorrings í seinni tíð, en hann á heið- urinn af því að vera einn þeirra er fyrst kynntu myndbandalistina fyrir Finnum í upphafi áttunda áratugar- ins. Í verki sínu í Skaftfelli nær hann að sameina nokkuð þessa tvo þætti og er sjónræn útfærsla innsetningarinnar sterk. Sjónvarpskáirnir draga að sér áhorfendur sem ómeðvitað laðast að skjánum, sem hér gerir þá sjálfa að viðfangsefninu – sama hvert snúið er – alls staðar er fyrir skjár sem lætur sýningargestinn horfast í augu við sjálfan sig. Sýning Finnanna í Skaftfelli er vel útfærð í rými því sem menningarmið- stöðin hefur upp á að bjóða, en það er hins vegar miður að skorta skuli sýn- ingarskrá þar sem gestir geta fræðst lítillega um listamennina og verk þeirra. Nöfn þeirra Osipows, Brandt og von Knorrings eru hvergi sjáanleg í sýningarrýminu, verkin ómerkt og heimsóknin í Skaftfell því ekki jafn fróðleg og ella. MYNDLIST M e n n i n g a r m i ð s t ö ð i n S k a f t f e l l Sýningin er opin daglega frá kl. 11– 22 og lýkur 31. ágúst. PAUL OSIPOW, PHILIP VON KNORRING OG PAMELA BRANDT ÁN ORÐA Anna Sigríður Einarsdótt ir Morgunblaðið/Anna Sigríður Glaðlegt og kæruleysislegt yfirbragð einkennir þessi verk finnska listamannsins Paul Osipow. KLAIS-orgelið í Hallgríms- kirkju hefur ávallt sama aðdrátt- araflið og sl. sunnudag, hlýddu kirkjugestir á orgelleikara frá Tékklandi, Petr Rajnoha, leika orgelverk frá tímum barokkmanna til nútímans. Tónleikarnir hófust á Ciaccona í f-moll, eftir Johann Pachelbel (1653–1706) en hann var meðal helstu meistara orgelsins á undan Bach. Sjakkonan í f-moll er einstaklega fögur tónsmíð og byggist á hljómum með f-es-des-c tónferli í bassanum sem hljóma- grunn og að því leyti til, hvað snertir vinnuaðferð, mætti kalla verkið „passacalíu“. Hvað sem þessu líður var þetta fallega verk mjög vel flutt og raddskipan þess fínlega mótuð. Annað verkið á efnisskránni var tokkata (snertla) og fúga í F-dúr BWV 540 eftir J.S. Bach og er tokkatan eitt af leiktækniverkum meistarans þar sem hann spinnur fyrri hluta tokkötuna yfir orgel- punkt á f og eftir dúndrandi ped- alsóló yfir c og síðan aftur ped- alsóló. Þá tekur við glæsilegur leikur með fallandi og hækkandi sekvensa. Pedaltónninn var helst til of sterkur og dró því slikju fyrir hljómborðssnertluna. Eftir þessa löngu og rismiklu snertlu kom fúga þar sem mikið er unnið með biðtóna sem oft gátu verið skemmtilega útfærðir af meistar- anum. Þrátt fyrir of mikinn styrk á orgelpunktinum var flutningur- inn rismikill og fúgan glæsilega út- færð. Til að hvíla eyru hlustenda lék Rajnoha sætt pastorale eftir Jan Kritel Kuchar (1751–1829) en eftir þessa sveitakyrrð var það Max Reger, sem átti orðið, og þar fór maður sem aldeilis kunni á orgel, óhófsmaður í tónum en einmitt þessi eiginleiki hans birtist í mat- græðgi sem talin er ástæðan fyrir hjartaáfalli er leiddi hann til dauða. Þetta yfirþyrmandi orgel- verk var sérlega glæsilega flutt og ekki oft sem slíkur leikur er fram- inn á orgel en sem „manualsnill- ingur“, bæði á orgel og píanó, er Reger skipað til sætis með Busoni. Báðir ætluðu sér stóran hlut og er sagt að Reger hafi ofgert öllu sem hann kom nálægt og fyrir bragðið sé hann nær óþekktur nema fyrir orgelverk sín. Hvað sem þessu líð- ur var leikur Rajnoha hreint ótrú- lega glæsilegur. Lokaverkið var yndisleg jóla- hugleiðing eftir Marcel Dupré, Til- brigði yfir gamalt stef (gamlan vin), op. 20, þar sem leikið er með margvísleg registur Klais-orgels- ins og var leikur Rajnoha á köflum sérlega fíngerður. Ljóst er að þessi ungi orgelleikari ræður þeg- ar yfir víðfeðmu sviði í túlkun og tækni svo sem heyra mátti í sjakkonu Pachelbels og jólahug- leiðingunum eftir Dupré þar sem fínleikinn kom mjög skýrt fram og þá hin stórbrotnari tilþrifin sem bæði voru ríkjandi í tokkötu Bachs og náðu hápunkti í tröllslegum tóntiltektum hjá Reger, bæði í hinni yfirþyrmandi fantasíu og í fúgunum, sérstaklega þeirri seinni og þá ekki síður í samskipan beggja fúgustefjanna í tignarlegu niðurlagi þessa stórbrotna verks sem á sér samstöðu með því sem stærst gerist í gerð yfirþyrmandi og stórra hljómsveitarverka. Inni á milli þessara stóru verka var pastoralið eftir Kuchar eins og sól- skinsblettur í garði ilms og feg- urðar. Í garði ilms og fegurðar TÓNLIST H a l l g r í m s k i r k j a Petr Rajnoha frá Tékklandi flutti verk eftir Pachelbel, J.S. Bach, Kuchar, Reger og Dupré. Sunnudagurinn 12. ágúst 2001. ORGELLEIKUR Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.