Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 31

Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 31 t,“ segir ætlunin er lum með ttar verði glur. Þær am hefur málaráðu- í að setja dir. Þetta er brýnna ss að það skipulagi dir,“ sagði l að málið a á rann- stigi og í m lögregl- Það ligg- fyrir sem ndurskoð- beðin um a. Ég held sé rétt að ess að ég linu. Það urskoðun- gt,“ segir gismaður, kisendur- og stjórn- til Þjóð- mda og ýrslu Rík- voru ekki ngarnefnd un virðist tjórnsýsl- hvarflaði gað væri í kýrslunni. ugasemd- yggingar- væri að ningi þar verið að r að und- emdir við gir Gísli. son end- nar gt MARGRÉT Frí- mannsdóttir, varaformaður Samfylkingar- innar, segir að sér hafi komið mest á óvart í skýrslu Ríkis- endurskoðunar hvernig mennta- málaráðherra hafi vikið sér undan því að grípa til aðgerða í þessu máli. „Það kemur mér verulega á óvart að eftirlitsaðilar, sem eiga að vera til staðar, bregðast. Í þeim nefndum þar sem ég hef starfað í gegnum tíð- ina hef ég ekki kynnst þeim vinnu- brögðum að nefndarmenn í ein- stökum nefndum fari með viðlíkt alræðisvald og virðist hafa tíðkast í byggingarnefnd Þjóðleikhússins. Mér finnst öðru fremur að eftirlits- hlutverk menntamálaráðuneytisins hafi brugðist í þessu máli, auk þess sem Framkvæmdasýslan virðist bregðast sínu hlutverki. Fyrst og fremst kemur mér þó á óvart að þótt gerðar hafi verið tilraunir til þess að vekja athygli menntamála- ráðherra á að ekki væri allt með felldu hafi ekki verið gripið til að- gerða. Ábyrgð ráðherra er í mínum huga ótvíræð á þeim málaflokkum sem þeir hafa,“ segir Margrét. Hún segir að menntamálaráð- herra hefði, að sínu mati, átt að bregðast við athugasemdum sem hann fékk frá Endurbótasjóði menningarbygginga. „Í tvígang var honum gerð grein fyrir að þarna væru mál ekki með þeim hætti sem eðlilegt getur talist miðað við þær vinnureglur og lög sem eru í gildi. Það gerist ekkert í framhaldinu,“ segir Margrét. „Við verðum að treysta því þegar fjárlög eru ákveðin hjá Alþingi að framkvæmdavaldið, sem er í hönd- um ráðherra og ber ríkar skyldur, framfylgi þeim skyldum sínum. Það virðist ekki hafa verið gert í þessu tilfelli,“ segir Margrét. Margrét Frímannsdóttir Ráðherra hefði átt að bregðast við athuga- semdum ARGERÐ RÍKISENDURSKOÐUNAR að greinargerð Ríkisendurskoðunar á opinberum ram á að brotalöm sé í hinu opinbera eftirlitskerfi. NDUR on, for- þing- Vinstri garinnar ns fram- segir að fá Ríkis- koðunar merki, að er unnin í æðum um og póli- Mér virð- vera eft- upp um að á kostnað rið viður- taðfest af er í rann- annað að etta er þó finnst að í að drepa ví að gera ögbrotinu a hlut að við að búa nsýslunni sem eiga að tryggja að farið sé að lögum og settum reglum við með- ferð opinberra fjármuna. Það er ljóst að slíkir öryggisventlar voru í sumum tilvikum hvorki til staðar né virkuðu sem skyldi. Það vekur at- hygli að menntamálaráðherra brást ekki við ábendingum um að ekki væri farið að settum reglum í bygg- ingarnefnd Þjóðleikhússins. Þá er Framkvæmdasýsla ríkisins gagn- rýnd fyrir að sinna ekki eftirlits- hlutverki sínu sem skyldi. Þá kem- ur margt fram sem vekur athygli, t.d. að Ístak skuli hafa fengið um- fangsmikil verk án útboðs. Að sjálf- sögðu á að draga lærdóm af þessu máli. Við megum ekki hræra saman í einn graut alls óskyldum hlutum. Afbrot er afbrot. Pólitísk ábyrgð er síðan annars eðlis. Hvort tveggja á að ræða en í réttu samhengi,“ segir Ögmundur. asson um ska ð ið PÁLL Sigur- jónsson, for- stjóri Ístaks, segir niðurstöð- ur Ríkisendur- skoðunar um op- inberar fjár- reiður Árna Johnsen að miklu leyti byggðar á gögnum sem stofnunin fékk hjá Ístaki. Hann segir Árna hafa misnotað beiðnir sem hann fékk hjá Ístaki. Hann kveðst telja að megnið af þeim reikningum sem rannsókn Ríkisendurskoðunar hefur nú leitt í ljós að tilheyra Árna persónulega en greiddir voru af framlagi ríkisins til endurbóta á Þjóðleikhúsinu, sé til komið vegna beiðna sem Árni fékk hjá Ístaki. ,,Eins og fram hefur komið þá misnotaði hann okkur. Hann kemur fram fyrir hönd verkkaupa og biður okkur að kaupa hluti, sem við ger- um, eins og þarna kemur fram,“ segir hann. ,,Enginn innan fyrir- tækisins gerði neitt rangt. Ég geri varla ráð fyrir því að við hefðum getað varað okkur á þessu,“ sagði Páll. ,,Ég hef engu við skýrsluna að bæta. Hún skýrir sig alveg sjálf,“ segir Páll. ,,Ríkisendurskoðun hef- ur unnið feikilega mikið í þessu. Skýrslan er komin út og mér sýnist að hún sé mjög vel unnin,“ segir hann. Páll Sigurjónsson Flestir reikn- inganna vegna beiðna frá Ístaki STEFÁNI Baldurssyni, þjóðleikhús- stjóra, kemur á óvart sú niður- staða sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoð- unar að Árni Johnsen, fyrrv. formaður byggingarnefndar Þjóð- leikhússins, hafi misnotað aðstöðu sína jafn oft og í því umfangi sem raun beri vitni um. ,,Fyrrverandi formaður bygging- arnefndar hefur viðurkennt að hafa misnotað aðstöðu sína og kannski oftar en mann hafði grunað. Mér finnst það heldur sorgleg stað- reynd,“ segir Stefán. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að ráða megi af bókhaldi að u.þ.b. þriðjungur þeirra verkefna, sem byggingarnefndin hafði um- sjón með, verði að teljast til hefð- bundins rekstrarviðhalds og ætti því að tilheyra rekstri Þjóðleikhúss- ins en ekki nefndinni. ,,Jafnframt verður ekki hjá því komist að gagn- rýna forsvarsmenn Þjóðleikhússins fyrir að aðhafast ekki þótt á bygg- ingarnefndina félli kostnaður, sem þeim mátti vera ljóst að tilheyrði venjubundnum rekstri leikhúss- ins,“ segir í skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Sefán segist ekki geta fallist á þetta. ,,Það er verið að gefa í skyn að ákveðin verkefni hafi verið sett á byggingarnefndina, sem hefðu í rauninni átt að falla undir venju- bundinn rekstur. Þessi nefnd hefur alla tíð, frá því löngu áður en ég og núverandi framkvæmdastjóri kom- um hér að húsinu, annast endur- byggingu, viðhald og lagfæringar. Ég tel því að allt það sem hefur ver- ið gert á undanförnum árum flokk- ist undir það. Við getum ekki skrif- að undir að það hafi farið þarna inn einhver verkefni sem hefðu ekki átt að vera þar,“ segir Stefán. Stefán segir einnig að Ríkisend- urskoðun gagnrýni, líkt og hann hafi sjálfur ítrekað gert, formleysi í störfum byggingarnefndarinnar. Stefán Baldursson Kemur á óvart hve oft hann misnot- aði aðstöðuna ÓTÍMABÆRT er að svo stöddu að reikna með kostnaði við hugsanleg kvótakaup vegna útblásturs í rekstraráætlunum Norðuráls eða Reyðaráls, að mati forsvarsmanna fyrirtækjanna. Þeir segja að vænt- anleg losun frá þessum álverum muni rúmast innan þeirra marka sem kveðið sé á um í undanþágu- ákvæði við Kyoto-samkomulagið, sem líkur séu á að verði samþykkt, vegna verkefna þar sem notast sé við endurnýjanlega orku. Þá sé of margt óljóst varðandi þetta mál á þessu stigi til að hægt sé að gera ráð fyrir kostnaði þar af. Fram kom nýlega í viðtali í Morgunblaðinu við Halldór Þor- geirsson, skrifstofustjóra hjá um- hverfisráðuneytinu, að Norður- löndin stefni að því að setja upp kvótamarkað með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda í kjölfar Kyota-samkomulagsins og að Evr- ópusambandið sé langt á veg komið með að setja upp slíkan markað innan sambandsins. Spáð sé að gangverð á tonni af losunarkvóta koltvísýrings verði 1.500–2.000 krónur. Of margt er óljóst Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórn- unarsviðs Norðuráls, segir að ekki sé gert ráð fyrir kostnaði við hugs- anleg kvótakaup vegna útblásturs í rekstraráætlunum fyrirtækisins. Hann segir að ef nýjar verulegar vera sem fyrir séu þar sem sá rekstur sem þegar sé fyrir hendi sé innifalinn í þeim mörkum sem skil- greind séu fyrir hvert land. „Álframleiðsla í heiminum eykst ár frá ári og er vöxturinn einkum í farartækjum,“ segir Ragnar. „Auknar kröfur um sparneytni ökutækja hefur leitt til verulegrar aukningar í notkun á áli. Minnkun í losun ökutækja er margföld sú los- un sem verður til við framleiðslu á álinu sem notað er til að létta far- artækin. Aukinn skilningur á heild- aráhrifum ætti að stuðla að eflingu áliðnaðar á Íslandi enda er það eitt fárra landa sem geta aukið fram- leiðslu með því að nota endurnýj- anlega orkugjafa.“ Allir sitji við sama borð Geir A. Gunnlaugsson, stjórnar- formaður Reyðaráls, segir að ekki sé gert ráð fyrir hugsanlegum kostnaði við kvótakaup vegna út- blásturs í þeim áætlunum sem unn- ið sé eftir varðandi rekstur Reyð- aráls. Hann segir að útblástur frá Reyðaráli verði innan þeirra vænt- anlegu marka sem gert sé ráð fyrir að heimiluð verði samkvæmt Kyoto-samkomulaginu. Ekkert liggi fyrir á þessu stigi hvernig kvóti á útblástur verði settur á, hvorki hér á landi né annars stað- ar. Fyrirtæki reikni með því að ef af því verði muni reglur þar um verða þannig að allir sitji við sama borð. álögur komi til vegna reksturs eða byggingar álvera í framtíðinni þá minnki arðsemin, sem þá verði að skoða þegar þar að kæmi. Slíkt kunni þá að hafa áhrif á álverð. Ef slíkar álögur eigi hins vegar ein- ungis að gilda í tilteknum löndum þýði það væntanlega að framleiðsla í þeim löndum verði ósamkeppn- isfær við lönd sem búi ekki við slíkt umhverfi. Ragnar segir að eftir eigi að koma í ljós hvort Íslendingar muni geta dregið úr losun útblásturs á öðrum sviðum. Hugmyndir um notkun vetnis séu til að mynda mjög spennandi. Hugsanlega verði hægt að nota það á einhverjum sviðum, sem þá myndi skapa rými annars staðar. Annars eigi umræð- ur um þessi mál eftir að þróast. Menn séu almennt sammála um endanlegt markmið en hins vegar sé ávallt spurning um hvaða leiðir séu farnar að því. Þó sé ljóst að fyr- ir liggi að framleiðsla áls á Íslandi sé mun hagkvæmari en víða annars staðar í heiminum vegna þeirra orkugjafa sem nýttir séu til fram- leiðslunnar. Umræður um slíka þætti eigi án efa eftir að aukast. Of margt sé því óljóst í þessum efnum til að ástæða sé til að gera ráð fyrir kostnaði við hugsanleg kvótakaup vegna útblásturs í rekstraáætlun- um. Ragnar segir að kvóti á útblást- ur hafi væntanlega fremur áhrif á nýbyggingar álvera en rekstur ál- Norðurál, Reyðarál og kvótakaup vegna útblásturs Morgunblaðið/Golli Talið ótímabært að reikna með kostnaði SUNITA Gandhi, framkvæmda- stjóri Íslensku menntasamtakanna sem standa að rekstri Áslandsskóla í Hafnarfirði, segir að samtökin hafi nú til skoðunar ósk Kennarasam- bands Íslands um formlegar við- ræður vegna gerðar kjarasamninga við einkaskóla á grunnskólastigi. „Við eigum eftir að skoða þetta bet- ur og ræða við lögfræðinga okkar um þýðingu þessarar óskar og hvernig hægt sé að leysa úr þessu. Markmið okkar er að eiga góða samvinnu við Kennarasambandið, en miðað við það sem þegar hefur komið í ljós í samskiptum okkar við lögfræðinga sýnist mér að við get- um ekki fallist á þá ósk Kennara- sambandsins að gerðir verði sér- stakir samningar milli okkar og þeirra.“ Sunita bendir á að kennarar hafi lögum samkvæmt rétt til þess að standa utan Kennarasambandsins óski þeir þess. „Með því að gera samninga við Kennarasambandið erum við á vissan hátt að taka þenn- an valmöguleika af kennurum. Ég betur og ræða það við aðra sem hlut eigi að máli, en hingað til hafi skól- inn fylgt kjarasamningum Kennara- sambandsins. Telur Jón líklegt að skólinn muni fallast á gerð kjara- samnings við Kennarasambandið. Einungis formsatriði að skrifa undir þessa samninga Hjalti Þorkelsson, skólastjóri Landakotsskóla, segir viðbrögð skólans við bréfi félags grunnskóla- kennara vera einföld. „Við höfum alltaf haft sömu kjarasamninga og Kennarasambandið gerði áður við ríkið og nú við sveitarfélögin. Allir kennarar okkar og leiðbeinendur eru félagar í Kennarasambandinu og við greiðum laun nákvæmlega eftir samningum þeirra. Skólinn hefur alltaf boðið sömu kjör og Kennarasambandið hefur haft við hið opinbera. Fyrir tveimur til þremur dögum fengum við skeyti frá Kennarasambandinu með samn- ingsdrögum og í okkar augum er það einungis formsatriði að skrifa undir þessa samninga.“ tel því að lagalega séð getum við ekki gert slíkan samning við Kenn- arasambandið. Ef allir kennarar þyrftu lögum samkvæmt að vera félagar í Kennarasambandi Íslands, þá þætti okkur sjálfsagt að gera slíkt samkomulag. Eins og mál standa höllumst við frekar að því að þeir kennarar sem eru meðlimir í Kennarasambandi Íslands greiði sín aðildargjöld líkt og þeir hafa gert hingað til og og við greiðum okkar mótframlag, en við sjáum ekki þörf á því að gera um þetta sérstaka samninga og sjáum heldur ekki hvað það á að færa okkar kennur- um. Það verður að vera gild ástæða fyrir gerð samnings á borð við þenn- an og að okkar mati hefur Kenn- arasambandið ekki útskýrt nægi- lega vel markmiðið með honum, þetta virðast bara vera enn ein skil- yrðin sem Kennarasambandið setur án þess að útskýra af hverju við ætt- um að gera þetta,“ segir Sunita. Jón Karlsson, skólastjóri Suður- hlíðarskóla, segist enn eiga eftir að skoða erindi Kennarasambandsins Ólík afstaða til sérstakra samninga við einkaskóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.