Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 34

Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 34
UMRÆÐAN 34 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ U mræðan sem varð í liðinni viku í fram- haldi verslunar- mannahelgar- innar, og snerist að talsverðu leyti um ofbeldis- og kynferðisglæpi sem framdir voru og sumir hafa viljað tengja við síaukinn aðgang barna og unglinga að grófu ofbeldis- og klámefni, virðist ætla að renna út í hinn hefðbundna sand. Þó eru forvitnilegar tengingar milli þess sem hæst hefur borið í dægurfréttum hér heima und- anfarna viku. Fyrst var það al- menn hneykslan yfir atburðum verslunarmannahelgarinnar og þá auðvitað sérstaklega hvernig Eldborgarhá- tíðin fór fram. Síðan hefur riðið yf- ir önnur hneyksl- unarbylgja vegna þess að hægt var að kom- ast inn á barnaklámsíðu um heimasíðu klámblaðsins Bleiks og blás. Kom það virkilega ein- hverjum verulega á óvart? Ef einhvers staðar er hægt að finna klámefni – löglegt eða ólöglegt – er líklegasta slóðin um hlaðið á klámblaði. Það segir sig næstum sjálft. En veit fólk almennt hvers konar klám er átt við þegar talað er um gróft klám- efni? Ekki ólöglegt klámefni – heldur „bara“ gróft. Í Noregi var gerð könnun á sl. ári á veg- um SINTEF (Rannsóknar- stofnun iðnaðarins í Noregi) og norska ríkislögregluskólans sem bar yfirskriftina „Ofbeldisfullt klám á Netinu“. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að á Net- inu skuli vera hægt að finna klámefni ef leitað er eftir því en það kemur á óvart hversu auð- velt er að finna það og ekki síð- ur kemur á óvart hversu langt mörkin hafa færst til í því sem skilgreint er sem gróft klám. Stjórnendur norsku rannsókn- arinnar skiptu því klámefni sem þeir rannsökuðu í nokkra efn- isflokka og tiltóku að þeir væru vissulega misjafnlega vinsælir en þetta væru engu að síður þeir klámefnisflokkar sem til boða stæðu á Netinu. Nú er það vissulega svo að margar af þeim heimasíðum klámefnis sem standa til boða á Netinu gera kröfu til notandans um áskrift; hann verður að veita persónu- legar upplýsingar og greiða fyr- ir aðganginn með kreditkorti eða einhverju öðru viðurkenndu greiðsluformi. En til þess að hvetja notendur til að gerast áskrifendur eru alls kyns „ókeypis“ sýnishorn í boði og það er gjarnan það efni sem börnin og unglingarnir skoða. Að því ónefndu auðvitað að víða er hægt að nálgast klámefni á Netinu eftir öðrum leiðum án þess að borga sérstaklega fyrir aðgang að því. Til að ekki fari neitt á milli mála hvað átt er við þegar talað er um gróft klám er einfaldast að lýsa þeirri flokkun sem norska rannsóknin lagði til grundvallar. Flokkunin byggist á mati á myndefni, ljósmyndum eða myndbandsbútum. Misþyrmingar á kynfærum. Hnefa, verkfærum, flöskum, töngum o.fl. er troðið upp í leg- göng eða endaþarm. Sýnt í nær- myndum. Bandingjar – pyntingar. Kvenmaður er bundinn upp eða festur á einhvers konar tækja- búnað, s.s. fallaxir, handjárn og/ eða fótajárn. Járnprjónum er stungið í kynfæri, nef, handleggi eða fætur. Kefluð, bundin og pyntingar. Svipbrigði sýna ótta og skelfingu. Nánast alltaf er það nakin kona sem er pyntuð en böðullinn er karlmaður, fá- klæddur með hettu á höfðinu. Í mörgum tilfellum er mikil áhersla lögð á að láta líta svo út sem aðstæður séu „raunveruleg- ar“, þ.e. hafi raunverulega gerst. Plastpokar og kæfingar. Hér eru sýndar ýmsar aðferðir við að kæfa fólk í samförum eða til að ná kynferðislegu hámarki af einhverri gráðu. Kyrkingar með ýmsum búnaði eru sýndar í smáatriðum. Nánast alltaf eru það konur sem verða fyrir of- beldinu. Hér er einnig lögð mikil áhersla á „raunveruleikann“. Nauðgun. Alls kyns útfærslur á nauðgunum eru sýndar á klámvefjum Netsins. Lögð er áhersla á raunveruleika atburð- arins og í sumum tilfellum eru sviðsettar nauðganir þar sem fórnarlambið – nánast alltaf kona – er myrt í lokin. Barnaklám. Hér eru allar hugsanlegar aðfarir sýndar við kynferðislegt ofbeldi og mis- notkun á börnum allt að þriggja ára aldri. Langflestir gerendur eru karlmenn. Oft eru aðstæður sviðsettar með þeim hætti að gerendur eru feður, afar eða frændur barnanna. Náriðlar og dýraklám. Auk þess sem sýndar eru samfarir í alls kyns stellingum við lík og dýr af ýmsum tegundum eru sýndir sundurslitnir líkamar og líkamspartar sem síðan eru not- aðir við kynferðislegar athafnir. Morð og limlestingar. Hér er sýnt hvernig gerandinn (karl- inn) myrðir og limlestir fórn- arlambið (konuna) samtímis því sem hann kemur fram vilja sín- um með ýmsum hætti. Saur og þvag. Hér er saur og þvag orðið að ómissandi hluta af kynferðislegri upplifun. Ger- endur ata sjálfa sig og aðra í eigin úrgangi með ýmsum hætti. Varla þarf þessi upptalning að verða lengri til að lesandinn átti sig á því að þeir sem alast upp við nokkuð auðveldan aðgang að slíku efni fá vafalaust sérkenni- legar hugmyndir um kynlíf og kynhlutverk, að ekki sé meira sagt. Aðeins einn af þeim flokk- um sem hér eru taldir telst ólög- legur. Það vekur ýmsar spurn- ingar um almennt siðferði. En óneitanlega rifjast upp orð Stígamótakonunnar sem talaði um virðingarleysi unglinga nú til dags fyrir líkamlegum rétti meðbræðranna og vísaði þar til hins grófa kláms sem allir hefðu aðgang að. Hið löglega klámefni Alls kyns útfærslur á nauðgunum eru sýndar á klámvefjum Netsins. Lögð er áhersla á raunveruleika atburðarins og í sumum tilfellum eru nauðganirnar sviðsettar. VIÐHORF Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is HALLDÓR Blöndal, sá er bréfaði Hæsta- rétti, sendir mér kveðju í Morgunblaðinu sl. fimmtudag (9. ágúst). Halldór Blöndal er ís- lenskumaður allgóður og skánandi vísnagerð- armaður (hagyrðingur væri of mikið sagt) með aldrinum. Þá ritar hann yfirleitt áferðarfallega, en að vísu stirðlega, texta. Áðurnefnd grein Halldórs í Morgun- blaðinu nýtur í litlu góðs af þessum kostum hans. Ekki ritar þar þroskaður og víðsýnn stjórnmálamaður af umburðarlyndi fyrir ólíkum sjónarmiðum. Ekki ritar þar einstaklingur vandur að virðingu sinni í umgengni við staðreyndir. Ekki ritar þar glaðbeittur, harðsnú- inn en sanngjarn andstæðingur í rök- ræðu. Nei; grein Halldórs Blöndals um mig og heygarðshornið skortir allt þetta. Innihald greinarinnar er sýnu lakara forminu og er þó óskyld- um hlutum hrúgað saman, vaðið úr einu í annað og fram og til baka í tíma. Kemur það ekki tiltakanlega á óvart því Halldór Blöndal er þekktari af öðru en skipulegri hugsun og fram- setningu. Sérstaklega er leitt að skynja geðvonskuna svo ekki sé sagt biturðina sem leggur af ritsmíðum hans eins og ódaun. Þetta framlag Halldórs Blöndals til stjórnmálaum- ræðunnar minnir á smjör, sem upp- haflega var sæmilega strokkað og hæft til átu, en hefur kasúldnað í sumarhitum og er nú ekki manni bjóðandi. Athyglisvert er að Halldór Blöndal kýs að undirrita grein sína með starfsheitinu forseti Al- þingis. Í krafti þess embættis skirrist hann ekki við að persónugera svo mjög sem raun ber vitni jafnt gömul sem ný deilumál. Vera kann að forseti Alþingis, Halldór Blöndal, hagi svo til vitandi sig hvort sem er trausti rúinn í því embætti. Ég mun ekki oftar greiða þeim færibandsstjóra fram- kvæmdarvaldsins, sem birtist mér síðastliðinn vetur á forsetastóli í Al- þingi, atkvæði mitt í forsetakjöri. Þá yfirsjón verð ég hins vegar að játa að hafa gert hingað til. Ryðbrandar Blöndals Ekki verða að þessu sinni eltar ólar við fjölmarga útúrsnúninga og rang- færslur Halldórs í minn garð eða Vinstrihreyfingarinnar- græns fram- boðs í áðurnefndri blaðagrein. Hér skulu aðeins nefnd nokkur dæmi um lágkúruna megi það verða mönnum til viðvörunar að taka ekki mark á skrifum hans. 1. „Hann (undirritaður) var á móti frjálsum gjaldeyrisviðskiptum“ fullyrðir Halldór í grein sinni. Eng- inn rökstuðningur fylgir, engar heimildir eru tilgreindar. Ekki man ég hvort ég hef alltaf stutt ein- stök skref til breytinga á reglum um gjaldeyrisviðskipti en nefna má að stjórnarandstaðan, og undirrit- aður þar með talinn sem nefndar- maður í efnahags- og viðskipta- nefnd, lagðist ekki gegn breytingum til rýmkunar sem gerðar voru á lögum um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála á 114. löggjafarþingi 1992. Hitt þykist ég og muna að hafa setið í einmitt þeirri ríkisstjórn á árunum 1988- 1991 sem losaði, einkum 1990, um ýmis gjaldeyrishöft sem fyrri rík- isstjórnir, með aðild Sjálfstæðis- flokksins og stuðningi Halldórs Blöndals, höfðu látið óhreyfð. Þessi fullyrðing Halldórs er órökstudd, út í loftið, röng. 2. Halldór reynir að gera sér mikinn mat úr því að ég tali um nauðsyn þess að fullvissa Austfirðinga um að þótt ekkert verði úr byggingu álvers og stórvirkjana þá verði þeir ekki skildir eftir á köldum klaka. Öllum má ljóst vera að ég er að vísa til væntinga stuðningsmanna ál- versins. Ég hef margsinnis varað við þeirri hættulegu framsetningu mála að ekkert nema þessar til- teknu stóriðjuframkvæmdir geti orðið byggð á Austfjörðum til bjargar. Þá nauðhyggjustefnu hef ég kallað „álver eða dauði“. Allir Úldið smjör Halldórs Blöndals Steingrímur J. Sigfússon Stjórnmál Ofangreindir og aðrir ryðbrandar Halldórs Blöndals bíta lítt, segir Steingrímur J. Sigfússon, þegar til málefnalegra skoðana- skipta um umhverfis- vernd og stóriðju- og virkjanamál kemur. NÚ Á tímum er oft mikið talað um ímynd Íslands. Sú ímynd fel- ur í sér marga drætti. Hversu skýrir þeir eru hver um sig fer að verulegu leyti eftir því hversu skýra við drög- um þá sjálf; hverja áherslu við viljum sjálf leggja á hvern um sig. Einn drátturinn í ímynd Íslands – og ekki hinn veigaminnsti nú á tímum – er þessi: Ísland. Land hinnar hreinu orku. Landið sem nýtir hreinar, endurnýjanlegar og mengunarlausar orkulindir, að heita má lausar við gróðurhúsaloft- tegundir, í ríkari mæli en nokkurt annað iðnríki í heiminum. Rúmlega 74% orkunotkunar innanlands og á fiskimiðunum umhverfis landið komu frá slíkum orkulindum árið 2000. Markmið Evrópusambands- ins fyrir árið 2010 er að þá verði hlutur slíkra orkulinda hjá þeim kominn í 12%. Núverandi hlutdeild þeirra er milli 5 og 6%. Er þetta ekki ímynd sem við eig- um að kynna rækilega og leggja áherslu á? Bæði rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar, sem Kyoto-bókunin er gerð við, og Bruntlandsskýrsla SÞ um framtíð okkar allra leggja höf- uðáherslu á nýtingu slíkra orku- linda. Já! Vel á minnst! Kyoto-bókunin og losun á CO2. Á einum stað í nýrri úrskurðar- skýrslu Skipulags- stofnunar um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar setur sérfræðingur frá Landvernd, í athuga- semd frá henni, fram sviðsmynd af losun á CO2 frá uppistöðulón- um virkjunarinnar. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að saman- lögð losun á fimm fyrstu árum hennar, þar með talin losun vegna sjálfra virkjun- arframkvæmdanna, geti numið 430.000 tonnum af CO2, að meðtöldu CO2- ígildi annarra gróðurhúsaloftteg- unda frá lónunum, svo sem metans. Það telur hann að sé álíka mikil los- un og búast megi við frá lónunum næstu 150–200 árin þar á eftir. Samanlagt þannig 860.000 tonn á næstu 155–205 árum. Við skulum í bili láta vera að gagnrýna þessar tölur en taka þær góðar og gildar. Við dreifum þess- ari losun á 100 ár eins og venjan er að gera þegar losun gróðurhúsa- lofttegunda frá uppistöðulónum vatnsaflsstöðva er borin saman við losun frá eldsneytisstöðvum. Þetta þýðir 8.600 tonn af CO2 á ári að meðaltali, eða 1,76 grömm á hverja kWh sem virkjunin framleiðir, sem svarar til 0,2% af losun kolakyntrar rafstöðvar. Er að undra þótt bæði Brundt- landsskýrslan og rammasamning- urinn leggi áherslu á orkulindir á borð við Kárahnjúkavirkjun? Skipulagsstofnun leggst gegn Kárahnjúkavirkjun. Við skulum – einnig í bili – segja að það leiði til þess að virkjunin verði ekki gerð. Ekkert verði af álveri í Reyðarfirði og Norsk Hydro leiti annað eftir orku. Til dæmis til Kína, Indlands eða Suður-Afríku, sem öll eiga gnægð af mjög ódýrum kolum. Ekkert þessara landa hefur skuld- bundið sig samkvæmt Kyoto-bók- uninni til að draga úr losun sinni. Við skulum reikna með að Reyð- arfjarðarálverið verði í staðinn reist í einhverju þeirra og fái rafmagn frá heldur nýtískulegri kolastöð en gengur og gerist í þessum löndum nú. Slík stöð myndi losa árlega 4,27 milljónir tonna af CO2, nærfellt 500-falda losunina frá lónum Kára- hnjúkavirkunar og 125% af allri los- un Íslendinga 1999 innanlands og á fiskimiðunum. Er það í anda rammasamningsins og Bruntlandsskýrslunnar að Ís- lendingar sendi álverið til þessara landa með því að hafna Kára- hnjúkavirkjun? Bæta þeir ímynd sína meðal þjóða heims með því? Eða er álverið betur komið í landi hinnar hreinu orku? Land hinnar hreinu orku Jakob Björnsson Virkjanir Einn drátturinn í ímynd Íslands, segir Jakob Björnsson, og ekki hinn veigaminnsti nú á tímum – er þessi: Ísland. Land hinnar hreinu orku. Höfundur er fyrrverandi orkumálastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.