Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 37
sömu lögmál og afréttirnar, „beit-
ina“ verður að takmarka á hafi sem
og á landi.
Tólf hvalategundir eru taldar
vera hér við land, fæðuþörf þeirra
er talin vera um 6 miljónir tonna á
ári, samsetningin er nokkuð í
óvissu, til þess að kanna það þarf
miklar rannsóknir sem vart verða
gerðar nema með nokkrum veiðum
á helstu tegundum, umfram þær
arðbærustu, sem sjálfsagt er að
hefja veiðar á hið fyrsta.
Af fiski er talið að hvalir éti að
minnsta kosti 1,5 milljónir tonna,
hrefnan er talin skæðust í þorsk-
inum, hnúfubakur í síld og loðnu.
Báðum þessum tegundum fjölgar
mikið. Þá eru það 2,5 milljónir
tonna af krabbadýrum og smokk-
fiski sem hvalir gleypa í sig. Þetta
er aðalfæða ungfisksins, vafalaust
slæðist mikið af honum með. Dæmi
eru um tugþúsundir hrognkelsa-
seiða í maga einnar langreyðar.
Fullvíst má telja að aukning
hvala við landið eigi drjúan þátt í
því að stofnum nytjafiska hrakar
með hverju árinu. Þrátt fyrir það
hafa stjórnvöld dregið lappirnar við
að koma í framkvæmd samþykkt
Alþingis um að hefja beri hval-
veiðar hið fyrsta. Hræðsla við
grænfriðunga og annað veruleika-
firrt lið lengir aðeins í snörunni.
Kröfur um að friða þorskinn og
fleiri tegundir fyrir hvalina eru
þegar farnar að heyrast. Það verð-
ur því æ ljósara að hvalveiðar eru
orðnar okkar landhelgismál.
Höfundur er útgerðarmaður
í Keflavík.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 37
skór í miklu
úrvali
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin
mbl.isFRÉTTIR
Gullsmiðir