Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 39

Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 39
tegundir í pokunum og smælki af mörgum stærðum. Stundum vilja menn veiða kola en henda bolfiski ef þeir hafa ekki kvóta; eða menn sækjast eftir bolfiski og henda kola ásamt öllum smáfiski. Sóknarmarkstýring og veiðihólf með sérákvæðum er það sem koma skal; það er beinlínis skrifað á vegginn. Íslenska þjóðin og ekki síst dreifðar byggðir eiga kröfu á því að hámarksafrakstur náist og að besta þekking fái notið sín án þess að þurfa að lifa við sífelldan yfirgang og upplýsingamengun frá þeim aðilum, sem hafa fjárfest upp fyrir haus í dýrum og of mörgum skipum og sem krefjast þess nú að fá í sig og á með allar græjurnar, jafnvel þótt vaða verði yfir holt og hæðir með öflugan búnaðinn og þjarma að krókaveiðum, eins og lambi fátæka mannsins, í nafni réttlætis og hagræðingar í skjóli rangupplýstra stjórnmálamanna eða öflugra „lobbýista“. Það er bæði skynsamlegt og réttlátt að krókaveiðar fái forgang að nálægum miðum og megi afla stórs hluta af heildinni, en aðeins reynslan getur leitt í ljós hversu stór sá hlutur gæti bestur orðið. Um þessar mundir er hlutur smá- báta á milli 20 og 30% og líklegt má telja, að hlutur þeirra geti orð- ið um helmingur, en önnur veiði- skip verði að veiða utar í stíl við aðferðir Færeyinga. Stýringu á krókaveiðum má augljóslega við- hafa með fjölda veiðileyfa og stöðvun veiða ef forsendur breyt- ast. Veiði á laxi er stjórnað með sóknarmarki (stangafjöldi), en hlutur hvers veiðiréttareiganda fer síðan eftir reynslunni af veiði á hverju svæði. Því verður ekki trúað, að ein- stakir krókaveiðimenn hafi til þess siðferðilegan eða lagalegan rétt að taka við úthlutuðum og framselj- anlegum aflakvótum, sem eru til tjóns fyrir eftirkomendur. Afla- markskvóti er aðferð sem hefur alls staðar brugðist og það er skítt fyrir Íslendinga að þurfa að hlusta á siðaboðskap frá Ritt Bjærre- gaard, ráðherra fiskveiða í Dan- mörku, og heyra hana lýsa því hvernig fiskstofnar Norðursjávar hafa verið eyðilagðir með afla- markskvótum og nota til þess orð- bragðið „ógeðsleg sóun“. Það er líka til að æra óstöðugan að elta ólar við svokallaða „Gallupkönnun“ þingsins um brottkast fisks, en flestir sæmilega óglámskyggnir sjá að skoðanakönnun meðal fiski- manna er ámóta marktæk um brottkast og könnun meðal áhafna á farskipum á hvort þær hafi smyglað áfengi eða ekki. Formað- ur „brottkastsnefndarinnar“ telur að 80% sjómanna kasti ekki fiski! Slörkuleg sjálfsblekking sem sag- an mun dæma. Höfundur er efnaverkfræðingur. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.