Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 42

Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 42
MINNINGAR 42 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður Guð-mundsdóttir fæddist í Þórðarkoti í Selvogi 3. sept 1914. Hún lést 2. mars síðastliðinn á öldrunardeild Land- spítalans. Foreldrar hennar voru Helga Erlendsdóttir, f. 29.11. 1879, d. 29.4. 1952, og Guðmundur Halldórsson, f 8.1. 1884, d 13.2. 1967. Bróðir Sigríðar var Halldór, f. 14.11. 1912, d. 24.11. 1993. Sigríður var ógift en sonur henn- ar er Guðmundur Sigurðsson, fyrrv. skrifstofustjóri Meitilsins hf. í Þorlákshöfn, f. 8.1. 1944. Kona hans er Hafdís Hafsteins- dóttir sjúkraliði og gengu þau í hjónaband 5.7. 1969. Dætur þeirra eru: 1) Helga Sigurósk, f. 27.12. 1971, maki hennar er Júlíus Jón Þorsteinsson, f. 14.10. 1969, og dótt- ir Elva Karen, f. 27.12. 1997. 2) Hall- dóra Björk, f. 23.4. 1981, maki hennar er Brynjar Einir Einarsson, f. 6.2. 1975, og dóttir Þór- ey Katla, f. 17.7. 2000. 3) Sigrún Elva, f. 9.4. 1983, nemi við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Faðir Guðmundar var Sig- urður Pétursson, f. 22.7.1919, d 11.6. 1952. Foreldrar hans voru Pétur Sigurðsson tónskáld, f. 14.4. 1899, d. 25.8. 1931, og kona hans Kristjana Sigfúsdóttir, f. 28.6. 1907, d. 28.9. 1955 Útför Sigríðar fór fram frá Ás- kirkju 12. mars. Þegar mamma var á milli tvítugs og þrítugs fór hún til Hafnarfjarðar og var þá hjá konu sem hét Anna og mamma talaði alltaf um Önnu saum. Í framhaldi af því var hún í vistum sem kaupakona á Eyrarbakka og í Reykjavík og rétti alltaf fram hjálp- arhönd ef með þurfti. Mikið talaði hún um Kiddu og John, en hún var bæði hjá þeim er þau bjuggu á Hverfisgötunni og síðar eftir að John heitinn lést, heimsótti hún Kiddu í Hraunbæinn. Já, hún talaði alltaf svo hlýlega um hann Birgi sinn sem var sonur Kiddu en einnig um Röggu og Sigurjón litla. Þegar mamma var að nálgast þrí- tugt kynntist hún Sigurði Péturs- syni, föður mínum. Þau felldu saman hugi en áttu stutt kynni og í kjölfarið fæddist ég. Pabbi var mikill berkla- sjúklingur. Hann lést árið 1952 þeg- ar ég var átta ára að aldri. Alveg frá fæðingu minni ól mamma önn fyrir mér og vildi ekki hafa það öðruvísi. Þótt hún ynni myrkranna á milli eft- ir að hún hóf störf í matstofu Meit- ilsins í Þorlákshöfn upp úr 1950, fann maður ávallt hlýjuna og um- hyggjuna sem skein úr andliti henn- ar. Eftir tíu ára starf í matstofunni hóf hún störf í frystihúsinu í sama fyrirtæki. Þar vann hún óslitið til 1981. Fyrsta barn okkar fæddist árið 1971 mömmu til mikillar ánægju. Það varð okkur Hafdísi minnisstætt, þegar við fjögur vorum á leiðinni heim af fæðingardeildinni að mamma stakk upp á því að dóttir okkar yrði skírð Helga í höfuðið á móður hennar. Þegar Halldóra Björk, annað barn okkar Hafdísar, fæddist gætti mamma hennar hálfan daginn meðan ég og Hafdís unnum úti. Okkar þriðja dóttir, Sigrún Elva, var skírð í höfuðið á Sigurði föður mínum. Mamma unni stúlkun- um okkar þremur mikið og þær veittu henni ómælda ánægju. Árið 1987 hóf Helga, dóttir okkar, fram- haldsnám í Reykjavík og dvaldi hún þá hjá ömmu sinni. Einnig dvöldu tvær yngri dætur okkar, Sigrún og Halldóra, mikið hjá ömmu sinni yfir sumartímann og eiga þær margar og skemmtilegar minningar frá þeim tíma. Mamma kallaði Sigrúnu Sillu sína og hún hélt svo sannarlega upp á hana því hún var svo lífleg og kát stúlka. Það sést líka í dag hvað mamma hefur látið gott af sér leiða og gefið dætrum okkar mikið og gott veganesti út í lífið. Það sem stendur hæst upp úr við þessi kaflaskipti í lífi okkar er hversu trúuð hún var og er um leið stuðningur við okkur sem syrgjum þessa elskulegu konu. Að lokum langar mig að tala um þau sérstöku nánu tengsl sem mynduðust á milli Hafdísar eigin- konu minnar og mömmu, þessar síð- ustu stundir hennar í þessu lífi. En frá árinu 1997 bjó mamma hjá okkur í Engjaseli 79. Þegar heilsa hennar fór að bresta annaðist Hafdís mömmu og passaði upp á að hún tæki lyfin og hlúði að henni að öðru leyti. Í framhaldi af því eyddu þær miklum tíma saman ásamt dætrum okkar. Eftir að mamma lagðist inn á sjúkradeildina var Hafdís sú sem hún treysti alfarið á í einu og öllu. Alltaf um leið og ég heilsaðið henni án Hafdísar spurði hún hvar Hafdís væri. Að leiðarlokum þökkuðum við þér órofa tryggð og alla leiðsögn sem þú veittir okkur öllum. Biðjum við al- góðan guð að blessa þig um alla ei- lífð. Blessuð sé minning þín. Guðmundur, Hafdís, Sigrún, Halldóra, Brynjar og Þórey Katla. Elsku amma mín. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Það er svo ótalmargt sem kemur upp í hugann þegar maður hugsar til baka og það er erfitt að rifja allar minningarnar upp án þess að fella tár. Þú bjóst hjá okkur í Þorlákshöfn á mínum bernskuárum og ólst mig upp ásamt foreldrum mínum. Þú fluttir til Reykjavíkur 1982 í íbúðina þína á Kleppsveginum þar sem þú áttir þínar bestu stundir. Þú fórst allra þinna ferða í strætó og vildir helst ekki ferðast með fólksbíl. Þú vildir vera sjálfs þín herra og oftar en ekki sá ég þig labba heim úr strætó eða búðinni með burðapoka og varstu nú oft fegin þegar ég keyrði upp að þér og bauð þér far heim, þótt stutt væri. Þessi átta ár sem ég bjó hjá þér á Kleppsveginum líða mér seint úr minni. Við áttum góðar stundir saman og þú stjanaðir við mig eins og þú gast. Þú varst alltaf með góðan mat á hverjum degi og alltaf varstu með graut á eftir eða eitthvað annað gott. Þú sást sko um að hafa mig pattaralega. Svo voru það kleinurnar sem þú bakaðir! Þær voru ljúffengar eins og allt annað sem þú gerðir. Svo spiluðum við mikið og þá sérstaklega Marías. Ég fékk tækifæri til að spila við þig í síð- asta skipti sem ég sá þig en það var í janúar. Þú varst mjög þreytt en samt vildirðu spila og það vottaði fyrir gleðisvip. Mér fannst erfitt að vera svona langt frá þér þennan tíma sem þú varst á spítalanum og geta ekki komið að heimsækja þig. Ég talaði við þig í síma viku áður en þú fékkst hvíldina og ég spurði þig hvernig þér liði. Þú sagðir að þér myndi líða betur ef þú fengir að fara og viku síðar fékkstu hina langþráðu hvíld. Elsku amma mín. Það er mér erf- itt að hugsa um hve sárt þér þótti að yfirgefa fallegu íbúðina þína á Kleppsveginum, en heilsa þín var farin að bresta. Eitt af því sem færði þér mikla gleði var langömmubarnið þitt, hún Elva Karen, sem fæddist í sama mánuði og þú fluttir til for- eldra minna í Engjasel 79. Þið áttuð margar góðar stundir saman og þú kenndir henni á spilin. Hún naut þess að vera ein með þér í herberg- inu þínu og þótt þú værir mjög slöpp vildirðu samt alltaf leyfa henni að vera. Henni þótt mjög tómlegt að koma að herberginu þínu tómu eftir að þú fórst á spítalann, en þú fórst þangað 24. ágúst og áttir ekki aft- urkvæmt heim. Elsku amma mín. Ég sakna þín mikið og ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég vil kveðja þig elsku amma mín með þessum orðum sem þú kenndir mér. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín sonardóttir, Helga. SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.   3     %   %     <<+) <2= +)  (7 " 9I 7 & J !   &  !   7* )** /       $      5! $& 3 6$4 &&  <:&.$:-&&  /   ! !""   $ = .$:-&& - ! 2&$4 &!""  4&".$:-&&  < ! A0"&!""  6$4 .$:-&&    '% &!""   4 * "       %     % ) *6  +) 7 @-  &" KI #7$ '7       (    !     ! ' - ..*  !(* "%: && ' !  !&!"" "%:  !&&    !   &!""     ! * - !&& * "            /<)<  7@. "E8 #7$ '7 !   + %  ! ' - *.* /   !  $  !     A:&!"" > -&& 3 ' )4%-&!""  & 7 )&7 && - -&&  ,2&"  7 !""  ,/ 0"-&!"" / B  " +A    4 *       %     %    ++F  =< ==?/= + +) 'L"" 7  <4 77I (@  !   8    ! ' - ..*   + '&&  - !* && < %#( &!"" (&"$: +* && 2&".!*  &!""  $4  &&    6$4 &!"" < %# &!""   &&   4 *           % =?=2* =6 : "& "8M #7$ '7  !      ! 8 #!   ( ) %  $ &!"" 2&  && & )&7 % &!""  $4  !""  %  $4 && (&"'   !"" 6  && <$ 2 !""  &  ,)&7 &!""   6&& *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.