Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 49
ÍSLENSKIR skákmenn hafa náð
fjórum áföngum að alþjóðlegum
meistaratitlum á undanförnum tveim-
ur mánuðum. Enn fleiri áfangar voru
innan seilingar þó þeir rynnu íslensku
skákmönnunum úr greipum á loka-
sprettinum. Langt er síðan titiláfang-
ar hafa streymt inn með þessum
hætti. Þessi tíðindi, auk vaxandi þátt-
töku íslenskra skákmanna í mótum
erlendis, gera það að verkum að sum-
ir eru farnir að velta fyrir sér hvort
nýtt „skákvor“ sé gengið í garð. Óhik-
að er hægt að segja að íslenskt skáklíf
hafi blómstrað undanfarna mánuði,
en framtíðin mun skera úr um það
hvort vorið sé svo öflugt að sumar
fylgi í kjölfarið. Þessi frammistaða
hefur orðið til þess, að skákáhuga-
menn hafa rifjað upp blómaskeið okk-
ar Íslendinga í skákinni þegar lands-
liðið barðist um efstu sætin á
Ólympíuskákmótum og við gátum tví-
mælalaust flokkast með stórveldum
skákheimsins.
Nýja kynslóðin í skáklífi okkar sýn-
ir vaxandi metnað og sjálfstraust í
kjölfar velgengninnar og Bragi Þor-
finnsson hefur skrifað athyglisvert
bréf á Skákhornið þar sem þetta kem-
ur skýrt fram. Þar segir þessi efnilegi
skákmaður m.a.: „Ég á mér þann
draum að sjá Ísland í toppbaráttunni
á Ólympíumótinu. Sjá Ísland meðal
fimm efstu þjóða því að þar eigum við
að vera. Hér er mikil skákhefð og vilj-
inn til að ná langt er nú til staðar. Nú
þarf að hamra járnið meðan það er
heitt.“ Bragi gerir sér grein fyrir að
lykillinn að árangri í skák er stanslaus
vinna og að þjálfunin þarf að vera góð,
víðtæk og ná m.a. til sálfræðilegra og
líkamlegra þátta. Einnig þarf að skil-
greina vörður á þessari leið og Bragi
telur að ef rétt verði haldið á spilun-
um þá geti Íslendingar eignast 3-4
stórmeistara innan þriggja ára.
Þegar svona skýrt er kveðið að orði
af einum okkar efnilegasta skák-
manni er tímabært að skoða hvað
þurfi að gera til að þessi markmið ná-
ist. Ekki er að efa að hin vaska stjórn
Skáksambandsins mun svara þessu
kalli hinnar nýju kynslóðar og fara yf-
ir þetta umfangsmikla mál í smáat-
riðum. Hér verður hins vegar fjallað
um eitt af því fyrsta sem þarf að huga
að, en það er fjölgun alþjóðlegra
meistara. Hinu má þó ekki gleyma, að
þar er einungis um að ræða einn af
fjölmörgum þáttum sem þarf að sinna
til að halda úti öflugu skáklífi hér á
landi. Í meðfylgjandi töflu má sjá lista
yfir þá skákmenn sem hafa orðið al-
þjóðlegir skákmeistarar, en níu
þeirra eru nú stórmeistarar. Jafn-
framt sést hvaða ár þeir urðu alþjóð-
legir meistarar og stórmeistarar, þeir
sem þeim titli náðu. Fjöldi AM-titla
eftir áratugum er sem hér segir:
1951-1960: 1
1961-1970: 2
1971-1980: 4
1981-1990: 5
1991-2000: 4
Það er verðugt markmið að stefna
að því að slá fyrri met í fjölda alþjóð-
legra meistara á þessum áratug svo
um munar og ná á fyrri hluta hans
jafnmörgum alþjóðlegum meisturum
og mest hefur áður verið á heilum
áratug, þ.e. fimm. Miðað við þann
efnivið sem við eigum núna ætti það
að vera raunhæft markmið. Þeir
Bragi Þorfinnsson, Stefán Kristjáns-
son og Arnar Gunnarsson hafa alla
burði til að verða alþjóðlegir meist-
arar innan skamms tíma og aðrir eru
skammt undan eins og sást í sumar.
Áratugurinn sem er að hefjast telst
þó ekki merkilegur nema takist síðan
að ná viðlíka árangri á seinni hluta
hans og 10 alþjóðlegir meistarar líti
dagsins ljós fyrir lok áratugarins. Þar
höfum við reyndar ýmsa skákmenn
sem gætu bæst í hóp alþjóðlegra
meistara og nægir þar að nefna þá
Dag Arngrímsson og Guðmund
Kjartansson. Til samanburðar má
geta þess að á besta tíu ára tímabilinu
hingað til, þ.e. 1978-1987, urðu 8 Ís-
lendingar alþjóðlegir meistarar. Mið-
að við vaxandi vinsældir skákarinnar
og þar af leiðandi harðnandi baráttu á
alþjóðlegum skákmótum er óhugs-
andi að það dugi Íslendingum að eign-
ast færri en 10 alþjóðlega meistara á
þessum áratug ef stefnt er að svip-
uðum árangri og best gerðist áður.
Það sem er erfiðast í markmiðun-
um sem Bragi Þorfinnsson setur fram
er að ná 3-4 stórmeisturum innan
þriggja ára. Það er þó alls ekki
ómögulegt, en til þess að svo geti orð-
ið þurfa allir að leggjast á eitt og
vinna saman að þessu markmiði:
Skáksambandið, taflfélögin, Skák-
skólinn og síðast en ekki síst skák-
mennirnir sjálfir. Öflugur stuðningur
atvinnulífs og stjórnvalda væri að
sjálfsögðu einnig ómetanlegur.
Borgarskákmótið á morgun
Borgarskákmótið 2001 fer fram í
Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 17.
ágúst og hefst kl. 15:00. Fyrsta mótið
var haldið á 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar 18. ágúst 1986 og hefur
verið haldið árlega síðan og oftast í
Ráðhúsinu. Mótið hefur ávallt verið
mjög fjölmennt og meðal þátttakenda
eru jafnt áhugamenn sem sterkustu
skákmenn þjóðarinnar. Ókeypis að-
gangur og eru skákmenn hvattir til að
skrá sig sem fyrst.
Sigurvegari í fyrra var Helgi Ólafs-
son sem tefldi fyrir Innkaupastofnun
Reykjavíkur, en allir keppendur
draga fyrirtæki sem þeir tefla fyrir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjórinn í Reykjavík, leikur fyrsta leik
mótsins, en það eru Taflfélag Reykja-
víkur og Taflfélagið Hellir sem standa
að mótshaldinu í sameiningu. Tefldar
verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi
með sjö mínútna umhugsunartíma.
Verðlaun: 1. 12.000, 2. 7.000, 3.
5.000 krónur. Hægt er að skrá sig
símleiðis í 861 9416 (Gunnar) og 896
3969 (Ríkharður) eða í tölvupósti
(hellir@simnet.is). Hægt verður að
fylgjast með skráningu í mótið á vef-
síðu mótsins, simnet.is/hellir/borg-
ar2001.htm.
Helgarskákmót
í Blöndu um helgina
Helgarskákmót verður haldið í
Blönduvirkjun helgina 18.-19. ágúst
2001. Mótshaldari er Landsvirkjun í
samvinnu við Skáksamband Íslands.
Mótið er fjórða mótið af fimm í Helg-
armótasyrpu SÍ. Tefldar eru 9 um-
ferðir, atskák eftir Monrad/Sviss-
neska-kerfinu. Heildarverðlaun nema
kr. 160.000 auk aukaverðlauna. Arnar
E. Gunnarsson er efstur í Helgar-
mótasyrpunni eftir fjögur mót. Dag-
skrá mótsins:
18.8. kl. 14-18 1.- 4. umf.
19.8. kl. 10-12 5.- 6. umf.
19.8. kl. 13-16 7.- 9. umf.
Verðlaun: 1. kr. 80.000, 2. kr.
50.000, 3. kr. 30.000 + aukaverðlaun.
Þátttökugjald sextán ára og eldri:
kr. 1.500, fimmtán ára og yngri: kr.
700. Frítt er fyrir stórmeistara og al-
þjóðlega meistara í kappskák. Matur,
kaffi og meðlæti frítt fyrir keppendur.
Fríar rútuferðir verða frá Reykjavík
og Akureyri
Skrifstofa Skáksambands Íslands,
Faxafeni 12, 108 Reykjavík tekur við
skráningum á mótið. Skrifstofan er
opin kl. 10-13 alla virka daga, sími:
568 9141, fax: 568 9116,
netfang: siks@itn.is
Nauðsynlegt getur reynst að tak-
marka fjölda þátttakenda í mótinu.
Skákmenn eru því hvattir til að skrá
sig strax.
SKÁK
Í s l a n d
2001 SKÁK
AM-ÁFANGAR
Uppsveifla í íslensku skáklífi
Daði Örn Jónsson
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri
á síðustu sætunum til Costa del Sol, 23. ágúst, í 2 vikur. Þú
bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú
gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
okkar allan tímann.
Verð kr. 49.985
Verð á mann miðað við hjón með
2 börn, 2–11 ára, flug, gisting,
skattar, 23. ágúst, 2 vikur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 59.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
23. ágúst, 2 vikur.
Síðustu sætin
Stökktu til
Costa del Sol
23. ágúst í 2 vikur
frá kr. 49.985
Upplýsingar og innritun
á www.ntv.is
í símum
544 4500 og 555 4980 og
Myndvinnsla í Photoshop
Teikning í Freehand
Umbrot í QuarkXpress
Samskipti við prentsmiðjur
og fjölmiðla
Meðferð leturgerða
Meðhöndlun lita
Lokaverkefni
Kennd er gerð og uppsetning
auglýsinga, blaða og bæklinga.
Vinnuferlið er rakið, allt frá hugmynd að
fullunnu verki. Námið er 156 kennslustundir.
Örfá sæti laus á kvöldnámskeið sem byrjar 3.sept. og
síðdegisnámskeið sem byrjar 11. sept.
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 200 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
Atækni
Helstu námsgreinar
uglýsinga-
Örfá
sætilaus
n
t
v
.i
s
nt
v.
is
n
tv
.i
s
Mörkinni 3, sími 588 5484.
Lokað í dag
Útsalan hefst á morgun kl. 12