Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 50
DAGBÓK
50 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: c.
Columbur kemur og fer
í dag. Örn, Dettifoss,
Ottó N. Þorláksson og
Helgafell fara í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkað-
ur í Kattholti, Stangar-
hyl 2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laugar-
daga kl. 13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan,bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 op-
in smíðastofan, kl. 10–
16 púttvöllur opinn.
Ath. Nýtt símanúmer
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9.30 morgun-
kaffi/dagblöð, kl. 11.15
matur, kl. 15 kaffi.
Fimmtudaginn 23.
ágúst kl. 8 verður skoð-
unarferð, Hrauneyja-
fossvirkjun og ná-
grenni. Heimsækjum
Þjóðveldisbæinn,
Vatnsfellssvæðið,
Hrauneyjafossvirkjun
og Sultartangastöð,
komið við hjá Hjálpar-
fossi. Hádegisverður,
kjöt og kjötsúpa,
snæddur í Hálendis-
miðstöðinni. Hlýr
klæðnaður og nesti.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 568-5052 eigi
síðar en mánudaginn
20. ágúst.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9. fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl.
11.20 leikfimi, kl. 11.30
matur, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mánu- og fimmtudaga.
Uppl. í síma 565-6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli á morgun,
föstudag, kl. 14 til 16.
Munið gíróseðlana fyrir
ársgjaldi og nálgist
félagsskírteinið í
Hraunseli og njótið
þeirra hlunninda er það
gefur. Félagsheimilið
Hraunsel er opið alla
virka daga frá kl. 13 til
17. Komið í kaffi og
kynnist starfseminni.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Matur í há-
deginu. Í dag, fimmtu-
dag: Brids spilað kl 13.
Á sunnudaginn verður
fyrsti dansleikur eftir
sumarfrí. Dansleikur-
inn hefst kl. 20, hljóm-
sveitin Capri Tríó leik-
ur fyrir dansi. Dagsferð
28. ágúst. Veiðivötn –
Hrauneyjar. Brottför
frá Glæsibæ kl. 8. Leið-
sögn Tómas Einarsson.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12 f.h. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10–16 í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–11
morgunkaffi, kl. 9–16
sjúkraböðun, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 11.30–
13 hádegisverður, kl.
15–16 eftirmiðdags-
kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæfing-
ar í Breiðholtslaug kl.
9.30, kl. 10.30 helgi-
stund frá hádegi spila-
salur og vinnustofur
opin. Allar veitingar í
veitingabúð Gerðu-
bergs. Miðvikudaginn
22. ágúst er ferðalag í
Árnesþing „Árborgar-
svæðið“, skráning haf-
in. Allar upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–15.
Hraunbær 105. Kl. 9
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, bútasaumur,
kortagerð og perlu-
saumur, kl. 9.45 boccia,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 13
handavinna.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.40 útskurður, kl. 9–
16.40 opin vinnustofa.
Mosfellingar – Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri. Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
kennari er með göngu-
ferðir á miðvikudögum,
lagt af stað frá Hlað-
hömrum: Ganga 1: létt
ganga kl. 16 til 16.30.
Gönguhópur 2: kl.
16.30.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð og kaffi, fóta-
aðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl.
9.15–15.30 almenn
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 11.45 matur,
kl. 13–14 leikfimi, kl.
14.30 kaffi. Leikfimin
er byrjuð eftir sum-
arfrí, þriðjudaga kl. 11–
12 og fimmtudaga kl.
13–14 í umsjá Jónasar.
Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og al-
menn handmennt, kl.
10 boccia og fótaað-
gerðir, kl. 11.45 matur,
kl. 13 frjálst spil, kl. 14
létt leikfimi, kl. 14.30
kaffi.
Ga-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Púttklúbbur Ness.
Meistaramót verður á
Rafstöðvarvelli í dag
fimmtudag kl. 13.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vestmanna-
braut 23, s. 481-1826. Á
Hellu: Mosfelli, Þrúð-
vangi 6, s. 487-5828. Á
Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
Íris, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur,
Oddabraut 20, s. 483-
3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Víkur-
braut 62, s. 426-8787. Í
Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í
Bókabúð Keflavíkur
Pennanum, Sólvalla-
götu 2, s. 421-1102 og
hjá Íslandspósti, Hafn-
argötu 89, s. 421-5000. Í
Vogum: hjá Íslands-
pósti b/t Ásu Árnadótt-
ur, Tjarnargötu 26, s.
424-6500, í Hafnarfirði:
í Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 64, s.
565-1630 og hjá Penn-
anum-Eymundssyni,
Strandgötu 31, s. 555-
0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu LHS, Suður-
götu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegs Apóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bónus-
húsinu, Suðurströnd 2,
Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Á Akranesi: í Bóka-
skemmunni, Stillholti
18, s. 431-2840, Dal-
brún ehf., Brákar-
hrauni 3, Borgarnesi og
hjá Elínu Frímannsd.,
Höfðagrund 18, s. 431-
4081. Í Grundarfirði: í
Hrannarbúðinni,
Hrannarstíg 5, s. 438-
6725. Í Ólafsvík hjá
Ingibjörgu Pétursd.,
Hjarðartúni 1, s. 436-
1177.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Á Suðureyri: hjá Gesti
Kristinssyni, Hlíðar-
vegi 4, s. 456-6143. Á
Ísafirði: hjá Jóni Jó-
hanni Jónss., Hlíf II, s.
456-3380, hjá Jónínu
Högnad., Esso-verslun-
inni, s. 456-3990 og hjá
Jóhanni Káras., Engja-
vegi 8, s. 456-3538. Í
Bolungarvík: hjá Krist-
ínu Karvelsd., Mið-
stræti 14, s. 456-7358.
Í dag er fimmtudagur 16. ágúst,
228. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
„En þér eruð mínir sauðir. Mín
gæsluhjörð eruð þér. Ég er yðar
Guð, – segir Drottinn Guð.“
(Esek. 34, 31.)
LÁRÉTT:
1 súlu, 4 blett, 7 flautar, 8
meðölin, 9 ber, 11 skökk,
13 fugl, 14 óskar eftir,
15 lof, 17 bára, 20 púka,
22 dulið, 23 laun, 24
vætla, 25 stólpi.
LÓÐRÉTT:
1 drekkur, 2 niðurgang-
urinn, 3 trjámylsna, 4
þukl, 5 örðug, 6 kven-
menn,
10 bætir við, 12 léttúðar-
drós, 13 heiður, 15 byssu,
16 lystarleysi, 18 ganga,
19 hinn, 20 spil, 21 forar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 herfilegt, 8 skjór, 9 nýrun, 10 Jón, 11 merja, 13
aflar, 15 stygg, 18 stáls,
21 æra, 22 logns, 23 lemur, 24 jafnframt.
Lóðrétt: 2 erjur, 3 ferja, 4 linna, 5 geril, 6 ásum, 7 knár,
12 jag, 14 fet, 15 sálm,
16 ylgja, 17 gæsin, 18 salur, 19 álmum, 20 súra.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI átti fyrir skömmuerindi í apótek. Allmargt fólk
var í apótekinu og margir að bíða
eftir afgreiðslu. Á undan Víkverja
var stúlka sem bað afgreiðslukon-
una um svokallaða „daginn eftir
pillu“. Konan sagði að til að geta
keypt hana þyrfti hún að ræða við
lyfjafræðing. Síðan kallaði hún á
lyfjafræðing sem hlustaði á erindi
stúlkunnar. Það gerðu líka aðrir
sem voru í apótekinu og biðu af-
greiðslu.
Það eru ekki nema nokkur miss-
eri síðan apótekum var heimilað að
selja „daginn eftir pilluna“. Það
skilyrði var sett að salan færi fram
fyrir milligöngu lyfjafræðings sem
hefði eftirlit með sölunni og veitti
kaupendum leiðbeiningar. Þessi
pilla er notuð til að koma í veg fyrir
ótímabæra þungun og með því að
auðvelda konum aðgang að henni er
stefnt að því að fækka fóstureyð-
ingum. Það er hins vegar sjálfsögð
kurteisi við konur að þær geti borið
upp erindi sitt við starfsfólk apó-
teka án þess að aðrir viðskiptavinir
eigi möguleika á að hlusta á það.
Ströng krafa er gerð um persónu-
vernd í heilbrigðiskerfinu og apótek
verða að sjálfsögðu að fella sig und-
ir þær kröfur, ekki síst þegar um er
að ræða jafnpersónuleg mál og hér
um ræðir.
x x x
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ íknattspyrnu ætlar að þróast
með nokkuð óvæntum hætti. Flestir
reiknuðu með að KR yrði í barátt-
unni um Íslandsmeistaratitilinn, en
liðið er nú í harðri baráttu um að
forðast fall. Fyrir nokkrum vikum
blasti ekkert nema fall við Fram, en
nú er liðið á mikilli siglingu. Spenna
er einnig í toppi deildarinnar.
Margt benti til að Fylkir væri að
tryggja sér sigur í deildinni, en liðið
hefur hins vegar verið að tapa stig-
um að undanförnu á sama tíma og
Akurnesingar vinna hvern leikinn á
fætur öðrum. Svo kann því að fara
að Fylkir missi naumlega af Ís-
landsmeistaratitlinum annað árið í
röð.
Árangur Akurnesinga er athygl-
isverður, ekki síst í ljósi þess að
ekki er langt síðan fréttir bárust af
miklum fjárhagserfiðleikum knatt-
spyrnudeildar ÍA. Stjórnendur
deildarinnar gripu til þess ráðs að
lækka laun leikmanna. Horfið var
frá þeirri stefnu að kaupa „stjörnu-
leikmenn“ til liðsins, en í stað þess
er byggt fyrst og fremst á traustum
hópi heimamanna.
x x x
VÍKVERJI hefur í sumarferðast talsvert um Suðurland
og Vesturland. Hann hefur tekið
eftir því hvað hagi er víða nauðbit-
inn eftir hross. Of víða eru hross
geymd í litlum girðingum þar sem
þau naga svörðinn alveg niður í
mold. Greinilegt er að sumstaðar
leiðir þetta til þess að land spillist.
Hrossum hefur fjölgað mikið á síð-
ustu árum og fer ekki á milli mála
að hross eru orðin allt of mörg í
landinu. Þessi fjölgun er sérkenni-
leg í ljósi þess að afkoma í hrossa-
rækt hefur verið að versna m.a.
vegna erfiðleika við sölu hrossa á
erlenda markaði.
Svo virðist sem margir hrossaeig-
endur átti sig ekki á að verulegur
kostnaður fylgir því að eiga og fóðra
hesta og sjá því ekki samhengið á
milli kostnaðar við reksturinn og
fjölda hrossanna. Þar fyrir utan er
almennt viðurkennt að mesta átak
sem hægt væri að gera í ræktunar-
málum íslenska hestsins væri að
farga lélegustu einstaklingunum.
BRÉFRITARI tók sér
ferð á hendur á Langanes
fyrir stuttu. Í þeirri ferð
vöknuðu ýmsar spurning-
ar.
Gaman væri ef menn á
þessum slóðum vildu gera
eitthvað fyrir þennan stað
því Langanesið er paradís
fyrir útivistarfólk og býður
upp á marga möguleika,
t.d. gönguferðir, hesta-
ferðir, fjöruferðir, náttúru-
skoðun margs konar,
margbrotið fuglalíf, fallegt
stuðlaberg o.fl., og heim-
sókn á gamlan útgerðar-
stað, Skála. Þarna er allt
ósnert af mannahöndum.
En þá komum við að
einu stóru vandamáli. Nes-
ið er varla fært nema fugl-
inum fljúgandi. Á vega-
kortum er sýndur þar
vegaslóði. Það nafn er
sennilega of gott fyrir
þennan slóða og tók það
t.d. um 10–12 tíma að
komast út á Font og til
baka með viðkomu á Skál-
um (slóðin þangað er enn
verri). Slóðin er mjög
grýtt og í henni hvasst
grjót þannig að ekki er
nokkur leið að fara hraðar
en á gönguhraða meiri
hluta leiðarinnar. Hvernig
stendur eiginlega á því að
ekki er veitt fé í það að
gera við veginn? Á all-
nokkrum stöðum sáust
malagryfjur svo ekki þarf
að fara langt eftir efni til
ofaníburðar. Það vakti
undrun að á gömlu veð-
urathugunarstöðinni í
Skoruvík er búið að búa til
ágætis tjaldstæði með
snyrtiaðstöðu. En sá stað-
ur nýtist eingöngu fyrir
gönguhópa, hestamenn og
jeppamenn. Komið er í
Skoruvík eftir að búið er
að klöngrast þónokkuð
lengi á allgjörri ófæru.
Sögu Skála á Langanesi
hefur að því er virðist ekki
verið gefinn mikill gaumur
og sögunni ekki heldur
haldið við og er það eig-
inlega merkilegt hvað fólk
veit lítið um þá stórmerki-
legu sögu sem staðurinn á.
Samkvæmt bókum sem
bréfritari sá þá munu 3–
400 manns hafa búið þarna
þegar mest var. Þar var
mikil útgerð og frystihús,
hús og bryggja voru upp-
steypt. Þannig að staður-
inn ber merki um óhemju
dugnað og þá elju sem
þetta fólk hafði. Svo virð-
ist, af bókum, sem stór
hluti þeirra sem þarna
bjuggu hafi farið til Kan-
ada. Er þá hugsanlegt að
öll tengsl við staðinn hafi
dottið niður? Gaman væri
ef einhver/einhverjir gætu
upplýst um þau atriði sem
spurt er um.
Ferðalangur.
Þakkir til lögregl-
unnar á Húsavík
SÍÐASTLIÐINN föstu-
dag, 10. ágúst, var mæl-
ingamaður frá Verkfræði-
stofu Austurlands á
Egilsstöðum að vinna við
mælingar vegna vegagerð-
ar við Skjöldólfsstaði á
Jökuldal. Mælingamaður-
inn, sem reyndar er
stúlka, hafði brugðið sér í
kaffi í nærliggjandi vinnu-
skúr og skilið GPS-mæli-
staf með áföstum móttak-
ara og gagnastokk eftir
við vegkantinn. Þegar hún
kom að vörmu spori til
baka var mælibúnaðurinn
horfinn. Sést hafði til bíls
sem leið átti hjá og hafði
stöðvað og snúið við til
þess að taka búnaðinn.
Greinargóð lýsing sjónar-
votta var að þessu tiltæki
ökumannsins ásamt lýs-
ingu á ökutæki hans. Hann
hélt síðan áfram upp Jök-
uldal og að því er ætlað
var norður í land. Hringt
var í lögregluna í Húsavík
og hún beðinn að aðstoða
við að hafa uppi á bílnum
ef hann birtist í þeirra um-
dæmi. Við á verkfræðistof-
unni viljum þakka við-
brögð þeirra Bjarna
Höskuldssonar og Hreið-
ars Hreiðarssonar í lög-
reglunni á Húsavík og
jafnframt biðja þá afsök-
unar sem alsaklausir urðu
fyrir ónæði af þessari eft-
irgrennslan.
Sveinn Þórarinsson,
verkfræðingur
á Egilsstöðum.
Aðkoma að
Dettifossi
ÉG kom að Dettifossi í síð-
ustu viku með tvær aldr-
aðar konur. Við lögðum af
stað eftir stígnum að foss-
inum, en þær urðu að snúa
til baka því það er svo
stórgrýtt og illt yfirferðar
í brekkunni þrátt fyrir að
búið sé að lagfæra síðan
ég var þarna síðast á ferð.
Það þyrfti að setja upp
góðan tréstiga með hand-
riði þarna, svo allir geti átt
greiðan aðgang að útsýn-
ispallinum við fossinn.
Ferðalangur.
Tapað/fundið
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA fannst í
Austurstræti 12. ágúst sl.
Uppl. í s. 551-3602.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
TVEIR þriggja mánaða
kettlingar fást gefins á góð
heimili. Annar er grár og
hvítur, en hinn er grá-
bröndóttur og hvítur.
Uppl. í s. 557-8078.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Langanes
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16