Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ LAUGAVEGI, S: 511 1717 ÚTSÖLULOK ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR eva LAUGAVEGI 91 (2. HÆÐ) s. 562 0625 GERARD DAREL - DKNY - NICOLE FARHI - JOSEPH - PAUL ET JOE - TARA JARMON - CUSTO verðdæmi: Dömur: frá: Bolir 500.- Buxur 1990.- Gallabuxur 2990.- Kjólar 2900.- Herrar: frá: Bolir 990.- Buxur 3500.- Jakkaföt 9900.- Skyrtur 1900.- Skór: frá: Hælaskór 1990.- Götuskór 2990.- Leðurstígvél 5990.- LAUGAVEGI Diesel Calvin Klein jeans Kookai Tark Imitz Laura Aime French connection Matinique Mao All saints Morgan 4 you Parks Free Billi bi Vagabond Zinda The Seller ÚTSÖLULOK Allt að 70% afsláttur um helgina nýtt kortatímabil nýtt kortatímabil nýjar haustvörur nýjar haustvörur um helgina NÚ ER „eighties“-hátíð Fil-mundar um garð gengin, enhann hefur þó ekki alveg sagt skilið við níunda áratuginn, en fimmtudaginn 16. ágúst verða dekkri hliðar þessa tíma til umfjöllunar. Þá sýnir Filmundur hina umdeildu spennumynd Cruising, frá 1980, sem er leikstýrt af William Friedkin, en hann er þekkt- astur fyrir The French Connec- tion og The Exorc- ist. Með aðalhlut- verk fara Al Pacino, Paul Sorv- ino og Karen All- en. Fjöldamorð- ingja leitað Sögusvið Cruis- ing eru S/M klúbb- ar og barir sam- kynhneigðra karlmanna í New York undir lok átt- unda áratugarins. Rannsóknarlög- reglumaðurinn Steve Burns fær það verkefni að hafa uppi á fjöldamorðingja sem pikkar menn upp á umræddum bör- um og tekur þá síðan af lífi á afar hrottafenginn hátt. Steve á von á stöðuhækkun ef hann stendur sig vel í þessu verkefni, sem hann var valinn í vegna þess hversu líkur hann er fórnarlömbum morðingjans. Hann fer á milli bara og klúbba í von um vísbendingar og smám saman aðlag- ast hann andrúmsloftinu á börunum. Heimilislífið er ekki sem skyldi og Steve finnur fyrir áhuga á leikskáld- inu Ted, samkynhneigðum nágranna sínum. Ekki verður uppljóstrað frekar um atburðarásina hér, en ljóst er að Steve er engan veginn samur í lok myndarinnar. Cruising vakti mikil viðbrögð og deilur á sínum tíma, bæði fyrir op- inskáar tökur af ofbeldi, sem og birt- ingamyndir samkynhneigðar í myndinni. Reynt var að stöðva tökur og mörg kvikmyndahús neituðu að taka myndina til sýninga. Samkyn- hneigðir voru hræddir um, að efn- istök myndarinnar ættu eftir að sverta og skrumskæla samkyn- hneigð í augum almennings. Ótti þeirra var að mörgu leyti skiljanleg- ur, S/M menningin var engan veginn jafnáberandi og útbreidd og hún er í dag. Einnig voru erfiðir tímar þar sem Reagan var nýsestur á forseta- stól og eins og kunnugt er boðaði hann afar einstrengingslega fjöl- skyldustefnu, sem gerði samkyn- hneigðum, sem og öðrum hópum á jaðrinum, erfitt fyrir. Breytt viðhorf Viðhorf margra í hópi samkyn- hneigðra í garð Cruising hafa breyst mikið og má segja að myndin hafi verið tekin í sátt. Margir hafa til dæmis túlkað myndina sem ádeilu á ofbeldi lögreglunnar gagnvart sam- kynhneigðum og einnig má benda á að S/M menn- ingin er ekki jafnneðanjarðar og áður og eru menn á borð við listamanninn Ro- bert Mapplethorpe, sem var áber- andi á þessu sviði og túlkaði and- rúmsloft þessarar menningar í verkum sínum, nú taldir með merki- legri listamönnum þessara tíma. Það má að vissu marki segja að það hafi verið nokkuð frumlegt hjá Friedkin að nota þennan samfélags- kima sem sögusvið fyrir Hollywood- mynd, en það má geta þess að hann notaði ekki atvinnuleikara í atriðun- um sem tekin voru upp á klúbbunum og börunum, heldur eiginlega við- skiptavini staðanna. Þó verður ým- islegt í túlkun hans á þessu sögusviði sem hann velur sér að teljast afar hæpið, það virðist til dæmis fremur einfeldningslegt í ljósi þess tíma sem liðinn er, að skilgreina morð sem rökrétta afleiðingu S/M menningar- innar. Að þessu leyti er Cruising barn síns tíma. En hún er forvitnileg fyrir margra hluta sakir og Al Pac- ino svíkur engan fremur en fyrri daginn. Cruising verður sýnd fimmtudag- inn 16. ágúst kl. 22:30 í Háskólabíói og endursýnd mánudagskvöldið 20. ágúst á sama tíma. Af tæknilegum ástæðum hefur ekki verið hægt að skrá sig í Fil- mund á heimasíðu klúbbsins undan- farið, og er þeim sem vilja fá frétta- bréf Filmundar bent á að senda línu á filmundur@haskolabio.is. Samkynhneigð undir smásjána Pacino í hlutverki sínu í Cruising. Filmundur sýnir Cruising
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.