Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 57

Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 57 Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! l i l i lí i . ! i i l i... ! Myndin sem manar þig í bíó Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Dýrvitlaus og drepfyndinn Með Rob Schneider úr Deuce Bigalow: Male Gigolo i i l : l i l  EÓT Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6.  Strik.is Sýnd kl. 8 og 10. ATH. myndin er sýnd óklippt. B. i. 16. ( ) Stærsta grínmynd allra tíma! Frábær hasar og grínmynd sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum Síð ust u s ýni nga r Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800 EINA BÍÓIÐ MEÐ THX DIGITAL Í ÖLLUM SÖLUM FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Varaðu hvað þú gerir í tölvunni þinni! Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.05. B.i.16 ára Vit nr. 257. Sýnd kl., 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Vit nr. 244 Kvikmyndir.com  strik.is  DV KISS OF THE DRAGON ÚR SMIÐJU LUC BESSON SV MBL Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit nr. 261. JET LI BRIDGET FONDA Sýnd kl. 5.50. Vit 255. Snorrabraut 37, sími 551 1384 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ  ÓHT Rás2  RadioX  Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.10. B. i. 16 ára. Vit 247. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit nr. 261. Varaðu hvað þú gerir í tölvunni þinni! www.sambioin.is Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i.16 ára Vit nr. 257. Hörkutólið Jet-Li (Lethal Weapon 4, Romeo must Die) í sínu besta formi til þessa í spennutrylli eftir handriti Luc Besson KISS OF THE DRAGON ÚR SMIÐJU LUC BESSON JET LI BRIDGET FONDA Hraðlestrarnámskeið Lestur er undirstaða alls náms og mjög mikilvægur við flest störf. Því hraðar sem þú lest, þeim mun meiri verða afköstin. Er ekki kominn tími til að þú aukir afköstin? Lestrarhraði þátttakenda fjórfaldast að jafnaði á námskeiðunum. Við ábyrgjumst að þú nærð árangri. Næsta námskeið hefst 22. ágúst. Skráðu þig strax í síma 565-9500 HRAÐLESTRARSKÓLINN w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s ÞAÐ er löngu sannað að það þarf gríðarlega hæfileika til, ætli menn sér að búa til þunna, innantóma en grípandi tónlist en sú iðja hefur frá fornu fari verið eðlilegur hluti þeirr- ar sköpunar sem fram fer innan dægurtónlistar. Snobbhænsnum og grunnhyggnu fólki hættir til að blása á þess háttar aðfarir og álíta tónlist- ina drasl en vonandi er slíkur barna- skapur á undanhaldi því þessi góða og gilda listræna nálgun hefur fylgt mannskepnunni allt síðan hún tók að humma með sér ein- faldar barna- gælur. Birtingarform þessarar speki er margs konar í dægurtónlistinni en ein algerasta stefnan er hiklaust tyggjókúlurokkið sem hófst í enda sjöunda áratugarins (Monkees, The Lemon Pipers, The Partridge Fam- ily, Ohio Express). Fyrst til að blása upp kúluna áhrifaríku var þó hin af- káralega nefnda The 1910 Fruitgum Company en fyrir stuttu kom út safnplata með þessari holu en ynd- islegu sveit. Sveitin var sett saman af upptöku- stjórunum Jerry Kasenetz og Jeff Katz og sló fyrsta lagið, „Simon Says“, óforvarandis í gegn árið 1968. Sjálf tónlistin byggist upp á tilvís- unum í einfalt griparokk bílskúrs- rokksbylgjunnar (e. garage rock), skreytt barnalegu orgelpípi og enda- lausum „la-la-la-la“ viðlögum. Text- arnir haglega samsettar en heila- lausar vangaveltur um ástir unglinganna þar sem mikið er rætt um sælgæti; brjóstsykur og skyld sætindi. Skothelt, nema hvað! Þar sem sveitin var fyrst og fremst hljóðverstæki og smella- smiðja rann mikið af tónlistarmönn- um inn og út úr henni. Hverjir voru í henni var minnsta áhyggjuefnið hjá „sköpurunum“. Tyggjóblaðran sprakk loks eftir tveggja ára tilvist og 6 breiðskífur – hvorki meira né minna. Verksmiðjuframleiddum ofurgríp- andi lagstúfum hélt þó áfram að rigna statt og stöðugt niður á popp- unnendur, og gerir enn. Gæðin þó vissulega æði misjöfn; enda þrífast bæði snilldartaktar og ömurlegheit innan þessarar listsköpunar sem annarrar. Popp er ekkert popp, svo mikið er víst! FORVITNILEG TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen The 1910 Fruitgum Company LJÚFIR TÓNAR úr þekktum söng- leikjum munu hljóma í Kaffileikhús- inu í kvöld en þar stígur á svið söng- konan Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir. Sigríður er útskrifuð af söng- leikjabraut úr Guildford School of Acting í Englandi og starfaði á síð- asta ári hjá Leikfélagi Akureyrar þar þem hún fór með hlutverk lag- lausrar stelpu í Balli í Gúttó. „Mig langaði að halda tónleika til að sýna hvað ég hef verið að gera,“ segir Sigríður þegar hún er spurð um tilefni tónleikanna. Sigríður ætlar að syngja lög úr söngleikjunum Annie, Galdrakarl- inum í Oz, Showboat og Cabaret, svo fáir einir séu nefndir. Eftirlætis söngleikir Sigríðar eru Into The Woods og Annie, en þann síðarnefnda hefur hún haldið upp á síðan hún var lítil. Aðspurð segir Sigríður söngleik- ina þó ekki endilega vera það sem heilli hana mest við leiklistina þótt þeir hafi gert það fyrst. Sigríður er nú við söngnám í tón- listarskóla FÍH. „Ég er skráð á klassíska braut en ég fæ samt svolítið að ráða hvað ég syng,“ segir Sigríður. „Kannski eru svona 60 prósent af því sem ég syng söngleikir og djass. Klassíkina tek ég svo með til að halda mér við og æfa tæknina.“ Með Sigríði í kvöld leikur píanó- leikarinn Agnar Már Magnússon. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er miðaverð 1.000 krónur. Söngleikjalög í Kaffileikhúsinu Morgunblaðið/Billi Sigríður Eyrún Friðriksdóttir syngur fyrir gesti Kaffileikhússins í kvöld. birta@mbl.is Sigríður Eyrún Friðriksdóttir syngur við undirleik HINN umdeildi leiksjóri Apaplánet- unnar, Tim Burton, sagði nýlega í viðtali við netblaðið Empire Online að hann hefði engan áhuga á því að gera framhaldsmynd endurgerðar- innar sem slegið hefur í gegn í kvik- myndahúsum vestra. „Ég velti því fyrir mér í fyrstu,“ viðurkenndi leikstjórinn þó. „En sú hugmynd að ryðjast út í einhverja slíka framkvæmd núna fær mig til að vilja frekar stökkva út um gluggann. Ég sver það!“ Endir nýju myndarinnar er ekk- ert síður átakanlegri en þeirrar upp- runalegu, og kemur flestum í opna skjöldu. Þó eru myndirnar afar ólík- ar hvað söguþráð varðar því ekki er verið að apa eftir þeirri gömlu. Menn eru því auðvitað mishrifnir. Þegar Burton var svo spurður að því hver merking hins ævintýralega endis væri var hann í engu skapi til þess að aðstoða þá bíógesti sem hafa gengið út úr bíóhúsinu að mynd lokinni, klórandi sér í höfðinu og nagandi neglurnar. „Nei, ég ætla ekkert að vera að skýra endinn út fyrir ykkur,“ svaraði hann stríðnislega. „Ég vil það ekki af því að ein ástæðan fyrir því að ég er svona hrifinn af þessari sögu er sú að hún hefur svona „farðu í rassgat“ endi. Þetta meina ég ekki á neikvæð- an hátt. Þannig að það er grundvall- aratriði fyrir mig að gefa ykkur ekki nein svör. Ég hef alltaf fyrirlitið bók- stafstúlkun þjóðfélagsins, þessa endalausu fylgispekt. Þú uppgötvar það fljótlega á lífsleiðinni að þetta er allt bölvuð vitleysa. Ég meina, hvað er fylgispekt? Hún gerir bara lítið úr fólki og flokkar það niður, og ég þoli það ekki. Sem sagt, mér finnst gam- an að rugla fólk í ríminu.“ Þótt undarlegt megi virðast var það ekki auðvelt verk fyrir Burton að gera myndina, sérstaklega í ljósi þess að hann er haldinn ofsahræðslu við apa. „Þetta eru verstu skepnur á jörð- inni,“ fullyrðir Burton. „Ef þú rann- sakar prímata og menningu þeirra þá kemstu m.a. að því að á meðal þeirra eru fjöldamorðingjar. Við er- um látin trúa því frá unga aldri að þeir séu afar líkir mönnum og svo eru þeir alltaf gerðir svo sætir. En það er bara útlitið. Þeir eru gífurlega sterkir og stundum sturlast þeir og ráðast á þig. Einn daginn var einn þeirra að reyna að fá mig til samræð- is við sig, en þann næsta þá gerði hann ekkert nema hrækja á mig og kasta í mig skít.“ Að lokum kom fram að Burton hefur ekki ákveðið ennþá hvaða verkefni hann tekur að sér næst, hann sagðist þó hafa áhuga á því að gera eitthvað minna áberandi. Tim Burton tjáir sig um Apaplánetuna Hefur ekki áhuga á framhaldsmynd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.