Vísir - 30.06.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 30.06.1979, Blaðsíða 8
Laugardagur 30. júnf 1979. 8 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davlð GuAmundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Hörfiur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elías Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreif ingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8. Simar 84íll og 82260. Afgreifisla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Slöumúla 14 simi 86611 7 linur. 'Askrift er kr. Mf á mánuöi^ innaniands. Verö I lausasötu kr. IN eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f ErfiOleikar Ekki verður sagt, að neinum hafi þurft að koma á óvart þær sparnaðarráðstafanir, sem stjórnendur Flugleiða hafa nú kunngert. Fækkun ferða á flug- leiðum innan lands og utan og uppsögn 200 starfsmanna, og síðar jafnvel fleiri til viðbótar,, mun koma illa við marga, sér- staklega þó þá, sem missa at- vinnu sína vegna þessara sam- dráttaraðgerða. Á þessari stundu er ástæða til að minna menn á að beina sjónum sínum ekki eingöngu að þessum neikvæðu atvikum. Hitt er aðalatriðið, að með þeim ráð- stöfunum, sem nú hefur verið gripið til, eru stjórnendur fyrir- tækisins að reyna að bjarga því frá falli og um leið að bjarga 1000-1100 störfum. Og takist vel til, þá er með ráðstöf ununum nú verið að leggja drög að því að efla fyrirtækið á nýjan leik og skapa um leið atvinnurækifæri fyrir enn fleiri en þar hafa áður starfað. Það er með þessu hugarfari, sem menn bæði innan fyrirtæk- isins og utan verða að meta þær ákvarðanir stjórnenda þess, sem kynntar hafa verið. Á þetta er full ástæða til að minna m.a. ýmsa starfshópa innan fyrirtæk-- isins, sem oft og tíðum hafa hag- Fiugieiða ur flugfélög, sem innanlandsflug stunda, til stórfellds tapreksturs á innanlandsf lugleiðunum. Þessar verðlagshömlur sem aðr- ar eru alltaf réttlættar með því að verið sé að halda niðri verð- laginu almenningi til hagsbóta. Nú fá menn að sjá framan í hin- ar raunverulegu afleiðingar verðlagshaftanna: minnkaða þjónustu og uppsögn starfs- manna. Ætli þeir starfsmenn Flugleiða, sem missa atvinnu sína, og fjölskyldur þeirra, og allir þeir, sem verða að sætta sig við skerta þjónustu á næstunni, verði ekki þakklátir íslenskum stjórnvöldum undanfarinna ára fyrir að hafa haldið niðri far- gjöldunum innanlands? Hvað ætli margar uppsagnir nú megi beinlínis rekja til verðlagshaft- anna síðustu árin? Það er síður en svo, að núver- andi stjórnvöld eigi hér alla sök. En síðustu atburðir hjá Flug- leiðum verða þeim og sfðari stjórnvöldum vonandi holl lexía. Stjórnendur Flugleiða hafa sem betur fer tekið þann kostinn að leita ekki á náðir ríkisins í þeim erfiðleikum, sem að steðja. En það ætti ekki að vera til of mikils mælst, að ríkisvaldið hætti að bregða fæti fyrir heilbrigðan rekstur félagsins. Nú er aö þvl lcomið, að Flugleiðir verða að draga saman seglin I innanlandsfluginu vegna tapreksturs. Verðlagshöft stjórnvalda eiga sök á þeim taprekstri. Er ekki kominn timi til, að hinum Háskalegu verðlagsákvæðum verði aflétt? að sér eins og þeim væri heildar- afkoma þess dviðkomandi og hafa þráfaldlega valdið því stór- tjóni með óbilgirni og kröfu- hörku. Þessir hópar sjá nú von- andi sóma sjnn í því að standa við bakið á stjórnendunum, sem hinar erfiðu ákvarðanir þurfa að taka. Hið mikla rekstrartap Flug- leiða á siðasta ári og fyrirsjáan- legt stórtap á þessu ári er í raun og veru óhjákvæmileg afleiðing þeirra erfiðleika, sem við hefur verið að glíma: harðnandi sam- keppni á Atlantshafsflugleið- inni, stórhækkandi eldsneytis- kostnaður og nú síðast kyrrsetn- ing stærstu og afkastamestu flugvélar félagsins. Auk þess geta stjórn og starfsmenn Flug- leiða að einhverju leyti kennt sjálfum sér um ófarirnar, því að sundurlyndi og blint hagsmuna- pot einstakra hópa hafa skapað mikla erfiðleika innan félagsins undanfarin ár. Ekki verður svo skilist við rekstrarerfiðleika Flugleiða nú, að ekki verði minnst á þann dap- urlega þátt, sem sjálft ríkisvald- ið á í því, hvernig komið er. Með því að standa í vegi fyrir eðli- legri verðlagningu á fargjöldum í innanlandsfluginu hafa stjórn- völd neytt bæði Flugleiðir og önn- vangaveltur Að reikna bam í EITTHVURT mesta afrek ger- vallrar stæröfræöinnar um viöa veröld viröist sú tiltekt Sölva Helgasonar þegar hann reiknaöi barn i kvenmann á fyrri tiö. Raunar fannst mönnum þá ekki sérlega mikiö til um þetta verk þvi unnt haföi reynst aö beita annarskonar visdómi i þvi starfi — og meö góöum árangri, nota- bene. En i dag vinna séniin hvert stórvirkiö af ööru makalausara i stæröfræöi. Ber einna hæst á þvi sviöi þá snilldartakta flug- stjóra þegar þeim gómuöu sér nýveriö allt uppi 270 þúsund króna kauphækkun á mánuö meö einföldum prósentureikn- ingi. Vitaskuld er þetta ekki nema smá-hækkun, hæstalagi 20 pró- sent ef maöur er farinn aö teygja sig slattakorn uppá aöra milljón i mánaöarlaun. Sam- bærileg hækkun hjá verka- manni næöi kannski 20 þúsund- um á mánuöi — sem eftir pró- sentureikningi er nákvæmlega sama upphæöin og 270 þúsund. Og tölvisinni ber aö hlýöa. Hún er réttlát og óyggjandi, annaö- eins réttlæti þekkist ekki 1 sam- anlagöri kristninni og þótt bætt sé viö ööru heimstlmabili. Verkamaöurinn hlypi raunar hæö sina i loft upp I öllum skfta- gallanum ef hann ætti völ á slik- um tuttugu þúsunda glaöningi i umslagiö nú og eftirleiöis, gott ef hann ekki héldi aö hann gæti fariö aö byggja i Arnarnesinu. En þau tuttugu þúsund mundu náttúrlega kosta kvein og harmatölur um aö þjóöin færi á hausinn, einkumog sérilagi at- vinnuvegirnir. Hinsvegar heyrist aldrei aö flugstjórar setji nokkra þjóö á hausinn. Um þá formerkist helst aö ef þeir fá ekki þaö sem þeir vilja, ja þá séu þeir, fanden gale mig, stokknir til annarra landa. Þetta heitir verkalýösbarátta. Og verkalýösbarátta er aöal- lega prósentureikningur núorö- iö. Sú barátta upphófst fyrir langalöngu meö þvi aö þeir sem lægst fengu launin höföu af- skaplega lág laun, og hinir meö „breiöu bökin” voru meö sér- deilislega breiö bök. Um þetta leyti voru atvinnuvegirnir fundnirupp. Áöur þekktust ekki „atvinnuvegir”, menn bara veiddu fisk og stunduöu búskap ellegar smiöar — og þannig höföu þeir aö éta.... oftastnær. En þegar búiö var aö finna upp atvinnuvegina kom i ljós aö ekki borgaöi sig aö veiöa fisk og vinna viö fisk og soleiöis ef þeir sem þau verk inntu af hendi fengju alminlega aö éta. Verka- lýösbarátta hófst beinllnis af þvi aö atvinnuvegirnir voru svo ó- skaplega mikiö á hausnum aö þeir gátu ekki látiö verkamenn hafa aö éta, og sýnast þó kröf- urnar I þá daga ekki risavaxn- ar: hafragrautur og ýsa — þaö var herramannsmatur á sunnu- dögum. Svo verkamenn geröu verk- fall og knúöu fram hærra kaup, og atvinnuvegirnir héldu áfram aö vera á hausnum — lakara var þaö nú ekki. En fátækling- arnir meö „breiöu bökin” Sigvaldi Hjálmars- son skrifar brugöu viö hart: Þessir verka- menn reynast déskoti sniöugir kallar og kunna aö halda á sin- um hlut I samkeppnisþjóöfélag- inu, svona er þá þeirra kapital- ismi!... kannski viö fylkjum liöi meö þeim ef viö fáum aö nota prósentureikning?! Þaö var þá sem þessir „meö breiöu bökin” fóru aö gera verkföll — allir fóru að gera verkföll, þversum og langsum, upp og niöur, suöur og noröur og mest gegn sjálfum sér! En sam- komulag náöist aldrei um ann- aöen prósentureikning. Og atvinnuvegirnir héldu baki brotnu áfram að fara á hausinn. Annar kapituli i sögu stærö- fræöilegra afreka i samfélagi voru reyndist meö svofelldu móti: Einhverjum opinberaðist aö ef skynsamlegt sýndist aö þjóö- nýta gróöa væri trúlega enn viturlegra aö þjóönýta tap. Fyr- ir þvi fengu vaskir menn og snjallir á fund sjálfrar rikis- stjórnarinnar og hún mælti af djúpri visku: Þiö hækkiö kaup meö prósentureikningi yfir alla linuna, en viö lækkum krónuna með prósentureikningi á móti. Amen. Þetta þótti góö latfna og sýndi dásemdir stæröfræöinnar nú I dag ekki siöur en á dögum Sölva Helgasonar. Hélt svo fram um hriö uns þar kemur aö greina veröur frá þriöja kapitulanum sem þannig hljóöar I nafni allra heilagra: Góöir menn viðurkenna aö þegar illa árar beri aö leggja þyngstu byröarnar á „breiðu bökin”, flugstjóra ogsvofram- vegis, right? Jafna kjörin, right? Hygla þeim sem lægst eru launaðir, right? Þetta er þulið eins og Faöir- voriö kvölds og morgna og sjö sinnum á sunnudögum. Og til þess aö jafna kjörin þarf stæröfræöi og sú stæröfræöi er prósentureikningur, einsog nú skal útmálaö réttilega: Viö hækkum alla um tiu pró- sent, þaö er jafntef allir hækka jafnt...sem raunar þýöir tiu þúsund handa þeim sem hefur hundraö þúsund fyrir, en hundr- aö þúsund handa „hinum meö breiöa bakiö” sem hefur mill- jón! Hvilik dýrð! Hvilik dásemd! Hve prósentureikningur er mik- il kraftaverkaformúla! Einsýnt að Sölvi hefur brúkað þá reikn- ingsaðferð viö aö hnuöla krakk- anum I kvenmanninum, ella heföi hann orðiö aö notast viö gamla lagið. Meö prósentureikningi: verö- bólgunni haldið áfram. Meö prósentureikningi: kjör lands- manna jöfnuö ár frá ári, áratug eftir áratug, þannig aö þau veröa sifellt ójafnari og ójafn- ari! Bensinlitrinn hækkar reyndar ekki prósentvis meira fyrir flugstjóra en verkamenn, og ekki heldur aörar vörur og þjón- usta — að visu.... Þaö fer ekki milli mála aö Sölvi hefur brúkaö prósentu- reikning. 27.6.1979 reiknmg. 27.6. i kvenmann m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.